Morgunblaðið - 27.04.2002, Page 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Skeifan 17 • Sími 550 4000 • www.atv.is
Morgunblaðið/Þorkell
Barist í
flúðunum
ÞESSI kappi lét ekki hvítfyssandi
strauma slá sig út af laginu í flúða-
fimi Kajakklúbbsins, sem fram fór í
Elliðaánum í gær. Þetta er í þriðja
sinn sem klúbburinn stendur fyrir
slíkri keppni í rafveitustrengnum
fyrir neðan Elliðaárrafstöð Orku-
veitu Reykjavíkur. Keppnin fer
ávallt fram síðasta föstudag í apríl
því 1. maí ár hvert er slökkt á
Elliðaárstöð fyrir sumarið og þá
styttist í að laxveiðimenn fari að
sjást, kappklæddir í vöðlum og
veiðivesti, úti í miðri á.
ÍSLENSK stúlka
sem yfirhershöfðingi
kólumbíska stjórnar-
hersins, Fernando
Tapias, bendlaði við
Írska lýðveldisher-
inn (IRA) í vitnis-
burði fyrir þingnefnd
í Washington á mið-
vikudag, kveðst enga
hugmynd hafa um
hvernig nafn hennar
getur hafa blandast í
umræðu um alþjóð-
leg hryðjuverkasam-
tök. Hún segist helst
telja að í Kólumbíu
hafi menn ruglað
saman Íslandi og Ír-
landi þegar hún var
þar á ferð í fyrrasumar.
Ferðuðust um yfirráðasvæði
FARC-skæruliða
Bresk blöð greindu frá því á
fimmtudag að Margrét Ósk
Steindórsdóttir hefði verið með-
al sjö einstaklinga sem Tapias
nafngreindi sem meinta liðs-
menn IRA fyrir þingnefndinni
bandarísku. Sagði í fréttum The
Independent og The Guardian
að Tapias hefði sagt að sjömenn-
ingarnir hefðu veitt FARC-
skæruliðahreyfingunni í Kól-
umbíu aðstoð, m.a. þjálfað liðs-
menn hennar í meðferð sprengi-
efna.
Þrír mannanna voru hand-
teknir í fyrra og bíða enn dóms í
Kólumbíu en í máli Tapias kom
fram að fjórum til
viðbótar hefði verið
sleppt vegna skorts
á sönnunargögnum,
þ.á m. Margréti
Ósk.
Margrét kom af
fjöllum þegar Morg-
unblaðið náði sam-
bandi við hana í gær
en hún er stödd í
Sydney í Ástralíu.
Hún segist ekki
hafa verið í slagtogi
með neinum Írum
er hún var á ferða-
lagi um Kólumbíu
heldur með dönsk-
um unnusta sínum
og tveimur Frökk-
um. Voru þau yfirheyrð af kól-
umbíska stjórnarhernum eftir að
þau höfðu ferðast um svæði, sem
laut yfirráðum FARC-manna,
enda fannst þeim grunsamlegt
að þau hefðu farið um svæðið án
þess að verða meint af.
Segir Margrét Ósk að þeim
hafi hins vegar verið sleppt. Ef
til vill hafi gögn hennar síðan
lent í röngum bunka í höfuð-
stöðvum kólumbíska hersins.
„Það er allavega ekki um það að
ræða að ég tengist einhverju
svona,“ sagði Margrét Ósk.
Hún segist munu leita til
bandarísks sendiráðs til að
reyna að leiðrétta misskilning-
inn.
Telur að menn
rugli saman Ír-
landi og Íslandi
Bendluð við IRA á Bandaríkjaþingi
Margrét Ósk Stein-
dórsdóttir
Þóttu grunsamleg/4
ÓSKAR Jósefsson, forstjóri Lands-
símans, segir að ekki hafi verið rætt
um að draga til baka uppsagnir átta
starfsmanna Landssímans á Akur-
eyri sem sagt var upp störfum í síð-
ustu viku. Hann segir Símann hafa
hug á að skoða hvaða leiðir séu fær-
ar til að nýta þá starfsaðstöðu sem
fyrirtækið á og skapa ný störf á Ak-
ureyri sem geti skilað fyrirtækinu
og Norðlendingum árangri og arð-
semi.
Óskar var á Akureyri í gær og
átti m.a. fund með Kristjáni Þór
Júlíussyni bæjarstjóra vegna þeirr-
ar hörðu gagnrýni sem fram hefur
komið á uppsagnir starfsfólksins.
Haft var eftir bæjarstjóra í Morg-
unblaðinu í gær að bærinn hygðist
endurskoða og jafnvel segja upp
viðskiptum sínum við Símann í kjöl-
far uppsagnanna.
Að sögn Óskars fóru þeir yfir
málið án þess að ákveðin niðurstaða
yrði af fundinum. ,,Við áttum ágætis
fund, fórum yfir stöðuna og þá
gagnrýni sem sett hefur verið fram
og yfir stöðuna í okkar viðskiptum
og áframhaldandi samstarfi,“ sagði
Kristján eftir fundinn í gærkvöldi.
,,Ég hef fulla trú á að Síminn muni
bregðast við þeirri gagnrýni sem
hann hefur fengið á sig,“ sagði bæj-
arstjóri, en vildi að öðru leyti ekki
tjá sig um viðræðurnar.
Á hins vegar að gera þetta
eins manneskjulega og hægt er
Spurður um þá hörðu gagnrýni
sem fram hefur komið á uppsagnir
starfsmannanna og hvernig staðið
var að þeim sagði Óskar að slík mál
væru alltaf mjög viðkvæm, sérstak-
lega úti á landsbyggðinni og því
væri ósköp eðlilegt að menn brygð-
ust við.
Spurður hvort hann gæti fallist á
að ranglega hefði verið að uppsögn-
unum staðið svaraði Óskar því neit-
andi. ,,Þetta er ferli sem alltaf er
mjög viðkvæmt og sjálfsagt finnst
öllum sem verða fyrir því að það
hefði mátt gera öðruvísi og það er
vissulega alltaf ástæða til þess að
vera opinn fyrir gagnrýni og velta
því fyrir sér hvort það hefði mátt
geta hlutina öðruvísi. En það er nú
ekki til nein ein góð uppskrift að því
og þetta verður aldrei gert þannig
að því verði tekið með neinum fagn-
aðarlátum. Það á hins vegar nátt-
úrlega að gera þetta eins mann-
eskjulega og hægt er,“ sagði Óskar.
Hann segir nú unnið að því að
skoða framtíðarfyrirkomulag fyrir-
tækisins og staðsetningu starfsþátta
og það þjóni hagsmunum lands-
byggðarinnar best að þar sé um
starfsþætti að ræða sem standist
hagræna skoðun. Hagsmunir Sím-
ans og Akureyringa fari saman á
mörgum sviðum og ekki standi ann-
að til en að sú starfsaðstaða sem
fyrirtækið á á Akureyri verði nýtt
áfram.
Skoða leiðir til að
skapa ný störf
Forstjóri Símans átti fund með bæjarstjóra
Akureyrar vegna gagnrýni á uppsagnir
SÓLVEIG Pétursdóttir dómsmála-
ráðherra segir að ekkert verði gefið
eftir til að uppræta eiturlyfja-
vandann og þó að rætt hafi verið um
að koma á fót miðstöð fyrir neyt-
endur morfínskyldra lyfja þýði það
ekki uppgjöf í baráttunni gegn eit-
urlyfjum, því eiturlyf eigi ekki
heima í samfélaginu. Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir, borgarstjóri í
Reykjavík, tekur í sama streng og
segir að tilslakanir komi ekki til
greina.
Níundu borgarstjóraráðstefnu
Samtaka evrópskra borga gegn eit-
urlyfjum lauk á Grand hóteli í
Reykjavík í gær. Í ræðu dómsmála-
ráðherra á ráðstefnunni í gær kom
m.a. fram að þegar eiturlyf væru
annars vegar væri um alþjóðlegt
vandamál að ræða og því væri al-
þjóðleg samvinna nauðsynleg til að
vinna á vandanum.
Sólveig Pétursdóttir sagði að að-
gerðir íslenskra stjórnvalda í bar-
áttunni gegn eiturlyfjum hefðu bor-
ið árangur en koma þyrfti í veg fyrir
eiturlyfjaneyslu í fangelsum og mik-
ilvægt væri að beina eiturlyfjaneyt-
endum á rétta braut á ný með
markvissri endurhæfingu og nauð-
synlegri aðstoð.
Hún sagði að margir gagnrýndu
stöðuna og segðu baráttuna tapaða
en hún benti á að gagnrýnin ætti
ekki rétt á sér. Í því sambandi
spurði hún hver staðan væri ef eit-
urlyfjum hefði verið leyft að flæða
eftirlitslaust inn í landið, ef ekkert
hefði verið gert til að vara fólk við
hættum samfara eiturlyfjaneyslu, ef
uppbygging lögreglu, tollgæslu og
fleiri starfsstétta hefði ekki átt sér
stað og ef ekkert hefði verið gert í
sambandi við meðferðarstofnanir.
Ógn við grundvallar-
mannréttindi
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var á
sama máli og sagði að framleiðend-
ur eiturlyfja, burðardýr og sölu-
menn dauðans sem og þeir sem
vildu lögleiða eiturlyf væru ógn við
grundvallarmannréttindi sem væri
frelsi frá eiturlyfjum. Gegn þeim
þyrfti að berjast með samstilltu
átaki og treysta mætti á Reykjavík í
þeirri herferð.
Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra
Ekkert gefið eft-
ir í baráttu gegn
eiturlyfjum
Engin uppgjöf/32