Morgunblaðið - 07.05.2002, Qupperneq 42
UMRÆÐAN
42 ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
LEIKSKÓLINN er
fyrsti skóli barnsins
samkvæmt lögum frá
árinu 1994 en það er
einhvernveginn eins og
það vilji oft gleymast. Í
umræðunni undanfarið
hefur gjarnan heyrst
að börn ættu ef til vill
að byrja fyrr í skóla en
þau gera í dag og er þá
oftast átt við að byrja í
grunnskóla. Stað-
reyndin er sú að börn
byrja snemma í skóla á
Íslandi, þau byrja í
leikskóla. Það sem
meira er, leikskólinn á
Íslandi er talinn vera
góður skóli fyrir börn að 6 ára aldri
og almennt er vel að honum búið. En
hvað læra börn svo í leikskóla?
Þroskamiðað nám
Uppeldi og nám í leikskóla er
þroskamiðað nám þ.e. lögð er
áhersla á að rækta alhliða þroska
hvers barns í gegnum frjálst og
skipulagt starf. Þroskaþættirnir eru
tilgreindir í Aðalnámskrá leikskóla
(Mrn. 1999) og eru: Líkams- og
hreyfiþroski, tilfinningaþroski, vits-
munaþroski, málþroski, félagsþroski
og félagsvitund, fagurþroski og
sköpunarhæfni, siðgæðisþroski og
siðvitund. Fram kemur að lífsleikni
og námsgengi barnsins í lífinu bygg-
ist á jafnvægi milli þessara þátta og
skyldi engan undra.
Námsleiðir í Aðalnámskránni er
þroskamiðuð nálgun og í takt við það
hvernig ung börn uppgötva og tileika
sér þekkingu (læra). Í gegnum leik
læra börn að spreyta sig, þau upp-
götva hvers þau eru megnug og fyrir
hvað þau standa. Þau læra að leika
ein og að leika saman. Þau læra að
vera vinir og að taka tillit til annarra.
Þau læra að tjá sig á skapandi hátt
og þau læra að hlusta og horfa. Þau
læra um eigin rétt og virðingu um
leið og þau læra að meta aðra og vera
með.
Börn sem hafa sterkan félags- og
samskiptaþroska og góða tilfinn-
ingalega færni þegar í grunnskóla er
komið eru betur í stakk búin til að
takast á við nám sitt þar.
Fyrir nokkru tók ég þátt í um-
ræðu sem fól það í sér að börn lærðu
hvorki stærðfræði eða neitt í lestri í
leikskóla og þess vegna væri námið
þar ekki nógu merkilegt. Ég er því
ekki sammála og er það hvatinn að
þessari litlu grein.
Málþroski/lesþroski
Í hugum sumra er það að læra að
lesa fyrsta nám barnsins og byrjar í
6 ára bekk. En horfum aðeins á und-
anfara þess. Til að barn læri að lesa
þarf það fyrst að öðlast góðan mál-
þroska og hvar hefst hann? Þróun
málþroska hefst með því að foreldrar
hjala og kjá (í gegnum leik og svip-
brigði) við barnið sitt og styrkja
þannig smámsaman tilraunir barns-
ins til máltöku. Foreldrar eru fyrstu
og mikilvægustu kennarar í lífi
barnsins.
Nám í leikskóla er góð og mikil-
væg viðbót m.a. fyrir þróun máls og
lesþroska barnsins. Í leikskólanum
er lögð áhersla á virka hlustun, á
endursögn og tjáningu, á orðaforða
og hugtakanám. Börnin hlusta á sög-
ur og þau semja sögur og ljóð. Í
gegnum söng læra leikskólabörnin
bæði vísur, ljóð og þulur og svo
mætti lengi telja. Leikir með rím,
takt og tóna, að sundurgreina, að
tengja saman og para ásamt marg-
víslegum leikjum með liti og form
búa börnin undir lestrarnám og rit-
málið. Flest börn á lokaári í leikskóla
skrifa nafnið sitt, nafn pabba og
mömmu og afa og ömmu. Undanfari
þess til að mynda að barn læri ritmál
er að barnið fái að krota og síðan að
teikna og fága smám saman færni
sína. Allt gerst þetta í gegnum skap-
andi starf, þroskamiðaða nálgun og
leiki. Aðferðir sem leikskólakennar-
inn hefur á valdi sínu í
gegnum þekkingu í
leikskólafræðum og
faglega reynslu. Mark-
visst máluppeldi í leik-
skóla, þróun máls og
lesþroska barnsins
ásamt tengslum milli
ritmáls og leiks er afar
mikilvæg undirstaða
fyrir nám í grunnskóla.
Stærðfræðileg
hugsun
Flest börn byrja að
læra að telja á fingrum
sér eða tám og er það
góð byrjun. Á unga
aldri er hugsun barna
mjög hlutbundin þ.e. þau þurfa að
hafa sýnilegt tákn/hlut eins og t.d.
fingur eða kubba, manneskjur eða
bíla svo dæmi séu tekin. Foreldrar
og fullorðnir í umhverfi barna eru
flest mjög nösk á þetta .... einn, tveir,
þrír puttar ... eða hvað eru margar
appelsínur í skálinni?, já tvær! og
barnið fær hrós fyrir og klappar
saman höndunum af gleði. Alveg
eins og með annað nám hefst stærð-
fræðileg hugsun heima hjá pabba og
mömmu og afa og ömmu.
Leikskólinn er síðan mikilvæg við-
bót fyrir stærðfræðilega hugsun og
formskyn sem aftur er mikilvæg
undirstaða formlegra náms síðar
meir. Unnið er með talnahugtök,
hugtök eins og minni, stærri, fáir,
margir, langur, stuttur o.s.fr.
Leikföng eru efniviður, náms- og
þjálfunargögn leikskólans, má þar
nefna Einingarkubbana sem eru
stærðfræðilega hannaðir kubbar
sem flestir leikskólar státa af m.a. til
að leggja inn stærðfræðihugtök með
hlutbundnum hætti. Farið er í leiki
sem þjálfa skilning á talnagildi og
stærðfræðilega hugsun. Börnin telja
hve mörg börn eru mætt í dag, hvað
vantar þá marga? Þegar lagt er á
borð þarf að telja gaffla, skeiðar,
diska og glös. Gerð eru súlurit yfir
ýmsa þætti í daglegu starfi skólans
t.d. hvað eru margir í gulum sokkum
í dag? rauðum eða bláum? Hvað
komu margir gangandi, hjólandi eða
akandi í leikskólann o.s.fr. Þannig
sést að margt í skipulagi og starfi
leikskóla stuðlar að stærðfræðilegri
hugsun sem er einnig undirstaða
formlegra náms síðar meir. Dettur
einhverjum í hug að það sé tilviljun
að þannig er unnið í leikskóla?
„Lengi býr að fyrstu gerð“
Leikskólanám fer fram í gegnum
skapandi starf og gagnvirk sam-
skipti í leikskóla barnsins. Mikilvægt
er að börn hafi góðar fyrirmyndir
bæði heima og í skólanum. Að þau
séu hvött til að vera glöð, forvitin og
spurul í öllu því sem þau taka sér fyr-
ir hendur. Að stuðla að sjálfsvirðingu
þeirra og trú á að þau geti. Að stuðla
að sjálfsstjórn og tillitsemi jafnt sem
framtakssemi. Afleiðing þess er
virkt, menntandi ferli þar sem börn-
in gera tilraunir með tilgátur sínar
og leggja mat á þær.
Uppeldi og menntun í leikskóla er
þroskamiða nám fyrir börn að 6 ára
aldri og góð undirstaða bæði fyrir líf-
ið sjálft og formlegra og fagmiðaðra
nám síðar meir.
Leikskólinn –
fyrsti skólinn
Lovísa
Hallgrímsdóttir
Höfundur hefur starfað í leikskólum
frá árinu 1980 og verið leik-
skólastjóri síðustu 13 árin.
Nám
Nám í leikskóla er góð
og mikilvæg viðbót, seg-
ir Lovísa Hallgríms-
dóttir, m.a. fyrir þróun
máls og lesþroska
barnsins.
ÞAÐ stendur upp á
okkur hjá Reykjavíkur-
listanum að reyna að
reikna út kosningalof-
orð Sjálfstæðisflokks-
ins. Ekki gerir hann
það. Um síðustu páska
sáum við 100 loforða-
lista sem enginn botn
fæst í, nema D-listinn
telur stöðu borgarinnar
í fjármálum svo sterka
að ekki þurfi lán eða
skattheimtu til að
standa við hann. Það er
von að fólk spyrji:
Hvernig er hægt að lofa
svo miklu og ætla sér að
efna án þess að sækja til þess skattfé
eða lán?
Loforðin þrjú
Björn Bjarnason hefur látið sér
nægja að verðmerkja þrjú kosninga-
loforð sjálfstæðismanna: lækkun hol-
ræsaskatts, fasteignagjald og bygg-
ingu hjúkrunarheimila fyrir aldraða.
1) Á reiki er hvort fella á holræsa-
skattinn niður að hluta eða öllu, og
fer eftir hver talar hjá D-lista. Við
hjá Reykjavíkurlistanum vitum
því ekki hvernig á að reikna þann
málflutning til fjár.
2) Skattalækkanirnar sem Reykja-
víkurlistinn samþykkti í nýgerðri
fjárhagsáætlun fela í sér lækkun
holræsagjalds um 1.128 milljónir
og lækkun fasteignaskatta. Þessi
lækkun er komin og er meiri en
minnihlutinn virðist lofa núna.
3) Þriðja kosningaloforðið sem búið
er að verðmerkja er að Sjálfstæð-
isflokkurinn ætlar að verja einum
milljarði til að byggja hjúkrunar-
heimili. Til að ,,eyða biðlistum“.
Fyrir liggur að mun meira fé þarf
til þess. Lykilatriði er að átta sig á
að ríkið þarf lögum samkvæmt að
vera tilbúið að standa undir
rekstrinum. Í þessu efni er
Reykjavíkurlistinn tilbúinn með
milljarðs framlag sem dugir til að
koma í framkvæmd áætlun sem
tekur á vandanum –
með öllum þeim sem
eiga að koma að.
Eftir stendur spurn-
ingin hvað hin 97 lof-
orðin sem eftir standa
af loforðalista Sjálf-
stæðisflokksins kosta
og hvernig eigi að fjár-
magna þau. Tökum
þrjú dæmi:
Félagslegar
íbúðir án lána?
Sjálfstæðisflokkur-
inn lofar að eyða biðlist-
um eftir félagslegu hús-
næði. Að reisa 600
nýjar íbúðir kostar 5,6 milljarða
króna. Þar sem Sjálfstæðisflokkur-
inn lofar að taka engin lán ætla þeir
sér væntanlega að taka allt þetta fé
af sköttum Reykvíkinga á næstu
kjörtímabili í stað þess að nýta 90%
lán Íbúðalánasjóðs einsog Reykja-
víkurlistinn hefur talið eðlilegt. Mun-
urinn á kostnaði á kjörtímabilinu er 5
milljarðar. Við sem hlustuðum
grannt eftir svari oddvita sjálfstæð-
ismanna á sjónvarpsfundi í Ráðhús-
inu um helgina fengum engan botn í
hvað Sjálstæðisflokkurinn vill. Taka
lán? Borga út í hönd? Hvernig?
Fimm ára börn og skólinn
Reykjavíkurlistinn ætlar að bjóða
fimm ára börnum hluta leikskóla-
dagsins ókeypis. Þetta kostar 600
milljónir á kjörtímabilinu vegna nið-
urfellingar leikskólagjalda. Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur valið aðra
leið, að fimm ára börn hefji grunn-
skólagöngu. Ef miðað er við meðal-
rekstrarkostnað í grunnskólum kost-
ar það 700 milljónir á ári eða 2,8
milljarða á kjörtímabilinu. Að auki
verður stofnkostnaður í byggingu
skólahúsnæðis 2,5 milljarðar króna
vegna nýs árgangs sem þar bætist
við. Munurinn á kostnaði á kjörtíma-
bilinu er því um 5 milljarðar. Í sjón-
varpsþætti þar sem ég rakti þetta
dæmi sagði frambjóðandi Sjálfstæð-
isflokksins að dæmið væri ekki svona
dýrt af því að einungis væri átt við
,,tilraun“. Tilraun? Sem kostar vænt-
anlega ekki neitt? Hvers virði er
hún? Fólk ætti að íhuga valkost
Reykjavíkurlistans, sem býður öllum
fimm ára börnum upp á undirbúning
fyrir grunnskólann gegnum leik og
nám.
Bílastæðahús fyrir ekkert?
Sjálfstæðisflokkurinn lofar nýjum
bílastæðahúsum, án þess að taka lán.
Auk þess ætla þeir að draga úr
tekjum bílastæðasjóðs. Þarna virðist
því vera 2 milljarða króna gat. Við
höfum engin svör fengið.
Enginn ostur, bara göt?
Viðbótarkostnaður við stefnu
Sjálfstæðisflokksins á næsta kjör-
tímabili er því orðinn óskilgreindur
fjöldi milljarða króna eftir því hvern-
ig fulltrúar flokksins útskýra mál
sitt. Og eru þá aðeins rakin örfá
dæmi. Eftir standa svo vitanlega
rúmlega 90 loforð Sjálfstæðisflokks-
ins sem mörg kosta ekki síður skild-
inginn þótt önnur séu ódýr eins og
lauf í vindi. Ennþá skuldar minni-
hlutinn borgarbúum skýringar á
hvernig eigi að fjármagna loforðalist-
ann, án þess að taka lán eða grípa til
róttæks niðurskurðar. Við fengum
100 loforð um páskana. Ég kallaði
þau ost við hverja músarholu. Kemur
í ljós núna að þarna er enginn ostur,
bara göt?
Enginn ostur, bara göt?
Stefán Jón Hafstein
Reykjavík
Við fengum 100 loforð
um páskana, segir
Stefán Jón Hafstein.
Ég kallaði þau ost við
hverja músarholu.
Höfundur skipar 3. sæti
Reykjavíkurlistans.
Í sveitarfélaginu Ár-
borg hafa doði og úr-
ræðaleysi svifið yfir
vötnum í íþrótta- og
tómstundamálum allt
það kjörtímabil sem nú
er að renna sitt skeið á
enda. Sveitarstjórnina
hefur skort framsýni og
kjark til að láta hendur
standa fram úr ermum.
Í aldarfjórðung hefur
nánast ekkert verið
gert sem til framtíðar
horfir og undanfarin
fjögur ár varla verið
deplað auga.
Höfnum svartsýninni
Samfylkingin er nýtt afl sem býður
fram krafta sína í sveitarstjórn Ár-
borgar.
Við sem skipum lista Samfylking-
arinnar í Árborg til sveitarstjórnar-
kosninganna 25. maí næstkomandi
höfnum þeim svartsýna og niðurdrep-
andi hugsunarhætti sem hefur ríkt í
meirihlutastjórn sjálfstæðis- og fram-
sóknarmanna og felst í því að sitja
með hendur í skauti og láta hverjum
degi nægja sína þjáningu.
Framundan eru nýir
og spennandi tímar. Við
í Samfylkingunni ætlum
að horfa fram á veginn.
Það þarf að blása kjarki
og bjartsýni í samfélag-
ið, skapa jákvætt við-
horf, svo nýta megi
orku íbúanna til góðra
verka. Við viljum að hér
sé aðstaða til íþrótta- og
tómstundaiðkunar eins
og best verður á kosið.
Ekkert minna er nógu
gott. Við viljum að ungt
fjölskyldufólk, jafnt
sem eldri borgarar, velji
Árborg til framtíðarbú-
setu vegna þess að hér sé rífandi
gangur og framtíðaráætlanir liggi
fyrir.
Uppbygging Sundhallarinnar
Brýn verkefni á þessu sviði eru mý-
mörg. Það þarf að ljúka uppbyggingu
við Sundhöll Selfoss og skapa þar með
eftirsóknarverða aðstöðu fyrir al-
menningsíþróttir og ferðaþjónustu.
Það þarf að ráðast í framkvæmdir á
íþróttavallarsvæðinu til að bæta að-
stöðu knattspyrnumanna og létta
óhóflegt álag á núverandi æfingaað-
stöðu. Það þarf að hanna og undirbúa
framkvæmdir við frjálsíþróttavöllinn,
sem núna er slysagildra. Það þarf að
herða á samningaviðræðum við rík-
isvaldið um byggingu íþróttahúss við
Fjölbrautaskóla Suðurlands. Það þarf
að tryggja að við nýjan grunnskóla í
Suðurbyggð verði byggður salur sem
nýtist til íþróttaæfinga að skóladegi
loknum. Það þarf að setja aukinn
kraft í uppbyggingu íþróttaaðstöðu
fyrir hestamenn. Það þarf að hanna
og setja á áætlun lagningu gervigrass
á gamla malarvöllinn. Það þarf að
bæta aðbúnað við íþróttavellina á
Stokkseyri og Eyrarbakka. Það þarf
að byggja hér upp 18 holu golfvöll.
Hleypum að nýju afli
Af þessari upptalningu sést að
margt þarf að gera, enda er hádegis-
lúrinn, sem tekinn var eftir landsmót
ungmennafélaganna 1978, orðinn að
Þyrnirósarsvefni. Við í Samfylking-
unni gerum okkur grein fyrir að ekki
verður allt þetta lagað í einni svipan
með sjónhverfingum. En við leggjum
áherslu á virkt íbúalýðræði og óskum
eftir samvinnu við einstaklinga og fé-
lagasamtök á þessu sviði við að for-
gangsraða verkefnum og skipuleggja
uppbygginguna svo að í fyrirsjáan-
legri framtíð verði aðstaðan hér orðin
til sóma.
Það er ljóst að þessar framkvæmd-
ir eru dýrar en ekki má gleyma því að
þær munu gefa af sér umtalsverðar
tekjur, bæði beinar tekjur af afnotum
(sundlaug, golfvöllur o.fl.) og óbeinar,
vegna fjölgunar ferðamanna sem
nýta munu aðstöðuna, og vegna fjölg-
unar atvinnutækifæra fyrir heima-
menn. Gleymum því ekki heldur að
það er dýrt spaug að ala ungdóminn
upp við eilífan barlóm og úrtölur. Við í
Samfylkingunni ætlum að bretta upp
ermar og taka til hendinni með ykkur,
íbúunum.
Það er sagt að tvisvar verði sá feg-
inn er á steininn sest. Nú er meiri-
hlutinn í sveitarstjórn Árborgar bú-
inn að sitja heilt kjörtímabil með
hendur í skauti og orðinn þreyttur í
botninum. Hleypum að nýju afli,
kraftmiklu fólki sem vill, þorir og get-
ur skapað hér fjölskylduvænt og eft-
irsóknarvert samfélag í náinni fram-
tíð.
Brettum upp ermarnar
Gylfi Þorkelsson
Árborg
Við höfnum þeim svart-
sýna og niðurdrepandi
hugsunarhætti, segir
Gylfi Þorkelsson, sem
hefur ríkt í meirihluta-
stjórn sjálfstæðis- og
framsóknarmanna.
Höfundur skipar fjórða sæti á
framboðslista Samfylkingarinnar
í Árborg.