Morgunblaðið - 01.05.2002, Blaðsíða 33
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2002 33
EYJÓLFUR Eyjólfsson, þver-
flautuleikari og söngvari, hefur
hlotið styrk úr minningarsjóði
Helgu
Guðmunds-
dóttur sem
eiginmaður
hennar,
Gunnlaugur
Jón Ingason,
stofnaði á síð-
astliðnu ári.
Eyjólfur er
fyrsti tón-
listarnemandi Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar til þess að hljóta
styrk úr sjóðnum en hann verð-
ur veittur á sumardaginn fyrsta
ár hvert. Styrkinn fær sá nem-
andi, eða þeir nemendur, sem
þykja hafa skarað fram úr í
námi sínu við skólann. Eyjólfur
hlaut 200 þúsund krónur sem
hann mun verja til framhalds-
náms í söng við Guildhall
School of Music and Drama í
London þar sem hann stefnir á
nám í óperusöng.
Hlýtur
tónlistar-
styrk
Eyjólfur
Eyjólfsson
SÖNGFÉLAG Skaftfellinga
og Reykjalundarkórinn halda
tónleika í Laugarneskirkju í
dag kl. 17:00.
Stjórnandi Söngfélags
Skaftfellinga er Violeta Smid,
undirleikari Richard John
Simm, einsöngvari með kórn-
um er Stefán Bjarnason.
Stjórnandi Reykjalundar-
kórsins er Íris Erlingsdóttir,
undirleikari Hjördís Elín
Lárusdóttir, einsöngvari er
Páll Sturluson.
Aðgangseyrir kr. 1.000,
frítt fyrir börn yngri en 13
ára.
Sungið í Laug-
arneskirkju
TILRAUNAGALLERÍ Mar-
grétar O. Leópoldsdóttur,
Grjóthús, verður opnað í dag á
Vatnsstíg 9, í gömlu rauðu báru-
járnshúsi. Margrét býður lista-
fólki, rithöfundum og öðrum að
láta ljós sitt skína í gluggum
heimilis síns og mun galleríið
þjóna gangandi vegfarendum.
Hún opnar galleríið með sýn-
ingu á eigin verkum sem hún
kallar „Mark“. Af tilefni opnun-
arinnar verður opið hús í Grjót-
húsi galleríi frá kl. 14:00.
Götugalleríið
Grjóthús
opnað