Morgunblaðið - 07.05.2002, Side 8
FRÉTTIR
8 ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Leikstjóri R-listans og handritshöfundur Perlusölunnar er með ýmsar hugmyndir um
bitlinga til að freista kaupenda, svo sem að lóð undir hótel fylgi og fleira í þeim dúr.
Verslunarmiðstöðin Smáralind var
rýmd á sunnudagskvöld um klukk-
an 20 eftir að eldur kviknaði í
poppkornsvél í Smárabíói. Mikinn
reyk lagði inn í bíósali og Vetr-
argarðinn í enda hússins. Slökkvi-
lið höfuðborgarsvæðisins kom
strax á vettvang og var húsið rýmt
samkvæmt viðbúnaðaráætlun.
Engan sakaði sem í bíóinu var en
að sögn varðstjórans mátti ekki
miklu muna þar sem reykurinn var
mikill og hætta á að fólk sem þar
var inni fengi reykeitrun. Um eitt
þúsund gestir voru staddir í
Smáralind þegar byggingin var
rýmd.
Eldurinn náði inn í loftræsti-
stokk ofan við poppvélina og logaði
þar í feiti. Tókst að slökkva eldinn
með handslökkvitækjum
Talið er hugsanlegt að galli í
vélinni hafi orðið þess valdandi að
eldurinn kviknaði. Bíógestir, sem
urðu frá að hverfa, geta fengið
endurgreitt gegn framvísun að-
göngumiða.
Engin veruleg
hætta á ferðum
Pálmi Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Smáralindar, sagði
við Morgunblaðið, að vel hafi
gengið að rýma bygginguna. Eng-
in veruleg hætta hafi verið á ferð-
um og skemmdir óverulegar þegar
eldur kom upp í lokuðu rými, en
byggingin var engu að síður rýmd
á fimm mínútum. „Húsinu var lok-
að um áttaleytið og bíógestum,
sem biðu fyrir utan, var tilkynnt
um 15 mínútum síðar að persónu-
legir munir, sem skildir voru eftir
í bíósölum, yrðu varðveittir. Þeir
örfáu sem skilið höfðu eftir muni
sína í sölum kvikmyndahússins
komu klukkan 22 og náðu í þá.“
Pálmi sagði að viðvörunarkerfi
hússins, sem væri mikið og flókið,
væri í þróun og ekki komið í end-
anlegt horf. „Það var byggt á sjálf-
virkni sem hefur reynst okkur erf-
ið því næmi kerfisins við minnstu
truflunum og bilunum er mikil.
Niðurstaðan var sú að spila saman
handvirkt og sjálfvirkt kerfi, en á
það ber að líta að vakt er í húsinu
allan sólarhringinn. 110–120
myndavélar, nemar og tölvuboðar
eru í húsinu sem fylgst er með frá
stjórnstöð þess. Þá er mannleg
vöktun í húsinu á vegum örygg-
isvarða og annarra. Ennfremur er
sólarhringsvakt í Borgartúni sem
er í beintengingu við slökkviliðið á
höfuðborgarsvæðinu,“ sagði Pálmi
og benti á að stórt kerfi eins og í
Smáralind væri að bregðast við
áreiti mörgum sinnum í viku.
Þúsund manns yfirgaf Smáralind vegna elds í poppkornsvél
Morgunblaðið/Júlíus
Eldurinn í poppvélinni var slökktur með handslökkvitækjum og voru skemmdir af hans völdum óverulegar en
nokkuð vatnstjón. Stefnt var að því að opna Smárabíó aftur í gær.
Litlu mátti muna að
fólk fengi reykeitrun
Brian Tracy væntanlegur til landsins
Greinir kjarn-
ann frá hisminu
HINAR sívinsæluBrian Tracy-nám-stefnur halda sínu
striki hér á landi og nú er
enn von á manninum sjálf-
um hingað til lands. Árni
Sigurðsson og fyrirtæki
hans halda úti Brian
Tracy-námstefnunum.
– Hvenær verður næsta
Brian Tracy-námstefna?
„Hún verður haldin í
Háskólabíói helgina 2.–3.
nóvember nk. Þetta verð-
ur fjórða heimsókn Brians
til Íslands. Nú verður
hann með glænýtt efni,
Success Mastery 2:
Achieving Personal and
Corporate Excellence þar
sem hann hefur aðlagað
efni að íslenskum aðstæð-
um. Námstefnan er frá-
bær fyrir þá sem aldrei hafa séð
Brian og jafnframt tilvalin upp-
rifjun, frískun og framhald fyrir
þá sem hafa þegar séð hann á
sviði.“
– Segðu okkur aðeins nánar frá
manninum.
„Brian Tracy er einn fremsti,
færasti og frægasti fyrirlesari
heims á sviði stjórnunar, árang-
urs, sölu og persónuþróunar.
Hann er forstjóri Brian Tracy
International í San Diego í
Bandaríkjunum. Hann ferðast
um það bil 180 daga á ári til að
halda námstefnur og fyrirlestra
um allan heim auk þess að vera
stjórnunarráðgjafi margra stór-
fyrirtækja. Brian er höfundur
fjölda bóka sem selst hafa í millj-
ónatali. Þeirra þekktust er bókin
Maximum Achievement sem hef-
ur verið þýdd á 20 tungumál
þ.á m. á íslensku undir titlinum
Hámarksárangur.“
– Hvað hafa þessi námskeið
staðið lengi og hvað hafa margir
Íslendingar sótt þau?
„Námskeið Brians hafa verið
kennd á Íslandi í rúm 15 ár.
Þeirra þekktast er Phoenix-nám-
skeiðið svokallaða sem hundruð
Íslendinga hafa sótt. Það er nám-
skeið á íslensku, kennt af íslensk-
um leiðbeinanda í bland við fyr-
irlestra Brians sjálfs af mynd-
böndum. Brian kom sjálfur fyrst
til Íslands árið 2000. Þriðja og
síðasta heimsókn hans var í febr-
úar sem leið þar sem 750 manns
hlýddu á hann í Háskólabíói.
Rúmlega 3.000 Íslendingar, eða
1% þjóðarinnar, hafa séð Brian í
eigin persónu. Þess utan hefur
hann verið með innanhúss nám-
skeið fyrir þekkt fyrirtæki og
sinnt ráðgjafarverkefnum.“
– Hvað eru menn að sækja á
Brian Tracy-námskeið?
„Þátttakendur eru fyrst og
fremst að sækja hagnýt ráð og
hnitmiðaðar aðferðir sem þeir
geta strax farið að beita til að
auka árangur sinn í starfi og
einkalífi. Brian hefur sérstakt lag
á að greina kjarnan frá hisminu
og færa fólki nákvæmlega það
sem það þarfnast til að ná árangri
strax. Hann leggur of-
urþunga á að benda
fólki á þrautreyndar
hagnýtar leiðir sem
byggðar eru á traust-
um grunni algildra lög-
mála.“
– Hvernig er árangur nám-
skeiðanna mælanlegur?
„Margir sjá árangurinn undir
eins, sumir innan sólarhrings.
Lykilatriði í því sem Brian kennir
er markmiðasetning sem þarf að
vera skrifleg og mælanleg. Að-
eins 3% fólks hafa skrifað niður
markmið sín. Sagt er að hin 97%
vinni hjá þeim. Bara við það eitt
að vera með skrifleg markmið þá
margfaldar fólk líkurnar á að þau
náist. Markmið sem geymd eru í
kollinum kallast dagdraumar,
skrifleg markmið eru áskorun og
hvatning til aðgerða sem leiða til
árangurs.“
– Koma sumir aftur og aftur?
„Sívaxandi hópur fólks áttar
sig á því að símenntun er arðbær-
asta fjárfesting sem fyrirfinnst.
Kannanir sýna að hver króna sem
varið er í símenntun skilar öðrum
30 í kassann. Það dýrmætasta
sem við eigum er þekking okkar
ásamt hæfileikanum til að beita
henni. Við nýtum ekki nema brot
af hæfileikum okkar og geta okk-
ar til að gera betur er nánast tak-
markalaus. Það eina sem heldur
aftur af okkur eru múrarnir sem
við reisum sjálf í kringum okkur.
Sölustjóri hjá virtu fyrirtæki í
Reykjavík sem sá Brian í fyrstu
heimsókn hans, jók söluna um
50% og hækkaði jafnframt í laun-
um um 30% þar sem hluti launa
hans var árangurstengdur. Hann
sá Brian aftur ári síðar og fann þá
nýjar lausnir sem leiddu til 40%
söluaukningar næstu tólf mánuð-
ina þar á eftir og hélt áfram að
hækka í launum eða um rúm 20%
í viðbót það árið.“
– Hverjir eiga erindi á Brian
Tracy-námskeið?
„Allir í atvinnulífinu hvort
heldur sem þeir eru stjórnendur
eða starfsmenn. Það sem Brian
kennir tengist bæði verkefnum í
vinnu og einkalífi.
Hann vitnar í kannanir
sem sýna að 85% af
hamingju okkar í lífinu
séu tilkomin vegna
persónulegra sam-
banda okkar. Margir halda að
fórna verði fjölskyldulífi til að ná
starfsframa en það eru reginmis-
tök. Þau verkfæri sem Brian fær-
ir áheyrendum sínum hjálpa þeim
að ná jafnvægi í lífinu. Þátttak-
endur ná þannig að leysa úr læð-
ingi þá krafta sem leiða til þeirrar
veraldlegu velgengni sem þeir
sækjast eftir og rækta um leið
samband sitt við maka og börn.“
Árni Sigurðsson
Árni Sigurðsson er fæddur í
Reykjavík 17. mars 1967. Stúd-
ent frá FB 1987, verkefnastjóri
hjá Stjórnunarfélagi Íslands
1988–90. Nam þá alþjóðasam-
skipti, viðskipti og stjórnun hjá
American University of Paris
auk námsdvalar í Bandaríkjun-
um, Bretlandi, Þýskalandi, Ísrael
og Japan. Var markaðsstjóri „Ís-
lands – sækjum það heim“ 1994
og framkvæmdastjóri eigin
fyrirtækja frá 1995, en þau eru
Vegsauki þekkingarklúbbur,
Brian Tracy International á Ís-
landi og Stjórnunarfélag Íslands.
Símenntun
arðbærasta
fjárfestingin