Morgunblaðið - 01.05.2002, Síða 67
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2002 67
DAGBÓK
Árnað heilla
GUÐBJÖRN Þórðarson
hafði ekki lent í öðru eins við
spilaborðið áður. Hann hafði
engu lofað í hjarta, en átti
ÁKDx í litnum og fékk þá
ánægju að leggja upp blind-
an í sjö hjörtum sem makker
hans hafði sagt upp á eigin
spýtur. Spilið kom upp í síð-
ustu umferð Íslandsmótsins í
tvímenningi.
Norður gefur; AV á hættu.
Norður
♠ G5
♥ ÁKD6
♦ G7632
♣D6
Vestur Austur
♠ Á1064 ♠ KD98732
♥ 98 ♥ 5
♦ 108 ♦ K54
♣G9732 ♣54
Suður
♠ --
♥ G107432
♦ ÁD9
♣ÁK108
Guðbjörn vakti á einum
tígli í norður, en skipti sér
svo ekkert af sögnum meira –
makker hans, Sveinn R. Þor-
valdsson, sá um framhaldið:
Vestur Norður Austur Suður
-- 1 tígull 3 spaðar Dobl *
4 spaðar Pass Pass 7 hjörtu !
Pass Pass Pass
Stökkið í sjö hjörtu er ger-
ræðislegt, en þó innan skyn-
semismarka, því ekki er
ósennilegt að opnun makkers
sé byggð á ÁK í hjarta og tíg-
ulkóng úr því að AV láta svo
ófriðlega í spaðanum. Sveinn
hefði þó tæplega meldað
svona í fyrstu umferð móts-
ins. Vestur kom út með
hjarta og Guðbjörn lagði nið-
ur trompið í röðinni 6-D-K-Á.
Síðan kom tígullinn, en hann
var eins og glæsilegur – gos-
inn örsmátt fimmti.
Á opnu borði má vinna sjö
hjörtu með því að fara af stað
með tígulgosa og fella svo tíu
vesturs á eftir ef austur legg-
ur á. Sveinn fór reyndar af
stað með tígulgosann, en
svínaði síðan níunni og gaf á
tígultíuna. En hver skyldi
vera besta spilaleiðin frá
sjónarhóli tölfræðinnar?
Áður en farið er í tígulinn
er sjálfsagt að kanna leguna í
laufinu. Það sýnir sig að aust-
ur á tvö lauf og eitt tromp.
Miðað við sagnir er ekki
óeðlilegt að gera ráð fyrir
sjölit í spaða, en þá er austur
með þrílit í tígli. Þar með
þýðir ekki að spila upp á
kóng annan í austur og byrja
á því að svína drottningunni.
Nei, það verður að byrja á
gosanum og sjá svo til. Aust-
ur leggur kónginn á gosann á
og áttan kemur frá vestri.
Áttan er dálítið upplýsandi
spil, en góður varnarspilari
myndi þó hiklaust láta hana
frá 85 eða 84.
Sé gert ráð fyrir því að átt-
an sé ekki marktækt spil er
rétt að svína níunni næst.
Ástæðan er þessi: Þegar að
úrslitastundinni kemur er
„vitað“ að austur á tvo tígla
eftir, en vestur einn. Austur
á því eitt af þrennu: 105, 104
eða 54. Í tveimur tilfellum af
þremur er tían í austur og því
eru líkurnar tveir á móti ein-
um svíningunni í hag.
Þetta eru fyrirframlíkurn-
ar, en það má líta á málið á
annan hátt líka úr frá regl-
unni um „takmarkað val“.
Sagnhafi spilar tígli úr borði
og sér til dæmis fjarkann
koma frá austri. Þá er tvennt
til í dæminu, að fjarkinn sé
frá 104 eða 54. Ef austur hef-
ur byrjað með 104 VERÐUR
hann að fylgja með fjarkan-
um – val hans er takmarkað –
en með 54 GÆTI hann allt
eins látið fimmuna því fjarki
og fimma eru jafngild spil.
Þar með eru líkurnar tveir á
móti einum með því að austur
hafi byrjað með 104 en ekki
54. Niðurstaðan er sú sama,
en svo er oft þegar um töl-
fræðileg viðfangsefni er að
ræða.
Því miður.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
60 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 1.
maí, er sextugur Jóhann
Lúðvík Helgason, Núpalind
4. Hann er að heiman í dag.
80 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 1.
maí, er áttræður Kristinn
Enok Guðmundsson, fyrrv.
starfsmaður Rafmagns-
veitu Reykjavíkur, Lindar-
götu 66, Reykjavík. Hann
tekur á móti ættingjum og
vinum í dag kl. 15–18 í mat-
sal Rafmagnsveitu Reykja-
víkur við Suðurlandsbraut.
LJÓÐABROT
ÚR GRETTISSÖGU
Gekk ek í gljúfr it dökkva,
gein veltiflug steina
við hjörgæði hríðar
hlunns úrsvölum munni.
Fast lá fram á brjósti
flugstraumr í sal naumu;
heldr kom á herðar skáldi
hörð fjón braga kvónar.
Ljótr kom mér í móti
mellu vinr ór helli;
hann fekkst, heldr at sönnu
harðfengr, við mik lengi.
Harðeggjat lék ek höggvit
heftisax af skefti.
Gangs klauf brjóst ok bringu
bjartr gunnlogi svarta.
- - -
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4.
Rc3 e6 5. cxd5 exd5 6. Bg5
Be7 7. Dc2 g6 8. e3 Bf5 9.
Bd3 Bxd3 10. Dxd3 Rbd7 11.
O-O O-O 12. Hab1 a5 13. a3
He8 14. Dc2 Rb6 15. Bxf6
Bxf6 16. Hfe1 Bg7 17. h4
Rc4 18. h5 Rd6 19. hxg6
hxg6 20. Hbd1 Bf6 21. g3
Kg7 22. Kg2 Dd7 23. Hh1
Rf5 24. e4 dxe4 25. Rxe4
Dd5
Staðan kom upp á meist-
aramóti Kúbu sem lauk fyrir
skömmu. Omar Almeida
(2473) hafði hvítt gegn
Aryam Abreu (2480). 26.
Hh7+! og svartur gafst upp.
Lokastaða mótsins varð
þessi: 1.-2. Lenier Domingu-
ez (2594) og Neuris Delgado
(2506) 12½
vinning af
17 mögu-
legum. 3.
Lazaro
Bruzon
(2569) 12
v. 4. Rey-
naldo Vera
(2534) 11
v. 5.-6.
Jesus
Nogueiras
(2521) og
Walter
Arencibia
(2542) 10
v. 7.-8. Ju-
an Mateos
Borges
(2438) og
Yuri
Gonzales (2444) 9 v 9.-10.
Rodney Perez (2429) og Om-
ar Almeida (2473) 8 v. 11.
Yuniesky Quezada (2411) 7
½ v. 12.-13. Irisberto Her-
rera (2474) og Frank De la
Paz (2427) 14.-15. Maikel
Gongora (2408) og Aryam
Abreu (2480) 6 ½ v. 16.-18.
Jose Alvares (2403), Renier
Vazques (2442) og Felix
Gomez (2406) 5½. Þrír ís-
lenskir skákmenn munu
taka þátt í minningarmóti
Capablanca sem hefst í byrj-
un maí í Havana. Margir af
ofangreindum skákmönnum
verða andstæðingar þeirra.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Með morgunkaffinu
Burtu með þig! Ég sá hann fyrst!
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
NAUT
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert hreinskilinn, þol-
inmóður og raunsær. Þú hef-
ur glöggt auga fyrir um-
hverfinu og átt auðvelt með
samskipti. Á komandi ári
geturðu gert ráð fyrir ýms-
um nýjungum.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Dagurinn hentar vel til fast-
eignaviðskipta. Allt sem
tengist fjölskyldu og heimili
getur á einhvern hátt aukið
velsæld þína.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú ættir að njóta samvista
við fjölskyldu þína og vini í
dag. Þú hefur mikla þörf fyr-
ir að vera hluti af stærri
heild.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það liggur vel fyrir þér að
fást við yfirvöld og stofnanir
í dag. Notaðu tækifærið til
að ganga frá þínum málum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú átt auðvelt með að vinna
með öðrum og sérð að þú
getur hagnast á hópstarfi.
Þetta er góður tími til funda-
og ráðstefnuhalds.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Leiðtoga- og stjórnunar-
hæfileikar þínir eru með
mesta móti. Næstum öll þín
takmörk geta náðst ef þú ert
við stjórnvölinn.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Ferðaáætlanir eða hug-
myndir um frekara nám eru
þér hvatning. Þú sérð að þú
hefur marga spennandi
möguleika.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Samband þitt við yfirmenn
þína er óvenju gott í dag.
Þeir sjá að þú ert samvinnu-
fús og að þú getur fengið fólk
til að vinna saman.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú átt ótrúlega auðvelt með
samskipti við alls konar fólk.
Bros þýðir það sama á öllum
tungumálum og því getur já-
kvætt hugarfar komið sér vel
í ólíklegustu aðstæðum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Leggðu þig fram við að gera
drauma þína í vinnunni að
veruleika. Samstarfsfólk þitt
mun styðja þig og leyfi yf-
irmanna þinna verður auð-
sótt.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það liggur vel á þér og þú
heillar fólk með glaðværð
þinni. Glaðværðin skapar
tækifæri til daðurs og ástar-
ævintýra.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú getur náð miklum árangri
í dag hvort sem er heima við
eða í vinnunni. Þú átt von á
hrósi eða launahækkun sem
mun koma sér vel fyrir heim-
ili þitt og fjölskyldu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Svona dagar auðvelda þér að
sjá mátt jákvæðrar hugsun-
ar. Þú sérð að það sem hélt
aftur af þér var einungis til í
huga þér.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Bridsfélag Akraness
Fimmtudaginn 18. apríl lauk Bún-
aðarbankamótinu í tvímenningi, sem
jafnframt er Akranesmót. Spilaður
var Barómeter í þremur lotum og 15
umferðir með 4 spilum á milli para.
Alls tóku 16 pör þátt í 3. sæti lentu
þeir Alfreð Viktorsson og Þórður
Elíasson með 108 stig eða 55,1%
skor, í 2. sæti voru Karl Alfreðsson
og Bjarni Guðmundsson með 126
stig eða 55, 9% skor, Akranesmeist-
arar urðu þeir Sigurður Tómasson
og Hreinn Björnsson með 131 stig
eða 56,2% skor.
Það var Búnaðarbanki Íslands-
Akranes-útibú, sem styrkti mótið.
Fimmtudaginn 2. maí hefst síðan
sameiginlegt 3. kvölda Silfurstiga-
mót Bridsfélaganna á Akranesi,
Borgarnesi og Borgarfirði, 1. kvöldið
fimtudaginn 2. maí verður spilað á
Breiðinni á Akranesi, 2. kvöldið mið-
vikudaginn 8. maí verður spilað á
Mótel Venus við Borgarnes 3. og síð-
asta kvöldið verður spilað á Loga-
landi í Reykjadal, spilaður verður
Barómeter, spilagjald er 5.000 kr. á
parið fyrir öll kvöldin.
Skráning er hjá Einari í síma 862-
2962, skráningu lýkur 30 apr. kl.
2200.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Félag eldri borgara í Kópavogi
Það var spilað á 12 borðum í Gjá-
bakkanum sl. þriðjudag. Spilaður
var Michell tvímenningur og urðu
úrslit þessi í N/S:
Eysteinn Einarss. - Kristján Ólafss. 271
Guðm. Magnúss. - Magnús Guðmundss. 258
Ólafur Ingvarss. - Þórarinn Árnason 246
Hæsta skor í A/V:
Albert Þorsteinss. - Bragi Björnss. 254
Viggó Norðquist - Þórólfur Meyvantss. 235
Aðalheiður Torfad. - Ragnar Ásmundss. 232
Það mættu einnig 24 pör á föstu-
daginn var en þá urðu úrslitin þessi:
Lárus Hermannss. - Ólafur Láruss. 263
Eysteinn Einarss. - Jón Stefánsson 258
Rafn Kristjánss. - Oliver Kristófss. 257
Hæsta skor í A/V:
Hörður Davíðss. - Einar Einarss. 273
Halla Ólafsd. - Jón Lárusson 260
Ernst Bachman - Garðar Sigurðsson 257
Meðalskor báða dagana var 216.
Bridsdeild Félags
eldri borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði í Glæsibæ mánudaginn 22. apr-
íl. 21 par. Meðalskor 216 stig.
Árangur N-S:
Júlíus Guðmundss. – Rafn Kristjánss. 267
Ólafur Ingvarss. – Magnús Oddsson 253
Björn E. Péturss. – Gísli Hafliðas. 246
Árangur A-V:
Eysteinn Einarss. – Jón Stefánss. 246
Kristján Ólafss. – Ólafur Gíslas. 241
Magnús Jósefss. – Hannibal Helgason 239
Tvímenningskeppni spiluð fimm-
tud. 25. apríl. 18 pör. Meðalskor 216
stig.
Árangur N-S:
Júlíus Guðmundss. – Rafn Kristjánss. 284
Ragnar Björnss. – Þorleifur Þórarinss. 282
Magnús Oddsson – Magnús Halldórss. 261
Árangur A-V:
Björn E. Péturss. – Oliver Kristóferss. 256
Hilmar Valdimarss. – Magnús Jósefss. 236
Alda Hansen – Soffía Theódórsd. 234
• Stjórnar „fyrrverandi“ heimilislífinu okkar?
• Má ég elska börnin mín heitar en börnin hans/hennar?
• Eru stjúpforeldrar félagar, vinir eða uppalendur?
• Eru stjúpforeldrar alvöru foreldrar?
• Er hægt að búa til eina fjölskyldu úr tveimur fjölskyldum?
Á námskeiðinu verður fjallað um tengsl í stjúpfjölskyldu,
hlutverk stjúpforeldra, samskiptin við „hina foreldrana“
og leitað vænlegra leiða til að byggja upp samsetta fjölskyldu.
Hámarksfjöldi þátttakenda er 16.
Þannig er leitast við að skapa andrúmsloft trúnaðar og stuðla að
opinni umræðu um viðkvæm mál sem hvíla á þátttakendum.
Námskeiðið verður haldið á Hverfisgötu 105, 4. hæð,
mánud. 6., miðvikud. 8. og mánud. 13. maí kl. 20:00-22:30.
Þátttökugjald er 13.000 kr. (námskeiðsgögn og kaffi innifalið).
Stjúpfjölskyldur
„Börnin þín, börnin mín, börnin okkar“
Námskeið Þels - sálfræðiþjónustu fyrir foreldra
og stjúpforeldra í samsettum fjölskyldum
Sálfræðingarnir Einar Gylfi Jónsson
og Þórkatla Aðalsteinsdóttir
hjá Þeli - sálfræðiþjónustu halda
þriggja kvölda námskeið fyrir foreldra
og stjúpforeldra í samsettum
fjölskyldum.
Nánari upplýsingar og skráning í símum
551 0260 og 562 8737, í netföngum egj@centrum.is og
torkatla@centrum.is og á heimasíðu okkar www.thel.is
Hagyrðingakvöld
Sex valinkunnir hagyrðingar kveðast á í Hásölum, safnaðarheimili
Hafnarfjarðarkirkju í kvöld, miðvikudagskvöldið 1. maí
kl. 20.00. Við stjórnvölinn verður Ómar Ragnarsson.
Aðgöngumiðar eru seldir við innganginn.
Allur ágóði rennur til líknarmála.
Lionsklúbburinn Engey
Nýjar
línur
á
nýjum stað
undirfataverslun
Síðumúla 3-5
Begga fína