Morgunblaðið - 01.05.2002, Side 18
Morgunblaðið/Benjamín Baldursson
Á AÐALFUNDI Norðurmjólkur í
vikunni voru veittar viðurkenn-
ingar fyrir úrvalsmjólk á síðasta
ári. Að þessu sinni fengu 24
kúabú viðurkenningu fyrir fram-
leiðslu úrvalsmjólkur, þar af
fengu framleiðendur á tveimur
búum viðurkenningu 10. árið í
röð. Þetta voru Þórdís Karls-
dóttir og Leifur Guðmundsson í
Kleif í Öngulsstaðadeild og Hulda
Kristjánsdóttir og Sveinbjörn Sig-
urðsson á Búvöllum í Aðaldæla-
deild.
Eins og fram kom í Morg-
unblaðinu í vikunni hefur mjólk-
urframleiðendum á svæði Norð-
urmjólkur fækkað um helming
frá árinu 1985, úr 400 í um 200.
Á sama tíma hafa búin stækkað
og framleiðslan á svæðinu aukist.
Þá hafa gæði mjólkur á svæð-
inu aldrei verið meiri en nú, seg-
ir í ársskýrslu Norðurmjólkur og
fer öll mjólk í 1. flokk. Frumutala
lækkaði talsvert milli ára. Marg-
feldismeðaltal frumutölu fyrir
svæðið var 219 þúsund og beint
meðaltal 245 þúsund. Framleið-
endur Norðurmjólkur framleiða
bestu mjólk landsins sé litið til
mælinga Rannsóknarstofu mjólk-
uriðnaðarins, segir ennfemur í
ársskýrslunni. Hluti þeirra mjólk-
urframleiðenda á félagsssvæði
Norðurmjólkur sem fengu við-
urkenningu fyrir úrvalsmjólk á
síðasta ári.
Framleiðendur verðlaun-
aðir fyrir úrvalsmjólk
AKUREYRI
18 MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
„UPPSAGNIR eru í eðli sínu sárs-
aukafullar aðgerðir og eðlilegt að
starfsmenn sem gert er að láta af
störfum verði sárir og reiðir. Að því
leyti höfum við skilning á viðbrögð-
um þess eina starfsmanns sem hefur
tjáð sig um málið opinberlega. Fólk
upplifir þessa stund á misjafnan hátt
en það er mikilvægt þrátt fyrir sárs-
aukann að líta til framtíðar,“ sagði
Heiðrún Jónsdóttir, forstöðumaður
upplýsinga- og kynningarmála Sím-
ans, um uppsagnir starfsfólks Sím-
ans á Akureyri sem vakið hafa hörð
viðbrögð. Heiðrún sagði að við fram-
kvæmd uppsagnanna hafi verið leit-
ast við að sýna starfsmönnum nær-
gæti og virðingu svo sem kostur var.
Hún sagði að farið hefði verið yfir
málið með starfsmönnum á Akur-
eyri, bæði þeim sem sagt var upp
sem og öðrum. „Uppsagnirnar voru
undirbúnar og teknar af yfirveguðu
ráði. Þær eru hluti af almennri
rekstrarhagræðingu sem á sér nú
stað innan fyrirtækisins, en hjá því
starfa um 1.300 manns,“ sagði Heið-
rún.
Af þeim 8 starfsmönnum sem sagt
var upp á Akureyri störfuðu 5 í hús-
lagnadeild. Þau verkefni hafa að
sögn Heiðrúnar verið færð til sjálf-
stætt starfandi verktaka í bænum og
að því leyti væri Síminn að styrkja
atvinnulífið í bænum. Önnur verk-
efni hafi verið lögð niður.
Litið til fleiri þátta
en starfsaldurs
„Eðli málsins samkvæmt er ekki
hægt að fjalla um málefni einstakra
starfsmanna opinberlega og því ekki
unnt að fjalla um hvers vegna þess-
um starfsmönnum var sagt upp, en
sumir höfðu langan starfsaldur að
baki hjá fyrirtækinu. Í mörgum til-
vikum er litið til starfsaldurs, en í
þessu tilviki var litið til fleiri þátta,
s.s. hvaða verkefni var verið að
leggja niður, hverjir sinntu þeim
verkefnum og auk þess var litið til
annarra þátta,“ sagði Heiðrún. Í því
sambandi benti hún á að öllum
starfsmönnum húslagnadeildar hefði
verið sagt upp, en vonir stæðu til að
einhverjir þeirra fengju starf hjá því
fyrirtæki sem tæki við verkefnum
deildarinnar. „Það er eðlilegt að upp-
sagnir komi sterkt við starfsmenn og
veki upp hörð viðbrögð, en þau eru
þó ekki óeðlilegur þáttur í rekstri
allra fyrirtækja og þá ekki síst fyr-
irtækja sem ganga í gegnum breyt-
ingar,“ sagði Heiðrún. Fyrirtæki á
samkeppnismarkaði yrðu að leita
hagræðingar og aðlagast breyttu
umhverfi, það væri forsenda þess að
unnt væri að skapa ný tækifæri og að
fyrirtækin næðu að vaxa og dafna.
Heiðrún benti á að við lokun hús-
lagnadeildar Símans yrði til laust
rými á 2. hæð húsnæðisins á Akur-
eyri og væri til skoðunar hvort unnt
væri að efla starfsemina norðan
heiða frekar. Hún sagði að þrátt fyr-
ir þessa fækkun nú hefði starfsfólki
Símans fjölgað um 25 á fjórum árum.
Síminn um uppsagnir starfsfólks á Akureyri
Leitast var við að
sýna nærgætni
HELDUR hefur lifnað yfir hlut-
unum á félagssvæði Þórs við
Hamar nú síðustu daga. Ekki það
að knattspyrnumenn séu þar fyr-
irferðarmiklir nema þá rétt á
bílastæðinu, heldur eru fram-
kvæmdir við nýja fjölnotahúsið
komnar í fullan gang á ný. Tré-
verk á Dalvík samdi við Íslenska
aðalverktaka um að sjá um upp-
steypu á undirstöðunum í fjölnota
húsinu en ÍV sér um byggingu
hússins. Jarðvegsframkvæmdir
fóru fram sl. haust en vinna á
svæðinu hefur að mestu legið
niðri frá þeim tíma. Stefnt er að
því vígja fjölnota íþróttahúsið
hinn 2. desember nk.
Morgunblaðið/Kristján
Framkvæmdir
komnar í gang á ný
FORSVARSMENN fyrirtækja á
Eyjafjarðarsvæðinu líta nokkuð
björtum augum til atvinnulífsins á
svæðinu fyrir þetta ár, að því er
fram kom í atvinnulífskönnun At-
vinnuþróunarfélags Eyjafjarðar
sem gerð var nýlega.
Heldur fleiri töldu betri horfur
framundan á yfirstandandi ári en
var á því síðasta varðandi verkefna-
stöðu og hagnað. Þannig búast rúm-
lega 43% forsvarsmanna fyrirtækja
við betri afkomu á þessu ári en var á
því síðasta og jafnmargir bjuggust
við óbreyttri afkomu. Aðeins er bú-
ist við lakari afkomu í ár en fyrra í
13% fyrirtækjanna.
Samkvæmt niðurstöðum könnun-
arinnar varð 7% fækkun starfa milli
áranna 2000 og 2001.
Magnús Þór Ásgeirsson hjá At-
vinnuþróunarfélaginu sagði niður-
stöðurnar gefa til kynna að menn
væru nokkuð jákvæðir og fleiri fyr-
irtæki ætluðu að fjölga starfsfólki
en þau sem ætla sér að fækka fólki.
Enda teldu flestir að verkefni yrðu
fleiri í ár en í fyrra. Helst var að
vænta fjölgunar starfa í þjónustu-
greinum, en fækkun var fremur
nefnd í ferðaþjónustu og iðnaði.
Magnús Þór sagði að þar gæti verið
um tíma- eða árstíðabundna fækkun
að ræða, en meira væri um slíkt í
ferðaþjónustu og samgöngum.
„Árið 2001 var slappt hvað marg-
ar atvinnugreinar varðar, en svo
virðist sem menn telji að heldur sé
bjartara framundan og það er gott,“
sagði Magnús Þór.
Í könnuninni var spurt hvaða
ógnanir menn teldu helstar í um-
hverfi fyrirtækjanna og því svöruðu
margir á þann veg að flutningar og
samgöngur væru helsta ógnunin í
umhverfinu. Nefndu menn að flutn-
ingar væru dýrir og var sterkt sam-
band þar við þá sem starfa í iðnaði.
Svör fengust frá 96 fyrirtækjum,
þar af öllum þeim stærstu á svæð-
inu, þannig að Magnús Þór sagði að
könnunin væri vel marktæk. Þetta
er fyrsta könnunin af þessu tagi
sem félagið gerir, en stefnt er að því
að gera slíka könnun árlega héðan í
frá.
Atvinnulífskönnun AFE
Bjartara fram-
undan í at-
vinnulífinu
OPIÐ hús fyrir eldri borgara verður í
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju kl.
15 á morgun, fimmtudaginn 2. maí.
Þetta verður síðasta samvera vetr-
arins og boðið upp á vorlega dagskrá
og veislukaffi. Óskar Pétursson og
Helena Eyjólfsdóttir syngja einsöng
við undirleik Daníels Þorsteinssonar
og sr. Gylfa Jónssonar. Halldóra Ingi-
marsdóttir fjallar um vorið í bundnu
og óbundnu máli og sr. Jóna Lísa Þor-
steinsdóttir fer með bænarorð. Bíll
fer frá Kjarnalundi kl. 14.15, Víðilundi
kl. 14.30 og Hlíð kl. 14.45. Allir eru
hjartanlega velkomnir.
Akureyrarkirkja
Opið hús
fyrir eldri
borgara
ALLS bárust 109 umsóknir frá 16
ára ungmennum vegna sumarvinnu
hjá Akureyrarbæ í sumar og eru
það heldur færri umsóknir en bár-
ust frá þessum aldursflokki fyrir
ári. Linda Óladóttir, forstöðumað-
ur unglingavinnu Akureyrarbæjar,
sagði að þessi fækkun umsókna
kæmi sér á óvart miðað við það at-
vinnuástand sem nú væri í bænum.
Hins vegar bárust mun fleiri um-
sóknir nú um starf flokksstjóra við
unglingavinnuna en í fyrra, eða 75
nú á móti um 30 í fyrra. Alls eru
ráðnir 27 flokksstjórar til starfa á
hverju sumri.
Linda sagði að í fyrra hefðu um
130 16 ára ungmenni sótt um sum-
arvinnu hjá bænum en aðeins tæp-
lega 90 hefðu skilað sér í vinnu.
Hún sagði að það ætti eftir að
koma í ljós hversu mörg ungmenni
skiluðu sér nú og að reyndar væru
enn að berast umsóknir, þótt um-
sóknarfresturinn væri útrunninn.
Ungmennin eiga þess kost að
sækja um sex vikna vinnu í sumar,
sjö tíma á dag, samtals 210 vinnu-
stundir.
Vinna unglinga 14 og 15 ára
verður með svipuðum hætti og í
fyrrasumar en þau eiga að skila inn
umsóknum 2., 3. og 6. maí nk. Að
sögn Lindu er gert ráð fyrir svip-
uðum fjölda ungmenna á þessum
aldri í vinnu, eða rúmlega 300
manns. „Og þau koma flest, enda
ekki annað fyrir þau að hafa.“
Mun fleiri umsóknir
um flokksstjórastörf
Færri sækja um unglingavinnuna
SJÖ tilboð bárust í framkvæmdir við
Fiskihöfnina á Akureyri og voru fjög-
ur þeirra undir kostnaðaráætlun
Hafnasamlags Norðurlands, sem
hljóðaði upp á rúmar 18,4 milljónir
króna.
Tilboðin voru opnuð í gær og átti
Katla ehf. í Dalvíkurbyggð lægsta til-
boðið en það hljóðaði upp á rúmar
15,3 milljónir króna, eða 83,3% af
kostnaðaráætlun. Isar ehf. í Hafnar-
firði bauð 15,5 milljónir króna í verk-
ið, sem er 84% af kostnaðaráætlun,
Gáma- og tækjaleiga Austurlands á
Reyðarfirði bauð rúmar 16,3 milljón-
ir króna, sem er 89% af kostnaðar-
áætlun og Elinn ehf. á Sauðárkróki
bauð rúmar 18,1 milljón króna eða
98% af kostnaðaráætlun. Hæsta til-
boðið hljóðaði upp á rúmar 24,3 millj-
ónir króna, eða 132% af kostnaðar-
áætlun.
Samkvæmt útboði á að reka niður
69 metra langt stálþil við vesturkant
Fiskihafnarinnar, ganga frá festingn-
um og stögum og fylla í þilið. Steypa
69 metra langan kant með pollum,
niðurföllum og stigum, útvega og
koma fyrir fríholtum. Verkinu skal
lokið eigi síðar en 15. ágúst nk.
Stálþilið verður rekið niður í vinkil
og þarna um er að ræða 35 metra
lengingu á 120 metra löngum viðlegu-
kanti með 9 metra dýpi. Þá verður
gaflinn 35 metra langur, með 4,5
dýpi, þar sem verður aðstaða fyrir
minni báta. Á næsta ári verður svo
ráðist í lokafrágang vesturkantsins
og þekjan við nýja stálþilið þá m.a.
steypt.
Katla með lægsta
tilboð í verkið
Framkvæmdir við Fiskihöfnina