Morgunblaðið - 01.05.2002, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 01.05.2002, Blaðsíða 46
UMRÆÐAN 46 MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ FORMAÐUR Evr- ópusamtakanna, Úlfar Hauksson, skrifaði grein, sem birtist í Morgunblaðinu 25. apríl sl. og fjallaði þar um frétt mína í Sjón- varpinu 31. janúar sl. Þar sagði frá stækkun Evrópusambandsins og nokkrum atriðum, sem henni tengjast. „Þessi fréttaflutningur er með ólíkindum,“ sagði formaðurinn, og krefst þess af frétta- stofu Sjónvarps, „sem hingað til hefur verið talin áreiðanleg,“ eins og hann kemst að orði, og er þá væntanlega ekki lengur áreiðanleg, að hún vandi til verka við frásagnir af ESB. Að jafnaði myndi ég ekki elta ólar við skrif af þessu tagi, en vegna þess að tveir viðmælendur mínir blandast í málið tel ég nauðsynlegt að bera hönd fyrir höfuð þeirra. Þeir eru Lúðvík Bergvinsson, alþingismaður, og Tómas Ingi Olrich, sem þá var formaður utanríkisnefndar Alþingis. Því meiri ástæða er til, að þeir svöruðu báðir spurningum mínum af skynsemi og stillingu, þó að þeir séu ekki sammála um málefnið. Til að lesendur Morgunblaðsins fái að vita hvernig „fréttaflutningur með ólíkindum“ fer fram fylgir hér á eftir fréttin í heild, með góðfúslegu leyfi Morgunblaðsins: Þulur „Tilkynning framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í gær, um það að ný aðildarríki fengju aðeins 25% af landbúnaðar- og byggðastyrkjum, sem aðildarríkin fá, hefur valdið harðri gagnrýni í ríkjunum, sem sækja um aðild. Ólafur Sigurðsson Það hefur alla tíð legið fyrir að verulegir styrkir til landbúnaðar og byggðamála væru for- senda fyrir því, að nýju ríkin í Austur-Evrópu gætu gengið inn í Evr- ópusambandið. Flest þeirra 10 ríkja sem nú sækja um aðild eru landbúnaðarríki. Lúð- vík Bergvinsson er einn þeirra manna, sem styður aðild að banda- laginu. Hvernig horfir þetta við, eins og nú stendur? Lúðvík Bergvinsson Megin hugsunin á bak við Evrópusam- bandið er sú, að allir sitji við sama borð, allir hafi jöfn tækifæri, og því slær þetta mig dálítið með sérstök- um hætti. Svo virðist vera að þau lönd, sem nú hyggjast gerast aðilar, sitji ekki við sama borð og þau sem fyrir eru. Tómas Ingi Olrich Þessi tíðindi þýða það að við mun- um eiga erfiðara með, en meðlima- þjóðirnar sem nú eru þar inni, að fá fé til ýmissa styrkja úr sjóðunum. Það þýðir að hallinn á aðild okkar verður meiri. Framlag okkar verður hlutfallslega meira og það sem við fáum til baka hlutfallslega minna. Ólafur Sigurðsson En hefur það ekki verið vitað að það yrði fjárhagslega mjög erfitt fyr- ir aðildarríkin, að taka við öllum þessum ríkjum, sem eru flest land- búnaðarríki? Lúðvík Bergvinsson Það hefur alltaf verið vitað að þetta yrði erfiður fjárhagslegur baggi fyrir Evrópusambandið. En á móti kemur að þetta er stór mark- aður, þetta er mikill fjöldi fólks. Menn hafa talið það vega upp á móti og til lengri tíma litið hafa menn talið þetta svæðinu til hagsbóta. Tómas Ingi Olrich Í öðru lagi verður að líta á þessa niðurstöðu, sem ákveðna uppgjöf Evrópusambandsins, við að glíma við einn vanda sinn, sem er landbún- aðarstyrkjakerfið, landbúnaðarkerf- ið í heild. En þetta bendir til að þeir treysti sér ekki til að taka á þeim vanda, sem þar er uppi og er almennt viðurkenndur innan sambandsins. Ólafur Sigurðsson Þegar framkvæmdastjórnin hefur tekið ákvarðanir er yfirleitt lítið svigrúm til samninga, því að ákvarð- anir hennar eru teknar af mönnum, sem eru fulltrúar ríkisstjórna Evr- ópusambandsins. Flest nýju ríkjanna þurfa að grípa til kvala- fullra efnahagsráðstafana, til að standast kröfur ESB. Ef svo bætast við slæm kjör við inngöngu vaknar sú spurning hvort aðild verði ekki felld í þjóðaratkvæðagreiðslum.“ Svona er fréttaflutningur „með ólíkindum“. Eins og öllum almenn- ingi er kunnugt er það einn af eig- inleikum sjónvarpsfrétta að þær eru stuttar. Í þessari frétt hefði margt fleira mátt segja, ef tími hefði leyft. Fréttastofan hefur síðan sagt frá mörgu, sem viðkemur Evrópusam- bandinu og stækkun þess. Það höld- um við áfram að gera, í þeirri vissu að marga drætti þarf til að skapa stóra mynd. „Furðufrétt“ um ESB Ólafur Sigurðsson ESB Það er einn af eig- inleikum sjónvarps- frétta, segir Ólafur Sigurðsson, að þær eru stuttar. Höfundur er varafréttastjóri erlendra frétta á Sjónvarpinu. Sjálfstæðismenn í Garðabæ kynntu kosn- ingastefnu sína á sum- ardaginn fyrsta. Þar eru sett fram mörg metnaðarfull markmið en sérstaklega ber að geta þess að málefni eldri borgara eru sett í forgang en áhersluat- riðin eru m.a. eftirfar- andi fimm þættir:  Auka hjúkrunar- rými í bænum og bjóða uppá dagvistun og hvíldarinnlagnir í samvinnu við heil- brigðisráðuneytið, t.d. í Holtsbúð.  Leggja sérstaka áherslu á að auka fjölbreytileika framboðs á íbúðum í Garðabæ, bæði hvað varð- ar íbúðarstærð og meira framboði af leiguhúsnæði.  Endurskoða afslátt af fast- eignagjöldum til eldri borgara á kjörtímabilinu með það að mark- miði að veita sanngjarnan afslátt. Kannað verður hvort hægt sé að koma á blönduðu kerfi, þar sem annars vegar er flatur afsláttur og hins vegar tekjutengdur.  Auka framboð tómstunda- starfs, svo sem í Garðabergi og skipuleggja það í samstarfi við Fé- lag eldri borgara  Gera ráð fyrir tíma fyrir eldri borgara í fyrirhugaðri innisundlaug í Hofsstaðamýri Hér er um brýn framfaramál að ræða fyrir eldri borgara í Garðabæ en stefnuna í heild sinni má skoða á vefsíðunni gardar.is. Byggt á góðum árangri Metnaðarfull framtíðarsýn í mál- efnum eldri borgara byggist meðal annars á ágætum árangri sem náðst hefur á yfirstandandi kjör- tímabili. Fyrst ber að nefna að Grettistak var unnið þegar undirrit- aður var samningur við heilbrigð- isráðuneyti árið 2000 um rekstur dvalar- og hjúkrunarheimilis í Garðabæ, en hjúkrunarheimilið er rekið af sjálfseignarstofnun í eigu Garðabæjar og Bessastaðahrepps. Nú eru 32 vistrými á hjúkrunar- heimilinu. Markvisst hefur verið unnið að eflingu heimilishjálpar og heima- hjúkrunar. Haldnir eru fundir í þjónustuhópi aldraðra þar sem far- ið er yfir einstaklingsmál og gerðar áætlanir sem miða að því að koma sem best til móts við þarfir ein- staklinganna. Sam- starf og samráð hefur verið á milli starfs- manns fjölskyldu- og heilbrigðissviðs sem sinnir öldrunarþjón- ustu og þeirra sem sinna heimahjúkrun á heilsugæslu. Á kjörtímabilinu var boðið upp á heimsend- ingu matar til þeirra sem þess þurfa og óska. Einnig má nefna að haldin hafa verið starfslokanámskeið fyrir þá sem eru að komast á eft- irlaunaaldur, nýlega er síðasta námskeiðinu lokið Framboð á tómstundastarfi fyrir eldri borgara hefur aukist verulega og náið og gott samstarf hefur ver- ið við Félag eldri borgara. Glæsileg félagsaðstaða, Garðaberg, var ný- lega opnuð í hjarta miðbæjarins. Áætla má að starfsemi í félagsstarfi eldri borgara hafi allt að þrefaldast á sl. 2-3 árum. Í Garðabæ hefur verið lögð áhersla á að eldri borgarar geti sem lengst búið í eigin húsnæði og til þess að auðvelda þeim það var af- sláttur af fasteignagjöldum aukinn verulega í upphafi þessa árs. Húsnæðismál hafa verið í brenni- depli að undanförnu og hefur aukið framboð af minni íbúðum í Garða- bæ nýst mörgum eldri borgurum en betur má ef duga skal. Í Ása- hverfinu er lögð sérstök áhersla á minna sérbýli og að auki hafa verið byggð 8 fjölbýlishús með minni og stærri íbúðum. Síðast en ekki síst var nýlega kynnt nýtt deiliskipulag við Arnarnesvog. Í þessu nýja hverfi er gert ráð fyrir 200 íbúðum sem ætlaðar eru eldri íbúum. Auk þess er gert ráð fyrir þjónustu- miðstöð fyrir eldri borgara í þessu nýja hverfi. Ljóst er að gera þarf vel við þá, sem sestir eru í helgan stein og skilað hafa sínu ævistarfi í þágu samfélagsins. Af framansögðu er ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn í Garðabæ hefur haft velferð eldri borgara í fyrirrúmi á yfirstandandi kjörtímabili. Ætlunin er að gera enn betur á komandi kjörtímabili, fái sjálfstæðismenn umboð til þess frá kjósendum hinn 25. maí næst- komandi. Málefni eldri borgara sett í forgang Laufey Jóhannsdóttir Höfundur er forseti bæjarstjórnar Garðabæjar. Garðabær Gera þarf vel við þá, sem sestir eru í helgan stein, segir Laufey Jóhannsdóttir, og skilað hafa ævistarfi sínu í þágu samfélagsins. VIÐ frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins höfum lagt fram ítar- lega stefnuskrá sem hefur fengið góðan hljómgrunn meðal al- mennings. Í stefnu- skránni leggjum við áherslu á að hlúa að frelsi og velferð ein- staklingsins og auka og bæta þjónustuna við borgarbúa. Með þau markmið að leið- arljósi höfum við lagt upp í kosningabarátt- una. En við látum ekki staðar numið við mörkun stefnunnar heldur viljum við gera samning við borgarbúa. Í samningnum höfum við forgangsraðað verkefnum stefnuskrárinnar og heitum því að við þau verður staðið. Stórfelld lækkun skatta á húsnæði öryrkja Við viljum tryggja að fatlaðir búi við betri lífskjör og geti tekið þátt í daglegu lífi á sambærilegan hátt og aðrir borgarbúar. Við ætl- um að stórlækka fasteignaskatta á íbúðarhúsnæði öryrkja sem þeir eiga og búa í og hækka tekju- viðmið vegna niðurfellingar fast- eignaskatta um 50%. Þannig fjölg- ar þeim öryrkjum verulega sem fá 100% niðurfellingu fasteignaskatta og einnnig þeim sem fá 80% eða 50% niðurfellingu á fasteignaskött- um. Auk þess ætlum við að fella holræsagjaldið alveg niður í áföng- um á kjörtímabilinu. Þetta mun auðvelda öryrkjum að búa sem lengst í eigin húsnæði, stuðla að öryggi þeirra og auka ráðstöfunar- tekjur þeirra. En þetta er ekki nóg að okkar mati og frekari úrræða er þörf. Biðlistar eftir félagslegu leiguhús- næði hafa lengst veru- lega og eru nú í sögu- legu hámarki eða um 600 manns. Á þeim lista eru 178 öryrkjar. Fjöldi fólks er á göt- unni eða býr við að- stæður sem ekki eru fólki bjóðandi. Mikill skortur er á lóðum og færri íbúðir voru byggðar á árunum 1995–2000 en árunum þar á undan þrátt fyr- ir fjölgun borgarbúa. Við búum því við mikla húsnæðiseklu. Sérstaklega vantar minni íbúðir sem ger- ir það að verkum að ungt fólk skuldsetur sig mun meira en það þyrfti ef nægjanlegt framboð væri á 2ja og 3ja herbergja íbúðum. Húsaleiga hækkað um 100% Stefna R-listans í skipulags- og lóðamálum hefur átt stóran þátt í þeirri verðsprengju sem orðið hef- ur á íbúðamarkaðnum í Reykjavík. Lóðaverð hefur hækkað um rúm- lega 140% og í framhaldi af því hafa fasteignagjöldin hækkað. Húsaleiga á almennum markaði hefur hækkað um allt að 100%. Þetta hefur skapað algjöran víta- hring hjá mörgum einstaklingum og fjölskyldum sem nauðsynlegt er að rjúfa. Biðlistar eru ekki náttúrulögmál Í stefnuskránni okkar er að finna markvissar, raunhæfar lausnir til að komast út úr þessari kreppu. Við ætlum að leysa hús- næðisvanda þeirra sem búa við óviðunandi aðstæður og eru á bið- lista eftir félagslegu húsnæði. Við ætlum að tryggja nægt lóðafram- boð, afnema lóðauppboð og inn- heimta gatnagerðargjöld til sam- ræmis við kostnað borgarinnar við gerð nýrra byggingarsvæða. Bið- listar eiga ekki að vera náttúrulög- mál. Á sínum tíma breyttu Sjálf- stæðismenn á einu ári stöðunni úr algjörum lóðaskorti eftir vinstri stjórn í Reykjavík í að fullnægja lóðaeftirspurninni. Bættur hagur öryrkja Við frambjóðendur Sjálfstæðis- flokksins leggjum mikla áherslu á að bæta hag öryrkja. Við munum gera það með þeim beina hætti að stórlækka fasteignaskatta og leggja af holræsagjöld á eigin hús- næði öryrkja. Auk þess munum við breyta stefnu í lóða- og húsnæðis- málum í þeim tilgangi að fjölga hagkvæmum leiguíbúðum. Við ætl- um að tryggja nægt lóðaframboð og innheimta sanngjörn gatna- gerðargjöld sem mun leiða til þess að íbúðaverð og húsaleiga lækka. Bættur hagur öryrkja ætti að vera forgangsmál borgaryfirvalda og fyrir því vil ég berjast í borg- arstjórn. Bættur hagur öryrkja Guðrún Ebba Ólafsdóttir Reykjavík Í stefnuskránni okkar er að finna markvissar, raunhæfar lausnir, segir Guðrún Ebba Ólafs- dóttir, til að komast út úr þessari kreppu. Höfundur skipar 3. sæti á framboðslista Sjálfstæðis- flokksins vegna borgar- stjórnarkosninganna í vor. Stretchbuxur kr. 2.900 Konubuxur frá kr. 1.690 Dragtir, kjólar, blússur og pils. Ódýr náttfatnaður. Brandtex fatnaður Nýbýlavegi 12, sími 5544433 Stretchbuxur kr. 2.90 Konubux r frá kr. 1.790 ragtir, kjólar, blús ur og pils. Ódýr nát fatna Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is  netfang: flis@flis.is lím og fúguefni Eggjabikarar verð kr. 2.300 Mörkinni 3, sími 588 0640 Opið mánudag-föstudag 11-18 , laugardag 11-15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.