Morgunblaðið - 01.05.2002, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 01.05.2002, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ JÓHANNA Sigurðardóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, gerði að umtalsefni á Alþingi í gær að for- sætisráðherra hafi neitað ósk henn- ar um að ræða í utan dagskrár- umræðu vaxandi fátækt sem blasir við í þjóðfélaginu. „Samkvæmt upp- lýsingum frá kirkjunni, Mæðra- styrksnefnd og Félagsþjónustu sveitafélaga hefur þeim fjölgað um 20–30% milli ára sem þiggja fjár- hagsaðstoð sveitarfélaga og matar- gjafir hjálparstofnana og snertir þetta um 10–15 þúsund einstaklinga og fjölskyldur.“ Jóhanna vakti athygli á því að í dag, 1. maí, á hátíðardegi verka- fólks, ætluðu verkalýðsfélög að mót- mæla því að fullvinnandi fólk, lág- launastéttir og lífeyrisþegar þurfi í vaxandi mæli að sækja sér matar- gjafir til líknarfélaga. Óskaði hún eftir því við forsætisráðherra að hann svaraði spurningu hennar um hvort hann væri reiðubúinn að beita sér fyrir því að fram fari heildar- endurskoðun á öryggisneti velferð- arkerfisins, „sem tryggja á að fólk þurfi ekki að lifa við hungur og skort“. Sagði Jóhanna að öryggisnet þetta snerti mörg svið, hjá a.m.k. sex ráðuneytum. Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði tvær ástæður fyrir því að hann teldi ekki efni til þess að verða við beiðni Jóhönnu; engar efnislegar nýjar upplýsingar væru fram komn- ar og að erindið félli ekki endilega undir forsætisráðuneyti. Jóhanna taldi viðbrögð forsætis- ráðherra ámælisverð. „Fleiri sækja um aðstoð en nokkru sinni fyrr. Lög eiga að tryggja að fátækt fólk þurfi ekki að lifa við örbirgð.“ Umræða um fátækt á Íslandi ÞRIÐJA og síðasta umræða um veiðigjaldsfrumvarpið svokallaða hófst á Alþingi síðdegis í gær en í frumvarpinu er m.a. lagt til að lagt verði á 9,5% veiðigjald á handhafa aflaheimilda. Stjórnarandstæðingar ítrekuðu í umræðunni andstöðu sína við frumvarpið og sögðu m.a. að í því væri ekki að finna neinar sáttatillögur í veiðigjaldsmálum. Umræðan um frumvarpið stóð fram eftir kvöldi í gær en stefnt er að því að gera það að lögum á yfirstand- andi þingi. Óvíst er þó hvenær það getur orðið. Engar sátta- tillögur MINNIHLUTI iðnaðarnefndar Alþingis gagnrýnir harðlega til- lögu iðnaðarráðherra, Valgerðar Sverrisdóttur, um stefnu í byggða- málum fyrir árin 2002-2005, en meirihluti iðnaðarnefndar mælir með samþykkt „hinna almennu markmiða þingsályktunarinnar og telur að í þeim felist mikil sókn- arfæri til byggðaþróunar í land- inu“, að því er segir í nefndaráliti meirihlutans. Meirihlutinn leggur til að tillaga ráðherra verði sam- þykkt óbreytt en leggur þó til ell- efu þætti sem hann mælir með að ríkisstjórnin taki jafnframt til skoðunar. Meirihlutinn telur m.a. eðlilegt að skilgreina nokkra byggðarkjarna og skilgreina hlut- verk þeirra og stöðu í þjóðfélag- inu. „Meirihlutinn tekur undir hlutverk Akureyrar sem mótvægis við höfuðborgarsvæðið,“ segir í nefndaráliti meirihlutans. „Meiri- hlutinn telur jafnframt að byggð- arkjarnar skuli byggðir upp á Ísa- firði og á Miðausturlandi. Með því móti væru sköpuð boðleg búsetu- skilyrði fyrir stærstu landshluta.“ Minnihluti iðnaðarnefndar skipt- ist reyndar upp í tvo minnihluta því fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs skiluðu sitthvoru nefnd- arálitinu. Í nefndaráliti fulltrúa Samfylkingarinnar, segir m.a. að Samfylkingin geti tekið undir ým- islegt sem fram kemur í tillögu ráðherra. Sú tillaga lýsi þó al- mennum markmiðum án út- færslna. „Framkvæmdin er því al- farið á ábyrgð stjórnvalda,“ segir í nefndaráliti fulltrúa Samfylkingar- innar. Þá átelur fulltrúi VG í iðn- aðarnefnd „flaustursleg vinnu- brögð við gerð áætlunarinnar og umfjöllun um hana“, eins og segir í áliti VG. „Í hana vantar stefnu og heildarsýn varðandi byggð og bú- setumál í landinu öllu. Það vantar bæði áætlun um hvernig kjör fólks skulu jöfnuð eftir aðstæðum og bú- setu og áætlun um jöfnun sam- keppnisstöðu atvinnulífs í hinum dreifðu byggðum landsins. Á þeim málum er ekkert tekið.“ Þingsályktun iðnaðarráðherra um stefnu í byggðamálum Tillaga um fleiri byggðarkjarna HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra sagði á Alþingi í gær að enn væri ráðgerð ferð hans til Ísr- aels 26. maí og fundur með utanríkiráðherra Ísr- aels, Shimon Peres, 27. maí. Össur Skarphéðins- son, formaður Samfylkingarinnar, spurði Halldór um ferðina, þegar verið var að ræða þingsályktun- artillögu um deilur Ísraels og Palestínumanna. Vildi Össur vita hvort heimsókn til Palestínu væri ennfremur á döfinni. Halldór sagði að eins og mál stæðu í dag væri gert ráð fyrir því að af heimsókninni yrði og ferð- inni heitið bæði til Ísrael og Palestínu. Hann sagði að dagskrá heimsóknarinnar væri ekki frágengin að öðru leyti. Vildu að fastar yrði að orði kveðið Össur sagðist vilja að fastar hefði verið að orði kveðið í þingsályktillögunni sem samþykkt var í þinginu í gær og Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri grænna, sagði tillöguna mála- miðlun og hefði viljað sjá harð- ari fordæmingu á framgöngu Ísraelsmanna. Sverrir Her- mannsson, þingmaður Frjáls- lynda flokksins, sagðist hafa viljað sjá að í tillögunni væri lýst andúð á framgangi Banda- ríkjamanna og þeir hvattir til að breyta stefnu sinni. Í þingsályktuninni segir að Alþingi lýsi áhyggjum sínum af því ófriðarástandi sem nú ríkir fyrir botni Miðjarð- arhafs og fordæmi það ofbeldi sem þar á sér stað. „Alþingi leggur áherslu á að öryggi óbreyttra borg- ara sé tryggt og alþjóðleg mannréttindi virt og tel- ur brýnt að send verði eftirlits- nefnd frá Sameinuðu þjóðunum á svæðið í samræmi við ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóð- anna. Alþingi krefst þess að öllum ofbeldisverkum linni, þar á meðal sjálfsmorðsárásum og beitingu hervalds, að Ísrael dragi herlið sitt til baka frá sjálfsstjórnarsvæðum Palest- ínumanna, að deiluaðilar semji um vopnahlé og að hafnar verði friðarviðræður um sjálfstætt ríki Palestínumanna og öryggi Ísraelsríkis innan alþjóðlegra viðurkenndra landamæra í samræmi við nýjustu ályktanir öryggisráðs Sameinuðu þjóð- anna,“ segir ennfremur í þingsályktuninni. Utanríkisráðherra fer til Ísraels 26. maí FRUMVARP til laga um breytingar á lögum um Steinullarverksmiðjuna hf. á Sauðákróki var samþykkt á Al- þingi í gær en breytingarnar fela í sér að iðnaðarráðherra er veitt heimild til að selja eignarhlut ríkisins í verk- smiðjunni. Samkvæmt kaupsamningi er söluverðmæti hluta ríkisins um 220 m.kr. Gert er ráð fyrir að verja 50% af söluandvirðinu eða 110 m.kr. til sam- göngubóta og atvinnuuppbyggingar í þeim sveitarfélögum sem eiga veru- legra hagsmuna að gæta vegna starf- semi verksmiðjunnar á Sauðárkróki. Ríkissjóður á um 30% í verksmiðj- unni, Paroc Group um 28%, Bæjar- sjóður Sauðárkróks um 24%, GLD heildverslun um 12%, Kaupfélag Skagfirðinga um 5% og aðrir um 1%. Þingmenn vinstrigrænna og Frjálslynda flokksins voru andvígir sölu ríkisins á hlut þess í verksmiðj- unni og vildu heldur að ríkið hefði keypt hlut sveitarfélagsins Skaga- fjarðar í verksmiðjunni tímabundið, en ástæða sölunnar væri bág fjár- hagsstaða sveitarfélagsins. Ríkið hafnaði tilboði um kaup á hlut sveitarfélagsins Í nóvember 2001 gerði sveitarfé- lagið Skagafjörður öðrum hluthöfum skriflegt tilboð um að kaupa hlut sveitarsjóðsins í verksmiðjunni. Af hálfu ríkisins var tilboðinu hafnað. Í desember gerðu GLD heildverslun og Kaupfélag Skagfirðinga sameiginlegt tilboð í 52% hlut sveitarfélagsins og Paroc Group í fyrirtækinu. Ef tilboð- inu hefði verið tekið hefði hlutur GLD heildverslunar og Kaupfélags Skag- firðinga orðið tæp 70%. Í kjölfarið óskaði ríkið eftir fundi með aðilum hluthafasamkomulagsins til að ræða breyttar forsendur sem upp væru komnar og framtíðareignarhald á fé- laginu. Lýstu fulltrúar ríkisins því yf- ir að ríkið vildi taka til athugunar að selja sinn hlut. Jafnframt var því lýst yfir að ríkið vildi láta á það reyna hvort hægt væri að ná samstöðu um að bjóða bréf ríkisins, sveitarfélagsins og jafnvel Parocs til sölu með sameig- inlegu útboði. Af hálfu sveitarfé- lagsins og Paroc var þeirri leið hafn- að. Í febrúar sl. bárust ríkinu, Paroc Group og sveitarfélaginu kauptilboð í eignarhluti sína í Steinullarverk- smiðjunni frá Húsasmiðjunni hf., BYKO hf. og Kaupfélagi Skagfirð- inga. Í mars sl. náðist samkomulag milli þessara aðila um söluna en heild- arfjárhæðin sem kemur í hlut ríkisins verði af þessum viðskiptum nemur rúmlega 232 millj. kr. Í samkomulaginu voru sett fram ákveðin skilyrði sem þyrfti að upp- fylla áður en gengið yrði endanlega frá samningi um viðskipti, t.d. að sam- keppnisyfirvöld banni ekki kaupin og að Alþingi staðfesti og heimili kaupin. Þá er sett fram það skilyrði að kaup- andi gefi skriflega yfirlýsingu um þá ætlun sín að halda áfram rekstri fé- lagsins á Sauðárkróki. Standa ber að vega- bótum með öðrum hætti Í umræðum á Alþingi um frum- varpið í gær kom fram í máli þing- manna vinstrigrænna og frjálslyndra að breytingar á lögum sem heimiluðu sölu á hlut ríkisins í Steinullarverk- smiðjunni væru tilkomnar vegna bágrar fjárhagsstöðu sveitarfélagsins Skagafjarðar. Betra hefði verið að ríkið leysti til sín bréf sveitarfélagsins um stundarsakir. Árni Steinar Jó- hannsson, þingmaður vinstrigrænna, sagði að standa bæri að vegabótum með eðlilegum hætti í vegaáætlun en ekki með þeim hætti sem gert væri með frumvarpinu. Þá var gagnrýnt að ekki skyldi leitað álits Samkeppnis- stofnunar áður en frumvarpið yrði að lögum. Iðnaðarráðherra benti á að til- greint væri í skilmálum að álit sam- keppnisyfirvalda þyrfti að liggja fyrir áður en gengið yrði frá sölunni. Samþykkt að selja Steinullarverksmiðjuna Morgunblaðið/Golli Nú styttist í þingfrestun en ljóst er að enn bíða mörg þingmál þess að verða afgreidd frá Alþingi. Hér ræða sam- an þrír þingmenn Sjálfstæðisflokksins, þau Kristján Pálsson, Drífa Hjartardóttir og Guðmundur Hallvarðsson. ♦ ♦ ♦ KOSTNAÐUR Tryggingastofnun- ar ríkisins af heimafæðingum er mun lægri en sá kostnaður sem fylgir fæðingum á sjúkrahúsum. Þessar upplýsingar koma fram í svari heilbirgðisráðherra við fyr- irspurn frá Svanfríði Jónasdóttur og Þórunni Sveinbjarnardóttur, þingmönnum Samfylkingarinnar. Í svarinu kemur fram að á árinu 2001 var meðalkostnaður við heimafæðingu rúmar 40 þúsund krónur. Þegar bætt hefur verið við kostnaði við þrjár vitjanir fyrir fæðingu og ellefu vitjanir eftir fæðingu er kostnaðurinn 91.619 krónur. Meðalkostnaður við eðli- lega fæðingu án fylgikvilla á Land- spítala er hins vegar 147.900 krón- ur. Um 75% allra fæðinga á spítalanum eru eðlilegar án fylgi- kvilla. Kostnaður við keisaraskurð er hins vegar á bilinu 324.000– 446.000 krónur. 17,2% af öllum fæðingum á Landspítala eru keis- araskurðir. Heimafæð- ingar eru ódýrari ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.