Morgunblaðið - 07.05.2002, Síða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002 11
MORGUNBLAÐINU hefur boðist
eftirfarandi yfirlýsing frá Geir H.
Haarde fjármálaráðherra:
„Vegna fréttar um húsaleigu-
bætur og ummæla félagsmálaráð-
herra um það efni, sem birtist í
sunnudagsblaði Morgunblaðsins og
vefútgáfunni, óska ég eftir að taka
fram eftirfarandi:
Félagsmálaráðherra hefur ekki
borið skoðanir Björns Bjarnasonar
á rýmkun réttar til húsaleigubóta
undir mig, eins og fram kemur í
umræddri frétt. Hann getur því
ekki fullyrt að ég sé þeim ósam-
mála.
Félagsmálaráðherra hefur í sam-
tali við mig staðfest að hér sé um
misskilning að ræða.
Að því er efni málsins varðar vil
ég taka fram að fjármálaráðuneyt-
ið hefur ekki beitt sér sérstaklega
fyrir því að auka útgjöld til húsa-
leigubóta. Í því efni hefur að sjálf-
sögðu verið reynt að gæta aðhalds
eins og gagnvart öðrum útgjöldum.
Reglur um úthlutun bótanna eru
heldur ekki viðfangsefni fjármála-
ráðuneytisins nema óbeint, heldur
sú heildarfjárhæð sem til mála-
flokksins fer. Ég tel sjálfur eðlileg-
ast að húsaleigubætur flytjist al-
farið til sveitarfélaganna. Þá gætu
einstök sveitarfélög ráðið því sjálf
hvað þau ganga langt í þessu efni,
innan lögboðins heildarramma.“
Geir H. Haarde fjármálaráðherra
Húsaleigubætur flytjist al-
farið til sveitarfélaganna
VINSTRI hægri snú er nafn á nýju
framboði til borgarstjórnarkosn-
inganna í Reykjavík 25. maí. Í frétt
frá samtökunum segir að flokkur-
inn sé ungur og óreyndur en hann
stefni að því að ná hreinum meiri-
hluta í borgarstjórn Reykjavíkur.
Meðal atriða í stefnuskrá Vinstri
hægri snú er að Reykjavík verði
paradís andlegrar vellíðunar og fái
nafnið Eden norðursins fremur en
Sódóma norðursins. „VHS vill
byggja upp einstaklinga þannig að
þeir hafi með sér gott vegarnesti
út í lífið með öflugu skólakerfi og
forvörnum. Látum ekki græðgi
hins kapítalíska þjóðfélags bitna á
uppeldi barna okkar,“ segir m.a. í
stefnuskránni.
Hér fer á eftir framboðslisti
Vinstri hægri snú:
1. Snorri Ásmundsson, formaður
og borgarstjóraefni.
2. Hjörtur Gísli Jónsson stöðvar-
stjóri.
3. Friðrik Freyr Flosason gull-
smiður.
4. Magnús Sigurðarson menning-
arráðunautur.
5. Björgvin Guðni Hallgrímsson
lásasmiður.
6. Ásgeir Þórarinn Ingvarsson,
formaður Félags samkyn-
hneigðra stúdenta.
7. Ragnar Kjartansson rokktón-
listarmaður.
8. Ásmundur Ásmundsson, stjórn-
arformaður Nýlistasafnsins.
9. Sigurður Árni Jósefsson bretta-
ofurhugi.
10. Ásgeir Jón Ásgeirsson geim-
farahönnuður.
11. Guðmundur Jónas Haraldsson
leikari/leikstjóri.
12. Gustavo Marcelo Blanco nemi.
13. Ingirafn Steinarsson hús-
vörður.
14. Páll Úlfar Júlíusson vefhönnuð-
ur.
15. Torfi G. Yngvason brettamað-
ur.
16. Haraldur Davíðsson hársnyrtir.
17. Björn Ófeigsson kvikmynda-
gerðarmaður.
18. Geir Borgar Geirson fram-
kvæmdastjóri.
Vilja gera Reykjavík
að Eden norðursins
Í YFIRLÝSINGU Húmanistaflokks-
ins vegna borgarstjórnarkosning-
anna síðar í mánuðinum segir m.a. að
flokkurinn vilji að almenningur taki
beinan þátt í að móta fjárhagsáætlun
borgarinnar, að íbúum verði tryggð
ókeypis heilsugæsla og að umhverf-
ismál snúist bæði um manneskjur og
umhverfi.
Stefnuskrá flokksins var kynnt á
blaðamannafundi á laugardag og
segir í yfirlýsingu frambjóðenda að
markmið þeirra með þátttöku í
kosningunum sé að leitast við að
gera góða borg betri. „Við viljum
skapa samfélag fjölbreytileika þar
sem fólk af ólíkum uppruna, ólíkri
menningu, með ólíkt framlag býr
saman við jöfn tækifæri og sömu
réttindi.“
Markmiðum sínum hyggst Húm-
anistaflokkurinn ná með því að al-
menningur taki beinan þátt í að móta
fjárhagsáætlun borgarinnar. Gildi
það jafnt hvað varðar rekstur ein-
stakra þjónustuliða og fjárfestingar á
vegum borgarinnar. Leggur flokkur-
inn til að hafnar verði tilraunir með
beint lýðræði.
Þá vill flokkurinn tryggja öllum
íbúum ókeypis heilsugæslu án mis-
mununar. „Fjármunir sem varið er til
heilsugæslu renni ekki til einkafyr-
irtækja, ekki til að greiða vexti eða
annan bankakostnað. Borgaryfirvöld
taki ábyrgð á heilbrigðismálum að því
marki sem landsstjórnin bregst
skyldum sínum hvað þetta varðar,“
segir í yfirlýsingu flokksins.
Húmanistaflokkurinn vill bæta
umhverfi Reykvíkinga með því að
„breyta þeim lífsstíl og þeim mann-
legu samskiptum sem nú tíðkast, sem
einkennast af neysluhyggju og sam-
keppni“. Varðandi skólamál vill Húm-
anistaflokkurinn að borgin tryggi öll-
um ókeypis menntun á öllum
skólastigum. Einnig í leikskólum og á
háskólastigi. „Engu fé skal veitt til
þeirra menntastofnana sem krefja
nemendur um skólagjöld. Borgin
veiti þeim útlendingum sem búsettir
eru hér ókeypis íslenskukennslu og
fræðslu um íslenskt samfélag.“
Almenningur taki þátt í
mótun fjárhagsáætlunar
Morgunblaðið/Golli
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri hefur í nógu að snúast þessa dagana enda ekki nema tæpar þrjár vik-
ur í kosningar. Hér má sjá hvar hún ber út kosningabækling R-listans í hús í Hlíðunum í Reykjavík í gær.
Ber út kosningabæklinga