Morgunblaðið - 27.04.2002, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 27.04.2002, Blaðsíða 39
ÞAÐ er til marks um málefnafátækt sjálfstæðismanna, að þeir neita að viður- kenna, að tap Orku- veitu Reykjavíkur á síðasta ári hafi mest megnis stafað af geng- istapi. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgar- fulltrúi, sem bæði á sæti í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur og Landsvirkjun, heldur því fram, að tapið stafi af greiðslu Orkuveit- unnar í borgarsjóð á liðnum árum. Nú vill svo til, að Landsvirkjun tapaði 1.840 milljón krónum samanborið við 530 milljóna króna tap Orkuveitunnar. Ekki íþyngja arðgreiðslur þó Landsvirkj- un að neinu marki, því að Lands- virkjun er einungis að greiða Reykjavík Orkuveitan, segir Alfreð Þorsteins- son, hefur verið að græða 10 milljónir króna hvern einasta dag frá áramótum. Reykjavíkurborg um 100 milljón krónur á ári. Röksemdafærsla Vilhjálms gengur því greinilega ekki upp. Enda liggur fyrir nú, að þegar þetta geng- istap hefur gengið til baka, að hagnaður Orkuveitu Reykjavík- ur þrjá fyrstu mánuði þessa árs nemur 900 milljónum króna. Það þýðir, að Orkuveitan hefur verið að græða 10 milljónir króna hvern einasta dag frá áramótum. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borg- arfulltrúi ætti að ganga í smiðju til flokksbróður síns Geirs Haarde fjármálaráðherra og fræðast um þessi mál og spyrja hann um við- snúning ríkissjóðs, sem lýtur ná- kvæmlega sömu lögmálum og Orku- veitan hvað erlend lán varðar. 900 milljóna króna hagnaður Orkuveitunnar Alfreð Þorsteinsson Höfundur er borgarfulltrúi og stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur. UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2002 39 Netsalan ehf. Garðatorgi 3, Garðabæ, símar 565 6241 og 893 7333, fax 544 4211 netsalan@itn.is Þjónustuaðili Opið virka daga frá kl. 10–18, laugardag frá kl. 11–17 og sunnudaga kl. 13–17. Sýning um helgina THERE’S ONLY ONE KNAUS sport traveller 500 ER KOMINN Til sýnis um helgina Verð aðeins 3.995.000 COMBI- CAMP Vinsælasti tjaldvagninn Eigum til Grand Cherokee til afgreiðslu í maílok Við gætum fyllsta öryggis: öll fellihýsi með bremsum og CE merkingum. Óheimilt er að afhenda tæki sem brenna gasi án CE merkingar, þetta á einnig við um ísskápa í fellihýsum. Ný tegund af VIKING fellihýsum með miklum breytingum Þrjár nýjar tegundir af hjólhýsum sem ekki hafa sést áður á Íslandi KNAUS 400 T@B KNAUS Sport & fun SEM höfuðborg og stærsta sveitarfélag landsins á Reykjavík að vera í forystu að því er varðar þjónustu og aðbúnað þeirra sem hér búa. En er það staðan og eru Reykvík- ingar ánægðir með þjónustuna sem borg- aryfirvöld veita? Ef marka má viðhorfs- könnun, sem gerð var á vegum Félagsvísinda- stofnunar Háskóla Ís- lands og birt er í ný- legri bók Gunnars Helga Kristinssonar, Staðbundin stjórnmál, virðist svo ekki vera. Aðeins 48% ánægð með þjónustuna almennt Í umræddri könnun voru íbúar í stærri sveitarfélögum landsins spurðir um það hvort þeir væru ánægðir, hlutlausir eða óánægðir með þjónustu sveitarfélagsins al- mennt. Í Reykjavík segjast 48% íbúa ánægð með þjónustu borgarinnar. Þessi niðurstaða getur ekki talist viðunandi, enda aðeins eitt sveitarfé- lag þar sem mældist meiri óánægja. Í helstu nágrannasveitarfélögunum var niðurstaðan allt önnur og sem dæmi má nefna að 66% íbúa í Hafn- arfirði sögðust ánægð með þjón- ustuna almennt og 72% íbúa á Sel- tjarnarnesi. Aðeins 52% ánægð með félagsmálin Þegar íbúar voru spurðir um ánægju með félagsþjónustuna í þeirra sveitarfélagi kom Reykjavík verst út af öllum þeim sveitarfélög- um sem skoðuð voru í könnuninni. 52% aðspurðra Reyk- víkinga sögðust ánægð með félagsþjónustuna í borginni. Ef litið er til nágrannasveitarfélag- anna kemur í ljós önn- ur staða, því ánægja með félagsmálin í sveitarfélögum á borð við Seltjarnarnes og Hafnarfjörð er yfir 70%. Aðeins 53% ánægð með skólamálin Þegar skoðuð er af- staða íbúa til skólamála kemur í ljós að aðeins 53% þeirra sem búa í Reykjavík eru ánægð með stöðu þeirra mála í Reykjavík. Þessi nið- urstaða er alvarleg vegna þess að skólamálin eru eitt af mikilvægustu málum hvers sveitarfélags og það hlýtur að vera krafa okkar sem í borginni búum að þar fái börnin okkar bestu fáanlegu menntun. Aft- ur er munur á milli Reykjavíkur og nágrannasveitarfélaganna og sem dæmi um það má nefna að 82% þeirra sem búa á Seltjarnarnesi segjast ánægð með skólamálin og 88% þeirra sem búa í Garðabæ. Aðeins 39% ánægð með bygginga- og skipulagsmálin Í þessari könnun Félagsvísinda- stofnunar var að endingu spurt um afstöðu íbúa til skipulags- og bygg- ingamála. Þar kemur í ljós að ein- ungis 39% íbúa í Reykjavík segjast ánægð með það hvernig haldið er á þessum málum í borginni. Enn á ný er þetta hlutfall mun lægra en í nágrannasveitarfélögum Reykja- víkur, því í Kópavogi segist 71% bæjarbúa ánægt með þennan mála- flokk og 74% þeirra sem búa í Garða- bæ. Reykvíkingar eiga betra skilið Eins og ofangreindar tölur sýna virðast borgarbúar ekki ánægðir með grunnþjónustu borgarinnar. Þrátt fyrir það að borgin sé stærri en önnur sveitarfélög og það geti skap- að ákveðna fjarlægð frá þjónustunni sem veitt er er það ekki skýringin á þessari óánægju. Meirihlutinn í borginni hefur einfaldlega ekki sett fyrsta flokks þjónustu við borgarbúa í forgang, sem sést best á því að bið- listar eftir þjónustu hafa aldrei verið lengri. Það þekkja þau börn sem bíða eftir leikskólaplássum, þeir eldri borgarar sem bíða eftir hjúkrunar- rýmum, þeir einstaklingar sem bíða eftir félagslegu húsnæði og sá stóri hópur borgarbúa sem ekki fær lóðir í borginni. Borgarbúar eiga ekki að sætta sig við það að njóta lakari þjónustu en íbúar nágrannasveitar- félaganna. Reykvíkingar eiga betra skilið og þeir eiga skilið að Reykjavík sé sett í fyrsta sæti á ný. Gerum betur! Hanna Birna Kristjánsdóttir Reykjavík Því miður eru borgarbúar ekki, segir Hanna Birna Kristjáns- dóttir, ánægðir með grunnþjónustu borgarinnar. Höfundur er í 4. sæti á lista sjálf- stæðismanna fyrir borgarstjórn- arkosningarnar. Síðumúla 34 - sími 568 6076 Antik er fjárfesting Antik er lífsstíll
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.