Morgunblaðið - 01.05.2002, Blaðsíða 64
64 MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
!
"
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
SVONA spyr leiðarahöfundur Morg-
unblaðsins í vandlætingartón sunnu-
daginn 28. apríl sl. Ég á 4 ára gamlan
dótturson og af einhverjum ástæð-
um þykir okkur óskaplega gaman að
heimsækja miðborg Reykjavíkur
þegar færi gefst. Við förum niður að
tjörn, setjumst á kaffihús, röltum um
Austurvöll, náum okkur í bækur á
Bókasafninu við Tryggvagötu eða
komum við á Ingólfstorgi til að at-
huga hvort ekki sé eitthvað um að
vera þar. Ef engin skipulögð dag-
skrá er í gangi er þó alltaf gaman að
fylgjast með hjólabrettastrákunum.
Gaman þykir okkur líka að rölta um
Austurstræti og Laugaveg og fylgj-
ast með fjölbreyttu mannlífinu.Við
höfum hins vegar litla ánægju af
nærveru Landsbankans, Búnaðar-
bankans og Eimskips, með fullri
virðingu fyrir þessum ágætis fyrir-
tækjum, en leiðarahöfundur telur að
ef þau hverfi af svæðinu yrði það
„rothögg“ fyrir miðborgina.
Fyrir utan rölt okkar snáðans um
miðborg Reykjavíkur á ég oft afar
ánægjulegar stundir þar með konu
minni eða góðum vinum. Við eigum
það til að fara út að borða á einhverj-
um hinna fjölmörgu veitingastaða í
miðborginni, röbbum saman yfir
kaffibolla eða bjórkrús, hlustum á
lifandi tónlist eða sækjum sýningar í
Listasafni Reykjavíkur.
Sex sinnum í annars frekar stutt-
um leiðara kemur orðið „búla“ fyrir í
einhverri mynd og talað er um
„óþverra“ sem hreiðrað hefur um sig
í miðborginni. Nú velti ég því fyrir
mér hvort ég stundi „búlurnar“ sem
úir og grúir af í þessum borgarhluta,
samkvæmt leiðarahöfundi Morgun-
blaðsins? Er Litli ljóti andarunginn
kannski „búla“ án þess ég hafi gert
mér grein fyrir því? Eða Kaffi París,
Kaffi Reykjavík, Gaukur á Stöng,
Hótel Borg, Hús málarans, Hornið,
Mokkakaffi eða Grænn kostur?
Ég hef búið í Reykjavík nánast allt
mitt líf og þykir vænt um þessa borg,
ekki síst miðborgina. Í undanfara
þeirra kosninga sem senn fara í hönd
hefur hópur fólks tekið sig til og
reynt að sverta borgina mína, í póli-
tískum og eigingjörnum tilgangi, og
bera hana óhróðri sem hún á ekki
skilið. Þessi hópur fólks hefur
stjórnað borginni mestallt mitt líf en
hefur fengið hvíld frá stjórnun henn-
ar sl. 8 ár og þykir það greinilega
vont. Í tilraun sinni til að ná aftur
völdum beitir hann áróðri sem m.a.
felst í því að úthúða borginni og
mannlífinu sem þar er. Að Morgun-
blaðið sé að vekja upp gamlan kald-
astríðsanda í borgarmálum og taki
undir þennan óhróður um Reykjavík
er sorglegt.
SIGURÐUR EINARSSON,
Kjartansgötu 2, Reykjavík.
Hver vill heimsækja
miðborgina með börn
sín og barnabörn?
Frá Sigurði Einarssyni:
ÞAÐ er sorglegt hvenig Ísland
ásamt öðrum lýðræðisríkjum ætlar
að taka á þeim stríðsglæpum sem í
dag eru framdir í Mið-Austurlönd-
um. Það er deginum ljósara og þarf
ekkert að efast um gjörning Ísr-
aelsmanna gegn Palestínumönnum,
það sýna fréttamyndir sem birst
hafa í fjölmiðlum. Sumir halda því þó
fram að hér sé um blekkingu að ræða
og málin einungis sýnd frá hlið Pal-
estínumanna, ef menn trúa að við-
urkenndar fréttastofur fari allar að
draga upp ranga mynd af ástandinu
á þessum slóðum þá er hinn sami
staddur í heimi blekkinga. Einnig
hafa menn á ónefndri sjónvarpsstöð
haldið því á lofti að þetta sé allt gert
með vilja guðs og ef það er það sem
þeirra guð vill, dýrka þeir annan guð
en kristið fólk. Því vil ég benda þeim
á að í þeirri góðu bók Biblíunni, sem
menn oft vitna í, er ritað gegn
grimmd og ódæðisverkum eins og nú
eru framin af Ísraelsmönnum. Ef
horft er á þá umræðu sem birst hef-
ur í blöðunum, myndast hún oft á því
annars vegar að rifja upp hvað er
hverjum að kenna og hvað Ísrels-
menn hafa mátt þola í gegnum tíð-
ina, og hins vegar að Arafat hafi ekki
á sinni leiðtogatíð sýnt friðarvilja í
verki. En það er ekki það sem skiptir
máli og menn verða að gleyma öllum
sagnfræðilegum vangaveltum og sjá
staðreyndir dagsins í dag sem eru
hryllilegir glæpir sem framdir eru af
Ísraelsmönnum. Það verður að
stöðva með hvaða hætti sem hægt er
og því eiga íslensk stjórnvöld að sýna
frumkvæði eins og þeir hafa áður
gert á alþjóðavettvangi og ætti rík-
isstjórn Íslands að slíta öllu stjórn-
málasambandi við ógnarstjórn Shar-
ons. Þetta má vera við fyrstu sýn
harkaleg afstaða en á hinn bóginn
sjáum við að sambærilegar ógnar-
stjórnir, eins og í fyrrum Júgóslavíu,
hafa verið dregnar fyrir alþjóðadóm-
stóla og gjört að svara fyrir sríðs-
glæpi sína og mun koma að því að
sama verður gert við ógnarstjórn
Sharons. Það má vel vera að báðir
þessir gömlu stríðsmenn, Arafat og
Sharon, verði að hverfa á braut og
aðrir menn friðarins komi að málum
hvorrar þessara þjóða fyrir sig til að
semja um frið og verða Sameinuðu
þjóðirnar að vera þar sem milliliður
og gæsluaðili. Því fyrr sem einhver
hefur frumkvæði að því að mótmæla
morðum, kúgun gagnvart saklausum
borgurum því betra og má vera að
hinn sami bjargi fyrir vikið einhverj-
um mannslífum og megi það verða
íslenska þjóðin sem hefur frumkvæði
að því að stöðva þetta blóðbað.
GUÐMUNDUR HREINSSON,
Arnartanga 29, Mosfellsbæ.
Stöðvum blóðbaðið
Frá Guðmundi Hreinssyni: