Morgunblaðið - 07.05.2002, Qupperneq 62
FÓLK Í FRÉTTUM
62 ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIN um
Köngulóarmanninn er
sögð hafa slegið met í
miðasölu í Bandaríkj-
unum um helgina,
meðal annars slegið
met sem kvikmyndin
um Harry Potter setti
undir lok síðasta árs,
að sögn fréttavefjar
BBC.
Segir að tekjur
kvikmyndarinnar,
sem jafnframt var tek-
in til sýningar hér á
landi um helgina, hafi
numið rúmum 10
milljörðum ísl. króna
fyrstu þrjá sýningar-
dagana í Bandaríkjun-
um.
Columbia Pictures, sem framleiðir
kvikmyndina, segir að Köngulóar-
maðurinn hafi slegið tvö met sem
kvikmyndin Harry Potter og visku-
steinninn setti í miðasölu á síðasta
ári, annars vegar met sem snýr að
einum degi í sölu aðgöngumiða og
hins vegar vikumet í sölu að-
göngumiða. Kvikmyndin um Harry
Potter halaði inn rúmlega átta millj-
arða ísl. króna fyrstu þrjá sýning-
ardagana í Bandaríkjunum í nóvem-
ber.
Jeff Blake, framkvæmdastjóri
markaðssviðs Columbia, sagði að
nokkurn veginn jafnmargar konur
og karlar hefðu séð kvikmyndina,
sem að öllum líkindum mun mæta
mikilli samkeppni frá nýjustu
Stjörnustríðsmyndinni, Kafla tvö:
Árás klónanna, sem tekin verður til
sýningar 16. maí.
Köngulóarmaðurinn
slær í gegn
! "
#" "$
%&'(%)
* +
$ , "$ +-
.% /
-"
0 2 '3 4 "
Köngulóarmaðurinn vafði bandarískum bíó-
gestum um fingur sér um helgina.
BRESKA tónlistarpressan var
gapandi yfir fyrstu plötu Gomez
Bring It On sem kom út árið 1998 og
var dugleg við að minna okkur á að
sveitin hefði sjálf
tekið upp megnið
af henni, ein og
óstudd í bílskúrn-
um heima í South-
port. Enginn fok-
dýr upptökustjóri,
ekkert loðfóðrað hljóðver, bara seg-
ulband, 30 ára gamlir hljóðnemar og
smurning. En platan stóð samt al-
veg undir umtalinu. Lögin voru fín,
spilagleðin greinileg og áhrifavald-
arnir aðrir en allra hinna bresku
Brit-popparanna. Blúsinn var málið
hjá þeim og kjörorðið: Allt leyfilegt
svo lengi sem hrynhitinn er til stað-
ar. Svo kom Liquid Skin, ágæt skífa
en öllu síðri en frumburðurinn, enda
drengjunum vorkunn að þurfa að
fylgja eftir slíkum verðlaunagrip.
Þannig að með þriðju plötunni hefði
átt að vera lag. Með henni hefðu
þeir Gomez-gæjar átt að sýna það
og sanna að bernskubrekin í bíl-
skúrnum hafi ekki verið nein byrj-
endaheppni. En því miður, því mið-
ur hefur það ekki tekist sem skyldi.
Ég er talsmaður nýrra þreifinga og
gremst því að heyra hversu erfitt
þeir eiga með að fóta sig utan
veggja bílskúrsins því um leið og
þeir spreyta sig á einhverju öðru,
reyna að þróa tónlistina lengra, virð-
ist eitthvað klikka og áhrifavaldar
fara að skína í gegn; Morphine í
saxadrifnu fyrsta laginu „Shot
Shot“, Beta Band víða eins og t.a.m.
í „Detroit Swing 66“ og meira að
segja grasboltinn Ian Brown í „Ruff
Stuff“. Áheyrilegust eru lögin sem
sverja sig í ætt við ræturnar, þessi
afslappaði kassagítarblús, þar sem
prýðilegir söngvararnir – alls þrír –
láta eftir sér að harmónera svo
skemmtilega. Titillagið er síðan al-
gjört yfirburðarlag, þökk sé gamla
kontrabassaséníinu Dannys Thomp-
sons.
Ég er ekki frá því að nú sé tími til
kominn fyrir þá Gomez-drengi að
hverfa aftur inn í bílskúr og hugsa
sinn gang, finna aftur lyktina af
smurningunni, því byssa þeirra
skýtur púðurskotum. Tónlist
Púðurskot
Gomez
In Our Gun
Virgin
Þriðja platan frá besta bílskúrsbandi So-
uthport. En halda þeir áfram að leita út
fyrir bílskúrinn sinn, hafa þeir fundið eitt-
hvað?
Skarphéðinn Guðmundsson
Lykillög: „In Our Gun“, „1000 Times“
Hitt Húsið
Staðarnetmót verður haldið í dag
frá kl. 14 til miðnættis. Aldurs-
takmark er 16 ár. 100 megabæta
valnet ("switch net") sér þátttak-
endum fyrir hraða. Verðskrá er eft-
irfarandi: aukatölva = 500 kr.,
aukaspilari = 500 kr. Fjölmargt
verður spilað, kjörið að koma með
bálkinn sinn ("clan") og spreyta sig
gegn öðrum spilurum. Skjávarpi
verður á staðnum og spilurum er
einnig velkomið að koma með
myndband af afrekum sínum til
sýningar.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Morgunblaðið/Jim Smart
Tölvuleikjamót eru orðin vinsæl
afþreying. Myndin er tekin á
Skjálftamóti, sem haldið var í
Smáranum á þarsíðasta ári.
KRYDDLEGIN HJÖRTU e. Laura Esquivel
Leikgerð: Guðrún Vilmundard. og Hilmar Jónss.
Í kvöld kl 20 - ÖRFÁ SÆTI
Su 12. maí kl 20 - ÖRFÁ SÆTI
Lau 18. maí kl 20 - NOKKUR SÆTI
Mi 22. maí kl 20 - ÖRFÁ SÆTI
BOÐORÐIN 9 eftir Ólaf Hauk Símonarson
Fö 10. maí kl 20 - NOKKUR SÆTI
Su 26. maí kl 20 - LAUS SÆTI
Tilboð í maí kr. 1.800
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Lau 11. maí kl 20 - ÖRFÁ SÆTI
ATH: Síðasta sýning
SALKA VALKA á Listahátíð í Reykjavík
Nýtt dansverk eftir Auði Bjarnadóttur
við tónlist Úlfars Inga Haraldssonar
Frumsýning lau 11. maí - kl 16.00 ÖRFÁ SÆTI
2. sýn fi 16. maí kl 20.00
3. sýn fö 17. maí kl 20.00
Ath: Aðeins þessar þrjár sýningar
AND BJÖRK OF COURSE ...
e. Þorvald Þorsteinsson
Fö 10. maí kl 20 - NOKKUR SÆTI
Su 12. maí kl 20 - LAUS SÆTI
FYRST ER AÐ FÆÐAST e. Line Knutzon
Lau 25. maí kl 20 - AUKASÝNING
ATH: síðasta sinn
PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler
Su 12. maí kl 16 - Ath. breyttan sýn.tíma
Lau 18. maí kl 16 - Ath. breyttan sýn.tíma
SUMARGESTIR e. Maxim Gorki
Nemendaleikhús Listaháskólans og LR
Fi 9. maí kl 20 - NOKKUR SÆTI
Lau 11. maí kl 20
Fi 16. maí kl 20
Fö 17. maí kl 20
Ath: Takmarkaður sýningafjöldi
JÓN GNARR
Fö 10. maí kl. 20 - LAUS SÆTI
GESTURINN e. Eric-Emmanuel Schmitt
Fö 10 maí kl 20 - NOKKUR SÆTI
Lau 11 maí kl 20 - NOKKUR SÆTI
Ath. Sýningum lýkur í maí
Stóra svið
Nýja sviðið
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Litla sviðið
3. hæðin
.
:
?) #9
!# ) . :
1 #! !@$) .! 3 =
!?) #9
++ !
!?) #9
!22++,,
sýnir
Vinur minn
HARVEY
1 )A0
?/
,,
!
"
!"#!
#
#!
$
%
#
#
&&%
#
#
#
&&%
##
#
&&%
#"
#
&&%
#'
#
&&%
( ! + '
2 ! + '