Morgunblaðið - 07.05.2002, Síða 53
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002 53
frá MAPEI
Flotmúr
Sími 525 3000 • www.husa.is
3 gerðir, 23-25 kg pokar
1.990 kr. pokinn
GLÖGGIR menn sem margir voru
staddir á sýningu Hrossarækt-
arsamtaka Suðurlands í Ölfushöll-
inni telja að skammt sé þess að
bíða að hestaunnendur fái að sjá
tíu veifað fyrir tölt í kynbótadómi
ef stóðhesturinn frægi Töfri frá
Kjartansstöðum mætir í dóm í
vor. Þóttu tilþrif hans í höllinni
jaðra við fullkomleikann sjálfan
þegar hann Jóhann R. Skúlason
sýndi hann í niðjasýningu móður
hans Ternu frá Kirkjubæ.
Töfri hafði reyndar gefið tón-
inn á landsmótinu í Reykjavík ár-
ið 2000 þegar hann kom fram
fjögurra vetra og hlaut þá 9,0
fyrir tölt og þar af 9,5 fyrir hægt
tölt.
Nú hefur hann heldur bætt við
og þykir hafa nánast botnlaust
rými ásamt frábærlega mjúkri
niðurhægingu. Hestamenn virðast
því geta látið sig hlakka til þegar
Töfri mætir til leiks á nýjan leik í
vor.
Stefnt verður með hann í dóm
og væntanlega á landsmót í
framhaldinu.
Mikil ásókn hefur verið meðal
hryssueigenda í að halda undir
Töfra og sagði einn eigenda
hestsins Þorvaldur Sveinsson að
ljóst væri að færri kæmust að en
vilja. Yrði því að velja úr hópi
umsækjenda og yrði kappkostað
að velja gæðingshryssur undir
klárinn en ekki yrði farið eftir
kynbótamati Bændasamtakanna,
það eitt væri víst. Sagði hann
jafnframt að ekki væri búið að
ákveða hvaða verð yrði sett á
tollinn í ár en í fyrra kostaði 120
þúsund krónur undir klárinn.
Ljóst væri að verðið myndi eitt-
hvað hækka. Það vakna því
spurningar hvort í vændum sé
nýtt Orraævintýri en þar kostar
dropinn 350 þúsund krónur sem
kunnugt er.
Töfri hefur verið bendlaður
við ófrjósemi en í fyrra tókst að
láta hann fylja á fimmta tug
hryssna.
Tían hjá Töfra
í sjónmáli
ÞAÐ hefur ekki farið framhjá nein-
um að Hestamannafélagið Fákur
stendur á áttræðu um þessar mund-
ir. Meðal þess sem gert var til hátíð-
arbrigða er vegleg reiðhallarsýning
sem félagið stóð að eitt og sér um
helgina. Þótti sýningin takast með
miklum ágætum að flestu leyti öðru
en því að hún varð klukkustund
lengri en til stóð. Fór nú reyndar svo
með þá þrjá stórviðburði á sviði
hestamennsku um helgina, alstaðar
dróst dagskrá á langinn og er það
margsannað mál að hestamenn
kunna sér ekki hóf í lengd dagskrár.
En margt gladdi augað hjá Fáki
og bar þar ef til vill hæst sýningu Olil
Amble á Suðra frá Holtsmúla sem
virðist óðum að ná tökum á hinu
mikla brokki sem hann býr yfir.
Ormur frá Dallandi gladdi einnig
mjög með góðum töktum í ræktunar-
hópssýningu Gunnars Dungal og
Þórdísar Sigurðardóttur frá Dal-
landi. Sérstaklega þóttu skeiðtilþrif-
in góð á laugardagskvöldið. Hinsveg-
ar kom bróðir hans Markús frá
Langholtsparti ekki fram eins og
boðað hafði verið.
Þá voru helstu töffarar og skvísur
Fáks með æsilegt atriði í lok sýn-
ingar og má fullyrða að það sé ein
glæfralegasta munsturreið sem sést
hefur í Reiðhöllinni í Víðidal. Fleira
mætti til nefna af góðri sýningu en
þetta látið gott heita.
Ágætis afmælisveisla Fáks
Allt er þetta að koma hjá Suðra frá Holtsmúla og
Olil Amble og má nú von bráðar fara að eigna
þeim Íslandsmeistaratitilinn í fjórgangi í sumar.
Morgunblaðið/Vakri
Hróður frá Refsstöðum hefur verið einn af „heitu“
hestunum frá síðasta landsmóti og ekki brást hann
vonum manna í Reiðhöllinni hjá Mette Mannseth.
ÍÞRÓTTIR
ÞEIR hafa löngum verið stórhuga
Andvaramenn í Garðabæ því auk
þess að hafa náð samningum við
bæjarfélagið um byggingu reið-
skemmu þá hyggjast þeir standa
fyrir áhugaverðri mótaröð í skeiði í
sumar þar sem keppt verður á
fimm mótum alls.
Keppt verður í 150 og 250 metra
skeiði og 100 metra flugskeiði.
Fyrsta mótið verður fimmtudaginn
9. maí, annað mótið 9. júní, þriðja
mótið 22. júní, fjórða mótið 10.
ágúst og lokapunkturinn verður
svo hið margfræga Meistaramót
Andvara á Andvaravöllum í byrjun
september. Vegleg peningaverð-
laun verða í boði fyrir þrjú efstu
sætin í hverri grein. Fyrsta sæti
gefur 40 þúsund krónur, annað
sæti 20 þúsund og þriðja sætið 10
þúsund.
Í lokin verður stigahæsta par
hverrar greinar verðlaunað sér-
staklega og eru þar í boði 100 þús-
und krónur. Skráning á hvert mót
er krónur 2.500 en hægt er að skrá
á öll mótin og lækkar gjaldið þá í
krónur 2.000. Þá segir í fréttatil-
kynningu að allt verðlaunafé renni
til verðlauna. Veðbanki verður
starfræktur í tengslum við móta-
röðina.
Á meistaramóti Andvara verður
dagskrá með hefðbundnum hætti,
keppt í meistaratölti, A- og B-
flokki á beinni braut og svo að
sjálfsögðu kappreiðar. Ríkissjón-
varpið verður með beina útsend-
ingu á sunnudegi frá mótinu.
Mótaröð
hjá And-
vara í
sumar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
flísar