Morgunblaðið - 01.05.2002, Page 54
MINNINGAR
54 MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Hann Friðrik afi
minn var alltaf sá
sterki í mínum huga.
Ég man eftir þegar
ég var lítill drengur og
var alltaf að reyna að lyfta kúlunni
þinni á svölunum og tókst að lok-
um. Þú fórst með mig á Melavöllinn
að hitta fólk og horfa á frjálsar
íþróttir, ég var ekki nema u.þ.b. sex
ára en alltaf man ég eftir þessu.
Það var svo gott að vera með þér
og ég hafði svo gaman af því.
Sunnudagsbíltúr og ís, en ísinn kom
ekki í einu brauðformi heldur heill
lítri. Svo sátum við við borðið og át-
um af bestri list. Ég man þegar þú
fórst með mig og Mumma frænda á
Laugardagsvöllinn, minn fyrsti al-
vöru fótboltaleikur. Ég vann þig
aldrei í skák en samt kenndirðu
mér flestöll brögðin, skákin var
ekki mín sterka hlið.
Elsku afi minn, ég vil þakka þér
fyrir allt saman, hvíl þú nú í friði.
Sigurjón Örn Ólason.
Elsku afi. Mikið ósköp finnst mér
erfitt að vita að þú sért ekki lengur
hér. Að þú sért farinn er nokkuð
sem ég á erfitt með að sætta mig
við, svo erfitt að orð fá því ekki
lýst. En ég mun hugga mig við all-
ar góðu minningarnar um þig og
það að þér líður betur þar sem þú
ert núna.
Gleði þín var ótæmandi, ég man
alltaf eftir því hvað þú gladdist
mikið ef ég náði einhverjum ár-
angri og hvað þurfti ósköp lítið til
að gleðja þig. Manstu líka þegar við
tefldum og þú vannst alltaf. Ég
kann reyndar ekkert að tefla, en
það skipti þig engu, þú tefldir samt
og alltaf undraði ég mig yfir færni
þinni í þessu. Ég mun aldrei
gleyma öllum jólunum sem við átt-
um saman og hvað ég hlakkaði til
að sjá þig um jólin og vera með
FRIÐRIK JENS
GUÐMUNDSSON
✝ Friðrik JensGuðmundsson
fæddist í Reykjavík
9. nóvember 1925.
Hann andaðist á
Landspítalanum við
Hringbraut 16. apríl
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Fossvogskirkju 26.
apríl.
þér. Jólin verða ekki
söm án þín. Manstu
líka þegar við sátum á
rúminu þínu og þú
sagðir frá þér. Eða
þegar við fórum sam-
an að veiða þegar ég
var smástrákur, það
var ein af fyrstu ferð-
unum mínum. Ég gat
sagt sumar sögurnar
af þér mörgum sinn-
um, ég hef ekki hug-
mynd um hvað ég
sagði oft eða mörgum
frá því að afi minn
hefði farið á Ólympíu-
leikana. Ég lofa þér því, að ég skal
gera allt sem ég get til að komast
þangað og þá mun ég hugsa til þín.
Elsku afi, ég er óendanlega
þakklátur fyrir tímann sem ég fékk
með þér og fyrir það að hafa fengið
að eiga þig fyrir afa. Sorgin er erf-
ið, en ég veit að þú ert hjá mér og
ég veit einnig það, að einhvern tím-
ann mun koma sá dagur að við hitt-
umst aftur. Auðvitað mun ég líka
ylja mér við allar minningarnar um
þig. Ég elska þig svo mikið, elsku
afi, að ég á ekki til orð til að lýsa
því.
Guð geymi þig, elsku afi, takk
fyrir allt.
Þinn
Friðrik Þór.
Mikill söknuður er í hjarta okkar
við fráfall Friðriks afa. Hinar
mörgu samverustundir með honum
voru einstakar; hann var alltaf
glaður í bragði og gat fengið mann
til að hlæja tímunum saman með
sögum sínum af fólki og atburðum.
Sögusviðið var oft tengt laxveiði
þar sem óspart var gert grín að
mistökum veiðimanna og ótrúlegri
heppni eða óheppni í baráttu við
laxinn. Það undarlega var að þótt
maður væri búinn að hlæja frá sér
allt vit urðu sögurnar bara fyndnari
þegar hann sagði þær aftur ári síð-
ar.
Þrátt fyrir veikindi hans síðustu
ár var alltaf stutt í brosið sem ein-
kenndi hans persónu mest. Afi var
glæsilegur maður, stór og mikill að
vexti en um leið svo ljúfur og góð-
mennska einkenndi allt hans fas.
Við systkinin vorum auðvitað stolt
yfir glæstum íþróttaferli hans og
fannst afar merkilegt að hann hefði
keppt á Ólympíuleikum og þar að
auki verið fánaberi fyrir Íslands
hönd. Hann var afreksmaður til síð-
asta dags, ekki bara í íþróttum,
heldur ekki síður í lífinu sjálfu. Sú
viska og þekking, frásagnarlist og
gleði sem hann miðlaði okkur gerir
okkur kleift að líta stolt til baka og
auðveldar okkur að líta fram á við.
Við minnumst þín, afi, með því
sem þú gafst okkur; með reisn,
gleði, baráttuvilja og brosi framan í
lífið. Hvíl í friði.
Þó er eins yfir svífi
enn og hljóti að minna á þig
þættirnir úr þínu lífi,
þeir, sem kærast glöddu mig.
Alla þína kæru kosti
kveð ég nú við dauðans hlið,
man, er lífsins leikur brosti
ljúfast okkur báðum við.
(Steinn Steinarr.)
Friðrik, Hjörtur og Sigríð-
ur Alma Guðmundarbörn.
KR-kveðja
Látinn er í Reykjavík frjáls-
íþróttakempan Friðrik Guðmunds-
son. Þar sér KR á eftir góðum og
dyggum félaga sem hélt merki fé-
lagsins á loft alla tíð.
Hann var í stórum hópi frjáls-
íþróttamanna úr KR sem æfðu og
kepptu á gamla Melavellinum um
miðbik síðustu aldar. Innan þessa
hóps voru þrefaldir Evrópumeist-
arar, Huseby tvívegis í kúlu og
Torfi í langstökki. Friðrik prýddi
þennan hóp og var Íslandsmeistari
í kúluvarpi 1948 og 1952, Íslands-
meistari í kringlukasti 1949 og auk
þess var hann glímukappi góður.
Hann var skemmtilegur félagi og
gáskafullur sem hélt uppi góðum
„húmor“ inni í klefa og ekki síst í
heita pottinum sem oft mældist við
illþolanlegt hitastig. Á Melavellin-
um komu saman íþróttamenn úr
öllum félögum til æfinga. Var oftast
þröngt setinn bekkurinn og þurftu
menn að koma tímanlega til að fá
snaga.
Friðrik var þátttakandi í sigur-
sælum hópi KR-inga í ferð til Nor-
egs, þar sem farið var víða og kom-
ið við í mörgum bæjum í suðurhluta
landsins, við góðan orðstír. Hann
hélt áfram keppni og æfingum, náði
sínum besta árangri á ferlinum
1957-1958. Hann var einlægur KR-
ingur sem og allt hans fólk.
Friðrik var sæmdur gullmerki
KR fyrir störf sín og keppni.
Knattspyrnufélag Reykjavíkur
sendir Sigríði og öðrum aðstand-
endum samúðarkveðjur.
Kristinn Jónsson, formaður.
Við sem tekin erum að eldast
sjáum samferðafólkinu á lífsgöng-
unni sífellt fækka og finnum fyrir
saknaðarkennd. Minningar liðinna
ára birtast okkur í hugsýn, oft ljúf-
sárar.
Nú hefur verið burtkvaddur vin-
ur minn Friðrik Jens Guðmunds-
son. Viðkynning okkar var orðin
löng og tengdist í upphafi íþrótta-
iðkun og keppni. Ég sá Friðrik
fyrst á meistaramóti Íslands í
frjálsum íþróttum á Melavellinum í
Reykjavík sumarið 1948. Kom ég
þá hingað til keppni sem nýliði utan
af landi. Friðrik varð Íslandsmeist-
ari í kúluvarpi á þessu móti. Tók
hann mér einstaklega vinsamlega
og ljúfmannlega og má segja að þá
þegar hæfist okkar vinátta. Friðrik
mátti teljast glæsimenni og hlaut
að vekja eftirtekt hvar sem hann
fór. Hann var velfarinn í andliti,
1,90 m á hæð, vel í vexti og sterk-
byggður, enda mikill kraftamaður.
Friðrik var í keppnisliði Íslend-
inga og fánaberi á Ólympíuleikun-
um í Helsingfors í Finnlandi 1952.
Frá árinu 1953 lágu leiðir okkar
saman hér við íþróttaæfingar og
keppni í fjöldamörg ár. Þá lágu og
leiðir saman til landskeppna er-
lendis, en Friðrik var landsliðsmað-
ur í kringlukasti og sleggjukasti um
árabil. Árið 1957 sigraði hann í
kringlukasti í landskeppni við Dani
hér á Melavellinum og kastaði þá
50,20 m, sem þá var ágætur árang-
ur. Kunnur íþróttamaður var hann
frá 5. og fram á 7. áratug nýlið-
innar aldar.
Sagt er að enginn sé annars
bróðir í leik og er slíkt næsta eðli-
legt í hita keppninnar. Friðrik átti
til að bera þann óvenjulega dreng-
skap að gleðjast yfir góðum árangri
og sigri samkeppanda síns og óska
honum innilega til hamingju.
Við Friðrik áttum margvísleg
samskipti um áraraðir og ávallt
góð. Hjálpsemi og velvild voru hon-
um í blóð borin.
Á skattstofunni í Reykjavík
starfaði Friðrik sem fulltrúi um
langt árabil. Meðan skattlagningin
var afturvirk vissi ég til að hann
aðstoðaði ýmsa þá er ekki höfðu
talið fram og voru komnir með
skattamál sín í óreiðu og vandræði,
en vildu komast á réttan kjöl í þeim
efnum.
Hæglátur húmoristi var Friðrik,
minnugur og góður frásagnarmað-
ur líkt og var um bróður hans Guð-
mund J. Guðmundsson, verkalýðs-
foringja og alþingismann. Gleðinnar
maður gat Friðrik verið á góðri
stund og þá manna skemmtileg-
astur. Hins vegar var hann fast-
lyndur og vildi ógjarnan láta hlut
sinn, kæmi til ólíkra skoðanaskipta
eða annarrar andstöðu.
Fyrir allmörgum árum varð hann
fyrir heilsuáfalli, en bar það með
stöku æðruleysi og karlmennsku.
Vil ég nú að leiðarlokum þakka
honum langa góða samleið og órjúf-
andi vináttu, um leið og ég bið hon-
um blessunar Guðs. Sigríði konu
hans, börnum þeirra og öðrum að-
standendum, sendi ég og kona mín
hugheilar samúðarkveðjur.
Hallgrímur Jónsson.
Í dag er lagður til hinstu hvílu
kær félagi frá gömlu Melavallarár-
unum við Suðurgötu, Friðrik J.
Guðmundsson, fyrrverandi fulltrúi
á Skattstofu Reykjavíkur.
Friðrik var traustur maður, af
vestfirskum ættum í föðurætt, Arn-
firðingur af ætt Jóns forseta Sig-
urðssonar. Hefur sterkt svipmót og
atgervi Jóns forseta ekki leynt sér
meðal ýmissa síðari tíma skyld-
menna hans. Má þar nefna að Guð-
mundur Halldór faðir Friðriks, sem
var þekktur maður á sinni tíð, hóf
sjómennsku 12 ára gamall á árabát.
Alkominn í land af togara rúmlega
sjötugur hafði hann stundað sjó-
mennsku í 60 ár. Það er langt út-
hald og þarf mikið þrek til. Borg-
firðingur var Friðrik í móðurætt,
frá Heyholti við Svignaskarð.
Friðrik var Vesturbæingur og
KR-ingur alla tíð. Hnn ólst upp í
verkamannabústöðunum við Ás-
vallagötu ásamt þremur tápmiklum
og myndarlegum bræðrum, í ald-
ursröð þeim Óskari, fyrrverandi
fulltrúa, Guðmundi J., fyrrverandi
formanni Dagsbrúnar, Verka-
mannasambands Íslands og al-
þingismanni, og Jóhanni efnaverk-
fræðingi, en hann er nú einn
eftirlifandi þeirra bræðra. Friðrik
sem nú er kvaddur var þeirra
næstelstur.
Er Friðrik var sjö ára gamall
slasaðist hann mjög alvarlega er
hann varð undir strætisvagni.
Gekkst hann m.a. undir mikla og
vandasama höfuðaðgerð, þá fyrstu
sinnar tegundar sem hér var fram-
kvæmd. Aðgerðin tókst vel og náði
Friðrik fullum bata.
Friðrik varð snemma stór og
sterkur, góður glímumaður á yngri
árum en sneri sér síðan alfarið að
iðkun frjálsra íþrótta, einkum kúlu-
varpi og kringlukasti. Náði hann
góðum árangri í þeim greinum. Má
þar nefna að hann kastaði kringl-
unni lengra (50,82) en sjálf kempan
Gunnar Huseby (50,13) sem varð
tvöfaldur Evrópumeistari (1946 og
1950) í kúluvarpi. Friðrik var lands-
liðsmaður í ýmsum kastgreinum af
og til í tvo áratugi. Keppnisferill
hans stóð í um aldarfjórðung, eða
frá því laust upp úr 1940 og fram
undir 1970.
Ég sá Friðrik fyrst á gamla
Melavellinum, laust upp úr 1950, ég
þá innan fermingar, þangað kominn
þeirra erinda að sparka bolta.
Þarna á vellinum gaf að líta ýmsar
landsfrægar fótboltahetjur og
nokkra síðustu frjálsíþróttakappana
frá „gullaldarárunum“ sem enn
voru að. Varð mér þarna einkum
starsýnt á kastarana þar sem þeir
grýttu sínum áhöldum þvers og
kruss út um allan völl. Og und-
arlegt þótti mér það oft, að þeir
urðu alla jafna því kátari sem veður
var verra og vitlausara, – hvassara.
Ég skildi það síðar þegar ég var
farinn að þvælast með í þessum
hóp, þar sem þeir flestir hverjir
voru nær tveimur áratugum eldri
en ég. Þessi kastarahópur var þá
og lengi síðar að í öllum veðrum og
oft linntu þeir ekki látum á hausti
fyrr en kastáhöld hurfu inn í snjó-
skafla.
Það var töluverð fyrirferð á
þessu kastaraliði þarna á vellinum.
Og ekki var hún minni fyrirferðin í
baðinu eða í heita pottinum eftir
æfingar. Þar kepptust menn við að
segja stórkallalegar sögur af ýms-
um skrautlegum uppákomum og
eftirminnilegum íþróttaatburðum
og öðrum, innanlands og utan, og
menn tíndu af sér brandara og fyr-
ir kom nokkuð beitta og persónu-
lega. Gekk því stundum gamanið of
langt. Fór þá ýmislegt úr böndum.
Reyndu menn þá að bjarga sér á
hlaupum hver sem betur gat út
undir bert loft, stundum minna en
fáklæddir.
Ekki lá Friðrik á liði sínu við að
segja góðar sögur, enda húmoristi
af bestu gerð. Þá urðu mörg tilsvör
hans fleyg. Og ég fékk minn
skammt frá honum, t.d. sagði hann
við mig einn daginn: „Jón minn,
vertu nú ekki að fikta við spjótið
svo þú skemmir ekki fyrir þér í
sleggjunni,“ en ýmsir höfðu verið
að finna að því við mig að halda
mig ekki við mína grein (hástökk).
Þessi athugasemd hans dugði mér
hvað lengst til áminningar, – í
nokkra daga.
Aldrei bar skugga á vináttu okk-
ar Friðriks þrátt fyrir oft á tíðum
illskeytta félagapólitík milli félaga
okkar, KR og ÍR, á þessum árum
og hvorugur okkar var saklaus af
að hafa tekið þátt í.
Nú er þessi gamli góði félagi
minn og okkar allur. Erfið veikindi
hrjáðu hann síðustu tvo áratugina
og hann stóð lengi af sér hvert
áfallið á fætur öðru. Ég kveð þenn-
an góða félaga með virðingu og
þökk fyrir góð og skemmtileg kynni
og votta eftirlifandi eiginkonu hans,
börnum, bróður og öðrum ættingj-
um innilega samúð.
Blessuð sé minning hans og
minna gömlu félaga af Melavell-
inum úr okkar hópi sem gengnir
eru.
Jón Þ. Ólafsson.
!
"
# $$%%
!" # ! $ %
& % &' '% !"
& (' % " !"
) !" $#" %
!" $ %
% *
&'
+)&
,-
' . "
($ ' .'/
'01.21
(
3 1#"4' !"
% 1' ! % 53 2 )
3 1 $ ! % "'0' ')'!'
% *
&' )
)
-&&5&6&
7 (
(
*
+% ('7 !"
8' 7 !" ' #" %
( !7 !" " ' $ %
#"7 % 5'#"4 !"
5 27 !" ) " %
% *