Morgunblaðið - 07.05.2002, Blaðsíða 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002 29
KRINGLUNNI • sími 568 4900
LAUGAVEGI 32 • sími 552 3636
Vorvörurnar
Mikið úrval
komnar
Les allar tegundir greiðslukorta
sem notuð eru á Íslandi.
Er með lesara fyrir snjallkort
og segulrandarkort.
Hraðvirkur hljóðlátur prentari.
Tekur einnig Diners og VN kort.NÝTT
Helgarleiga / Langtímaleiga
SÝNINGUNNI Laxness og leik-
listin, sem sett var upp í Iðnó, lauk
með sérstakri athöfn 1. maí sl. Ingi-
björg Guðjónsdóttir sópran-
söngkona og Valgerður Andrés-
dóttir píanóleikari fluttu sönglög
eftir Gunnar Reyni Sveinsson og
Jón Ásgeirsson við ljóð eftir Hall-
dór Laxness, Tinna Gunnlaugs-
dóttir flutti einleikinn Ugla og ástin
og Þorsteinn Gunnarsson leiklas at-
riði úr Dúfnaveislunni ásamt Val-
gerði Dan og Jóni Júlíussyni. Ólafur
J. Engilbertsson, formaður Sam-
taka um leikminjasafn, flutti ávarp
og sagði m.a.: „Margir listamenn
hafa lagt á sig mikla vinnu við að
gera þessa dagskrá eftirminnilega
og þeir hafa í raun sýnt okkur að
leikminjasafn getur verið lifandi
vettvangur menningarviðburða
ásamt því að sýna leiklistarsögu-
legar minjar í sinni fjölbreytileg-
ustu mynd. Möguleikarnir í út-
færslu leikminjasýninga eru nánast
óþrjótandi og leikminjasafn er
gjarnan sá staður þar sem list-
greinar mætast. Leiklistarsagan á
vel heima í þessu húsi og þegar okk-
ur í Samtökum um leikminjasafn
bauðst að hafa sýninguna hér í Iðnó
þótti okkur strax sem hér ætti hún
heima, því segja má að íslensk leik-
list hafi slitið hér barnsskónum.“
Dagskránni lauk með því að
Björn Bjarnason alþingismaður og
fv. menntamálaráðherra opnaði
nýja vefsíðu í þættinum Merk-
isdagar íslenskrar leiklistarsögu á
heimasíðu samtakanna, www.leik-
minjasafn.is.
Stafrænt leikminjasafn
Nýja vefsíðan er helguð ald-
arafmæli Halldórs Laxness en þar
fær sýningin Laxness og leiklistin
eins konar framhaldslíf frá vefnum,
því þar eru ekki aðeins yfirlits-
myndir af sýningunni heldur einnig
öll texta- og myndaspjöldin sem
voru önnur meginuppistaða henn-
ar. Þá er sérstakur kafli með mynd-
um og lýsingum af helstu gripum
sem voru á sýningunni, en þeir voru
nánast allir fengnir að láni frá leik-
listarstofnunum eða einstaklingum.
Þannig er síðan stigið enn eitt skref
í þá átt að byggja upp stafrænt leik-
minjasafn á vefnum.
Dr. Jón Viðar Jónsson, ritari
starfsstjórnar Samtaka um leik-
minjasafn og verkefnisstjóri sýn-
ingarinnar, kvaðst mjög ánægður
með þær góðu viðtökur sem sýn-
ingin fékk og dagskráin, sem fram
fór í Iðnó þær þrjár vikur sem sýn-
ingin var uppi.
„Það var líka nokkuð um að
skólabörn skoðuðu hana og var sér-
lega gaman að sjá áhuga þeirra, en
góð leikminjasöfn leggja mikið upp
úr því að höfða til barna, kynna fyr-
ir þeim töfraheim leikhússins, sýna
þeim vinnubrögðin að tjaldabaki.
Slík þjónusta á að sjálfsögðu að
verða einn þátturinn í okkar safni,
þegar það kemst á legg, og á reynd-
ar ekki síst heima í húsi eins og
Iðnó þar sem sagan bókstaflega
andar út úr hverjum vegg og hverju
gólfborði,“ segir Jón Viðar.
Maraþonleiklestrar tókust vel
„Af þeim viðburðum sem við stóð-
um fyrir þessar þrjár vikur ber tvo
einna hæst: glæsilega tónleika og
upplestrardagskrá í Ráðhúsi
Reykjavíkur laugardaginn 20. maí
sl., þar sem fram komu nokkrir af
okkar þekktustu söngvurum og
upplesurum ásamt Karlakórnum
Stefni og sönghópi undir stjórn Jón-
asar Þóris, og svo maraþonleiklest-
urinn á afmælisdaginn sjálfan sem
tókst gríðarlega vel þótt ég segi
sjálfur frá.
Við höfðum vissulega nokkrar
áhyggjur af því að aðsókn yrði ekki
nógu góð, þar sem margt var í boði
þennan dag á öðrum stöðum, en
þær reyndust ástæðulausar, það
var nánast fullt hús allan tímann og
jafnvel dæmi um fólk sem sat allan
tímann og hlustaði á öll leikritin.
Það var Rúnar Guðbrandsson leik-
stjóri sem hafði af þessu veg og
vanda, valdi í hlutverk og hélt utan
um skipulagið, en án hans framlags
hefði þetta aldrei gengið upp. Það
var mjög gleðilegt að finna hversu
allir leikararnir, sem beðnir voru
að taka þátt í þessu, tóku vel í að
vera með, það var auðfundið að
menn litu á þetta sem kærkomið
tækifæri handa leikhúsfólki af öll-
um kynslóðum til að hylla okkar
mikla skáld. Að þessu leyti var
þetta einstakur viðburður sem ólík-
legt er að verði endurtekinn í
bráð.“
Jón Viðar segist ekki vita þess
dæmi að fortíð leikhússins í Iðnó og
saga hafi fyrr verið sýnd á jafn ljós-
an og lifandi hátt. „Vigdís Finn-
bogadóttir, fv. forseti Íslands, sem
er verndari samtaka okkar, segir
mér að í hennar leikhússtjóratíð
hafi aldrei mátt vera neitt á göng-
um eða öðrum vistarverum hússins
sem minnti menn á að þarna væri
rekið leikhús, það voru aðrir sem
þá réðu veggskrautinu þar á bæ.
Við skulum vona að þessi sýning
marki upphaf að breyttu hugarfari
þar að lútandi.
Menn halda stundum að leik-
minjasöfn séu bara dauðir söfn-
unarstaðir með rykföllnum bún-
ingum, gulnuðum ljósmyndum,
sviðslíkönum o.þ.h., en því fer víðs
fjarri að svo sé. Með sýningunni og
öllu sem boðið var upp á í kringum
hana vildum við í stjórn Samtaka
um leikminjasafn sýna fram á það,
og eftir atvikum held ég að það hafi
bara tekist nokkuð vel,“ segir Jón
Viðar Jónsson að lokum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran og Valgerður Andrésdóttir fluttu söng-
lög eftir Gunnar Reyni Sveinsson og Jón Ásgeirsson.
Upphaf
nýrrar
hugsunar
um Iðnó
SESSELJA Kristjánsdóttir er
einn þeirra ungu söngvara sem fast-
ráðnir hafa verið til starfa við Ís-
lensku óperuna. Því hljóta talsverðar
vonir vera bundnar við frammistöðu
söngkonunnar. Söngur Sesselju á
tónleikunum í Salnum gefur sannar-
lega fyrirheit um að hér sé á ferðinni
efni í afbragðsgóða söngkonu. Það
sem fyrst vekur eftirtekt er einstak-
lega falleg rödd söngkonunnar;
flauelsmjúkur raddblær og mikið
músíkalitet. Eitt og annað í söng-
tækni er kannski ekki fullunnið
ennþá, til dæmis er röddin talsvert
hljómminni á dýpsta raddsviði en
þeim efri, og brjósttónninn of hrjúfur
samanborið við mýktina á miðsviði
raddarinnar. Þetta atriði hverfur
með meiri skólun, æfingu og reynslu.
Antikaríur og sönglög eftir Pergol-
esi, Caldara, Alessandro Scarlatti,
Cesti og Donizetti voru sérstaklega
fallega sungin. Arían sem allir
þekkja, og allir söng-
nemar glíma einhvern
tíma við, Se tu m’ami
var yndisleg í meðför-
um Sesselju, og lag
Scarlattis, Se Florindo
è fedele, var fjörugt og
vel mótað í túlkun og
leik. Yndislega ástar-
ljóðið Intorno all’idol
mio eftir Cesti var
sömuleiðis stórglæsi-
lega flutt. Á þessum
hluta tónleikanna voru
það þó lög Donizettis
sem sýndu best hvert
efni Sesselja er. Þar
var glímt við drama-
tík, lýrík og kómík og
þar sýndi Sesselja að hún hefur mikið
að gefa í túlkun. Aríur Mozarts og
Rossinis voru það sem síst hreif á
tónleikunum; Cherubino heldur
þunglamalegur og kólóratúr Ísabellu
ekki nógu skýr; vantaði meiri stuðn-
ing.
Sönglög Pauline Viardot, sem
sjaldan heyrast hér á landi, voru
feiknavel sungin og þjóðlög Ravels
gáfu færi á fjölbreyttri túlkun þar
sem Sesselja laðaði fallega fram ein-
kenni hvers um sig með góðri tilfinn-
ingu fyrir stíl. Lokaaríurnar tvær,
önnur úr Werther eftir Massenet og
hitt aría Dalílu úr Sam-
son og Dalílu eftir Saint-
Saëns, voru báðar ágæt-
lega sungnar, en vantaði
kannski ögn meira drif
og stefnu til að stæðu
jafnfætis söng Sesselju
t.d. í lögum Donizettis,
Viardots og Ravels.
Jónas Ingimundarson
studdi vel við söngkon-
una með leik sínum, en
var þó stundum nokkuð
þungstígur, sérstaklega
í aríum Mozars og Saint-
Saëns.
Þótt efnisskrá tón-
leikanna væri lokið var
það allrabesta eftir.
Sesselja söng aukalag, án undirleiks,
þjóðlag frá Bretlandseyjum, og var
ekki betur hægt að sjá en að hún til-
einkaði það fyrrum kennara sínum,
Rut L. Magnússon, sem sat í salnum.
Flutningur Sesselju á þessu yndis-
lega lagi var hreint út sagt stórkost-
legur og gleymist sjálfsagt seint. Með
slíka hæfileika á þessi unga söngkona
fullt erindi á íslenskt óperusvið, en
ekki síður á tónleikasvið, þar sem hún
gæti vafalítið haslað sér völl sem af-
bragðs ljóðasöngkona.
Falleg rödd
TÓNLIST
Salurinn
Sesselja Kristjánsdóttir mezzósópran og
Jónas Ingimundarson píanóleikari fluttu
ítalskar antikaríur, sönglög eftir Pauline
Viardot og Ravel og aríur eftir Mozart,
Rossini, Massenet og Saint-Saëns.
Miðvikudag kl. 20.00.
EINSÖNGSTÓNLEIKAR
Bergþóra Jónsdóttir
Sesselja
Kristjánsdóttir
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Brúðhjón
A l l u r b o r ð b ú n a ð u r - G l æ s i l e g g j a f a v a r a - B r ú ð h j ó n a l i s t a r