Morgunblaðið - 27.04.2002, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 27.04.2002, Blaðsíða 53
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2002 53 ÁTTHAGAFÉLAG Sandara stend- ur fyrir kynningu á þjóðgarðinum Snæfellsjökli í Litlu-Brekku (hús á bak við veitingahúsið Lækjar- brekku í Bankastræti 2), sunnudag- inn 28. apríl kl. Heiðursgestir verða Kristján Þorkelsson og Sigríður Markúsdóttir. Ræðumaður verður Finnur Guðsteinsson. Dagskráin hefst með stuttum aðalfundi félags- ins og síðan tekur við kynning á þjóðgarðinum og um hana sjá Guð- björg Gunnarsdóttir þjóðgarðs- vörður og Skúli Alexandersson hót- el- og ferðamálastjóri á Hellissandi. Einnig verður kynnt árshátíð Átthagafélagsins sem verður hald- in 4. maí og ferð félagsins á fornar slóðir helgina 12. – 14. júlí í sumar. En þá ætla burtfluttir Sandarar að fylkja liði vestur og halda þar hátíð með frændum okkar og vinum á Hellissandi, segir í fréttatilkynn- ingu. Kynning á þjóðgarðinum Snæfellsjökli AÐALFUNDUR Heilsuhringsins verður haldinn í Norræna húsinu í dag, laugardaginn 27. apríl, kl. 13. Að loknum aðalfundarstörfum kl. 14 verða flutt þrjú erindi: Gunnar Eyjólfsson, leikari, um lífsleikni, Þorbjörg Hafsteinsdóttir, næringar- þerapisti ræðir um samstillta horm- óna með réttu mataræði og Ævar Jó- hannesson ræðir um hvað náttúru- legt prógesteron er. Tímaritið Heilsuhringurinn kem- ur út tvisvar á ári, vor og haust. Þar er leitast við að miðla fræðslu um heildrænar leiðir til að viðhalda heil- brigði og benda á áhugaverðar nýj- ungar á sviði lækninga, segir í frétta- tilkynningu. Aðalfundur Heilsuhringsins UNIFEM á Íslandi heldur aðalfund mánudaginn 29. apríl kl. 19.30 á Laugavegi 7, 3. hæð. Fyrri hluta fundarins verða hefð- bundin aðalfundarstörf, en að honum loknum um kl. 20:30 heldur Jónína Einarsdóttir doktor í mannfræði er- indi um hvernig þróunaraðstoð komi að bestum notum. Einnig mun hún segja frá starfi sínu með Papel-kon- um í Gíneu-Bissá. UNIFEM er þróunarsjóður á veg- um Sameinuðu þjóðanna. Markmið félagsins er þríþætt; að styrkja fjár- hagslega stöðu kvenna, hvetja konur til forystustarfa og stjórnunar og berjast fyrir almennum mannrétt- indum konum til handa. Fundurinn er öllum opinn, segir í fréttatilkynningu. Aðalfundur UNIFEM SÍÐASTLIÐIÐ sumar var haldið í tengslum við Evrópska tungumála- árið námskeið í frönsku og íslensku með áherslu á matarmenningu beggja landa. Námskeiðið var haldið á frönsku eyjunni île d’Oléron. Valfríður Gísladóttir frönsku- kennari, Ragnar Wessman mat- reiðslumeistari og Inga Karlsdóttir íslenskukennari, öll starfandi við Menntaskólann í Kópavogi, ætla að endurtaka námskeiðið í sumar með áherslu á vettvangskennslu þar sem nemendur takast á við verkefni, fara í námstengdar skoðunarferðir og kitla bragðlaukana um leið en hér- aðið er til dæmis þekkt fyrir sjáv- arsælgæti, segir í fréttatilkynningu. Frönskunám í Frakklandi FYRIRLESTUR um loftslagsbreyt- ingar verður haldinn í Lögbergi, stofu 101, Háskóla Íslands, mánudag- inn 29. apríl. kl. 16. Eru tengsl milli breytinga á loftslagi og aukins styrks gróðurhúsalofttegunda í andrúms- lofti? Ef sú er raunin er hægt að draga úr þessum breytingum? Þetta eru spurningar sem dr. Rolf Skrinde mun fjalla um á fyrirlestri sínum. Rolfe Skrinde er prófessor í um- hverfisverkfræði við Seattle-háskóla í Bandaríkjunum. Hann hefur starfað við rannsóknir, kennslu og ráðgjöf í umhverfis- og orkumálum í meira en 40 ár. Hann dvelur nú á Íslandi sem Fulbright-styrkþegi við Háskóla Ís- lands. Fyrirlesturinn er á vegum Um- hverfisstofnunar HÍ og verkfræði- deildar, umhverfis- og byggingar- fræðiskorar. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn, segir í fréttatilkynningu. Fyrirlestur um loftslags- breytingar NEMENDASÝNING Dansskóla Jóns Péturs og Köru verður haldin í Broadway á Hótel Íslandi sunnudag- inn 28. apríl. Þar munu allir nemendur í barna- og unglingahópum skólans ásamt nokkrum fullorðinshópum koma fram með sýnishorn af því sem þeir hafa lært í vetur. Meðal þeirra sem koma fram á sýningunni eru marg- faldir Íslandsmeistarar og núver- andi Norðurlandameistarar í dansi. Húsið verður opnað kl. 12 og hefst sýningin kl.13. Miðar á sýninguna og keppnina verða seldir á Hótel Íslandi 28. apríl og hefst miðasala kl. 12. Frítt er fyrir 11 ára og yngri en aðgangseyrir fyrir 12 ára og eldri er 500 kr., segir í fréttatilkynningu. Dansskóli Jóns Péturs og Köru Nemendasýning FERÐAFÉLAG Íslands stendur fyrir göngu á Hafnarfjall við Borg- arfjörð sunnudaginn 28. apríl. Þetta er um 4 tíma ganga og gönguhækkun er um 740 m. Fjallið er rofleif úr jaðri megineldstöðvar sem talin er um fjögurra milljóna ára gömul. Útsýni af fjallinu er mikið, allt Snæfellsnes, yfir Faxaflóann og langt eftir Norðurlandi og vestan- verðu miðhálendinu. Ferðin kostar kr. 1.800 fyrir fé- lagsmenn en kr. 2.100 fyrir aðra. Fararstjóri verður Sigurður Krist- jánsson. Brottför frá BSÍ kl. 10.30 með viðkomu í Mörkinni 6, segir í fréttatilkynningu. Gengið á Hafnarfjall FRAMBOÐSLISTI Framsóknar- flokksins fyrir bæjarstjórnarkosn- ingar á Siglufirði 25. maí var sam- þykktur á fundi trúnaðarráðs 17. apríl sl. Listann skipa: 1. Skarphéðinn Guðmundsson kennari, 2. Guðrún Ó Pálsdóttir bankamaður, 3. Kristinn Bogi Antonsson fiskeldisfræðingur, 4. Þorgeir Bjarnason málarameist- ari, 5. Ásdís Magnúsdóttir skrif- stofumaður, 6. Rósa Jónsdóttir stuðningsfulltrúi, 7. Margrét Gunn- arsdóttir starfsmaður íþróttahúss, 8. Herdís Erlendsdóttir bóndi, 9. Þor- steinn B.Bjarnason hjúkrunarfræð- ingur, 10. Freyr Sigurðsson fram- kvæmdastjóri, 11. Sigríður Björns- dóttir húsmóðir, 12. Adolf Árnason lögregluþjónn, 13. Kristín Bogadótt- ir skrifstofumaður, 14. Þorsteinn Sveinsson verkamaður, 15. Aðal- björg Þórðardóttir starfsmaður heil- brigðisstofnunar, 16. Sveinn H. Zophaníasson verktaki, 17. Þóranna Óskarsdóttir leiðbeinandi og 18. Sverrir Sveinsson veitustjóri. Listi Framsóknar- flokksins á Siglufirði MÁLSTOFA í hjúkrunarfræði á vegum Rannsóknarstofnunar í hjúkrunarfræði verður haldin mánu- daginn 29. apríl , kl. 12.15 í stofu 6 á 1. hæð í Eirbergi, Eiríksgötu 34. Erla Kolbrún Svavarsdóttir dós- ent flytur fyrirlesturinn: Þróun hjúkrunarmeðferðar fyrir fjölskyld- ur barna- og unglinga með krabba- mein. Tilgangur rannsóknarinnar var að meta umönnunarálag for- eldra, almenna líðan þeirra og skynj- un foreldranna á heilbrigðisástandi barnsins á þremur tímapunktum yfir eins og hálfs árs tímabil, segir í fréttatilkynningu. Málstofan er öllum opin. Málstofa í hjúkrunarfræði LANDSKEPPNI framhaldsskóla- nemenda í efnafræði árið 2001– 2002 lauk helgina 6. og 7. apríl. Í forkeppninni 6. nóvember síðastlið- inn kepptu samtals 116 nemendur frá ellefu skólum um land allt. Í úrslitakeppnina voru svo boð- aðir efstu 24 nemendurnir úr for- keppninni. Keppnin fór fram í framhaldsskólunum laugardaginn 9. mars. Að teknu tilliti til árangurs og aldurs voru valdir efstu ellefu keppendur af þessum 24 sem síðan þreyttu keppni í verklegri efna- fræði. Sú keppni fór fram í Háskóla Íslands dagana 6. og 7. apríl. Að lokinni keppninni voru valdir fjórir nemendur í keppnislið Íslands, sem tekur þátt í 34. Ólympíuleikunum í efnafræði sem fram fara í Hollandi dagana 5.–14. júlí nú í ár. Efstu nemendur í úrslitakeppn- inni voru sem hér segir: 1. Erlendur Jónsson frá Menntaskólanum í Kópavogi, 2. Kristján Alexanders- son frá Menntaskólanum á Akur- eyri, 3. Helga Dögg Flosadóttir frá Menntaskólanum í Reykjavík, 4. Gunnar Þorgilsson frá Mennta- skólanum á Akureyri, 5. Lydía Ósk Ómarsdóttir frá Menntaskólanum í Reykjavík, 6. Húni Sighvatsson frá Menntaskólanum við Hamrahlíð. Vegna þátttöku Kristjáns Alex- anderssonar og Gunnars Þorgils- sonar í eðlisfræðikeppninni í Indó- nesíu í sumar munu þau Lydía Ósk Ómarsdóttir og Húni Sighvatsson ásamt þeim Erlendi Jónssyni og Helgu Dögg Flosadóttur keppa fyr- ir Íslands hönd á Ólympíuleikunum í efnafræði. Nemendurnir munu fá þjálfun við Háskóla Íslands um hálfs mánaðar skeið fyrir keppnina í Hollandi. Efnafræðifélag Íslands og Félag raungreinakennara hafa skipulagt landskeppnina í efnafræði, sem fram fór í fyrsta sinn síðastliðið haust. Markmið keppninnar er að efla áhuga framhaldsskólanema á raungreinum. Nokkrir kennarar við Háskóla Íslands sömdu verk- efnin og fóru yfir úrlausnirnar ásamt nefndarmönnum í Ólympíu- nefnd Íslands í efnafræði. Aðalstyrktaraðili keppninnar er menntamálaráðuneytið og greiðir það allan fararkostnað á Ólympíu- leikana. Aðrir styrktaraðilar eru Íslensk erfðagreining hf., Tandur hf., Ensímtækni ehf., Sementsverk- smiðjan hf. og Mál og menning, sem gaf bækur til verðlaunahafa, segir í fréttatilkynningu. Þátttakendur í úrslitakeppninni undirbúa verklega hluta keppninnar. Landskeppni í efnafræði ÍSLANDSMÓTIÐ í kjokpa (brot) fer fram í dag, laugardaginn 27. apr- íl, kl. 13-14.30 í Engjaskóla, Grafar- vogi. Keppendur munu koma til með að brjóta spýtur, steina og fleira. Keppt verður í nokkrum beltaflokk- um. Kl. 12 fer fram Íslandsmót í púmse (form) þar sem keppendur gera eitt form til stiga. Sú keppni gengur mjög hratt fyrir sig og ætti að klárast á 40-50 mínútum, segir í fréttatilkynningu. Íslandsmót í brotum ÓHÁÐ framboð á Seyðisfirði. Þinn flokkur, Þ-listinn á Seyðisfirði, hélt félagsfund sunnudaginn 21. apríl, þar sem tillaga að framboðslista fyr- ir komandi kosningar til bæjar- stjórnar var samþykkt. Jón Þór Ey- þórsson, viðskiptalögfræðingur, skipar efsta sæti Þ-listans á Seyð- isfirði. Jón Þór er jafnframt bæjar- stjóraefni framboðsins. Framboðslisti Þ-listans vegna bæjarstjórnarkosninga á Seyðisfirði er sem hér segir: 1. Jón Þór Eyþórs- son viðskiptalögfræðingur, 2. Þor- geir Sigurðsson verktaki, 3. Sigurjón Guðmundsson lögregluþjónn, 4. Kristinn Valdimarsson öryrki, 5. Hallgrímur Jónsson frumkvöðull og nýherji, 6. Haraldur Sigmarsson út- gerðarmaður, 7. Halldóra Eiríks- dóttir matreiðslukona, 8. Stefán Ó. Sigurðsson verkamaður, 9. Sigurður S. Stefánsson framhaldsskólanemi, 10. Lilja Björk Birgisdóttir húsmóð- ir 11. Sigurbergur Sigurðsson verk- taki og 12. Eyþór Þórisson hótel- stjóri. Þ-listinn á Seyðisfirði BIRTUR hefur verið Ó-listi, listi óháðra, í nýju sameinuðu sveitarfé- lagi í vesturhluta Rangárvallasýslu, en í sveitarstjórnarkosningunum í vor verður í fyrsta sinn kosið eftir sameiningu þriggja hreppa, þ.e. Rangárvallahrepps, Djúpárhrepps og Holta- og Landsveitar, en samein- ingin tekur gildi eftir kosningar. Listinn er þannig skipaður: 1. Heimir Hafsteinsson oddviti, Djúp- árhreppi, 2. Elísabet S. Jóhannsdótt- ir kennari, Holta- og Landsveit, 3. Eggert V. Guðmundsson verkstjóri, Rangárvallahreppi, 4. Þröstur Sig- urðsson framkvstjóri, Rangárvalla- hreppi, 5. Margrét Eggertsdóttir bóndi, Holta- og Landsveit, 6. Þor- björg Atladóttir ferðaþjbóndi, Rang- árvallahreppi, 7. Halldóra Gunnars- dóttir verslunarstjóri, Djúpárhreppi, 8. Gunnar Guttormsson kúabóndi, Holta- og Landsveit, 9. Gísli Stefáns- son kjötiðnaðarmaður, Rangárvalla- hreppi, 10. Guðný R. Tómasdóttir skrifstofumaður, Rangárvallahreppi, 11. Anna L. Torfadóttir leikskóla- stjóri, Djúpárhreppi, 12. Gestur Ágústsson skólabílstjóri, Djúpár- hreppi, 13. Ólafur Andrésson bóndi, Holta- og Landsveit, 14. Jón Jónsson bifvélavirki, Rangárvallahreppi, 15. Ómar Diðriksson rakari, Djúpár- hreppi, 16. Sigurjón Helgason nemi, Holta- og Landsveit, 17. Steindór Tómasson verkamaður, Rangárvalla- hreppi, 18. Sigrún Haraldsdóttir matráðskona, Holta- og Landsveit. Óháð framboð í vesturhluta Rangárþings Hellu. Morgunblaðið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.