Morgunblaðið - 07.05.2002, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002 61
DAGBÓK
VELÚRGALLAR
Ný sending, nýir litir
Stærðir XS - 2XL
Sendum í póstkröfuNóatúni 17, sími 562 4217Gullbrá,
Bankastræti 14, sími 552 1555
Sportlegur fatnaður
Jakkar, vesti, pils og buxur
Gott verð
Mikið úrval af
nýjum sumarfatnaði
í báðum verslunum okkar
Góðar stærðir, gott verð
Verslun fyrir konur
Laugavegi 44 og Mjódd
FLÍSPEYSUR &
HÚFUR
fyrir íþróttahópa & fyrirtæki
með ísaumuðum merkingum
Reykjavíkurvegur 62
220 Hafnarfjörður
Sími 565 04 88www.myndsaumur.is
AÐEINS Í 2 DAGA!
Sérvörudeild RJC hættir sölu á undirfatnaði
(m.a Fila og Pastunette ),
skarti, hönskum, treflum o.m.fl.
Afsláttur af heildsöluverði!
Opið í dag, þriðjud. 7. maí, 13-19
og á morgun miðvikud. 8. maí, 13-19
L A G E R S A L A
ROLF JOHANSEN & COMPANY, SKÚTUVOGI 10A,
(á milli IKEA og Húsasmiðjunnar)
Símar: 595 6700/595 6767.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
NAUT
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert vel undirbúinn fyrir
það sem þú tekur þér fyrir
hendur og nærð góðum ár-
angri. Þú kemur til með að
hafa yfirsýn yfir þau mark-
mið sem þú vilt setja þér.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Taktu frá tíma frá önnum
dagsins og einbeittu þér að
sjálfum þér. Það er ekki á
þínu valdi að breyta þó svo
þér finnst lítið miða áfram.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þér geta verið allir vegir
færir, en það er ekki nóg að
vita hvað er manni fyrir
bestu heldur er nauðsynlegt
að tileinka sér það.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það getur verið nauðsynlegt
að fá ráð frá þér eldri og
reyndari í dag. Það víkkar
út sjóndeildarhring þinn.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þér finnst líf þitt vera kom-
ið í þær skorður sem þér
henta og nú megi engu
breyta. Mundu samt að
ekkert fær staðist til eilífð-
ar.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Spilaðu rétt úr þeim spilum
sem lífið hefur gefið þér.
Nýttu þér andlegt og lík-
amlegt atgervi þitt til hins
ýtrasta.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Ýmis tækifæri standa þér
opin og það er erfitt að
velja. Leitaðu ráða þér eldri
og reyndari manna og þá
áttu auðveldara með að
taka af skarið.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú þarft ekki að hlaupa til
þótt fólkið í kringum þig sé
með einhver látalæti. Stattu
fastur á þínu uns rykið eftir
hina hefur sest aftur.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Til þess að taka áhættu er
nauðsynlegt að þekkja að-
stæður og kunna leikinn
vel. Annars getur allt farið
á versta veg.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Stattu fast á þínu. Það er
einhver umræða í gangi
sem kann að snerta þig svo
þér er fyrir bestu að hafa
allt þitt á hreinu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það er allt í lagi að segja
meiningu sína en þó þannig
að það særi ekki. Þótt skoð-
anir séu skiptar þarf það
ekki verða til vinarslita.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú þarft að standa á rétti
þínum en gæta þess um leið
að gera ekki meira úr hlut-
unum en nauðsyn krefur.
Vertu ákveðinn en einlæg-
ur.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú ljómar af orku og ert
fullur af hugmyndum sem
þú vilt koma í framkvæmd
sem fyrst. Þér tekst það því
þú hefur allt sem til þarf.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
VESTUR á góð varnar-
spil gegn slemmu mót-
herjanna – svo góð, að
hann getur varla spilað
nokkru út!
Vestur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ 752
♥ DG1053
♦ D2
♣875
Vestur Austur
♠ D84 ♠ 103
♥ Á874 ♥ K962
♦ G876 ♦ 109
♣K3 ♣G9642
Suður
♠ ÁKG96
♥ –
♦ ÁK543
♣ÁD10
Spilið kom upp í tví-
menningskeppni hjá BR
föstudagskvöldið 19. apr-
íl. Óskar Sigurðsson og
Sigurður Steingrímsson
voru með spil NS og
sögðu þannig eftir „Blue-
card“ – sem er heima-
smíðað kerfi á eðlilegum
nótum:
Vestur Norður Austur Suður
– – – 2 spaðar
Pass 4 spaðar Pass 6 spaðar
Pass Pass Pass
Þetta er sjaldgæf
sagnröð á tímum veikra
opnana á öðru þrepi, en
byrjun suðurs á tveimur
spöðum sýndi a.m.k.
fimmlit í spaða, fjórlit í
tígli og meira en 16
punkta. Norður átti ekki
mikið fyrir hækkun sinni
í geim, en suður átti þeim
mun meira í varasjóði og
stökk í slemmu.
Víkur þá sögunni til
vesturs, sem varð ein-
hvers staðar að koma út
eftir þessar lokuðu sagn-
ir. Hann valdi hjartaás-
inn, eins og flestir hefðu
líklega gert. Óskar var
sagnhafasætinu. Hann
trompaði og lagði niður
ÁK í spaða. Spilaði næst
tígli á drottningu, hjarta-
drottningu úr borði og
henti lauftíu heima þegar
austur lét lítið hjarta.
Aftur kom hátt hjarta og
kóngur austurs var
trompaður. Síðan tók
Óskar á tígulás og stakk
tígul með spaðasjöu
blinds. Þá innkomu not-
aði hann til að henda
laufdrottningunni niður í
fríhjarta og lagði upp um
leið – vörnin fékk aðeins
einn slag á trompdrottn-
inguna.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
70 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 7. maí,
er sjötugur Hallmar Thom-
sen, Dalbraut 27, Reykja-
vík. Hann tekur á móti ætt-
ingjum og vinum á heimili
sínu nk. laugardag 11. maí á
milli kl. 15–18.
60 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 7. maí,
er sextug Helga Harðar-
dóttir blómaskreytir, Sæ-
bólsbraut 26, Kópavogi.
Eiginmaður hennar er Sig-
urður Grétar Guðmundsson
pípulagningameistari. Þau
hjónin taka á móti ættingj-
um, vinum og velunnurum á
morgun, 8. maí, í Félags-
heimili Kópavogs kl. 17–19.
Þar heldur Helga einnig
sína fyrstu málverkasýn-
ingu.
90 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 7. maí,
er níræð Olga Gísladóttir,
áður til heimilis í Melgerði
6 í Kópavogi, en dvelur nú á
hjúkrunarheimilinu Sunnu-
hlíð. Af þessu tilefni vonast
hún til að sjá ættingja og
vini í Kiwanishúsinu,
Smiðjuvegi 13a, Kópavogi,
fimmtudaginn 9. maí (upp-
stigningardag) milli kl. 16 og
19.
LJÓÐABROT
STÖKUR
Stormur reiður stikar dröfn,
stækka leiðar undur,
þegar skeiðin skriðajöfn,
skafla sneiðir sundur.
Þótt hún slengist hart á hlið,
hyllir enginn friðinn,
hraustir drengir harðna við
Hrannar strengja kliðinn.
Jón S. Bergmann
1.e4 Rf6 2. e5 Rd5 3. d4 d6 4.
c4 Rb6 5. exd6 cxd6 6. Rc3
g6 7. Be3 Bg7 8. Hc1 O-O 9.
b3 Rc6 10. Be2 Bf5 11. d5
Rb4 12. a3 Ra6 13. Rf3 Bg4
14. Bd4 Bh6 15. Hb1 Bf5 16.
Bd3 Bxd3 17. Dxd3 Rc5 18.
Bxc5 dxc5 19. O-O Bg7 20.
Hbd1 Dd7 21. Re4 Dc7 22.
h4 Bb2 23. h5
Df4 24. Rxc5
Bxa3 25. Rxb7
Hab8 26. Ra5
Rd7 27. Rc6 Hb7
28. Hfe1 Rf6 29.
hxg6 hxg6 30. g3
Dg4 31. Kg2 Kg7
32. Hh1 Bc5 33.
Dd2 Rh5 34. Hh4
Dd7
Staðan kom
upp á Reykjavík-
urskákmótinu
sem fram fór í
Ráðhúsi Reykja-
víkur. Finnski
alþjóðlegi meistarinn Alex-
ey Holmsten (2420) hafði
hvítt gegn Einari K. Einars-
syni (2107). 35. Hxh5! og
svartur gafst upp enda verð-
ur hann mát eftir 33. …gxh5
34. Dg5+ Kh7 35. Dxh5 +.
Hannes Hlífar Stefánsson,
Helgi Áss Grétarsson og Jón
Viktor Gunnarsson munu
taka þátt í skákmótum sem
haldin verða í Kúbu á næstu
vikum. Skak.is mun fylgjast
með gangi mála.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
50 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 7. maí,
er fimmtug J. Eygló Bene-
diktsdóttir, sjúkraliði,
Prestastíg 6, Reykjavík.
Hún er að heiman í dag.
Ég vildi að ég hefði
slegið hana svona
fimm sinnum fastar í
hausinn í þá daga.
Smælki