Morgunblaðið - 01.05.2002, Side 16
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
16 MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
1. maí í Reykjavík
Launafólk
Kröfuganga dagsins fer frá Skólavörðuholti
Safnast verður saman framan við Hallgrímskirkju kl. 13.30.
Gangan leggur af stað kl. 14.00.
Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur leika fyrir göngu.
Útifundurinn hefst á Ingólfstorgi kl. 14.30.
Ræðumenn:
Sigurður Bessason, formaður Eflingar - stéttarfélags.
Sjöfn Ingólfsdóttir, formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.
Ljóðalestur:
Arnar Jónsson leikari les ljóð.
Ávarp:
Jónína Brynjólfdóttir, formaður Iðnnemasambands Íslands.
Tónlist:
Milljónamæringarnir og Ragnar Bjarnason.
Fundarstjóri:
Súsanna B. Vilhjálmsdóttir, formaður Félags hársnyrtisveina.
Afl í þína þágu
Stéttarfélögin í Reykjavík - BSRB - BHM
Kennarasamband Íslands - Iðnnemasamband Íslands
NÝTT deiliskipulag fyrrum lóðar
Alaska í Breiðholti hefur verið aug-
lýst. Gerir skipulagið ráð fyrir
tveimur fjölbýlishúsum og tveimur
raðhúsum á lóðinni.
Í greinargerð hönnuða segir að
umrætt svæði afmarkist af Skóg-
arseli til norðvesturs, einbýlishúsa-
byggð við Bláskóga og Hléskóga til
norðausturs, íbúðarhúsalóðum við
Grjótasel til suðausturs og útivist-
arsvæði til suðvesturs en gróðrar-
stöðin Alaska var áður á reitnum.
Lóðin er því vel gróin með háum
trjám og öðrum gróðri en í grein-
argerðinni segir að tillit verði tekið
til meginhluta þess gróðurs.
Tillagan gerir ráð fyrir að heimilt
verði að byggja á lóðinni tvö fjöl-
býlishús. Landhalli er töluverður á
svæðinu og munu húsin vera ein
hæð efst og þrjár hæðir neðst en of-
an á þessar hæðir komi inndregnar
þakhæðir sem nýta má sem íbúð
eða sameiginlegan sal. Gert er ráð
fyrir 15–16 íbúðum í hvoru húsanna
og munu tvö bílastæði fylgja hverri
íbúð. Um helmingur bílastæðanna
verða í niðurgrafinni bílageymslu
en helmingur á vesturhluta lóðar-
innar.
Í tengslum við vinnslu skipulags-
ins framkvæmdi Árbæjarsafn
húsakönnun og heimilar hún nið-
urrif sambyggðra húsa að Skógar-
seli 11. Samkvæmt tillögunni verða
þessi hús rifin en í staðinn verða
byggð tvö tveggja hæða raðhús,
annað með átta íbúðum en hitt með
tíu. Munu tvö bílastæði auk gesta-
stæðis fylgja hverri íbúð en í öðru
raðhúsinu fylgja bílskúrar að auki.
Friðlýstur reitur á svæðinu
vegna fornminja
Segir í auglýsingu skipulagsfull-
trúa um skipulagið að markmið til-
lögunnar séu m.a. að ákvarða nýt-
ingu lóðarinnar til frambúðar, þétta
byggð og nýta svæðið að hluta und-
ir íbúðarhúsnæði. Jafnframt sé tek-
ið tillit til gróðurs og minja sem eru
á svæðinu. Kemur fram í greinar-
gerð að gróðurlundir norðan, aust-
an og vestan við núverandi íbúðar-
hús skuli haldast óskertir og á það
einnig við um gróður á jaðri svæð-
isins og grenilund sem er vestur af
húsi númer 15. Þá hefur verið frið-
lýstur reitur á suðaustur hluta
svæðisins með tilliti til fornminja
en það var gert samkvæmt umsögn
fornleifadeildar Árbæjarsafns.
Tillagan er í samræmi við nýtt
aðalskipulag Reykjavíkurborgar
sem samþykkt var í borgarstjórn á
dögunum og gilda á til ársins 2024
en þar sem skipulagið hefur ekki
komið til staðfestingar umhverfis-
ráðherra er breyting á aðalskipu-
lagi 1996–2016 auglýst samhliða
deiliskipulaginu. Er þar gert ráð
fyrir að nýting svæðisins breytist
úr því að vera útivistarsvæði til sér-
stakra nota í íbúðarsvæði.
Hönnun deiliskipulagsins var í
höndum Teiknistofunnar Ármúla 6
en hægt er að kynna sér tillöguna í
sal skipulags- og byggingasviðs
Reykjavíkurborgar í Borgartúni 3,
virka daga milli klukkan 10 og 16
fram til 5. júní 2002. Athugasemd-
um skal skila eigi síðar en sama dag
til skipulagsfulltrúa.
Tvö fjölbýlishús
komi á Alaskalóðina
Breiðholt
Teikning/Teiknistofan Ármúla
Hönnun deiliskipulagstillögunnar var í höndum Teiknistofunnar Ár-
múla en tillagan gerir m.a. ráð fyrir að hús í Skógarseli 11 verði rifin.
SKÓFLUSTUNGA var tekin að
fjölbýlishúsinu við Arnarás 14 –16
í Garðabæ á mánudag en þar
verða reknar leiguíbúðir. Er þetta
í fyrsta sinn sem bæjaryfirvöld
þar setja skilyrði við úthlutun lóð-
ar, um að byggðar verði á henni
almennar leiguíbúðir.
Íbúðirnar verða reknar af lóð-
arhafanum í að minnsta kosti sex
ár samkvæmt þeim skilyrðum sem
bærinn setti að því er fram kemur
í fréttatilkynningu. Í húsinu verða
12 tveggja og þriggja herbergja
íbúðir. Það var fyrirtækið Bygg-
ing ehf. sem fékk lóðinni úthlutað
en dótturfyrirtæki þess, Arnarás
ehf., sér um að byggja íbúðirnar
og kemur til með að reka þær.
Íbúðirnar eiga að vera tilbúnar
á næsta ári og verða væntanlega
auglýstar til leigu þá.
Morgunblaðið/Sverrir
María Richter, framkvæmdastjóri Arnaráss, og Ásdís Halla Bragadóttir
bæjarstjóri taka fyrstu skóflustunguna að fjölbýlishúsinu.
Skóflustunga tekin
að leiguíbúðum
Garðabær
ELSTA tréð í Alþingisgarðinum er
silfurreynir, sem plantað var fyrir
tilstuðlan Tryggva Gunnarssonar
um aldamótin 1900. Þetta tré er
orðið 8,20 m á hæð og þrífst mjög
vel í garðinum.
Hæðin var staðfest á námskeiði
sem Garðyrkjuskólinn stóð nýver-
ið fyrir undir heitinu „Trjávernd –
hvað teljast verðmæt tré?“ Nám-
skeiðinu lauk með því að nokkur
gömul tré voru skoðuð í Grjóta-
þorpinu og endað í Alþingisgarð-
inum þar sem Jón Geir Pétursson,
skógfræðingur hjá Skógrækt-
arfélagi Íslands, mældi hæð silf-
urreynisins með aðstoð Guðna
Ágústssonar landbúnaðarráð-
herra.
Þá gerði Einar E. Sæmundsen
landslagsarkitekt grein fyrir Al-
þingisgarðinum og þeim trjágróðri
sem þar þrífst. Garðurinn er elsti
varðveitti skrúðgarður landsins en
í upphafi var hann hugsaður sem
tómstundagarður fyrir þingmenn.
Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra og Jón Geir lesa á stöngina, sem
sýnir að hæð silfurreynisins er nú 8,20 m.
Elsta tréð í
Alþingisgarðinum
rúmlega 8 metrar
Miðborg