Morgunblaðið - 07.05.2002, Qupperneq 6
FRÉTTIR
6 ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Austurstræti 17, 4. hæð, 101 Reykjavík, sími 562 0400, fax 562 6564,
netfang: prima@heimsklubbur.is, heimasíða: http://www.heimsklubbur.is
Ítalíuferð í öðru veldi
FÁIÐ NÁNARI FERÐALÝSINGU Á SKRIFST.
PÖNTUNARSÍMI:
56 20 400
„Ferð okkar, LISTATÖFRAR ÍTALÍU með Heimsklúbbi Ingólfs í
fyrra, breytti öllu gildismati okkar um ferðalög. Konan valdi
ferðina vegna áhuga á listum, sem höfðuðu ekkert sérstaklega til
mín í upphafi, en nú veit ég betur. Á mörgum ferðum hefur ekk-
ert ferðalag komið mér meir á óvart, við bókstaflega drukkum í
okkur hvert andartak í hrifningarvímu. Svona ferð á erindi við
alla, en margir gera sér ekki fyrirfram grein fyrir, hvaða forrétt-
indi hún býður.” Helgi Guðmundsson og Ingveldur Jónsdóttir.
Þú sérð varla aðra eins listfjársjóði og
fegurð annars staðar
Við Gardavatn
SANNKÖLLUÐ LISTAVEISLA: VERONA, MILANO, PARMA, PISA,
FLÓRENS, SIENA, BOLOGNA, PADUA, FENEYJAR, TRIESTE,
VERONA. Lúxusvagn á fegurstu leiðum, 4-5* hótel m. morg-
unv., fegurstu söfn og byggingar - fararstjórn Ingólfs.
Ferð með ævarandi
gildi
Síðustu sætin
VERJANDI Ásbjarnar Levís Grét-
arssonar sem hefur játað að hafa
myrt mann í íbúð sinni, krafðist þess
að Ásbjörn yrði sýknaður af ákæru
um manndráp enda væri hann ósak-
hæfur sökum geðveiki. Vísaði hann í
álit geðlæknis sem hefði komist að
þeirri niðurstöðu að Ásbjörn væri og
hefði lengi verið algerlega ósakhæf-
ur vegna alvarlegra geðraskana og
ranghugmynda. Taldi geðlæknirinn
að fangelsisrefsing myndi ekki bera
nokkurn árangur.
Ásbjörn Leví varð manni að bana í
kjallaraíbúð sinni við Bakkasel í
Reykjavík aðfaranótt 27. október sl.
Fyrir dómi í gær lýsti Ásbjörn því að
hann hefði hitt manninn á bar en þeir
hefðu síðan ákveðið að fara heim til
Ásbjarnar til að reykja saman hass
og skoða bækur. Þegar heim var
komið hefði maðurinn sýnt honum
kynferðislega tilburði, faðmað hann
og síðan strokið honum um neðan-
verðan kviðinn. Ásbjörn sagðist hafa
brugðist harkalega við, hrint mann-
inum á gólfið og síðan náð í stóran
eldhúshníf. Hann hefði síðan stungið
manninn í bak og brjóstkassa og loks
skorið hann á háls. Við krufningu
fundust 8 stungusár, hið dýpsta 14
sentimetrar, og 9 skurðsár voru á
hálsi. Ásbjörn sagðist hafa gert sér
grein fyrir því að maðurinn myndi
ekki lifa þetta af og því ákveðið „að
stytta dauðateygjurnar“. Hann náði
því í hafnaboltakylfu og barði mann-
inn sem reyndi að verjast. Um 10
áverkar eftir högg fundust á höfði
hans. Þegar Ásbjörn sá að maðurinn
andaði enn, náði hann í plastpoka og
lagði fyrir vit mannsins.
Fannst hann vera annar maður
Aðspurður um ástæður sagði Ás-
björn að sér hefði fundist maðurinn
vera annar maður sem hefði misnot-
að sig í æsku. Um leið og maðurinn
hefði snert sig hefði hann viljað
drepa hann og lýsti Ásbjörn því
þannig að það hefði verið „eins og
djöfullinn væri í mér“.
Að þessu loknu dró Ásbjörn líkið
út úr íbúð sinni og yfir í garð í ná-
grenninu. Blóð lak úr líkinu og var
blóðslóðin frá íbúðinni og yfir í garð-
inn rúmlega 80 metra löng. Þegar
lögregla handtók Ásbjörn stuttu síð-
ar var hann byrjaður að þrífa blóðið
af gólfinu, hnífnum og kylfunni.
Verjandi Ásbjarnar, Björn L. Bergs-
son hrl. sagði að verk Ásbjarnar
hefðu stjórnast af geðveiki hans og
ranghugmyndum. Fórnarlamb hans,
sem hefði misskilið heimboð Ás-
bjarnar, hefði ekkert gert til að
stuðla að árás, hann hefði í mesta
lagi getað búist við styggðaryrðum
frá Ásbirni. Þess í stað hefði Ásbjörn
ráðist á hann af miklum ofsa og ráðið
honum bana. Kynferðisbrot sem Ás-
björn hefði orðið fyrir hefði aukið
veikindin, hann hefði í raun talið sig
vera að ráðast að brotamanninum.
Ragnheiður Harðardóttir, sak-
sóknari, sagði að atlagan hefði verið
langdregin og hrottfengin. Árásin
hefði tekið dágóða stund og Ásbjörn
hefði fyrst beitt hníf en síðan náð í
hafnaboltakylfun inn í annað her-
bergi. Loks hefði hann sett plast-
poka fyrir vit mannsins og síðan
reynt að kyrkja hann. Eftir það hefði
Ásbjörn flutt líkið á brott og verið
byrjaður að þrífa íbúðina þegar lög-
regla handtók hann. „Eru þetta að-
gerðir manns sem er með öllu ófær
um að stjórna gerðum sínum?“
spurði Ragnheiður og sagði að því
yrði dómurinn að svara.
Verjandi sakbornings segir hann vera ósakhæfan
Hrottafengin
og langvinn atlaga
Fundust
eftir villur
í þoku
FIMM starfsmenn sveitarfélagsins
Húnaþings vestra villtust í þoku á
Holtavörðuheiði seint á laugardags-
kvöld og fengu aðstoð björgunar-
sveita á leið sinni til byggða.
Mennirnir voru að flytja gamla
sæluhúsið á Holtavörðuheiði niður í
nágrenni Hrútatungu þar sem það á
að verða gangnamannakofi. Um mið-
nætti þegar mennirnir voru á leið til
byggða lentu þeir í svartaþoku og
villtust. Þeir kölluðu eftir aðstoð og
fóru 18 björgunarsveitamenn frá
Hvammstanga og Laugarbakka á 2
jeppum og 5 vélsleðum af stað og
fundu mennina milli kl 2 og 3 aðfara-
nótt sunnudags. Ekkert amaði að
þeim. Í leitinni tóku þátt liðsmenn
Björgunarsveitar Slysavarnafélags-
ins Landsbjargar, Káraborg frá
Hvammstanga og Flugbjörgunar-
sveitar Vestur-Húnavatnssýslu.
Starfsmenn sveitarfélagsins voru á
jeppa, dráttarvél, ýtu og gröfu og er
til skoðunar hjá lögreglunni á Hólma-
vík hvort þeir hafi unnið landspjöll
með akstri sínum. Lögreglan skoðar
málið í samráði við landeigendur sem
eru a.m.k. tveir á umræddu svæði.
Engin kæra hefur verið lögð fram.
FORSVARSMENN framboðslista
Bæjarmálafélagsins Hnjúka á
Blönduósi hafa lagt fram stjórn-
sýslukæru til félagsmálaráðu-
neytisins vegna þess að yfirkjör-
stjórn Blönduósbæjar og Engi-
hlíðarhrepps hefur ákveðið að taka
listann ekki gildan í komandi
sveitarstjórnarkosningum. Að
sögn Gunnars Sig. Sigurðssonar,
formanns yfirkjörstjórnar, var
framboðslistinn ekki tekinn gildur
sökum þess að hann barst eftir að
auglýstur frestur til að skila fram-
boðslistum til yfirkjörstjórnar
rann út en það var kl. 12 á hádegi,
laugardaginn 4. maí.
Forsvarsmenn Hnjúka eru
ósáttir við þessa niðurstöðu og
benda m.a. á að listanum hafi verið
skilað til yfirkjörstjórnar aðeins
ellefu mínútum eftir auglýstan
framboðsfrest. „Öllum mátti vera
ljóst að við ætluðum að bjóða
fram,“ segir Björgvin Þór Þór-
hallsson, sem skipar þriðja sæti
framboðslistans. „Kjósendur eiga
rétt á að velja sér þá forystumenn
til stjórnunar sem þeir kjósa. Smá-
vægilegur galli á framlagningu
framboðslista á ekki að koma í veg
fyrir að þessi lýðræðislegi réttur
sé virtur,“ segir ennfremur í yf-
irlýsingu frá Bæjarmálafélaginu
Hnjúkum.
Úrskurðar ráðuneytisins
er að vænta í dag
Björgvin Þór segir að vænta
megi úrskurðar frá félagsmála-
ráðuneytinu í hádegi í dag. Verði
úrskurðurinn ekki framboðslistan-
um í hag hyggjast forsvarsmenn
hans fara dómstólaleiðina og óska
þar eftir flýtimeðferð.
Bæjarmálafélagið Hnjúkar var
stofnað fyrir um það bil fjórum ár-
um og í síðustu bæjarstjórnar-
kosningum fékk það tvo menn
kjörna af sjö fulltrúum í bæjar-
stjórn. Aðrir listar sem bjóða fram
í Blönduósbæ að þessu sinni eru
D-listi sjálfstæðismanna og H-listi
vinstrimanna og óháðra.
Spurður að því hvers vegna
framboðslistanum hafi verið skilað
eftir auglýstan framboðsfrest segir
Björgvin Þór: „Þetta var bara
gleymska. Við vorum að opna
kosningaskrifstofuna okkar kl. 11
á laugardaginn og höfðum auglýst
það nokkru áður. Í millitíðinni
auglýsti yfirkjörstjórnin að hún
myndi taka á móti framboðum
þann daginn milli kl. 11 og 12.“
Björgvin Þór segir að fulltrúar
framboðslistans hafi verið að
kynna málefnin á laugardaginn
þegar þeir svö vöknuðu upp við
það að framboðsfresturinn var
runninn út. „Okkur tóks þó að af-
henda listann til kjörstjórnarinnar
ellefu mínútum yfir tólf.“ Yfirkjör-
stjórn fundaði hins vegar á sunnu-
daginn og ákvað að hún myndi
ekki taka listann gildan, eins og
fyrr sagði, sökum þess að hann
hefði borist kjörstjórninni eftir
auglýstan framboðsfrest.
Björgvin Þór segir að þeir sem
standi að framboðslistanum
Hnjúkum telji að tíminn til að
skila inn framboðum hafi verið of
naumur. Auk þess hafi öllum átt
að vera ljóst að Hnjúkar hyggðust
bjóða fram enda hafi félagið verið
til í fjögur ár. Björgvin Þór segir
ennfremur að tilgangur reglna um
skilafrest hljóti að snúast um það
að lýðræðinu sé framfylgt en þeg-
ar menn láti ellefu mínútur skipta
sköpum þá séu umræddar reglur
farna að virka í hina áttina. Þá
bendir hann á að verði framboð
Hnjúka ekki samþykkt muni þeir
flokkar einir sem mynda meiri-
hluta í bæjarstjórn bjóða fram
lista, þ.e. D-listinn og H-listinn.
Forsvarsmenn Hnjúka komu ellefu mínútum of seint með framboðslistann
Ósáttir við að listinn
skuli ekki tekinn gildur
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Gunnar Sig. Sigurðsson, formaður yfirkjörstjórnar, les upp úrskurð stjórnarinnar á sunnudagskvöld. Við hlið
hans situr Ragnar Ingi Tómasson og þá Haukur Ásgeirsson. Hann greiddi atkvæði gegn úrskurðinum. FRAMBOÐSFRESTUR var fram-
lengdur til hádegis í gær í ellefu sveit-
arfélögum þar sem aðeins hafði borist
einn framboðslisti fyrir lok almenns
frests á laugardag. Annar listi kom
fram í fjórum sveitarfélögum fyrir há-
degi í gær en ekkert framboð í hinum
sjö þannig að þar verður sjálfkjörið í
kosningunum 25. maí næstkomandi.
Á vef félagsmálaráðuneytisins kemur
fram að sjálfkjörið verði í Aðaldæla-
hreppi, Borgarfjarðarsveit, Breið-
dalshreppi, Höfðahreppi, Hörgár-
byggð, Raufarhafnarhreppi og Tjör-
neshreppi. Einnig kemur fram að
kosning verður óbundin í 39 sveitar-
félögum þar sem engir framboðslistar
komu fram. Verða allir kjósendur því
í kjöri í þeim sveitarfélögum.
Sjálfkjörið
í sjö sveitar-
félögum
♦ ♦ ♦