Morgunblaðið - 27.04.2002, Qupperneq 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2002 27
SVAVA Björnsdóttir og Jón Sigur-
pálsson opna í dag kl. 16 sýningar í
Listasafni ASÍ – Ásmundarsal við
Freyjugötu.
Svava Björnsdóttir sýnir í Ás-
mundarsal sjö ný verk sem unnin
eru úr pappír og litarefnum. Verk-
in eru á mörkum þess að vera högg-
myndir og málverk að sögn Svövu
og mynda sterkt samhengi í sýning-
arsalnum. Hún segir sýninguna
marka ákveðin skil í sínum ferli, að
því leyti að hún fáist nú við yf-
irborðið og flötinn en ekki formið
sem meginatriði. „Í verkunum er ég
að reyna að brjótast úr viðjum ör-
yggis í listsköpuninni og þróa hana
áfram. Hér eru höggmyndirnar
mínar í raun orðnar að mál-
verkum.“
Svava og Jón stunduðu bæði
framhaldsnám í myndlist í Hollandi
og þekkjast vel. Þau hafa bæði
haldið sýningar hér heima og er-
lendis, og hafa starfað að myndlist-
inni um árabil. Sýningarnar í Lista-
safni ASÍ eru tvær aðskildar
sýningar, en kallast engu að síður
skemmtilega á að sögn Jóns Sig-
urpálssonar. Verkin sem hann sýnir
í Gryfju eru öll frá þessu ári, og ber
sýningin yfirskriftina Vitar. Verkin
eru unnin í járn og á silkiprentaðan
pólýesterdúk og segist Jón hafa
fengið hugmyndina að þeim þegar
hann var að glugga í Ársrit sögu-
félags Ísfirðinga frá árinu 1956.
„Ég rakst þar á grein eftir Bjarna
Sigurðsson, bónda í Vigur í Ísa-
fjarðardúpi, um veðurfarslýsingar.
Það vakti athygli mína hversu
mörg hugatakanna úr þessum
heimi ég þekkti ekki, en skynjaði
engu að síður vel það ástand sem
þau lýsa. Þessi myndrænu hugtök
urðu mér þannig efniviður verka
sem ég kalla fjórlínunga,“ segir Jón
og bætir því við að verkin á sýning-
unni séu talsvert frábrugðin því
sem hann hefur unnið við fram til
þessa.
Sýningarnar til 12. maí og er
Listasafn ASÍ opið frá kl. 14 til 18
alla daga nema mánudaga.
Morgunblaðið/Golli
Svava Björnsdóttir og Jón Sigurpálsson opna sýningar í Listasafni ASÍ í
dag. Hér má sjá listamennina skrafa saman í Ásmundarsal.
Höggmyndir verða
að málverkum LaugardagurAmtsbókasafnið Akureyri kl. 11:
Sögustund helguð þema vikunnar,
Börn og bækur.
Bókasafn Reykjanesbæjar kl. 14:
Brúðuleikhúsið Tíu fingur sýnir
Mjallhvít og dvergana sjö.
Laxnesshátíð
í Mosfellsbæ
Gljúfrasteinn kl. 10: Gönguferð
frá Gljúfrasteini að Helgufossi undir
leiðsögn Bjarka Bjarnasonar. Rútu-
ferð frá Hlégarði kl. 9:45.
Álafosskvosin – opið hús kl. 13–
17: Sýningar á verkum listamanna
ýmissa listamanna í sýningarsölum
kvosarinnar.
Myndlistarskóli Mosfellsbæjar kl.
13–17: Sýning nemenda.
Handverkshús kl. 13–17: Sýning í
Háholti 24.
Kjarnatorg kl. 15: Fimm kórar
Mosfellsbæjar syngja lög við ljóð
skáldsins.
Bæjarleikhúsið við Þverholt kl.
17: Endurtekin dagskrá frá 25. apríl.
Vika
bókarinnar
HINAR tuttugu mest fluttu óp-
erur síðustu 100 ára kváðu víst vera
þau verk í klassískum tónbókmennt-
um þar sem hlustendur velta hlut-
fallslega minnst fyrir sér sjálfri tón-
smíðinni en mest frammistöðu
flytjenda, þ.e.a.s. einkum einsöngv-
aranna. Einhver gárunginn líkti
þessu við ólympískar leikfimiæfing-
ar – þær væru löngu staðlaðar og
basískt séð allar eins; áhorfið mið-
aðist eingöngu við hvernig þær
væru útfærðar.
Hinir fjölmennu óperuunnendur
sem nærri fylltu Háskólabíó í gær,
hafa því væntanlega fyrst og fremst
mætt til að sjá og heyra „sína
menn“, ofangreinda íslenzka sólista
af yngri kynslóð, enda bar til í of-
análag að um konsertuppfærslu var
að ræða á völdum vinsælum aríum
úr tíu alþekktum óperum, með
nokkrum forleikjum og millispilum
á milli söngatriða.
Fyrst var leikinn Forleikur úr
Carmen Bizet, í allhressu, nærri því
stressuðu tempói sem tók nokkuð
hátíðarbraginn úr þessu glæsta
stykki að manni fannst, án þess þó
að væri kastað til höndum. Jón Rún-
ar Arason reið síðan á vaðið með La
fleur que tu m’avais jetée, svolítið
innhverfur en fallega hljómandi.
Ólafur Kjartan Sigurðarson briller-
aði, ekki aðeins sem kvennagullið al-
ræmda, heldur einnig sem mandól-
ínleikari, í Deh vieni alla finestra úr
Don Giovanni Mozarts, og leika
honum varla margir það eftir að
syngja og spila sjálfur undir í senn.
Kjarnaaría tragíska trúðsins úr I
pagliacci, Vesti la giubba, lék úr
barka Jóhanns Friðgeirs Valdi-
marssonar, að vísu með nokkru
minni tilfinningatilþrifum en maður
átti von á enda snemma á pró-
gramminu. Hið kunna millispil úr
Cavalleria rusticana Mascagnis
barði þvínæst ljúflega eyru tónleika-
gesta í meðförum Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar og setti tóninn fyrir ar-
íuna Mamma, quel vino é generoso í
viðkvæmri útfærslu Jóns Rúnars.
Ólafur Kjartan fór þá með Vy mné
pisali úr Évgení Onegín eftir
Tsjækovskíj af þokka, og hann og
Jóhann Friðgeir fóru síðast fyrir hlé
með dúettinn Dio, che nell’alma
infondere úr Don Carlos eftir Verdi
af karlmannlegum þrótti.
Forleikur Wagners að Tannhäus-
er hljómaði fyrst eftir hlé, ágætlega
leikinn en e.t.v. ofurlítið eirðarlaus á
köflum. Hinn frægi óður Wolframs
til kvöldstjörnunnar úr sömu óperu
kvað næst við í meðförum Ólafs
Kjartans af göfugleika, kannski
burtséð frá votti af álagi á efstu nót-
um. Meistari Puccini sá síðan um
lokaatriði kvöldsins. Fyrst með vel
móttekinni túlkun Jóhanns á Che
gelida manina úr La Bohème og
prýðisgóðum samsöng hans og Ólafs
í O Mimì, tu più non torni úr sömu
óperu. Eftir átakamikið millispil
hljómsveitarinnar úr Manon Lesc-
aut kom svo fruntavelheppnuð túlk-
un Jóhanns á E lucevan le stelle úr
Toscu og loks tignarleg útlegging
Jóns Rúnars á Nessun dorma úr
Turandot, sem kórónaði vel heppn-
að óperukvöld þeirra þremenninga
og Sinfóníuhljómsveitarinnar undir
lipurri og fagmannlegri stjórn Pauls
McGraths.
Eftirlætisóperuaríur
TÓNLIST
Háskólabíó
Vinsælar óperuaríur, dúettar, forleikir og
millispil eftir Bizet, Mozart, Leoncavallo,
Mascagni, Tsjækovskíj, Verdi, Wagner
og Puccini. Jóhann Friðgeir Valdimarsson
tenór, Jón Rúnar Arason tenór og Ólafur
Kjartan Sigurðarson barýton; Sinfón-
íuhljómsveit Íslands u. stj. Pauls
McGraths. Fimmtudaginn 26. apríl kl.
19:30.
ÓPERUTÓNLEIKAR
Ríkarður Ö. Pálsson
ERU prinsessur enn í tísku? er spurt í finnskum gesta-
leik sem Totem-leikhúsið sýnir í Möguleikhúsinu í dag kl.
14.
Totem hefur síðastliðin fimmtán ár skapað sér góðan
orðstír í Finnlandi og víðar með farandsýningum fyrir
börn þar sem öllum meðölum leikhússins er beitt öðrum
en tungumálinu til að koma sögunum til skila.
Leikritið POW – när vardagen slår knockout, eða
BÚMM – þegar hið hversdaglega hrynur, segir á einlæg-
an og broslegan hátt frá hversdagslífi mömmu og litla
barnsins inni á heimilinu og ólíkum leiðum þeirra til þess
að leysa þau vandamál sem koma upp í samskiptunum
heima við. Þegar engar venjulegar leiðir duga til þess að
leysa málin, þá fær hugmyndaflugið lausan tauminn og
með aðstoð ólíkra vætta, verður hinn venjulegi dagur
harla óvenjulegur…
„Í sýningunni veltum við fyrir okkur þáttum eins og
hvernig sögur fanga börn nú til dags. Hugmyndin að sýn-
ingunni hefur þróast út frá eigin hugmyndum barna, sög-
um þeirra og líkamstjáningu. Í gegnum samvinnu barna
og listamanna fæddist þessi sýning, sem sameinar sterka
líkamstjáningu, tónlist, dans, hlutaleiki og margmiðlun.
Sýningin er hafin yfir hindranir tungumálsins og er
hugsuð fyrir aldurshópinn 5–12 ára,“ segja þær Soila
Valkama leikstjóri og Henna Hakkarainen og Päivi Riss-
anen leikkonur sem unnið hafa handrit sýningarinnar
eftir hugmynd Tove Appelgren.
Sýningin hefur verið leikin í Finnlandi, Svíþjóð, Græn-
landi og núna á Íslandi. Ferðalagið um Norðurlöndin hef-
ur verið styrkt af Norræna menningarsjóðnum og Teater
og Dans í Norden.
Á Netinu er að finna hið gagnvirka Websäcken-spil,
þar sem börn geta lifað sig inn í söguheima og skapað sín
á milli, sína eigin menningarbrú. Spilið hentar einkum
grunnskólanemendum og er að finna á heimasíðu leik-
hússins á slóðinni www.dlc.fi/~totem. Sýningarnar á Ís-
landi eru kostaðar af Möguleikhúsinu, Finnska sendi-
ráðinu, Hátækni, Norræna húsinu og Flugleiðum.
Gestaleikur í
Möguleikhúsinu
Leikarar Totem frá Finnlandi.