Morgunblaðið - 07.05.2002, Qupperneq 60
Dýrahald
Köttur í óskilum
SVARTUR og hvítur kött-
ur, ólarlaus, er í óskilum á
Suðurnesjum. Kötturinn
hefur hugsanlega komist
þangað í bíl því hann var út-
ataður í olíu. Upplýsingar
hjá Jóni í síma 847 8267.
Læða í óskilum
SVÖRT læða, með hvíta
bringu og hvítar loppur og
gulgræn augu, hefur haldið
til við hús á Seltjarnarnesi
síðastliðna viku. Kötturinn
er ómerktur en greinilega
heimilisvanur. Þeir sem
sakna kattar sem passar
við þessa lýsingu, vinsam-
legast hafið samband í síma
860 0410.
Kisur vantar
gott heimili
ÓVENJU falleg og gáfuð
„siams“ blendings læða,
u.þ.b. árs gömul (sem við
höfum kallað Mistý), fannst
á Arnarnesinu í janúar sl.
Auglýst var eftir eigendun-
um og lýsing gefin á henni í
Kattholti, en því miður
fundust eigendurnir ekki.
Við eigum 3ja ára gamla
læðu fyrir og þeim Mistý
hefur ekki samið. Það hefur
því verið nokkuð strembið
að hafa þær saman á heim-
ilinu. Við gátum hins vegar
ekki hugsað okkur að senda
Mistý út í óvissuna þar sem
fljótlega kom í ljós að hún
var þegar orðin kettlinga-
full þegar hún kom til okk-
ar. Hún eignaðist þrjá ynd-
islega kettlinga sem nú eru
orðnir átta vikna og höfum
við þegar fundið heimili
fyrir tvo þeirra, en einn er
eftir, sem er fress, og
Mistý. Kettlingurinn er
grár, með hvítum flekkjum
og er loðnari og mýkri en
gengur og gerist með kett-
linga. Mistý er hvít á
bringu og loppum, en grá-
bröndótt á baki. Við leitum
að góðum heimilum sem
geta tekið Mistý og/eða
kettlinginn að sér. Vinsam-
legast hringið í síma
695 2967 eða 554 1290 ef þið
getið tekið þau að ykkur
(annað eða bæði).
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
DAGBÓK
60 ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Víkverji skrifar...
ÁVERKALÝÐSDAGINN 1. maífór Víkverji í gönguferð um
gamla kirkjugarðinn við Suðurgötu
og lét sér nægja að horfa þaðan yfir
Tjörnina á kröfugöngu verkalýðs-
félaganna. Víkverji hefur oft gengið
um kirkjugarðinn og notið þess að
skoða legsteinana sem margir hverj-
ir eru mikil listaverk, auk þess sem
ferð í kirkjugarðinn er kærkomið
tækifæri til að gefa sig persónufræð-
inni á vald.
x x x
AÐ LOKINNI gönguferð umkirkjugarðinn gluggar Víkverji
svo gjarnan í hina vönduðu bók
Björns Th. Björnssonar listfræð-
ings, Minningarmörk í Hólavalla-
garði, en þar er að finna mikinn fróð-
leik um það gamla handverk sem
finna má í garðinum og fólkið sem
undir minningarmörkunum hvílir.
Bókin var gefin út af Máli og menn-
ingu í tilefni af 150 ára afmæli
kirkjugarðsins árið 1988, og í henni
er rakin er saga garðsins allt frá því
Lorentz Angel von Krieger stiftamt-
maður hóf baráttu sína um 1830 fyrir
því að Reykvíkingar yrðu framvegis
jarðaðir í helgum reit í Hólavalla-
túni. Í eftirmála að bókinni greinir
Björn frá því að hann hafi áður fyrr
farið með listsögunemendur sína í
það sem hann kallaði stærsta og
elsta minjasafn Reykjavíkur.
x x x
ÞAR vestur við Mela, oft milli sól-skins og hryðju, reyndum við að
lesa á þessa óskrifuðu bók lista- og
menningarsögunnar, og tuggðum
með dálítið krydd mannfræðinnar,
ætti einhver skrýtna sögu, sá er und-
ir lá. Við reyndum að lesa í stein-
formin, af hvaða evrópskum stíl þau
væru sprottin, við reyndum að ráða í
táknin, uppruna þeirra og merkingu,
lesa í handbragð steinhöggvaranna,
strukum mosann af til þess að spá í
leturgerðirnar, steinskrift, antíkvu,
fraktúru, og væri einhver svo fróður,
þá í það, hvernig steinn eða skreytt-
ur kross rímaði við líf og lund þess
sem gröfina átti. Í þessum gamla
garði kynntumst við bæði yfirlæti og
lítillæti, og við fengum góða lexíu í
því, að dauður væri ekki dauður,
þegar hugur hans og verk – og jafn-
vel samtíð hans – lifðu enn á meðal
okkar. Þannig varð þessi dauðareit-
ur okkur lifandi safn og saga,“ segir
Björn Th. Björnsson.
Fróðleikurinn úr þessum ferðum
lærimeistarans með nemendur sína í
kirkjugarðinn varð svo síðar kveikj-
an að bókinni góðu.
x x x
AÐ ÞESSU sinni varpaði þaðnokkrum skugga á heimsókn
Víkverja í kirkjugarðinn að sjá mátti
brotna legsteina og krossa sem
greinilega hafa orðið fyrir barðinu á
skemmdarvörgum. Er óskiljanlegt
með öllu að þeir séu til sem fá útrás í
því að vinna slík helgispjöll. Minnist
Víkverji þess að fyrir nokkrum árum
voru unnin mikil spjöll í kirkjugarð-
inum og var legsteinn Jóns Sigurðs-
sonar forseta einn þeirra sem urðu
illa fyrir barðinu á skemmdarvörg-
unum. Þá kom einnig fram að nokk-
uð hafi borið á fíkniefnasölu og ann-
arri glæpastarfsemi í garðinum að
næturlagi. Er nauðsynlegt að
tryggja með öllum tiltækum ráðum
að þessi menningarreitur í miðbæ
Reykjavíkur fái frið fyrir glæpalýð
af þessu tagi.
ÉG GET ekki orða bund-
ist yfir þeim ruddaskap
sem ríkissjónvarpið beitir
okkur áhorfendur í skjóli
þess að við getum ekki
sagt því upp. Þar á ég við
þáttinn Leiðarljós. Þessi
þáttur er búinn að vera
hér í 16 ár og er búinn að
vera mörgum kær heim-
ilisvinur, sérstaklega fólki
sem býr eitt og hefur litla
tilbreytingu. Þegar þeir
auglýstu að Leiðarljós
færi í frí en nefndu ekki
hvað lengi þá grunaði mig
að þeir væru að hætta
með þáttinn. Á öðrum
degi eftir að auglýsingin
var birt hringdi ég í sjón-
varpsstöðina og bað um
dagskrárdeild og hitti á
mjög almennilega stúlku
og spurði hvort þeir væru
hættir með þáttinn. Hún
sagðist ekki vita það en
síminn stoppaði ekki, t.d.
hefðu 70 manns hringt
daginn eftir að auglýs-
ingin var birt. Hún skrif-
aði niður allar hring-
ingar. Það gæti verið að
þeir tækju tillit til þess.
Tvær konur hringdu rétt
á eftir mér. Önnur fékk
samband við innkaupa-
stjórann sem bar því við
að þættirnir væru svo
dýrir. (Sem getur ekki
staðist því þættirnir sem
nú er verið að sýna eru 10
ára gamlir, sem sagt
þættir 1991 og þeir eru
enn í fullum gangi 2002.
Byrjuðu fyrst 1952.) En
svo bætti hann við að það
yrði kannski byrjað að
sýna þá eftir mánuð. Hin
konan hringdi rétt á eftir
og þá kom hið sanna í ljós.
Hún fékk hvorki samband
við dagskrárstjóra né inn-
kaupastjóra. Konan sem
svaraði sagði að ef þetta
væri í sambandi við Leið-
arljós þá gæti hún sagt
henni að þeir þættir væru
alveg hættir. Þá loksins
fékk maður sannleikann.
Ég ætla að vona að
fleiri sem hafa horft á
þessa þætti hafi kjark í
sér að láta til sín heyra og
mótmæli að fjölmiðill sem
við verðum að borga af
geti haft það frjálsræði að
klippa á þætti þegar þeim
sýnist. Þá er illa komið
fyrir lýðræðinu.
Guðrún A. Thorlacius.
Leiðarljós
LÁRÉTT:
1 sníkja, 4 sér eftir, 7 hitt,
8 snákum, 9 hagnað, 11
grugg, 13 óska, 14 rán-
dýr, 15 smábátur, 17 lík-
amshluta, 20 lík, 22 gufa,
23 viðfelldin, 24 kylfu, 25
örlæti.
LÓÐRÉTT:
1 kjaftæði, 2 fugls, 3
ójafna, 4 stuðningur, 5
fær af sér, 6 pílára, 10
skott, 12 gúlp, 13 fjandi,
15 ís, 16 mannsnafn, 18
forar, 19 skynfærin, 20
lof, 21 guð.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 handfærið, 8 suddi, 9 telja, 10 lúi, 11 renna, 13
rimma, 15 gamma, 18 snáfa, 21 fim, 22 lítil, 23 ámóta, 24
fiðringur.
Lóðrétt: 2 aldin, 3 deila, 4 æptir, 5 illum, 6 ósar, 7 haka,
12 næm, 14 iðn, 15 gull, 16 metri, 17 aflar, 18 smáan, 19
Áróru, 20 afar.
K r o s s g á t a
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Sava
Lake kemur í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Huginn, Taurus og
Luda koma í dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Hamraborg
20a. Fataúthlutun í dag
kl. 17–18.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, leirkera-
smíði, kl 10 boccia, kl.
10 enska, kl. 11 enska
og Lance dans, kl. 13
vinnustofa, postulíns-
málning og bað. Jóga-
námskeið hefst mið-
vikud. 7. maí kennt á
þriðju- og fimmtudögum
kl. 9. Lágmarks þátt-
taka 10 manns. Farið
verður í Hagkaup Skeif-
unni miðvikud. 8. maí kl.
10 með viðkomu á
Grandavegi 47. Kaffi og
meðlæti í boði Hag-
kaupa. Skráning í af-
greiðslu eða s.562 2571.
Hjúkrunarfræðingur,
verður í Aflagranda 40
miðvikud. 8 maí. kl. 11–
12. vegna frídagsins 9.
maí.
Árskógar 4. Kl. 9 bók-
band og öskjugerð, kl.
13 opin smíðastofa.
Handverksýning verður
föstud. 10. og laugard.
11. maí kl. 13–16.30.
Bingó fellur niður
föstud. 10. maí vegna
sýningarinnar.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30 böð-
un, kl. 9–9.45 leikfimi,
kl. 9–12 tréskurður, kl.
9–16 handavinna, kl. 10–
17 fótaaðgerð, kl. 10
sund, kl. 13 leirlist.
Eldri borgarar Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðju- og fimmtudögum
kl. 13–16.30, spil og
föndur. Mánud. 13. maí,
óvissuferð! lagt af stað
frá DAMOS kl. 13 og
komið til baka um kl.
17. Uppl. hjá Svanhildi í
s. 692 0814.
Félagsstarfið Seljahlíð.
Sýning á handverki
heimilismanna verður
dagana 11., 12. og 13.
maí kl. 13.30–17. Kaffi-
veitingar á staðnum.
Allir vekomnir.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 10 sam-
verustund, kl. 14 fé-
lagsvist.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 13 föndur og
handavinna.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Þriðjud: Skák
kl. 13. Kynningu kl.
16.30 í húsnæði Marg-
miðlunar á Suðurlands-
braut 4 um notkun Int-
ernets og hvaða
möguleika það býður
upp á, skráning á skrif-
stofu FEB. Göngu-
Hrólfar fara í leik-
húsferð á Sólheima
laugard 18. maí að sjá
„Hárið“ brottför frá Ás-
garði kl. 14 skráning á
skrifstofu FEB. s.
588 2111.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Brids,
saumur undir leiðsögn
og frjáls handavinna kl.
13.30. Spænskukennsla
kl 16.30.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
vinnustofa, tréskurður,
kl. 10 leikfimi, kl. 12.40
Bónusferð, kl. 13.15
bókabíll. Opið sunnu-
daga frá kl. 14–16 blöðin
og kaffi. Handverkssýn-
ing verður föstudaginn
10. maí frá kl. 10–16,
laugardaginn 11. maí frá
kl. 13–16 og mánudag-
inn 13. maí kl. 10–16.
Félagsvist fellur niður
mánudag. Sunnudags-
kaffið fellur niður
sunnud. 12. maí.
Gerðuberg, félagsstarf,
opin handavinnusýning
frá kl. 9–18 þriðjudag og
miðvikudag. Kl. 13 fé-
lagsvist í samstarfi við
Fellaskóla, Seljaskóla
og Hólabrekkuskóla, kl.
16. 30 dregið í happ-
drætti félagsvist-
arspjöld vetrarins gilda
sem miðar. Á morgun
kl. 10.30 gamlir leikir og
dansar, kl. 15 „glatt á
hjalla“ dansað í anddyri
og úti ef veður leyfir. Á
föstudag kl. 16.30 dans-
leikur, Hjördís Geirs. og
Ragnar Páll. Upplýs-
ingar um starfsemina á
staðnum og í s.
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.05 og kl. 9.50 leik-
fimi, kl. 9.30 gler-
skurður, kl. 10
handavinna, kl. 14
þriðjudagsganga og
boccia, kl. 19 brids. Vor-
sýning á handunnum
nytja- og skrautmunum
verður dagana11. og 12.
maí. Vinsamlega skilið
inn munum dagana 6.–8.
maí.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 og kl. 10 jóga,
kl. 9.15 postulínsmálun,
kl. 13–16 handa-
vinnustofan opin, kl. 19
gömlu dansarnir. Vor-
sýning á handunnum
nytja- og skrautmunum
verður dagana 11. og 12.
maí. Vinsamlega skilið
inn munum dagana 6.–8.
maí. Nemendur Digra-
nesskóla bjóða eldri
borgurum í Kópavogi til
fræðslu og skemmti-
dagskrár föstudaginn
10. maí kl. 10.
Háteigskirkja eldri
borgar á morgun mið-
vikudag, samvera, fyr-
irbænastund í kirkjunni
kl. 11, súpa í Setrinu kl.
12, spil kl. 13.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
leikfimi, kl. 9.45 banka-
þjónusta, kl. 13 handa-
vinna, kl. 13.30 helgi-
stund. Kl. 14:30
Heimsókn frá R-
listanum í Reykjavík
með Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur borg-
arstjóra í broddi fylk-
ingar. Fundurinn verð-
ur í matsalnum.
Hraunbær 105. Kl. 9
postulínsmálun, kl. 9
glerskurður og tré-
málun, kl. 10 boccia, kl.
11 leikfimi, kl. 12.15
verslunarferð í Bónus,
kl. 13 myndlist. Hand-
verkssýning verður
sunnud. 12. maí og
mánud. 13. maí kl. 13–
17. Spilað á harmonikku
í kaffitímanum. Sýn-
ingin er öllum opin.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 tréskurður og op-
in vinnustofa, kl. 10
boccia.
Vesturgata 7. Kl.9.15–
16 bútasaumur, kl. 9.15–
15.30 handavinna, kl. 11
leikfimi, kl. 13 spilað.
Handverksýning verður
dagana10., 11. og 13.
maí frá kl.13–17, söng-
ur, tónlist, dans.
Vitatorg. Kl. 9 smíði kl.
9.30 glerskurður og
morgunstund, kl. 10
leikfimi, kl. 11 boccia,
kl. 13 handmennt og
körfugerð, kl. 14 fé-
lagsvist.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.15 í Digra-
neskirkju.
Bridsdeild FEBK Gjá-
bakka. Brids í kvöld kl.
19.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra, leik-
fimi kl. 11 í Bláa saln-
um.
Kirkjustarf aldraðra
Digraneskirkju Fimm-
tud. 9. maí, uppstigning-
ardag, verður kirkju-
dagur aldraðra haldinn
hátíðlegur sameiginlega
í Hjallakirkju kl. 14.
Kvenfélagið Fjallkon-
urnar. Fundur kl. 20 í
safnaðarheimili Fella-
og Hólakirkju. Konur úr
kvenfélagi Óháða safn-
aðarins og úr Kven-
félagi Háteigssóknar
koma í heimsókn.
Kvenfélag Seljasóknar,
fundur í kirkjumiðstöð-
inni kl 20.
Húnvetningafélagið í
Reykjavík, aðalfund-
urinn er í kvöld í Húna-
búð Skeifunni l1 kl. 20.
30, venjuleg aðalfund-
arstörf. Féla hvattri til
að mæta.
Kvenfélag Kópavogs.
Farið verður út að
borða 23. maí. Þátttaka
tilkynnist fyrir 13. maí
hjá Ólöfu s. 554 0388
eða Guðmundu s.
554 5164. Mæting
kl.19.15 í Hamraborg
10.
Hana-nú Kópavogi Mið-
ar á sýninguna „Smellur
2 ... aldrei of seint“ til
sölu í Gjábakka í dag kl.
10–12 og á sama tíma í
Gullsmára 8. og 10. maí.
Miðapantanir í
s.554 3400 og hjá Dóru í
s. 899 5508. Sýningar
frá 11. til 18. maí kl. 14 í
Hjáleigunni Félags-
heimili Kópavogs.
ITC Irpa fundur í kvöld
kr. 20 að Hverafold 5.
Uppl. í síma 699 5023.
Í dag er þriðjudagur 7. maí, 127.
dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Ávítur fá meira á hygginn mann en
hundrað högg á heimskingja.
(Orðskv. 16, 18.)