Morgunblaðið - 01.05.2002, Qupperneq 29
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2002 29
McCartn-
ey fékk
lögbann
London. AFP.
BÍTILLINN fyrrverandi, Paul
McCartney, fékk á mánudag
samþykkt lögbann á sölu skjals
sem geymir handskrifaðan
texta Bítlalagsins „Hey Jude“.
Hélt McCartney því fram að
skjalið hefði horfið af heimili
hans.
Dómari í London skipaði
uppboðsfyrirtækinu Christies
að fresta uppboði á skjalinu,
sem talið var að yrði selt fyrir
um 80 þúsund pund, eða tæpar
ellefu milljónir ísl. króna.
Seljandinn, Florent Tessier,
hélt því fram að hann hefði
keypt skjalið á Portobello-
markaðnum í London árið 1971
eða 1972. Úrskurður dómara
felur hins vegar í sér að ekki
verður af uppboði skjalsins fyrr
en búið er að sýna fram á hver
sé réttmætur eigandi þess.
Lögmaður McCartneys hafði
sagt fyrir rétti að skjalið hefði
mikið tilfinningalegt gildi fyrir
skjólstæðing sinn en McCartn-
ey samdi lagið til Julians Lenn-
ons, sonar Johns Lennons, árið
1970 í því skyni að reyna að
hughreysta hann. Hafði John
Lennon þá nýverið skilið við
fyrri eiginkonu sína, Cynthiu,
sem var móðir Julians.
RINGULREIÐ var yfirvofandi í
heilbrigðiskerfi Ástralíu í gær og
lokuðu læknar stofum sínum og af-
lýstu aðgerðum, öðrum en lífsnauð-
synlegum, í kjölfar gjaldþrots
stærsta heilbrigðistryggingafélags
landsins, United Medical Protection
(UMP). Sjálfstætt starfandi heim-
ilislæknar og sérfræðingar í Ástr-
alíu mega ekki starfa nema hafa
tryggingu gegn skaðabótakröfum.
Læknishjálp á sjúkrahúsum á veg-
um hins opinbera er aftur á móti
ríkistryggð.
Áströlsku læknasamtökin (AMA)
segja hættu á algerri upplausn í
heilbrigðiskerfinu ef stjórnvöld
skerist ekki í leikinn og ábyrgist
tryggingu fyrir lækna, sem tryggðir
eru hjá UMP, en það eru alls um 60
af hundraði allra lækna í Ástralíu.
John Howard, forsætisráðherra
landsins, hefur tilkynnt að stjórnin
muni veita læknunum „algera
ábyrgð“ gagnvart öllum skaðabóta-
málum er kunni að koma upp í kjöl-
far meðferða fram til 30. júlí.
Á fréttavef breska ríkisútvarps-
ins, BBC, kemur fram, að ástralskir
læknar séu alls ekki fyllilega í rónni
þótt Howard hafi gefið þetta loforð,
því þeir telji að núverandi stjórn
geti ekki veitt loforð fyrir hönd
komandi stjórna. Þetta skipti máli,
því skaðabótamál séu í mörgum til-
vikum ekki höfðuð fyrr en mörgum
árum eftir að aðgerð er gerð.
Samtök skurðlækna í Eyjaálfu
ráðlögðu í gær félagsmönnum sínum
að gera engar aðgerðir fyrr en málið
hefði skýrst fyllilega. Regnhlífar-
samtök félaga heimilislækna sögðu
aftur á móti að loforð Howards væri
viðunandi og engin ástæða fyrir fé-
lagsmenn að leggja niður störf.
Í kjölfar tilkynningar trygginga-
félagsins aflýstu skurðlæknar á einu
af stærstu sjúkrahúsunum í Sydney,
Royal Prince Alfred, öllum aðgerð-
um, öðrum en lífsnauðsynlegum, á
sjúklingum sjálfstætt starfandi
lækna. Þeir sjúklingar sem eru al-
varlega veikir og keypt höfðu þjón-
ustu beint af einstökum læknum, og
heyra því ekki undir opinbera
sjúkratryggingakerfið, voru færðir
til hins opinbera til þess að hægt
væri að sinna þeim, en öðrum að-
gerðum á vegum sjálfstætt starfandi
lækna var frestað.
UMP tryggingafélagið er 109 ára
gamalt fyrirtæki og eru 32 þúsund
læknar í Ástralíu tryggðir hjá því, þ.
á m. 90 af hundraði allra lækna í
fylkjunum Nýju Suður-Wales og
Queensland. Tilkynningin um gjald-
þrotið var gefin út eftir sérstakan
stjórnarfund á mánudaginn, þegar
ljóst varð að fyrirtækið gæti ekki
greitt útistandandi skuldir, er alls
nema sem svarar 54 milljörðum ís-
lenskra króna.
Málshöfðanir óvíða
jafn algengar
Óvíða í heiminum eru málshöfðan-
ir jafn algengar og í Ástralíu og
læknar segja að iðgjöld sín hafi tí-
faldast undanfarinn áratug vegna
þeirra háu skaðabóta sem dómstólar
hafi gert læknum að greiða. Howard
sagði í sjónvarpsviðtali að það væri
undir einstökum fylkisstjórnum
komið að stemma stigu við þeim
skaðabótum sem dómstólar dæmdu
sjúklingum. Heilbrigðiskerfið í land-
inu heyrir undir fylkisstjórnir. Sagði
Howard að fylkisstjórnirnar yrðu að
ganga lengra í að takmarka skaða-
bótagreiðslur.
Stærsta heilbrigðistryggingafélag Ástralíu gjaldþrota
Alger ringulreið í
heilbrigðiskerfinu
Sydney. AFP.
JACQUES Chirac Frakklandsforseti
fór í gær fram á það við landa sína að
þeir sýndu stillingu á frídegi verka-
lýðsins, þ.e. í dag, en gert er ráð fyrir
að mótmæli gegn þjóðernisöfga-
manninum Jean-Marie Le Pen setji
svip sinn á skrúðgöngur sem haldnar
verða í tilefni dagsins í Frakklandi.
Þá biðlaði Chirac til kjósenda að
hafna Le Pen í seinni umferð forseta-
kosninganna, sem fara fram um
helgina.
Margir óttast að til óeirða komi í
dag en þá munu þúsundir manna
ganga um götur helstu borga og bæja
í tilefni dagsins. Chirac bað landa sína
hins vegar í gær um að sýna ábyrgð.
„Í lýðræðisríki er hin pólitíska bar-
átta ekki háð á götum og torgum,“
sagði Chirac í útvarpsviðtali. „Póli-
tísk átakamál eru útkljáð í kjörklef-
anum.“
Búið er að kalla út varalið lögregl-
unnar vegna 1. maí-gangna í dag en
allt kapp verður lagt á að halda stuðn-
ingsmönnum Le Pens og andstæð-
ingum hans aðskildum. Löng hefð er
fyrir því í Frakklandi, rétt eins og
annars staðar, að verkalýðsfélög efni
til hátíðahalda hinn 1. maí en þannig
vill til að flokkur Le Pens hefur einnig
efnt til hátíðahalda þennan sama dag
í minningu Jóhönnu af Örk, sem
flokksmenn álíta verndara sinn.
Zinedine Zidane hvetur
fólk til að kjósa Chirac
Chirac sagðist hafa fullan skilning
á því að vinstrimenn hefðu lítinn
áhuga á að lýsa yfir stuðningi við
stefnu hans. Þeir væru hins vegar að
þjóna æðri gildum er þeir greiddu
honum atkvæði sitt í forsetakosning-
unum, þ.e. gildum lýðræðisins og þá
um leið hagsmunum Frakklands.
Flestir helstu stjórnmálamenn í
Frakklandi hafa farið þess á leit við
kjósendur að þeir greiði Chirac at-
kvæði í seinni umferð kosninganna til
að tryggja að Le Pen nái ekki kjöri.
Þetta er hins vegar í fyrsta sinn sem
Chirac sjálfur beinir þessum sömu til-
mælum til almennings.
Knattspyrnustjarnan franska, Zin-
edine Zidane, slóst á mánudag í hóp
þeirra sem lýst hafa andstöðu við Le
Pen. Zidane, sem er af alsírsku bergi
brotinn, hvatti almenning þá til að
fylkja liði um sitjandi forseta.
Chirac hvetur Frakka
til að sýna stillingu
Reuters
Jacques Chirac, forseti Frakklands, heilsar stuðningsmönnum sínum í
borginni Toulouse en hann var þar á ferðinni í gær.
Óttast að í odda
skerist með fylgj-
endum og andstæð-
ingum Le Pens í 1.
maí-göngum í dag
París. AP.
FJÖLDI manns var viðstaddur at-
höfn sem haldin var í Krasnojarsk í
Síberíu í gær til minningar um Al-
exander Lebed, ríkisstjóra í hér-
aðinu og fyrrverandi hershöfðingja
í sovéska hernum.
Meðal þeirra sem kvöddu Lebed
var eiginkona hans, Inna, en henni
á hægri hönd á myndinni er sonur
hennar, Alexander. Lebed, sem
lenti í þriðja sæti í forsetakjöri í
Rússlandi árið 1996 og starfaði um
tíma sem þjóðaröryggisráðgjafi,
lést í þyrluslysi sl. sunnudag og var
lík hans í gær flutt til Moskvu þar
sem bera átti hann til grafar.
Reuters
Lebed kvaddur
Bush vill
ræða við N-
Kóreumenn
FULLTRÚAR Bandaríkjastjórnar
tilkynntu í gær að nú væri unnið
að undirbúningi viðræðna við
stjórnvöld í Norður-Kóreu en áður
höfðu Norður-Kóreumenn lýst því
yfir að þeir væru reiðubúnir til að
hefja viðræður að nýju um bætt
samskipti ríkjanna.
Yfirlýsingin þykir sæta nokkr-
um tíðindum en samskipti Banda-
ríkjanna og Norður-Kóreu hafa
verið nálægt frostmarki síðan
George W. Bush tók við embætti
forseta í fyrra. Lýsti Bush Norð-
ur-Kóreu m.a. sem einu af þremur
„öxulveldum hins illa“ í stefnu-
ræðu sinni í janúar sl.
Óvíst hvort Bandaríkjamenn
senda erindreka sinn
Ekki kom fram í yfirlýsingu Ara
Fleischer, talsmanns Hvíta húss-
ins, í gær hvort Bandaríkjastjórn
hefði í bígerð að senda erindreka
sinn, Jack Pritchard, til Pyong-
yang en á mánudag höfðu borist
fregnir um að Bandaríkjamenn
hefðu þekkst boð Kim Jong-Il, for-
seta Norður-Kóreu, um að senda
Pritchard til skrafs og ráðagerða í
Pyongyang.
Ljóst þykir að Kim Dae-Jung,
forseti Suður-Kóreu, fagni þessum
tíðindum en hann hefur mjög beitt
sér fyrir því að koma á þíðu í sam-
skiptum við Norður-Kóreustjórn.