Morgunblaðið - 27.04.2002, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 27.04.2002, Blaðsíða 48
KIRKJUSTARF 48 LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ Í DAG, laugardaginn 27. apríl, verður haldið í safnaðarsal Hall- grímskirkju málþing um fátækt á Íslandi. Málþingið hefst kl. 14.30 og stendur til kl. 16.15. Að málþinginu standa Samtök gegn fátækt ásamt Laugarnes- kirkju og Hallgrímskirkju. Fulltrú- ar frá Félagi einstæðra foreldra, Vin, athvarfi Rauða kross Íslands fyrir geðfatlaða, Öryrkjabandalagi Íslands og Félagi eldri borgara munu flytja stutt erindi og gera grein fyrir þeim fátæktargildrum sem við blasa frá sjónarhóli fé- lagsmanna sinna og skjólstæðinga. Þá munu fulltrúar þeirra þriggja lista sem bjóða fram til borg- arstjórnar á þessu vori lýsa stefnu sinni og viðhorfum. Að lokum verða almennar umræður. Fundarstjórar verða séra Bjarni Karlsson, sókn- arprestur í Laugarnessókn, og séra Sigurður Pálsson, sóknarprestur í Hallgrímssókn. Guðsþjónusta í Mosfellskirkju til- einkuð minningu Halldórs Laxness Á MORGUN, sunnudaginn 28. apríl, verður guðþjónusta í Mosfellskirkju kl. 11. Guðsþjónustan er helguð minn- ingu Halldórs Laxness í tilefni af því að 100 ár eru liðin frá fæðingu hans. Dr. Gunnar Kristjánsson, pró- fastur á Reynivöllum, flytur predik- un en doktorsritgerð sr. Gunnars fjallar um trúarlega þætti í Heims- ljósi eftir skáldið. Sigrún Hjálmtýs- dóttir syngur einsöng, Sigurður I. Snorrason leikur á klarinett og Kirkjukór Lágafellsóknar syngur. Flutt verða lög við ljóð Halldórs. Organisti er Jónas Þórir og sókn- arpresturinn sr. Jón Þorsteinsson þjónar fyrir altari. Að lokum mun Þröstur Karlsson, forseti bæjarstjórnar, leggja blóm- sveig frá sveitungum að leiði skáldsins. Eftir guðsþjónustuna verður kirkjukaffi í safnaðarheimili Lága- fellssóknar í boði sóknarnefndar. Sóknarprestur – sóknarnefnd. Fimmtíu ára fermingarbörn í Laugarneskirkju SUNNUDAGINN 28. apríl kl. 11 kallar Laugarneskirkja á það fólk sem fermdist vorið eða haustið 1952 og á því fimmtíu ára ferming- arafmæli um þessar mundir. Það er nú orðið að árlegri hefð að halda messu af þessu tagi, því margt skemmtilegt er í farvatninu þegar gamlir félagar hittast og rifja upp liðna tíð. Við þetta tækifæri mun ljósmynd- arinn Eggert Þór Jónsson stilla hópnum upp og taka hópmynd sem hægt verður að kaupa. En þess má geta að hópmynd frá síðasta vori er nú til sölu hjá Miðbæjarmyndum við Lækjartorg, og geta þau sem áhuga hafa snúið sér þangað. Er ástæða til að hveta sem flest fólk til að koma og njóta þessarar sérstöku guðsþjónustu. Fögnum sumri í Seltjarnarneskirkju FJÖLSKYLDUGUÐSÞJÓNUSTA með mikilli hátíðarstemningu verð- ur í Seltjarnarneskirkju sunnudag- inn 28. apríl kl. 11. Stundin er sniðin að þörfum barnanna með léttu og notalegu andrúmslofti. Helga Braga og Lár- us Páll munu leika á létta strengi í boðun orðsins. Barnakór kirkj- unnar undir stjórn Vieru Manasek syngur. Öll börnin fá blöðrufígúrur sem og andlitsmálningu. Lalli pók- us sýnir nokkur trix og Lúðrasveit Tónlistarskóla Seltjarnarness tekur nokkur létt lög undir stjórn Kára Einarssonar. Boðið verður upp á pylsur og svala svo enginn fari svangur heim. Verið öll hjartanlega velkomin í Seltjarnarneskirkju. Vorferð barnastarfs- ins í Hjallasókn SUNNUDAGASKÓLASTARFIÐ í Hjallasókn fer í sína árlegu vorferð til marks um lok vetrarstarfsins sunnudaginn 28. apríl. Haldið verð- ur af stað í ævintýralega óvissuferð að þessu sinni, farið í heimsókn á skemmtilega staði og leikið í sól- ríkri náttúrunni. Lagt er af stað frá Lindaskóla kl. 11.45 á sunnudag, og frá Hjallakirkju kl. 12. Allir eru að sjálfsögðu hjartanlega velkomnir. Kolaportsmessa HELGIHALD þarfnast ekki hús- næðis heldur lifandi fólks. Kirkja Jesú Krists er ekki steypa, heldur lifandi steinar, manneskjur af holdi og blóði. Þess vegna er hægt að fara út úr kirkjubyggingum með helgihald og fagnaðarerindið og mæta fólki í dagsins önn. Í tilefni af því bjóðum við til messu í Kolaportinu sunnudaginn 28. apríl kl. 14. Irma Sjöfn Ósk- arsdóttir prestur predikar og þjón- ar ásamt Jónu Hrönn Bolladóttur miðborgarpresti og Sólveigu Höllu Kristjánsdóttur guðfræðinema, Þorvaldur Halldórsson leiðir lof- gjörðina. Áður en Kolaportsmessan hefst kl. 13.40 mun Þorvaldur Hall- dórsson flytja þekktar dæg- urperlur. Þá er hægt að leggja inn fyrirbænarefni til þeirra sem þjóna í messunni. Í lok stundarinnar verð- ur blessun með olíu. Messan fer fram í kaffistofunni hennar Jónu í Kolaportinu sem ber heitið Kaffi port, þar er hægt að kaupa sér kaffi og dýrindis meðlæti og eiga gott samfélag við Guð og menn. Það eru allir velkomnir. Miðborgarstarf KFUM&K. Kópamessa KÓPAMESSA verður í Kópavogs- kirkju sunnudaginn 28. apríl kl. 20.30. Í henni er lögð áhersla á létt- ari tónlist en í hefðbundnum mess- um og almenna þátttöku kirkju- gesta, bæði í söng og öðrum þáttum helgihaldsins. Félagar úr kór Kópa- vogskirkju leiða safnaðarsöng og Sigríður Stefánsdóttir aðstoðar við útdeilingu. Undirleik annast Krist- mundur Guðmundsson sem spilar á trommur og Julian Hewlett sem leikur á píanó. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson. Gospelfjör í Hjallakirkju SANNKALLAÐ gospelfjör verður í Hjallakirkju, Kópavogi á sunnu- dagskvöld 28. apríl. Gospelkór Reykjavíkur kemur í heimsókn í kirkjunnar og syngur og leiðir söng við undirleik Óskars Einarssonar píanóleikara, og Jó- hanns Ásmundssonar bassaleikara. Kórinn hefur farið víða og sungið og hvarvetna hlotið góðar viðtökur. Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson leiðir stundina sem hefst kl. 20. Allir eru hjartanlega velkomnir. Æðruleysismessa í Akureyrarkirkju ÆÐRULEYSISMESSUR hafa unn- ið sér fastan sess í helgihaldi Ak- ureyrarkirkju undanfarin ár en sr. Málþing um fátækt Morgunblaðið/Jim Smart Hallgrímskirkja í Reykjavík. FRÉTTIR I.O.O.F. 7  183427  H.F.* Sunnudagur 28. apríl, Hafn- arfjall Gengið verður á Hafnar- fjall og er það um 4½—5 tíma ganga. Verð kr. 1.800/2.100. Far- arstjóri Sigurður Kristjánsson. Brottför frá BSÍ kl. 10.30 með viðkomu í Mörkinni 6. Miðvikudagur 1. maí — Önn- ur afmælisganga FÍ — Gengið um Hengilssvæðið. Fararstjóri Eiríkur Þormóðsson. Verð kr. 1.500/1.800. Brottför frá BSÍ kl. 10.30 með viðkomu í Mörkinni 6. 28. apríl Skemmtileg dagsferð um Reyni- vallaháls að Fossá í Hvalfirði. Brottför frá BSÍ kl. 10:30. Verð kr. 1.500 fyrir félaga/1.700 fyrir aðra. Fararstj. Hallgrímur Kristinsson. 1. maí Helgafell sunnan Hafnarfjarðar (Útivistarræktin). Brottför á eigin bílum kl. 18:30 frá skrifstofu Útivistar. Ekkert þátttökugjald. 5. maí Reykjavegur — Þorbjarnarfell — Méltunnuklif (R-2). Önnur ferð af átta um Reykja- veginn. Nú verður gengið Þor- bjarnarfell — Méltunnuklif. Farið frá BSÍ kl. 10:30. Verð kr. 1.500 fyrir félaga, en kr. 1.700 fyrir aðra. 5.maí Skemmtileg ganga um Skóg- fellaveg. Brottför frá BSÍ kl. 10:30. 6.maí Myndakvöld mánudagskvöldið 6. maí kl. 20:00 í Húnabúð, Skeif- unni 11. Skúli Sveinsson sýnir myndir frá Borgarfirði eystra um Víknaslóðir o.fl. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF mbl.is ATVINNA VATNAÍÞRÓTTIR og flest það sem viðkemur sjó og vatni verður til sýnis á sýningunni Vatnaveröld sem haldin verður í Vetrargarði í Smáralind um helgina. Sýningin er á vegum Siglinga- sambands Íslands og munu sigl- ingafélögin ásamt Kajakklúbbnum taka þátt í henni en auk þess verða Snarfari og Sportkafarafélagið með kynningu á sinni starfsemi. Nokkur fyrirtæki sem tengjast íþróttinni munu einnig sýna þar vörur sínar og þjónustu. Sýningin stendur dagana 27. og 28. apríl eða í dag og á morgun. Morgunblaðið/Jim Smart Vatnaveröld í Vetrargarði Rangt letur Í minningargrein Þuríðar Kristín- ar Halldórsdóttur um Torfa Óldal Sigurjónsson í Morgunblaðinu 16. apríl síðastliðinn var vitnað í 23. Davíðssálm og átti sá kafli að vera með ljóðaletri en vegna mistaka við vinnslu greinarinnar fórst það fyrir. Þannig er tilvitnunin rétt: Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Hlutaðeigendur eru beðnir afsök- unar á mistökunum. LEIÐRÉTT Á FJÓRÐU áskriftartónleikum Tónlistarfélags Ísafjarðar, sem eru í Hömrum í dag kl. 17 koma fram Þór- unn Ósk Marinósdóttir víóluleikari og Kristinn Örn Kristinsson píanó- leikari og leika verk eftir Schumann, Sjostakovitsj, Bruch og Hindemith. Þórunn Ósk hefur komið fram sem einleikari bæði hér heima og erlend- is en þó fyrst og fremst starfað með ýmsum kammermúsíkhópum. Hún hefur verið fastráðin í Sinfóníu- hljómsveit Íslands og leikið með Kammersveit Reykjavíkur en með þeirri síðarnefndu hefur hún einnig komið fram sem einleikari í víólu- konsert Hafliða Hallgrímssonar. Kristinn Örn hefur komið víða fram á tónleikum með ýmsum hljóð- færaleikurum og söngvurum og leik- ið inn á hljómdiska. Hann hlaut starfslaun listamanna 1996 og starf- ar nú sem verkefnisstjóri fyrir stjórn Tónskóla Þjóðkirkjunnar og skrif- stofu söngmálastjóra. Tónlistarfélagið býður ellilífeyris- þegum frítt á þessa tónleika. Kammertón- leikar á Ísafirði Á HÓTEL Sögu, Súlnasal, verður listmunauppboð Gallerís Foldar, á morgun,sunnudag, kl. 19. Þar verða í boði um 160 verk af ýmsum toga og mun þetta vera stærsta list- munauppboðið sem haldið hefur verið hér á landi til þessa. M.a. verður í boði fjöldi verka gömlu meistaranna. Verkunum er skipt í fjóra flokka: þrykk, prent og ljós- myndir. Vatnslitamyndir, past- elmyndir og önnur verk unnin á pappír. Skúlptúrar og önnur þrívíð verk og olíu- og akrylverk. Uppboðsverkin verða til sýnis í Gallerí Fold, Rauðarárstíg 14–16, í dag kl. 10–17 og á morgun kl. 12– 17. Heimasíða Gallerís Foldar er á slóðinni www.myndlist.is. Eitt verkanna sem verður á uppboðinu er eftir Ásgrím Jónsson. 160 verk á list- munauppboði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.