Morgunblaðið - 27.04.2002, Qupperneq 51
MESSUR Á MORGUN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2002 51
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14. Kór
Áskirkju syngur. Organisti Kári Þormar.
Kaffi eftir messu.
Hjúkrunarheimilið Skjól: Guðsþjónusta
kl. 15.30. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Líflegar og skemmtilegar sam-
verur með léttum söngvum, fræðslu og
bæn. Pálmi Sigurhjartarson annast tón-
listarstjórn. Foreldrar hvattir til þátttöku
með börnum sínum. Guðsþjónusta kl.
14. Organisti Sigrún Steingrímsdóttir.
Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Lesmessa kl. 11. Sr.
Jakob Ág. Hjálmarsson prédikar. Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Jakob Ág. Hjálm-
arsson prédikar. Organisti Hrönn Helga-
dóttir. Eftir guðsþjónustuna er
kaffisamsæti Álftfirðingafélagsins á
kirkjuloftinu.
GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 11. Kirkjukór Grens-
áskirkju syngur. Organisti Árni Arinbjarn-
arson. Sr. María Ágústsdóttir.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili:
Guðsþjónusta kl. 10.15. Prestur sr.
Kjartan Örn Sigurbjörnsson. Organisti
Kjartan Ólafsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa og barna-
starf kl. 11. Umsjón barnastarfs Magn-
ea Sverrisdóttir. Hópur úr Mótettukór
syngur. Organisti Hörður Áskelsson.
Karitas Kristjánsdóttir cand theol pré-
dikar. Sr. Sigurður Pálsson þjónar fyrir
altari. Ensk messa kl. 14. Prestur sr.
Bjarni Þór Bjarnason. Organisti Hörður
Áskelsson. Guðrún Finnbjarnardóttir
syngur einsöng. Léttar veitingar að at-
höfn lokinni.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir og
Guðrún Helga Harðardóttir. Organisti
Douglas A. Brotchie. Messa kl. 14.
Stúlknakórinn syngur undir stjórn Birnu
Björnsdóttur. Organisti Douglas A.
Brotchie. Sr. Helga Soffía Konráðs-
dóttir.
LANDSPÍTALI Hringbraut: Guðsþjónusta
kl. 10.30.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.
Vorhátíð barnastarfsins. Við hefjum
stundina í kirkjunni en síðan verður far-
ið í safnaðarheimilið og jafnvel út í leiki.
Grillaðar pylsur og djús á eftir. Allir vel-
komnir.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjónusta og
sunnudagaskóli kl. 11. Að þessu sinni
er hópurinn sem fermdist vorið og
haustið 1952 sérstaklega boðinn til
kirkju. Fermdur verður Gísli Logi Loga-
son. Kór Laugarneskirkju syngur undir
stjórn Gunnars Gunnarssonar. Sr. Bjarni
Karlsson þjónar fyrir altari, en Hrund
Þórarinsdóttir leiðir sunnudagaskólann
ásamt sínu vaska liði. Eygló Bjarnadóttir
er meðhjálpari og messukaffið í umsjá
Sigríðar Finnbogadóttur kirkjuvarðar.
Guðsþjónusta kl. 13 í dagvistarsalnum
Hátúni 12. Gunnar Gunnarsson leikur á
píanó. Þorvaldur Halldórsson syngur.
Margrét Scheving sálgæsluþjónn, Guð-
rún K. Þórsdóttir djákni og sr. Bjarni
Karlsson þjóna. (Sjá síðu 650 í Texta-
varpi).
NESKIRKJA: Messa kl. 11. Prófastur
Reykjavíkurprófastsdæmis vestra, sr.
Jón Dalbú Hróbjartsson, vísiterar Ne-
sprestakall og þjónar við messuna
ásamt sr. Frank M. Halldórssyni og sr.
Erni Bárði Jónssyni, sem prédikar. Kór
Neskirkju syngur undið stjórn Elíasar
Davíðssonar tónskálds. Inga J. Back-
man syngur einsöng. Tinna Ágústsdóttir
og Hákon Atli sýna dans. Barnastarf á
sama tíma undir stjórn Guðmundu Ingu,
Rúnars, Ara, Auðar Olgu og Elsu. Mola-
sopi eftir messu og því næst fundur
prófasts með sóknarnefnd, prestum og
starfsfólki.
SELTJARNARNESKIRKJA: Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Stundin sniðin að
þörfum barnanna. Fáum marga góða
gesti í heimsókn. Barnakór kirkjunnar
syngur. Lúðrasveit Tónlistarskóla Sel-
tjarnarness leikur nokkur létt lög. Boðið
upp á léttar veitingar í safnaðarheim-
ilinu eftir stundina. Minnum á aðalsafn-
aðarfund Seltjarnarnessafnaðar sunnu-
dag kl. 9 árdegis í safnaðarheimilinu.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Þjóðlagamessa
kl. 14. Barnastarf á sama tíma. Maul
eftir messu. Aðalfundur safnaðarins eft-
ir þjóðlagamessuna.
ÍSLENSKA KIRKJAN ERLENDIS:
GAUTABORG: Messa í Skårs kirkju
sunnud. 28. apríl kl. 14. Organisti Kjart-
an Sigurjónsson. Karlakór Reykjavíkur
syngur. Einsöngur Svava Kr. Ingólfs-
dóttir. Kirkjukaffi. Konsert kóranna kl.
16. Skúli S. Ólafsson.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Guðsþjónusta
helgarinnar var föstudagskvöldið 26.
apríl. Því verður engin sunnudagsguðs-
þjónusta þessa helgina. Safnaðarstarf
Fríkirkjunnar í Reykjavík.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Organisti og kórstjóri Pavel Manásek.
Sunnudagaskólinn er á sama tíma í
safnaðarheimilinu. Söngur, sögur og
gleði. Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Regnbogamessa. Yngri
barnakórinn syngur. Organisti: Sigrún
Þórsteinsdóttir. Tómasarmessa kl. 20 í
samvinnu við félag guðfræðinema og
kristilegu skólahreyfinguna. Fyrirbænir,
máltíð Drottins og fjölbreytt tónlist. Gísli
Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11. Prest-
ur sr. Magnús B. Björnsson. Organisti:
Örn Falkner. Kór Digraneskirkju A-hópur.
Sunnudagaskóli í kapellu á sama tíma.
Léttur málsverður í safnaðarsal eftir
messu.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Prestur: Sr. Hreinn Hjartarson.
Orgnaisti: Lenka Mátéová. Kór Fella- og
Hólakirkju syngur. Sunnudagaskóli í
safnaðarheimilinu í umsjón Elínar El-
ísabetar Jóhannsdóttur á sama tíma.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt sr. Vigfúsi Þór
Árnasyni. Allir kórar kirkjunnar syngja:
Kór Grafarvogskirkju, Barna- og ung-
lingakór Grafarvogskirkju og Krakkakór
Grafarvogskirkju. Stjórnandi barna-, ung-
linga- og krakkakórs: Oddný Þorsteins-
dóttir. Organisti: Hörður Bragason. Eftir
guðsþjónustuna er aðalsafnaðarfundur
Grafarvogssóknar. Venjuleg aðalfund-
arstörf. Allir velkomnir. Léttur hádeg-
isverður. Barnaguðsþjónustu kl. 11 í
Grafarvogskirkju neðri hæð. Sr. Anna
Sigríður Pálsdóttir. Umsjón: Ása Björk
og Hlín. Undirleikari: Guðlaugur Vikt-
orsson. Barnaguðsþjónusta kl. 13 í
Engjaskóla. Umsjón: Ása Björk og Hlín.
Undirleikari: Guðlaugur Viktorsson.
HJALLAKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Íris
Kirstjánsdóttir þjónar. Félagar úr kór
kirkjunnar syngja og leiða safn-
aðarsöng. Organisti Jón Ólafur Sigurðs-
son. Aðalsafnaðarfundur Hjallasóknar
strax að messu lokinni. Venjuleg aðal-
fundastörf. Léttur hádegisverður fram
borinn á fundinum. Vorferð barnastarfs-
ins kl. 12. Lagt af stað í óvissuferð frá
Lindaskóla kl. 11.45 og frá Hjallakirkju
kl. 12. Allir hjartanlega velkomnir.
Kvöldsamkoma kl. 20. Gospelkór
Reykjavíkur syngur við undirleik Óskars
Einarssonar og Jóhanns Ásmundssonar.
Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson leiðir
stundina. Við minnum á bæna- og kyrrð-
arstund á þriðjudag kl. 18.
KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf í safn-
aðarheimilinu Borgum kl. 11. Guðsþjón-
usta kl. 11. Kór Kópavogskirkju syngur
og leiðir safnaðarsöng. Organisti og kór-
stjóri Julian Hewlett. Kópamessa kl.
20.30 en í þeim er lögð áhersla á virka
þátttöku kirkjugesta og tónlist með
nokkuð öðrum blæ en í hefðbundnum
guðsþjónustum. Félagar úr kór Kópa-
vogskirkju leiða safnaðarsöng en um
tónlistina sjá Julian Hewlett og Krist-
mundur Guðmundsson. Sigríður Stef-
ánsdóttir aðstoðar við altarisgöngu. Sr.
Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14. Sr.
Ágúst Einarsson prédikar. Organisti er
Gróa Hreinsdóttir. Altarisganga. Guðs-
þjónusta í Skógarbæ kl. 16. Sr. Ágúst
Einarsson prédikar. Organisti er Gróa
Hreinsdóttir.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Morg-
unguðsþjónusta kl. 11 í umsjá „Worship
Planet“-tónlistarhópsins – kveðju-
samkoma þeirra. Samkoma kl. 20 í
umsjá eins af heimahópum kirkjunnar.
Mikil lofgjörð og fyrirbænir. Allir hjart-
anlega velkomnir. Skoðið efnið á heima-
síðu kirkjunnar. Slóðin er www.kristur.is.
Sjónvarpsþátturinn „Um trúna og til-
veruna“ er sýndur á Omega sunnud. kl.
13.30.
FRÍKIRKJAN VEGURINN: Fjölskyldu-
samkoma kl. 11, létt máltíð og sam-
félag að samkomu lokinni. Bænastund
kl. 19.30. Samkoma kl. 20, Högni Vals-
son predikar, lofgjörð, fyrirbænir og
samfélag, allir hjartanlega velkomnir.
Matar- og skemmtikvöld vorsins verður
hinn 4. maí. Allar nánari upplýsingar á
skrifstofu tíma í síma 564-2355.
KLETTURINN: Almenn samkoma fyrir
alla fjölskylduna kl. 11. Mikil lofgjörð og
tilbeiðsla. Allir velkomnir.
FÍLADELFÍA: Almenn samkoma kl.
16.30 í umsjón kvenna sem eru að
koma af Kvennamóti. Lofgjörðarhópur
Fíladelfíu leiðir söng. Allir hjartanlega
velkomnir.
KEFAS, Vatnsendabletti 601: Sam-
koma sunnudag kl. 16.30. Ræðumaður
Helga R. Ármannsdóttir. Bænastund fyr-
ir samkomu kl. 16. Lofgjörð og fyr-
irbænir. Tvískipt barnastarf fyrir börn frá
eins árs aldri. Þriðjud.: Bænastund kl.
20.30. Miðvikud.: Samverustund unga
fólksins kl. 20.30. Mikil lofgjörð og Orð
Guðs rætt. Allir velkomnir.
KFUM og KFUK v/Holtaveg: Samkoma
kl. 17. „Ert þú nýi maðurinn?“ Guð-
laugur Gíslason og Birna Gerður Jóns-
dóttir flytja fréttir frá Eþíópíu en þau eru
nýkomin þaðan. Skúli Svavarsson talar.
Grillað eftir samkomuna. Barna-
samkoma kl. 17 í kjallarasal fyrir 6 ára
og eldri. Þar er ratleikur á dagskrá.
Vaka kl. 20.30. „Vinningurinn er Jesús“
Guðbjörg Erla Guðbjörnsdóttir, Elísabet
Haraldsdóttir og Haukur Árni Hjartarson
flytja vitnisburði. Allir eru hjartanlega
velkomnir á samkomur KFUM og KFUK.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Reykjavík – Kristskirkja í Landakoti:
Sunnudaga: Hámessa kl. 10.30. Messa
á ensku kl. 18. Alla virka daga: Messa
kl. 18. Einnig messa kl. 8 suma virka
daga (sjá nánar á tilkynningablaði á
sunnudögum). Maímánuður er settur
sérstaklega undir vernd heilagrar Maríu
meyjar og tileinkaður henni. Haldin verð-
ur bænastund á hverjum mánudegi og
fimmtudegi kl. 17.40. Opnun Maríumán-
aðar maí með bænastund er miðviku-
daginn 1. maí kl. 17.40. Föstudaginn 3.
maí er tilbeiðslustund að kvöldmessu
lokinni til kl. 19.15.
Reykjavík – Maríukirkja við Raufarsel:
Sunnudaga: Messa kl. 11. Laugardaga:
Messa á ensku kl. 18.30. Virka daga:
Messa kl. 18.30.
Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl.
16. Miðvikudaga: Messa kl. 20.
Hafnarfjörður – Jósefskirkja: Sunnu-
daga: Messa kl. 10.30. Miðvikudaga:
Skriftir kl. 17.30. Messa kl. 18.30.
Föstudaginn 3. maí kl. 17.30 tilbeiðslu-
stund og kl. 18.30 messa.
Karmelklaustur: Sunnudaga: Messa kl.
8.30. Virka daga: Messa kl. 8.
Keflavík – Barbörukapella: Skólavegi
38: Sunnudaga: Messa kl. 14. Fimmtu-
daga: skriftir kl. 19.30. Bænastund kl.
20.
Stykkishólmur, Austurgötu 7: Laug-
ardaga: Messa kl. 18.30. Sunnudaga:
Messa kl. 10.
Ísafjörður: Sunnud: Messa kl. 11.
Flateyri: Laugard: Messa kl. 18.
Bolungarvík: Sunnud. kl. 16.
Suðureyri: Sunnud: Messa kl. 19.
Akureyri, Kaþólska kirkjan: Péturskirkja,
Hrafnagilsstræti 2: Laugardaga: Messa
kl. 18. Sunnudaga: Messa kl. 11.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Kl.
11 messa með altarisgöngu, á sama
tíma er sunnudagaskólinn í kirkjunni,
fyrir predikun fara börnin yfir í safn-
aðarheimilið og fá fræðslu við sitt hæfi.
Kl. 14:00 Guðsþjónusta á Hraunbúðum.
Kl. 17 æfing Litlu lærisveinanna í Al-
þýðuhúsinu. Kl. 20 æskulýðsfundur
Landakirkju og KFUM&K í safnaðarheim-
ilinu.
MOSFELLSKIRKJA: Guðþjónusta kl. 11.
Guðsþjónustan er helguð minningu Hall-
dórs Laxness. Predikun: dr. Gunnar
Kristjánsson, prófastur á Reynivöllum.
Einsöngur: Sigrún Hjálmtýsdóttir. Klarin-
ett: Sigurður I. Snorrason. Kirkjukór
Lágafellsóknar syngur lög við ljóð Hall-
dórs Laxness. Organisti: Jónas Þórir.
Altarisþjónusta: sr. Jón Þorsteinsson
sóknarprestur. Kirkjukaffi í safn-
aðarheimilinu að lokinni guðsþjónustu.
Barnaguðsþjónusta í Lágafellskirkju kl.
13. Sóknarprestur – sóknarnefnd.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Messa kl.
11. Altarisganga. Organisti Natalía
Chow. Félagar úr Kór Hafnarfjarðarkirkju
leiða söng. Prestar: Prestar Hafnarfjarð-
arkirkju. Aðalsafnaðarfundur eftir messu
í Hásölum Strandbergs.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Fermingarguðsþjón-
usta kl. 11. Fermd verður Auður Helga
Auðunsdóttir. Prestur sr. Bragi J. Ingi-
bergsson. Kirkjukór Víðistaðasóknar
syngur. Barnastarfi vetrarins lýkur nk.
sunnudag 28. apríl með vorferð í Borg-
arnes.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Barna-
samkoma kl.11. Umsjón Sigríður Krist-
ín, Edda, Örn og Hera.
GARÐAKIRKJA: Fermingarmessur kl.
10.30 og 13.30. Sjá lista yfir börnin á
öðrum stað í blaðinu. Sr. Friðrik J Hjart-
ar og sr. Hans Markús Hafsteinsson
þjóna. Kirkjukórinn syngur undir stjórn
organistans, Jóhanns Baldvinssonar.
Engin athöfn í Vídalínskirkju þennan
dag. Prestarnir.
SELFOSSKIRKJA: Messa, sunnudaga-
skóli og ferming sunnudag kl. 10.30.
Ath. brettur tími. Súpa og brauð eftir
messu. Fermingarmessa einnig kl. 14.
Morguntíð sungin þriðjudag til föstu-
dags kl. 10. Kaffisopi að henni lokinni.
Foreldrasamvera miðvikudag kl. 11.
Kirkjuskóli miðvikudag kl. 14.30 í Sand-
víkurskóla, stofu 6. Sóknarprestur.
EYRARBAKKAKIRKJA: Messa kl. 11.
Ferming. Sóknarprestur.
ODDAKIRKJA á Rangárvöllum: Ferming-
armessa kl. 13:30. Organisti Nína
María Morávek. Sóknarprestur.
AKUREYRARKIRKJA: Messa kl. 11. Sr.
Svavar A. Jónsson. Félagar úr Kór Ak-
ureyrarkirkju syngja. Organisti: Björn
Steinar Sólbergsson. Messa á Seli kl.
14.30. Sr. Svavar A. Jónsson. Messa á
Hlíð kl. 16.oo. Sr. Jóna Lísa Þorsteins-
dóttir. Fundur í Æskulýðsfélagi kirkj-
unnar kl. 17. Æðruleysismessa kl.
20.30. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdótti og
sr. Svavar A. Jónsson. Mikill söngur,
reynslusaga og fyrirbænir. Bænakarfan
á sínum stað. Inga Eydal leiðir almenn-
an söng og syngur einsöng. Snorri Guð-
varðarson og Viðar Garðarsson leika á
gítar og bassa. Kaffi og meðlæti í Safn-
aðarheimili eftir messu.
GLERÁRKIRKJA: Fermingarmessa laug-
ardag 27. apríl kl. 13.30. Fjölskyldu-
guðsþjónusta sunnudag kl. 11.
HVÍTASUNNUKIRKJAN á Akureyri:
Sunnudaginn 28. apríl kl. 11.30 verður
fjölskyldusamvera, þar sem allir aldurs-
hópar fá kennslu við sitt hæfi. Stella
Sverrisdóttir mun predika. Súpa og
brauð í hádeginu. Síðan kl. 16.30 verð-
ur vitnisburðarsamkoma í umsjá Snjó-
laugar Jónsdóttur. Fjölbreytt lofgjörð-
artónlist, fyrirbænaþjónusta og
barnapössun. Allir eru hjartanlega vel-
komnir.
GRENIVÍKURKIRKJA: Kirkjuskóli laug-
ardaginn 27. apríl kl. 17. (Ath. breyttan
tíma). Kyrrðarstund sunnudagskvöldið
28. apríl kl. 21. Sóknarprestur.
EGILSSTAÐAKIRKJA: Sunnudagaskóla-
ferðalag (óvissuferð) – Brottför frá kirkj-
unni kl. 10.30 – komið aftur fyrir kl. 14.
29. apríl (mánud.) Kyrrðarstund kl. 18.
Sóknarprestur
EIÐAPRESTAKALL: Sleðbrjótskirkja.
Messa 27. apríl kl. 16. Fermd verður:
Auður Jónsdóttir.
EIÐAKIRKJA: Messa 28. apríl kl. 11 við
upphaf héraðsfundar og lok leik-
mannastefnu. Sr. Cecil Haraldsson pré-
dikar. Sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson og
Sr. Þórey Guðmundsdóttir þjóna fyrir alt-
ari. Allir velkomnir. Sóknarprestur.
Guðspjall dagsins:
Sending heilags anda.
(Jóh. 16.)
s e m e r f i t t e r a ð y f i r g e f a
s
ó
fa
r
Mán.– Fös. 10.00 –18.00 • Laugard. 11.00 –16.00 • Sunnud. 13.00 –16.00
OPIÐ:
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
•
N
M
0
6
0
7
4
/
si
a.
is þægilegir sófar
blár, grænn og grár
119.000kr.
Florida
2ja og 3ja sæta
tmhusgogn.is
Ertu a› ver›a pabbi?
Pabbi er greinargó› handbók
sem svarar öllum helstu
spurningum umme›göngu,
fæ›ingu og ungbarni›.
Ómissandi bók fyrir ver›andi
fe›ur.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
ED
D
17
52
9
04
/2
00
1
MENNINGARMÁL