Morgunblaðið - 27.04.2002, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 27.04.2002, Blaðsíða 16
AKUREYRI 16 LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ Sælkera kaffi og te. sími 462 2900 Blómin í bænum verður haldinn miðvikudaginn 8. maí kl. 20.00 að Botni, Eyjafjarðarsveit. Venjuleg aðalfundarstörf. Félagar eru hvattir til að mæta, nýir félagar sérstaklega boðnir velkomnir. Stjórnin. Aðalfundur Þroskahjálpar Norðurlandi eystra 2002 EYJAFJÖRÐUR SEM VAXTARSVÆÐI - HVERT ER HLUTVERK AKUREYRAR? Opinn stjórnmálafundur! Byggðarannsóknastofnun boðar til opins stjórnmálafundar um byggðamál í Eyjafirði þriðjudaginn 30 .apríl. Fundurinn verður haldinn í húsnæði Háskólans á Akureyri við Norðurslóð, í sal L 201 og hefst klukkan 20:00. Öllum er heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir. Fulltrúar þeirra flokka og framboða sem bjóða fram til bæjarstjórnar á Akureyri munu flytja framsöguerindi í tveimur umferðum. Að lokinni fyrri framsögu gefst fundarmönnum kostur á fyrirspurnum. Fundarstjóri er Jóhann Ólafur Halldórsson. Nánari upplýsingar í síma 463 0929, eða í netfangi gretar@unak.is BJÖRN Steinar Sólbergsson org- anisti við Akureyrarkirkju hlaut starfslaun listamanns á Akureyri en tilkynnt var um hver hlyti þá nafnbót á Vorkomu menningar- málanefndar sumardaginn fyrsta. Björn útskrifaðist með einleik- arapróf í orgelleik árið 1986. Hann tók við stöðu organista og kór- stjóra við Akureyrarkirkju þá um haustið en kennir auk þess org- elleik við Tónlistarskólann á Ak- ureyri. Hann er formaður Listvina- félags Akureyrarkirkju, listrænn stjórnandi Kirkjulistaviku í Ak- ureyrarkirkju og Sumartónleika í Akureyrarkirkju. Björn Steinar hefur haldið fjölda einleikstónleika hér heima sem og víða um heim. Þá hefur hann leikið einleik með Sin- fóníuhljómsveit Íslands, Kamm- erhljómsveit Akureyrar og The Cleveland Institute of Music Orch- estra. Hann hlaut íslensku bjart- sýnisverðlaunin árið 2001. Aðalsteinn Vestmann hlaut við sama tækifæri viðurkenningu Menningarsjóðs fyrir framlag til myndlistar á Akureyri. Hann hefur verið frístundamálari og sýndi fyrst árið 1952 og hefur upp frá því tekið þátt í fjölda samsýninga auk nokkurra einkasýninga. Aðalsteinn hefur starfað hjá grunnskólum Ak- ureyrar og hafa margir nemenda hans unnið til viðurkenninga og verðlauna á sviði myndlistar, m.a. fékk einn þeirra gullverðlaun á sýningu sem haldin var í tengslum við Ólympíuleikana 1988. Tvær viðurkenningar voru veitt- ar fyrir byggingarlist, annars veg- ar tengivirkishús á Rangárvöllum á Akureyri hannað af Gísla Krist- inssyni og Páli Tómassyni hjá Arkitektur.is og hins vegar svo- nefnt miðbæjarhús, Strandgata 3 hannað af arkitektunum Baldri Ó. Svavarssyni, Jóni Þór Þorvaldssyni og Loga Má Einarssyni hjá Úti og inni, arkitektum. Einnig voru veittar tvær við- urkenningar Húsfriðunarsjóðs. Aðra þeirra hlutu Berglind Vil- hjálmsdóttir og Finnur Sigurðsson fyrir hús sitt við Lundargötu 11 og hina þau Karl Guðmundsson, Sveinbjörg Hallgrímsdóttir og Þór- ir Sigurgeirsson fyrir húsið Að- alstræti 15. Björn Steinar Sólbergsson, organisti við Akureyrarkirkju, hlaut starfs- laun listamanns en tilkynnt var um það á Vorkomu menningarmála- nefndar Akureyrarbæjar á sumardaginn fyrsta. Með honum á myndinni er eiginkona hans, Hrefna Harðardóttir. Björn Steinar hlaut starfslaun listamanns OPINN fundur um framtíð tóm- stundamiðstöðvarinnar Punktsins verður haldinn í húsakynnum Punktsins í Kaupvangsstræti 12 á Akureyri næstkomandi mánudags- kvöld, 29. apríl, og hefst hann kl. 20. Á fundinum verður m.a rætt um hvernig bæjarbúar vilja sjá fram- tíð miðstöðvarinnar fyrir sér. Notendur og velunnarar Punkts- ins eru hvattir til að koma á fund- inn til að segja skoðun sína og sýna samstöðu um uppbyggingu Punktsins. Formlega verða boðaðir Karl Guðmundsson, sviðsstjóri fé- lagssviðs, og frambjóðendur til næstu bæjarstjórnar. Fundarstjóri verður Níels Hafstein, Safnasafn- inu, Svalbarðsströnd. Framtíð Punktsins FINNSKI ljósmyndarinn Pasi Autio og sænska myndlistakonan Char- lotta Östlund, sem dvalið hafa í Gestavinnustofu Gilfélagsins síðast- liðna tvo mánuði, opnuðu í gær sýn- ingu í Ketilhúsinu. Meginþema sýningarinnar er hvaða ímynd Finnar og Svíar hafa um Ísland og hver er afstaða Íslend- inga til þessara ímynda. Einnig verða ljósmyndir af Íslendingum á förnum vegi, íslenskur dýragarður og Íslandskort. Yfirskrift sýningar- innar er „Works by guests“ og stendur hún til mánudagsins 29. apr- íl. Sýningin er opin frá kl. 12 til 18. Ísland í augum Finna og Svía Brúðarsýning BRÚÐARSÝNINGIN Brúðarvönd- urinn 2002 verður haldin nú um helgina í Býflugunni og blóminu við Glerárgötu 36 á Akureyri. Blómaskreytingafólk verslunar- innar ásamt nýkrýndum Íslands- meistara í blómaskreytingum, Vig- dísi Hauksdóttur, sýna það nýjasta í brúðarvöndum og skreytingum, jafnframt því sem nýjustu brúðarbíl- arnir frá Toyota verða sýndir. Jafn- framt verður kynning á hinni ýmsu þjónustu sem viðkemur brúðkaup- inu. Sýningin stendur yfir frá kl. 12 til 18 í dag laugardag og eins á morg- un, sunnudag. ANNA Ólafsdóttir og Helga Er- lingsdóttir hjúkrunarfræðingar kynna nýja þjónustu sem nefnist „Hjúkrun heim“ á félagsfundi Hetj- anna, aðstandenda langveikra barna á Akureyri og nágrenni, en hann verður haldinn næstkomandi mánu- dagskvöld, 29. apríl kl. 20.30 í Ein- ingar-Iðju salnum við Skipagötu 14. Hjúkrun heim er fyrir börn og ung- linga frá 0 til 18 ára, þ.e. þeirra sem þarfnast hjúkrunar í heimahúsum. Hjúkrun heim KARLAKÓR Akureyrar – Geysir heldur vortónleika í Laugaborg, Eyjafjarðarsveit, í dag og hefjast þeir kl. 17. Fyrri vortónleikar kórs- ins voru haldnir í Glerárkirkju sum- ardaginn fyrsta, þeir voru fjölsóttir og hlaut kórinn góðar viðtökur tón- leikagesta, segir í frétt frá kórnum. Efnisskrá er viðamikil og fjölbreytt með íslenskum og erlendum kórlög- um. Söngstjóri er Erla Þórólfsdóttir og píanóleikari er Sólveig Anna Jónsdóttir. Einsöngvarar eru allir úr röðum kórfélaga en þeir eru Björn Jósef Arnviðarson, Guðni H. Guð- mundsson og Þorkell Pálsson. Vortónleikar Karlakór Akureyrar – Geysir HJÁLMAR Blomquist Júlíusson lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Ak- ureyri í gær, föstudag- inn 26. apríl. Hjálmar fæddist 16. september 1924 á Sunnuhvoli á Dalvík. Foreldrar hans voru Jónína Jónsdóttir, hús- móðir, f. 7. apríl 1887, d. 1967, og Júlíus Jóhann Björnsson, f. 15. júní 1885, d. 1946. Systkini Hjálmars voru Egill, f. 1908, Nanna Amalía, f. 1909, Sigrún, f. 1911, Hrefna, f. 1914, Bald- ur Þórir, f. 1919, María, f. 1921, Gunn- ar Skjöldur, f. 1931, öll látin, og Ragn- heiður Hlíf, f. 1927, búsett á Akureyri. Hjálmar ólst upp á Dalvík og hóf snemma að aðstoða föður sinn við út- gerðina. Hjálmar hafði mikinn áhuga á leiklist og hafði fengið inngöngu í Leiklistarskóla Lárusar Pálssonar í Reykjavík. Vegna veikinda föður síns þurfti hann frá að hverfa, hélt norður í land og tók við búskap á Karlsá, norð- an Dalvíkur, þar sem fjölskyldan bjó um þær mundir. Hjálmar aflaði sér vélstjórnarrétt- inda og starfaði sem vélstjóri, bæði til sjós og lands, um árabil. Hann átti heimili á Ak- ureyri um skeið og ók þá leigubifreið, en því starfi gegndi hann einn- ig þann tíma sem fjöl- skylda hans átti heima í Reykjavík. Hjálmar var einn af stofnendum Leikfélags Dalvíkur og starfaði hann með félaginu sem leikari og leikstjóri um langa hríð. Þótti hann fara feikivel með hlut- verk Börs Börssons og er heimamönnum eftir- minnilegur í því hlutverki. Hjálmar lék einnig með Leikfélagi Akureyrar. Hann söng með Karlakór Dalvíkur og síðar með Karlakórnum Geysi og Gömlum Geysisfélögum. Þá var hann félagi í Kiwanisklúbbnum á Dalvík til fjölda ára. Eiginkona Hjálmars var Sólveig Eyfeld frá Reykjavík. Hún lést árið 1981. Þau eignuðust sex börn. Hjálm- ar og Sólveig voru umboðsmenn Morgunblaðsins á Dalvík í mörg ár. Hjálmar sá síðar um dreifingu Morg- unblaðsins til blaðbera á Akureyri. Unnusta Hjálmars síðustu tæpa tvo áratugi er Jódís Kristín Jósefsdóttir. Andlát HJÁLMAR BLOM- QUIST JÚLÍUSSON EKKI hefur farið mikið fyrir hestum og hestamennsku í Grímsey síðustu árin. Hestaíþróttin sem sport hefur lítið fest rætur. Þó hefur einn hestur verið hér til nokkurra ára, hestur hreppstjórans, Bjarna Magnússonar í Miðtúni. En nú hefur orðið breyting á. Þess- um fyrrum þarfasta þjóni mannsins fjölgar á eyjunni grænu við heim- skautsbaug með fjórum nýjum hest- um sem Gylfi Gunnarsson skipstjóri og Rannveig Vilhjálmsdóttir tengda- dóttir hans eiga. Nú er ekki óalgeng sjón að sjá hestamenn ríða um, á vilj- ugum fákum, íbúum í Grímsey til gleði og augnayndis. Gylfi segir hestamennskuna svo heillandi að hann megi hafa sig allan við að sækja sjóinn af sama kappi og áður! Hrossum fjölgar í Grímsey Morgunblaðið/Helga Mattína Gylfi Gunnarsson, skipstjóri í Grímsey, einn fárra hestamanna í eynni, reynir hér fáka sína. Grímsey ÁRLEGT 1. maí hlaup Ung- mennafélags Akureyrar verður nú næstkomandi miðvikudag. Um er að ræða götuhlaup og hefst það kl. 13, en keppendur eru beðnir að mæta í síðasta lagi hálftíma fyrir hlaupið. Rásmark er við Sportver á Glerártorgi og endamark við Greif- ann. Hlaupalengdir eru 2 kílómetr- ar fyrir krakka í 10. bekk eða yngri, 17 ára og eldri geta valið um 4 kílómetra eða 10 kílómetra leið. Skráning er hafin í Sportverki, en þar verður hægt að skrá þátt- töku fram til keppnisdags, en þann dag verður hægt að skrá sig á staðnum frá kl. 10 til 11.30. Þó er óskað eftir að sem flestir skrái sig með fyrirvara til að auðvelda úr- vinnslu. Verðlaunaafhending fer fram strax að hlaupi loknu, og verður boðið upp á pítsur og svala. Götuhlaup 1. maí ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.