Morgunblaðið - 07.05.2002, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002 35
Félagsmálaráðherra, borg-arstjóri og fulltrúar 11annarra aðila, þar meðtalið allra helstu banka-
stofnana landsins, Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga, þjóðkirkj-
unnar, Landssambands lífeyris-
sjóða, BSRB, ASÍ og Neyt-
endasamtakanna, undirrituðu í
gær nýjan samstarfssamning
vegna Ráðgjafarstofu um fjármál
heimilanna. Jafnframt var lögð
fram ársskýrsla stofnunarinnar
fyrir 2001 en þar kemur fram að
frá því hún hóf starfsemi sína árið
1996 hafa 3372 umsóknir um ráð-
gjöf verið afgreiddar, þar af 667 á
árinu 2001.
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra sagði af þessu tilefni að tölu-
verðar breytingar hefðu orðið á
eðli mála sem kæmu inn á borð til
Ráðgjafarstofu og að á fyrstu
starfsárunum hefðu þau oft á tíðum
tengst skuldbindingum þriðja aðila.
Í kjölfar ábendinga frá Ráðgjaf-
arstofu hefðu stjórnvöld, lánastofn-
anir og Neytendasamtökin gert
með sér samkomulag um notkun
ábyrgða á skuldum einstaklinga.
Árið 2001 hefði verið gerð breyting
á lögum um húsnæðismál sem juku
úrræði Íbúðalánasjóðs til að leysa
vandræði fólks sem átt hefur í
greiðsluerfiðleikum. Þá benti fé-
lagsmálaráðherra á að búið væri að
afnema skattskyldu húsaleigubóta.
Í ársskýrslu Ráðgjafarstofu er
meðalumsækjandanum 2001 lýst
og er stuðst þar við meðaltalsupp-
lýsingar yfir einstaklinga sem
þangað hafa leitað á árinu. Með-
altalsumsækjandinn er sagður
rúmlega 38 ára, með 177 þúsund
krónur í ráðstöfunartekjur á mán-
uði, hann skuldar rúmlega 7,8
milljónir og þar af eru 1,6 milljónir
í vanskilum. Séu tölurnar bornar
saman við meðalumsækjandann ár-
ið 2000 kemur fram að ráðstöfunar-
tekjur hans hafa aukist um 20 þús-
und. Skuldir hans þá voru rúmar
6,8 milljónir, þar af 1,4 milljónir í
vanskilum.
Í skýrslunni er ráðstöfunar-
tekjum umsækjenda skipt eftir
aldri og fjölskylduaðstöðu og kem-
ur meðal annars fram að einhleyp
kona er tekjuhærri í öllum aldurs-
flokkum. Einnig eru einstæðar
mæður betur settar en einstæðir
feður.
Páll sagði að sér kæmi á óvart
hversu háar ráðstöfunartekjur um-
sækjenda væru en að góð reynsla
af Ráðgjafarstofu sýndi jafnframt
að einboðið væri að endurnýja
samning um rekstur hennar. Hann
sagði að gerð hefði verið könnun
fyrir nokkrum árum á því hvernig
Ráðgjafarstofan hefði gagnast
mönnum. Í ljós hefði komið að 64%
þeirra sem notið höfðu aðstoðar
töldu sig hafa náð tökum á fjár-
málum sínum.
Páll sagði einnig athyglisvert að
aldur þeirra sem sækja um aðstoð
hefði farið lækkandi. Árið 2000 var
hann 37 ár en hæstur var með-
altalsaldurinn fyrsta starfsárið eða
41 ár. Þá hefur fjölskyldustærð
einnig farið minnkandi.
Samningur um Ráðgjafarstofu endurnýjaður
Meðaltalsskuldir
umsækjenda 7,8
milljónir króna
.++
.+++
*
/
,
!
0
1
2
3
0
4
5
0
6
1
7
61
5
1
//'+++
)/'+++
(,'+++
(,'+++
8('+++
(+'+++
'+++
*/'+++
/+'+++
,)'+++
,)'+++
/*'+++
,'.+'+++
)',*)'+++
)'++)'+++
('()+'+++
('.8 '+++
(' '+++
',8('+++
'(('+++
' ,'+++
'+ 8'+++
'+, '+++
').8'+++
)'+ '+++
('8)*'+++
8'*.'+++
8'**,'+++
8'+( '+++
8'*'+++
0.'/8)'+++
0.'/('+++
0.'8* '+++
0',)/'+++
0.'.) '+++
0.'/'+++
&1!
6
1 ,
.++
Morgunblaðið/Golli
Félagsmálaráðherra, borgarstjóri og fulltrúar 11 stofnana og samtaka undirrituðu samninginn.
endu ráð-
g verður
nir verða
ns
ar breyt-
ólabíói og
vegna
erið sér-
ráðherra-
viðamikl-
verða upp
a. Þar sem
fullbúnir
fur verið
flytja til
fa til við-
yrir í Há-
inu, auk
em setja
eirssonar,
ríkisráðu-
ningur og
umfangs-
þar sem
i dagskrá
ipuleggja
g frá flug-
velli og á milli staða meðan á fund-
unum stendur, en þeir munu dvelja
á hótelum víðs vegar um borgina.
Utanríkisráðuneytið leggur hverri
sendinefnd til tvo bíla, annars vegar
fólksbifreið fyrir utanríkisráðherra
frá hverju landi en að auki átta
manna fólksflutningabíla fyrir aðra
sendinefndarmenn, sem ráðuneytið
tekur á leigu af Hreyfli-Bæjarleið-
um. Hefur tekist að útvega alls um
110 bifreiðar vegna þessa. Bifreiðar
& landbúnaðarvélar leggja til
glæsibifreiðar fyrir ráðherrana af
BMW-gerð og var meirihluti þeirra
fluttur sérstaklega til landsins í
þessu skyni.
Tvö hús flutt frá Keflavík-
urvelli að fundarstað
Síðastliðna nótt var flutt hús í
eigu Íslenskra aðalverktaka, sem
notað hefur verið sem mötuneyti,
frá Keflavíkurflugvelli að Tækni-
garði HÍ við Háskólabíó. Eru þessir
flutningar að ósk Bandaríkjamanna
en húsið verður notað sem aðstaða
fyrir bandaríska fjölmiðlamenn á
ráðherrafundinum. Skv. upplýsing-
um sem fengust hjá ÍA stóð til að
húsið yrði flutt í fjórum hlutum á
stórum flutningavögnum í lögreglu-
fylgd eftir Reykjanesbrautinni og í
gegnum borgina. Síðar í vikunni
verður annað hús í eigu ÍA flutt frá
Keflavíkurflugvelli að íþróttahúsi
Hagaskóla vegna öryggisvörslu á
meðan ráðherrafundirnir standa yf-
ir.
Tekist hefur að leysa öll mál
sem upp hafa komið
Skipaður var starfshópur vegna
undirbúnings utanríkisráðherra-
fundarins fyrir tæpu ári til að ann-
ast undirbúninginn. Hefur Bene-
dikt Ásgeirsson leitt vinnu
starfshópsins. Hann segir að und-
irbúningurinn hafi gengið vel. „Það
hafa komið upp mörg mál en það
hefur reynst unnt að leysa þau öll.
Margt er þó ekki hægt að gera fyrr
en á allra síðustu stundu,“ segir
hann. „Það er samsvarandi hópur
hjá Atlantshafsbandalaginu sem
sér um undirbúning af þess hálfu.
Þetta er allt í töluvert föstum
skorðum og höfum við unnið náið
með þeim hópi, sem hefur komið
hingað tvisvar sinnum til þess að
fara yfir undirbúninginn og aðstöð-
una,“ bætir hann við.
nda þess koma saman til fundar í Reykjavík
til 110 bif-
túlkaklefa
!
$ &
&
$'
&
#
%
# #
%
(
'# %
)
&(
'%*
+,-
'' omfr@mbl.is
FUNDIST hefur örvera íhafinu við Kolbeinseyj-arhrygg sem talið er aðsé minnsta lífvera
heims. Örveran, sem er af svo-
nefndum fornbakteríustofni og
nefnd hefur verið Nanoarchaeum
equitans, er einungis um 400
milljónustu úr millimetra í þver-
mál og má geta þess að um tvær
milljónir slíkra örvera rúmast á
svæði sem er jafn stórt punkt-
inum aftan við þessa setningu.
Hópur rannsóknarmanna við
háskólann í Regensburg í Þýska-
landi, undir stjórn Karl Stetters
prófessors, uppgötvaði örveruna
en sýnið sem um ræðir var tekið
á tæplega 200 metra dýpi við Kol-
beinsey í leiðangri sem farinn var
þangað árið 1988. Stetter, sem
unnið hefur að rannsóknum á
hitakærum örverum um árabil,
meðal annars hér á landi, greinir
frá niðurstöðum rannsóknarinnar
í nýjasta hefti tímaritsins Nature.
Guðmundur Óli Hreggviðsson,
rannsóknarstjóri hjá Prokaria,
sem einnig hefur unnið að rann-
sóknum á hitakærum örverum,
segir þetta merkilegan fund sem
einkum muni gagnast vísinda-
mönnum við skilgreiningu á lág-
markslífveru, til að mynda hver
sé lágmarksfjöldi gena og ensíma
sem þurfi að vera til staðar til að
lífvera geti starfað.„Á hinn bóg-
inn er þetta þróunarfræðilega
áhugavert. Menn eru stöðugt að
reyna að grafast fyrir um hver sé
fyrsta lífveran, hvernig hún hafi
litið út og hvað hún hafi gert og
hvort hún hafi náð sér í orku með
ljóstillífun, gerjun og svo fram-
vegis,“ segir Guðmundur Óli
Hreggviðsson.
Fundist hafa smærri bakteríur,
svokallaðar nanóbakteríur, sem
mælst hafa niður í 50 milljónustu
úr millimetra í þvermál. Guð-
mundur segir að vísindamenn
hafi hins vegar greint á um hvort
sú baktería geti talist til lífveru
sökum smæðar sinnar.
Niðurstöður örverurannsókna við Kolbeinsey birtar
Minnsta lífvera heims
fannst við Ísland
sríkjanna
búist við
amstarfs-
landanna. Í
þeim hópi
eru m.a. Bill
Graham, ut-
anríkisráð-
herra Kan-
ada, George
Papandreou,
utanríkisráð-
herra Grikk-
lands, Jozias
van Aartsen,
utanríkisráð-
herra Hol-
lands, Ant-
ónio Martins
da Cruz, ut-
anríkisráð-
herra Portú-
gal, Per Stig
Möller, utanríkisráðherra Dan-
merkur og Janos Martonyi, utan-
ríkisráðherra Ungverjalands, en
þetta eru allt aðildarlönd Atlants-
hafsbandalagsins.
Einnig er von á ráðherrum og
sendinefndum til fundarins frá
fjarlægari samstarfslöndum, s.s.
Arta Dade, utanríkisráðherra
Albaníu, Tonino Picula, utanrík-
isráðherra Króatíu, Irakli Menag-
arishvili, utanríkisráðherra
Georgíu, Mircea Geoana, utanrík-
isráðherra Rúmeníu, Yerlan Idr-
isov, utanríkisráðherra Kazak-
hstan, Antanas Valionis, utan-
ríkisráðherra Litháen og Anatoly
Zlenko, utanríkisráðherra Úkr-
aínu.
Reikna má með að utanríkis-
ráðherrar Norðurlanda sem
standa utan Atlantshafsbanda-
lagsins komi til fundarins, þ.e.
Erkki Tuomioja, utanríkisráð-
herra Finnlands og Anna Lindh,
utanríkisráðherra Svíþjóðar.
ar væntanlegir
a
Silvio Berlusconi,
forsætis- og utanrík-
isráðherra Ítalíu.