Morgunblaðið - 27.04.2002, Page 21
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2002 21
HAGNAÐUR af rekstri Kaupfélags
Fáskrúðsfirðinga á síðasta ári nam
118 milljónum króna.
Heildartekjur félagsins jukust um
11% á milli ára og námu ríflega 1,3
milljörðum króna. Hagnaður fyrir
afskriftir og fjármagnsliði
(EBITDA) nam 264 milljónum króna
á árinu, eða 20% af rekstrartekjum,
og var það 109 milljónum króna
hækkun frá árinu 2000.
Veltufé frá rekstri nam 182 millj-
ónum króna og nær tvöfaldaðist mið-
að við árið á undan. Eigið fé félagsins
var í árslok 814 milljónir króna, sem
er 39% af niðurstöðu efnahagsreikn-
ings og hafði hækkað um 153 millj-
ónir króna, eða um 23%, frá fyrra ári.
Tillaga um sameiningu
við Loðnuvinnsluna
Aðalfundur félagsins verður hald-
inn laugardaginn 27. apríl nk. á Hót-
el Bjargi, Fáskrúðsfirði og hefst
klukkan 10.
Á fundinum verður borin upp til-
laga sem gerir ráð fyrir því að meg-
inrekstur félagsins, sem er sjávar-
útvegur og iðnaðarstarfsemi, verði
sameinaður Loðnuvinnslunni hf. frá
1. janúar 2002. Í framhaldi af því
verður Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga
eignarhaldsfélag með um 85% hluta-
fjár í hinu sameinaða félagi, að því er
segir í tilkynningu frá félaginu.
Hagnaður
hjá Kaupfélagi
Fáskrúðs-
firðinga
Fram kemur í frétt AP að stefnt
sé að því að halda útsendingum ITV
Digital áfram á meðan sala stöðv-
arinnar er reynd. Takist sala hins
vegar ekki innan fárra dagi blasi
gjaldþrot við.
Stjórnendur ensku deildarkeppn-
innar í fótboltanum hafa krafist þess
af móðurfélögum ITV, Carlton
Communications PLC og Granada
PLC, að þau standi við gerða samn-
inga ITV Digital við félögin um sjón-
varpsútsendingar frá leikjum
þeirra. Haft er eftir þeim í frétt AP
BRESKA áskriftarstjónvarpsstöðin
ITV Digital er til sölu. AP frétta-
stofan greindi frá því í gær að
stjórnendum stöðvarinnar hefði ekki
tekist að tryggja fjármögnun henn-
ar. Stöðin skuldar 72 knattspyrnu-
liðum í fyrstu, annarri og þriðju
deildinni á Englandi samtals 178,5
milljónir Sterlingspunda, jafnvirði
um 25 milljarða íslenskra króna.
Samkvæmt samningi ITV Digital
og og ensku deildarkeppninnar fékk
stöðin rétt til sjónvarpssendinga af
leikjum félaganna í þrjú keppnis-
tímabil gegn þremur greiðslum sem
skyldu inntar af hendi fyrirfram.
Greiðslur á síðasta ári vegna vegna
yfirstandandi keppnistímabils voru
inntar af hendi en hins vegar horfir
ekki vel með greiðslurnar næstkom-
andi haust og á næsta ári.
Gunnar Þór Gíslason, stjórnarfor-
maður Stoke City, segir stöðu ITV
Digital ekki vera jákvæða fyri knatt-
spyrnufélögin á Englandi. Sjón-
varpsrétturinn verði alltaf einhvers
virði. Hvort hann verði eins mikils
virði og ITV Digital hafi lofað að
greiða sé hins vegar ekki ljóst. Hann
segir að ef allt fari á vesta veg í
þessu máli þá muni það koma verst
niður á þeim félögum sem eru í
fyrstu deildinni, því þau fái stærsta
hlutann af greiðslunum fyrir sjón-
varpsréttinn.
Of hátt verð fyrir sjónvarpsréttinn
Í frétt AP segir að margir haldi
því fram að ITV Digital haf sam-
þykkt að greiða allt of hátt verð fyr-
ir sjónvarpsréttinn úr ensku fyrstu,
annarri og þriðju deildinni í knatt-
spyrnunni. Þar að auki hafi verulega
dregið úr auglýsingatekjum stöðv-
arinnar í kjölfar hryðjuverkanna á
Bandaríkin 11. september á síðasta
ári.
Emma Thorogood, talsmaður
Deloitte & Touche, sem hefur unnið
að endurfjármögnun ITV Digital,
sagði í samtali við AP í gær að verið
sé að reyna að selja sjónvarpsstöð-
ina í heild. Ef það takist hins vegar
ekki verði reynt að fá sem hæst verð
fyrir eignir hennar, en þær eru auk
áskriftarsamninga, útsendingarbún-
aður og þekking sem hin stafræna
tækni stöðvarinnar byggist á.
að mörg félögin treysti á þær
greiðslur sem samningurinn segi til
um. Þá hafa stjórnendur knatt-
spyrnufélaga hótað að fara í mál við
Carlton og Granada verði ekki stað-
ið við samninginn.
ITV Digital var ein fyrsta sjón-
varpsstöðin í heiminum til að bjóða
upp á stafrænt margrása sjónvarps-
efni um hefðbundin sjónvarpsloft-
net. Stafrænt sjónvarp gefur einnig
möguleika á tenginu við Netið,
tölvupósti og öðrum gagnvirkum
sendingum.
ITV Digital til sölu
vegna fjárhagserfiðleika
♦ ♦ ♦