Morgunblaðið - 01.05.2002, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 01.05.2002, Blaðsíða 58
58 MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Flúðir Flúðaskóli og leikskólinn Undraland, Hrunamannahreppi, auglýsa eftir kennur- um og leikskólakennurum næsta skólaár. Hrunamannahreppur er ört vaxandi sveitarfé- lag í uppsveitum Árnessýslu. Hér búa um 700 íbúar, þar af um 300 í þorpinu á Flúðum, sem er gróinn og veðursæll staður um 100 km frá Reykjavík. Hér er öflugt félagslíf, öll nauðsyn- leg þjónusta innan seilingar og mikil gróska á öllum sviðum mannlífsins. Í Flúðaskóla eru 170 nemendur í 1.—10. bekk. Skólinn er einsetinn og með enga samkennslu árganga. Skólabílar aka daglega með nemend- ur til og frá skóla og hér fá allir heitan hádegis- verð í skólamötuneyti. Kennarar hafa mjög góða vinnuaðstöðu á nýrri kennarastofu, nýtt tölvukerfi var tekið í notkun í vetur og kennara- hópurinn er fyrsta flokks. Öflugt faglegt starf fer hér fram í samræmi við kjörorð skólans: VIRÐING — VITNESKJA Meðal kennslugreina eru: Textílmennt, almenn bekkjarkennsla, upplýsingatækni, raungreinar og stærðfræði á unglingastigi. Einnig valgreinar á unglingastigi í handmennta- og tæknigreinum. Leikskólinn Undraland leggur áherslu á gæði í samskiptum, skapandi starf í anda Reggio Emilia stefnunnar og mikla hreyfingu. Þema- hringur og heilsubók barnins eru höfð að leið- arljósi. Leikskólinn er í hraðri þróun frá því að vera einnar deildar leikskóli með um 60 börn, í stór- an þriggja deilda leikskóla og ljóst að framund- an er mikil og skemmtileg vinna. Umsóknarfrestur er til 6. maí 2002. Umsækjendur hafi samband við skólastjóra, Valgarð L. Jónsson, símar 486 6435/486 1514, leikskólastjóra, Hönnu M. Harðardóttur, símar 486 6543/486 6603 eða formann skólanefndar, Þorleif Jóhannesson, sími 486 6714. Hríseyjarhreppur Kennara vantar! Kennara vantar við Grunnskólann í Hrísey næsta skólaár. Skólinn er einsetinn í nýlegu skólahúsnæði (byggt 1986). Aðstaða er góð og skólinn er vel búinn tækjum, s.s. nýlegum tölvum. Nemendur verða 40 á næsta skólaári í 1. til 10. bekk. Kennsla byggir á samkennslu árganga. Við bjóðum góð kjör og frábæra aðstöðu í sér- stæðu umhverfi ● Fáir nemendur í bekk. ● Agavandamál engin, gott samstarf við for- eldra. ● Tölvur í öllum kennslustofum. ● Húsnæðisfríðindi. ● Flutningsstyrkur. ● Góður leikskóli, heilsugæsla og sundlaug. ● Stutt til Akureyrar (30 mín. akstur). ● Góðar samgöngur, ný ferja (8—10 ferðir á dag). ● Ódýr hitaveita. ● Frábær náttúra; að búa í Hrísey er lífsstíll. Undir sama þaki er leikskóli í samvinnu og fag- legu samstarfi við grunnskólann, sem skapar samfellu milli skólastiga. Skóla-, ráðgjafar- og félagsþjónusta er í samstarfi við Dalvíkurbyggð og Ólafsfjarðarbæ. Skólamálafulltrúi svæðisins, Óskar Þór Sigurbjörnsson, oskarth@ismennt.is, veitir upplýsingar um stöðurnar í símum 466 2736, 893 6257 og hs. 466 2357. Einnig veitir Rut Indriðadóttir, hrisey@centrum.is, skólastjóri grunnskólans, upplýsingar í síma 466 1763. Umsóknarfrestur er til 10. maí nk. ATVINNUHÚSNÆÐI Skrifstofuherbergi við Suðurlandsbraut Til leigu nokkur góð skrifstofuherbergi með aðgangi að kaffistofu. Upplýsingar gefur Þór í síma 553 8640 og 899 3760. Vinnustofur — stúdíó — Múlahverfi Gott húsnæði er til leigu, ca 150 fermetrar. Hátt til lofts, vítt til veggja. Góðar tölvulagnir og stokkar. Hægt að aka inn, ef vill. Góð aðkeyrsla, malbikað plan. Hentar vel fyrir snyrtilegan iðnað, t.d. prentiðnað, ljósmyndastofur, teikni- stofur eða stúdíó. Laust nú þegar. Frekari upplýsingar veitir Sigmundur Hannes- son hrl., sími 595 4545 eða 892 4455. FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR Héraðsfundur Reykjavíkurprófastsdæmis vestra verður haldinn í Safnaðarheimili Dómkirkjunn- ar miðvikudaginn 15. maí kl. 18.00. Venjuleg aðalfundarstörf. Prófastur. Hótel- og umhverfismál Norræna Umhverfismerkið gengst fyrir málstofu og kynningarfundi um hótel- og umhverfismál fimmtudaginn 2. maí kl.13.30-16.30 á Grand Hótel Reykjavík. Dagskrá: 13.30 Setning og fundarstjórn: Magnús Jóhannesson ráðuneytisstjóri umhverf- isráðuneytisins. 13.31 Ávarp: Siv Friðleifsdóttir, umhverfis- ráðherra. 13.45 Er stunduð umhverfisvæn hótelþjónusta á Íslandi? Hróðmar Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Eldhesta hf., og Ingibjörg Ólafsdóttir, hótelstjóri á Radisson SAS Hótel Íslandi. Jouko Parviainen, um- hverfisráðgjafi, fjallar um „Environmental performance“. 14.15 Norræna Umhverfismerkið. Sigrún Guð- mundsdóttir, starfsmaður Umhverfis- merkjaráðs Íslands, kynnir Norræna Um- hverfismerkið almennt. Marie Fahlin, verkefnisstjóri hjá Umhverfismerkisskrif- stofu Svíþjóðar, kynnir nýjar endur- skoðaðar viðmiðunarreglur fyrir hótel. 14.45 Kaffihlé. 15.10 Reynsla af umhverfismerkingu hótela. Jan-Peter Bergkvist, umhverfisstjóri Hilton International/Scandic AB, og Claes Västerteg meðeigandi sænsks sveita- hótels, segja frá. 15.45 Pallborðsumræður og fyrirspurnir verða í höndum fundarstjóra og fyrirlesara. 16.30 Fundi slitið. Erindi verða flutt á ensku en aðgangur er ókeypis. TILBOÐ / ÚTBOÐ Gerðahreppur Framboðsfrestur til sveitarstjórnakosninga í Gerðahreppi rennur út kl. 12 á hádegi laugar- daginn 4. maí nk. Þann dag milli kl. 11 og 12 veitir kjörstjórn við- töku framboðslistum á skrifstofu Gerðahrepps. Kjörstjórnin í Gerðahreppi, Matthildur Ingvarsdóttir, Brynja Kristjánsdóttir, Guðrún Eyvindsdóttir. ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I R A Ð A U G L Ý S I N G A R Hafnarfjörður Matjurtagarðar Leigjendum matjurtagarða í Hafnarfirði tilkynn- ist hér með, að þeim ber að greiða leiguna í síðasta lagi 8. maí nk., eftir það má búast við að garðarnir verði leigðir öðrum. TILKYNNINGAR Glæsileg drossía Glæsilegur Ford, árgerð 1930, 4ra dyra, til sölu af sérstökum ástæðum. Upplýsingar í síma 898 8577. BÍLAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.