Morgunblaðið - 27.04.2002, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 27.04.2002, Blaðsíða 20
„MIKLAR dagssveiflur hafa átt sér stað á hlutabréfamörkuðum vestan hafs að undanförnu og síðustu vik- una hefur átt sér stað töluverð lækk- un á helstu vísitölum. Þróunin hefur litast af birtingu uppgjöra fyrir 1. ársfjórðung og þar af leiðandi hefur nokkur titringur verið meðal fjár- festa.“, segir í nýrri skýrslu Íslands- banka um erlend hlutabréf. Þar kemur einnig fram að síðasta mán- uðinn hafi allar helstu vísitölur lækkað nokkuð, að Nikkei-vísitöl- unni í Japan undanskilinni. „Sjóðstjórar telja almennt að meiri vaxtarmöguleikar leynist í smærri fyrirtækjunum. Ef tekið er mið af hlutfalli verðs og rekstrar- tekna eru bréf smærri fyrirtækj- anna að jafnaði 44% ódýrari en þeirra stærri.“ Þá segir að þróun hagvísa hafi haft heldur neikvæð áhrif á hlutabréfamarkaðinn enda hafi hægt á þeirri jákvæðu þróun sem verið hefur frá áramótum. „Þessi þróun hefur styrkt frekar þær raddir sem halda því fram að [bandaríska] hagkerfið eigi aðra nið- ursveiflu fyrir höndum áður en jafn- vægi kemst á að nýju en aðrir vilja þó meina að aðeins sé um tímabund- inn hægagang að ræða“, segir í skýrslunni. Margt bendi til þess að önnur niðursveifla sé í vændum en einnig finnist sterk rök sem mæla gegn því. Enn sé því karpað um hver lendingin verði. Stephen Roach, einn helsti hag- fræðingur Morgan Stanley, er nefndur sem einn þeirra sem segja frekari niðursveiflu vera í vændum. Þykir honum ólíklegt að svo væg niðursveifla komi í kjölfar eins mesta vaxtarskeiðs í sögu Banda- ríkjanna. „Roach telur miklar líkur vera á því að stoðir hagkerfisins og þar með uppsveiflunnar verði nokkuð veik- burða enn um sinn og þar af leiðandi þurfi ekki mikið til þess að viðsnún- ingur niður á við verði raunin.“ Miðað við þann hægagang sem verið hefur í bandaríska hagkerfinu, versnandi ástand á vinnumarkaði og lítinn verðbólguþrýsting er ekki bú- ist við því að hreyft verði við stýri- vöxtum í bráð, að því er segir í skýrslunni en næsti vaxtaákvörðun- arfundur bandaríska Seðlabankans verður 7. maí. Smærri fyrirtæki 44% ódýrari VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 20 LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ gera gamla Sléttbak út enn um sinn en hann gengur upp í kaup- verð nýja skipsins. Hann er nú á úthafskarfaveiðum á Reykjanes- hrygg og er ráðgert að hann fari í tvær veiðiferðir áður en hann verður afhentur nýjum eigendum. Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Sléttbakur EA heldur í sína fyrstu veiðiferð undir merkjum ÚA. frá sama tíma árið áður. Heildar- eignir samstæðunnar í lok mars námu samtals 9 milljörðum króna, skuldir 6,4 milljörðum og bókfært eigið fé var tæpir 2,6 milljarðar króna. Eiginfjárhlutfall samstæð- unnar reyndist 28,5% og veltufjár- hlutfall var 1,91. Í áritun stjórnar í árshlutareikn- ingi samstæðunnar kemur fram að áfram hafi verið tekið tillit til áhrifa verðlagsbreytinga í reikningum ÚA þrátt fyrir breytingar á lögum um ársreikninga, enda hafi bráða- birgðaákvæði í lögunum heimilað tveggja ára aðlögunartíma. „Ef það hefði ekki verið gert hefði það haft þau áhrif að hagn- aður tímabilsins hefði orðið um 40 milljónum króna lægri eða um 451 milljón króna. Bókfært eigið fé hefði orðið 63 milljónum krónum lægra eða 2.494 milljónir króna,“ segir í árituninni. REKSTUR Útgerðarfélags Akur- eyringa hf. (ÚA) skilaði 491 millj- ónar króna hagnaði á fyrsta árs- fjórðungi. Það er verulegur bati frá sama tímabili í fyrra en þá varð 117 milljóna króna tap af rekstrinum. Umskiptin nema því um 600 millj- ónum króna á milli ára. Í tilkynn- ingu frá ÚA segir að þessa bættu afkomu megi annars vegar rekja til hærra afurðaverðs í íslenskum krónum og hins vegar til gengis- hagnaðar af skuldum félagsins. Rektrartekjur fyrstu þriggja mánaða ársins námu tæpum 1,9 milljörðum króna, sem er 49% aukning frá sama tímabili í fyrra. Rekstrargjöld jukust um 53% frá fyrra ári og námu 896 milljónum króna. Hagnaður samstæðunnar fyrir afskriftir og fjármagnsliði, EBITDA, nam 481 milljón króna fyrstu þrjá mánuðina í ár, eða 26% af rekstrartekjum, en 330 milljón- um króna á sama tímabili í fyrra. Fjármagnsliðir voru jákvæðir um 218 milljónir króna en voru nei- kvæðir um 251 milljón á sama tíma- bili í fyrra. Breytingin til batnaðar er rakin til þess að frá áramótum hefur gengi íslensku krónunnar styrkst en í fyrra hafði krónan veikst á sama tímabili. Gengishagn- aður nam nú 230 milljónum króna. Hagnaður 40 milljónum lakari ef hefði verið verðleiðrétt Veltufé frá rekstri nam 421 millj- ón króna og jókst um 167 milljónir ÚA hagnaðist um hálfan milljarð á fyrsta ársfjórðungi Sléttbakur byrjar á grálúðu SLÉTTBAKUR EA, nýr frystitog- ari Útgerðarfélags Akureyringa hf., er nú í sinni fyrstu veiðiferð eftir að skipið var afhent nýjum eigendum. Að sögn Sæmundar Friðrikssonar, útgerðarstjóra ÚA, er skipið nú á grálúðuveiðum djúpt vestur af landinu, á svoköll- uðu Hampiðjutorgi, en þar hefur verið ágæt veiði undanfarnar vik- ur. „Það hefur gengið vel, skipið reynist eins og best verður á kosið en auðvitað hafa komið upp smá- vægilegir hnökrar í vinnslunni, eins og við var að búast. Það er helst að veðrið hafi sett strik í reikninginn, þarna hafa verið vond veður undanfarna daga og hamlað veiðum á köflum,“ sagði Sæmundur. Hinn nýi Sléttbakur EA var smíðaður í Danmörku fyrir fjórum árum og hét skipið áður Sevryba 2. Það er 58 metra langt og 13,5 metra breitt og er með þeim stærri í íslenska fiskiskipaflot- anum. Það leysir af hólmi eldra skip með sama nafni. ÚA mun þó AOL Time Warner tapar miklu BANDARÍSKI fjölmiðlarisinn AOL Time Warner tilkynnti í vikunni um 54,2 milljarða Bandaríkjadala tap á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, jafn- virði um 5.200 milljarða íslenskra króna. Samkvæmt fréttavef Yahoo er þetta mesta ársfjórðungstap fyrir- tækis í sögu Bandaríkjanna, en það stafar af nýjum bókhaldsreglum sem kveða á um að taka verði tillit til sölu- virðis hlutabréfa fyrirtækis eftir sam- runa. Gengi hlutabréfa AOL hefur lækkað um meira en helming frá því tilkynnt var um samruna fyrirtækj- anna America Online og Time Warn- er í janúar í fyrra. Ef litið er framhjá tapi fyrirtæk- isins vegna hinna nýju bókhalds- reglna var tap AOL á fyrsta ársfjórð- ungi 2002 um ein milljón Bandaríkjadalir, eða í kringum 95 milljónir íslenskra króna. Tapið á sama tíma í fyrra var 1,4 milljónir dala eða rúmlega 130 milljónir ís- lenskra króna. Tekjur AOL á tímabilinu jukust um 4% og námu 9,8 milljörðum Bandaríkjadala, um 930 milljörðum íslenskra króna. Áskriftartekjur fyr- irtækisins jukust um 14% en auglýs- ingatekjur drógust hins vegar saman um 13%. Haft er eftir talsmanni AOL á fréttavef Yahoo að vandi fyrirtækis- ins stafi af mesta samdrætti sem fjöl- miðlar hafi orðið fyrir í áratugi. Kvik- myndadeild AOL skilaði bestum árangri á ársfjórðungnum af deildum samsteypunnar með framhaldi á vel- gengni kvikmyndanna Harry Potter og viskisteinninn og Hringadróttins- saga: Föruneyti hringsins. Ekki sérstakar ástæður að baki lækkunar á deCODE GENGI hlutabréfa í deCODE Gen- etics, móðurfélagi Íslenskrar erfða- greiningar, hækkaði lítillega í við- skiptum gærdagsins, eða um 1%, eftir verðhrun síðastliðinna daga. Við lokun markaða í gær var gengið í 5,05 Bandaríkjadölum. Á fimmtudag lækkaði gengi bréf- anna um 7,41% og á miðvikudag nam lækkunin 10%. Í Morgunpunktum Kaupþings í gær sagði að ekki væru sérstakar ástæður baki þessari lækkun nú en mörg líftæknifyrirtæki hafi átt erfitt uppdráttar síðustu misserin. „Nokkuð er um minni stöð- ur verðbréfasjóða í hlutabréfum og getur því verið um kerfisbundna sölu að ræða. Einnig hafa bréf deCODE hækkað eftir yfirtökuna á Medichem og er söluhliðin með bréfin einfald- lega sterkari en kauphliðin nú.“ Íslandspóstur tapaði 180 milljónum TAP af rekstri Íslandspósts nam 180 milljónum króna á árinu 2001. Rekstrartekjur jukust um 3,4% á milli ára og námu 4,3 milljörðum króna. Rekstrarkostnaður Íslands- pósts jókst hins vegar um tæp 7% og nam tæpum 4,5 milljörðum í fyrra. Íslandspóstur gerir ráð fyrir að á þessu ári og þeim næstu fari magn bréfasendinga hægt minnkandi, en umfang bögglaþjónustu muni aukast, m.a. vegna heimaverslunar og þeirrar þjónustu sem henni fylgir, að því er segir í tilkynningu sem gef- in var út í kjölfar aðalfundar félags- ins í gær. Félagið muni halda áfram hagræðingu í rekstri og markmiðið sé að ná enn frekar niður rekstrar- kostnaði, sem sé forsenda þess að já- kvæð afkoma fyrirtækisins verði að veruleika á næstu árum. Atvinnu- leysi eykst UM 1.800 fleiri voru atvinnulausir í apríl í ár en í sama mánuði í fyrra. Þetta kemur fram í vinnumarkaðs- rannsókn Hagstofunnar sem birt var í gær. Samkvæmt rannsókninni voru 3,2% vinnuaflsins án vinnu og í at- vinnuleit í apríl 2002, sem jafngildir um 5.300 einstaklingum, en um 3.500 manns, eða 2,1%, voru án vinnu í apríl 2001. Atvinnuleysið mældist 2,4% í nóvember á síðasta ári. Í apríl 2002 var atvinnuleysi 3,0% hjá konum og 3,4% hjá körlum. At- vinnuleysið var mest meðal yngsta aldurshópsins, 16–24 ára, eða 6,9%. Atvinnuleysi karla í þessum aldurs- hópi mældist 10,2% í apríl í ár en 4,5% í nóvember síðastliðnum. Á höfuðborgarsvæðinu var at- vinnuleysi 3,7% en 2,5% utan þess. Skekkjumörk í niðurstöðum um at- vinnuleysi eru plús eða mínus 0,8%. Fjöldi þeirra sem voru starfandi í apríl 2002 var 157.100 en 158.400 í apríl ári áður. Starfandi fólki fækk- aði því um 1.300 milli ára. Atvinnu- þátttaka mældist 82,9% í apríl 2002 en 83,7% í sama mánuði 2001. Meðalfjöldi vinnustunda reyndist vera 42,8 hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni en 43,7 stundir í apríl 2001. Meðalfjöldi vinnustunda í aðal- og aukastarfi var 48,5 klukkustundir hjá körlum en 36,3 stundir hjá konum. Rannsókn Hagstofunnar fór fram dagana 13.–24. apríl 2002 og tók til stöðu á vinnumarkaði 6.–19. apríl. Krónan styrkist enn GENGI íslensku krónunnar styrkt- ist um 0,04% gær eftir talsverðar sveiflur innan dagsins. Í lok dags stóð gengisvísitala krónunnar í 130,76 stigum en þá hafði hún sveifl- ast allt frá 129,95 stigum upp í 131,25 stig. Alls námu viðskipti dagsins röskum 7 milljörðum króna. FARÞEGUM Flugleiða til og frá Ís- landi fækkaði um 6,2% í mars en þeim sem fljúga yfir Norður-Atl- antshafið um Ísland fækkaði um 32,5% í sama mánuði. Í heild fækk- aði farþegum í millilandaflugi félags- ins um 20,6% % í mars sl. í sam- anburði við mars á síðasta ári. Voru þeir nú um 91 þúsund talsins en tæplega 115 þúsund í fyrra. Farþeg- um á almennu farrými fækkaði um 20,5% en 21,6% á viðskiptafarrými í mars. Á fyrstu þremur mánuðum ársins fækkaði farþegum í millilandaflugi Flugleiða í heild um 21,3% frá sama tímabili í fyrra. Farþegum á leiðum yfir Norður-Atlantshafið um Ísland fækkaði um 36,9% en um 4,9% fækk- un varð á farþegum til og frá Íslandi. Sætanýting dróst saman um 1,5% en félagið dró sætaframboð alls saman um 22,3% á fyrsta ársfjórðungi til að mæta minnkandi eftirspurn. Guðjón Arngrímsson, upplýsinga- fulltrúi Flugleiða, segir niðurstöð- urnar í samræmi við breyttar áherslur í markaðsstarfi félagsins á erlendum mörkuðum. „Við sáum fram á minnkandi far- þegafjölda í vetur, eins og fram hef- ur komið, og ákvörðun var tekin um að draga úr framboði í áætlunarflug- inu um fimmtung, fækka ferðum á nokkra staði, hætta alveg flugi til Halifax og á þessum fyrsta ársfjórð- ungi var flug til New York einnig fellt niður í tvo mánuði. Stefnt var að því með auknu sölustarfi að láta þennan samdrátt hafa sem minnst áhrif á fjölda farþega til og frá Ís- landi en að draga fremur úr flutningi farþega sem fljúga yfir hafið en eiga ekki erindi til Íslands annað en að skipta um flugvél á Keflavíkurflug- velli, enda eru það þeir farþegar sem skila félaginu og ferðaþjónustunni minnstum verðmætum. Jafnframt var lögð aukin áhersla á að finna verkefni á leiguflugsmarkaði fyrir vélar og áhafnir félagsins. Þetta er að ganga nokkurn veginn eftir.“ Samdráttur í frakt- og innanlandsflugi Fluttum tonnum hjá Flugleiðum- Frakt, dótturfyrirtæki Flugleiða, fækkaði um 21,3% í mars og farþeg- um í innanlandsflugi Flugfélags Ís- lands, dótturfyrirtækis Flugleiða fækkaði um 13,1%. „Þessar tölur koma ekki á óvart. Forsendur hafa breyst frá upphafi síðasta árs bæði í innanlandsflugi og inn- og útflutningi og þeim er mætt af hálfu þessara fyrirtækja með við- eigandi hagræðingaraðgerðum“, segir Guðjón. Farþegum Flugleiða í mars fækkaði um 21% milli ára Farþegum yfir Norður-Atlants- hafið fækkaði um 37% á fyrsta ársfjórðungi ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.