Morgunblaðið - 08.05.2002, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 08.05.2002, Qupperneq 6
FRÉTTIR 6 MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ REYKJAVÍKURLISTINN Reykjavík er leikskólaborg Vi› munum • Tryggja öllum börnum eldri en 18 mána›a leikskólapláss • Gefa öllum börnum kost á ni›urgreiddri dagvist • Bjó›a upp á kennslu endurgjaldslaust fyrir fimm ára börn hálfan daginn á leikskólum • Hvetja til flróunarverkefna, rannsókna og n‡breytni í leikskólastarfi. Vi› höfum • Fjölga› dvalarstundum um 63% • firefalda› fjölda heilsdagsplássa • Bætt vi› 100 n‡jum leikskóladeildum • Fjórfalda› styrki til einkarekinna leikskóla • Stórbætt starfsumhverfi leikskólakennara ÓLAFUR Ragnar Grímsson, for- seti Íslands, tók í gær á móti erkiprestinum Vsevolod Chaplin, fulltrúa Alexei II, patríarka rétt- trúnaðarkirkjunnar í Moskvu, og afhenti við sama tækifæri full- trúa rétttrúnaðarsafnaðar hér á landi áritaða bók frá patríark- anum. Alexei II lýsti því yfir í nýlegri heimsókn forseta Íslands til Rúss- lands að hann hygðist senda full- trúa sinn til Íslands um páska þeirra rétttrúnaðarmanna, sem voru um síðustu helgi. Í því skyni kom Chaplin og messaði yfir söfnuðinum. Bókina sem Ólafur Ragnar gaf áritaði patríarkinn í Moskvu þegar forsetinn hitti hann í heimsókn sinni. Morgunblaðið/Golli Tveir fulltrúar safnaðar rétttrúnaðarkirkjunnar hér á landi, Lena Trufan og Ksenia Ólafsson, taka við bókinni frá Ólafi Ragnari Grímssyni og við hlið hans stendur Vsevolod Chaplin erkiprestur. Afhenti áritaða bók frá patríarka í Moskvu EINN jeppi af sex, sem varnarliðs- menn festu í brekkum við Króka- mýrar á sunnudagskvöld, skammt norðan Vigdísarvalla, er á sínum stað þrátt fyrir að lögreglan í Kefla- vík hafi bannað ökumönnum þeirra að hreyfa þá vegna hættu á frekari umhverfisspjöllum, umfram þau sem þegar hafa orðið. Íslendingur var með í för jeppamanna og fékk hann einn leyfi til að fjarlægja ökutæki sitt þar sem ekki var hætta á gróð- urskemmdum við að losa það úr fest- unni. Öðru máli gegndi hins vegar um hina jeppana. Lögreglan fór í gærmorgun öðru sinni til að kanna hvort frekari spjöll hefðu orðið og reyndist svo vera. Lögreglan sem fékk tilkynningu um meint spjöll jeppamannanna kærir í málinu og er verið að afla gagna, s.s. ljósmynda af vettvangi, sem fara til rannsóknardeildar lögreglunnar og þaðan til sýslumanns til ákvarðana- töku um ákærumeðferð. Að sögn lögreglunnar er rannsókn málsins ekki stefnt í voða þótt jepparnir séu farnir af svæðinu enda hafi þeir verið ljósmyndaðir á vettvangi. Að lokinni grunnvinnu rannsóknarinnar þurfi að taka ökumennina fyrir af rann- sóknarlögreglu. Þar muni það vænt- anlega skýrast hvernig staðið hafi verið að brottnámi jeppanna og hví það var gert í trássi við bannið. Að sögn lögreglunnar virðist sem jepp- arnir hafi verið sóttir á mánudags- kvöld þegar sá sem leyfið fékk hafi farið að ná í sinn jeppa. Um kl. 22.30 á mánudagskvöld var lögregla við eftirlit á svæðinu og sást þá til mannaferða í hlíðinni. „Þeir [jeppamennirnir] voru búnir að fá fyrirmæli [um að láta jeppana vera] og voru meira að segja stopp- aðir af í hliði upp á Keflavíkurvelli þegar þeir ætluðu að ná í bílana snemma í gærkvöldi,“ sagði varð- stjóri lögreglunnar við Morgunblað- ið. Búist er við að samstarf verði við bandarísku herlögregluna um rann- sókn málsins ef um hermenn er að ræða. Stjórn Ferðaklúbbsins 4x4 sendi í gær frá sér ályktun vegna frétta um stórfelldan utanvegaakstur við Grænavatn á Reykjanesi. Þar segir að slík háttsemi sé í fullkominni and- stöðu við stefnu klúbbsins, en hann hafi barist gegn utanvegaakstri allt frá stofnun félagsins árið 1983. Jepparnir sóttir í trássi við fyrirmæli lögreglu Einn jeppanna, sem festu sig við Krókamýrar á Reykjanesi fyrr í vik- unni, skammt norðan Vigdísarvalla. UMBOÐSMAÐUR Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að Hag- stofa Íslands hafi ekki farið að lögum um póstþjónustu frá 1996 og versl- anaskrár, firmu og prókúruumboð frá árinu 1903, þegar forráðamönnum fyrirtækis var neitað að breyta nafni þess yfir í Pósthúsið ehf. í febrúar á síðasta ári. Beinir umboðsmaður því til fyrirtækjaskrár Hagstofunnar að taka mál fyrirtækisins fyrir að nýju, komi fram beiðni þess efnis. Lögmaður fyrirtækisins leitaði til umboðsmanns í maí á síðasta ári og kvartaði yfir synjun fyrirtækjaskrár Hagstofunnar á að heimila nafnbreyt- inguna. Var synjunin byggð á því að umrætt nafn, Pósthúsið, væri al- mennt heiti og því ekki fallið til þess að veita fyrirtækinu einkarétt yfir því gagnvart öðrum aðilum. Vísaði Hag- stofan einnig til þess að samkvæmt 6. gr. laga nr. 142/1996 um póstþjónustu hefði íslenska ríkið einkarétt á að veita nær alla þá þjónustu sem al- mennt væri veitt á pósthúsum. Ís- landspóstur hf. fer nú með þennan einkarétt ríkisins. Í áliti sínu rekur umboðsmaður m.a. ákvæði nærri aldargamalla laga, eða nr. 42 frá 1903, um verslanaskrár, firmu og prókúruumboð, einkum 10. gr. laganna. Tekur hann fram að af orðalagi ákvæðisins og lögskýringar- gögnum verði ekki ráðið að það sé skilyrði fyrir skráningu firmanafns að umbeðið nafn hafi þá eiginleika að veita viðkomandi fyrirtæki einkarétt til nafnsins umfram aðra sem hafi svipaða starfsemi með höndum. Um- boðsmaður segir sömuleiðis að engar aðrar ályktanir verði dregnar af dómaframkvæmd eða viðhorfum fræðimanna. Er það því niðurstaða umboðsmanns að ekki sé hægt að fall- ast á það með Hagstofunni að henni hafi verið heimilt að hafna skráningu Pósthússins ehf. á þessum forsend- um. Telur umboðsmaður ennfremur að Hagstofunni hafi ekki verið heimilt að hafna firmaskráningunni á grundvelli laga um póstþjónustu frá 1996, sem tóku síðan breytingum á þessu ári. Umfang og eðli þess einkaréttar sem ríkinu sé veittur með þeim lögum hafi ekki verið með þeim hætti að hægt hafi verið að hafna skráningunni. Þrisvar óskað eftir svarbréfi Þá gerir umboðsmaður einnig at- hugasemd í sínu áliti við hvað Hag- stofan brást seint við að svara sínum fyrirspurnum. Sendi hann bréf til stofnunarinnar í maí 2001 þar sem ákveðinna upplýsinga var óskað og fékk ekki svar fyrr en í desember sama ár. Hafði umboðsmaður þá sent ítrekunarbréf í þrígang til Hagstof- unnar. Telur hann þessi vinnubrögð ekki auðvelda embætti umboðsmanns að ná settu markmiði sínu um að stytta afgreiðslutíma mála þannig að niðurstaða liggi fyrir eigi síðar en hálfu ári eftir að kvörtun er lögð inn. Umboðsmaður Alþingis um firmaskráningu Pósthússins ehf. Synjun Hagstofunnar ekki í samræmi við lög FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ vísaði í gær frá kæru Bæjarmála- félagsins Hnjúka vegna ákvörðunar yfirkjörstjórnar Blönduóss og Engi- hlíðarhrepps um ógildingu á fram- boðslista félagsins. Forsvarsmenn Hnjúka kærðu í kjölfarið úrskurð yf- irkjörstjórnar til Héraðsdóms Norð- urlands vestra. Hafa þeir farið fram á flýtimeðferð að sögn Valdimars Guðmannssonar, formanns Hnjúka. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær ógilti yfirkjörstjórn framboðs- listann þar sem hann barst kjör- stjórninni 11 mínútum eftir þann tímafrest sem lög setja. Félagsmálaráðuneytið taldi að ekki væri unnt að kæra ógildingu yf- irkjörstjórnar á framboðslistanum til ráðuneytisins. „Þessi úrskurður er mikil von- brigði fyrir okkur,“ sagði Björgvin Þór Þórhallsson sem skipar þriðja sæti framboðslistans. „Við bjugg- umst við því að ráðuneytið myndi taka á þessu,“ bætti hann við. Forsvarsmenn Hnjúka ósáttir við frávísun félagsmálaráðuneytisins Kæra ákvörðun yfirkjörstjórnar til Héraðsdóms ♦ ♦ ♦ LANDLÆKNISEMBÆTTINU hefur borist kvörtun vegna meints trúnaðarbrots heilbrigðisstarfs- manns við sjúkling á Heilbrigðis- stofnun Suðurlands. Hjá Hauki Valdi- marssyni aðstoðarlandlækni fékkst ekki staðfest hvers eðlis málið væri en hann segir kvörtunarmál sem varða meint trúnaðarbrot heilbrigðisstarfs- fólks fátíð, eða innan við tíu á ári. Á tímabilinu 1991 til 1997 bárust 39 kvartanir vegna trúnaðarbrota, eða 2,5% af heildarfjölda kvartana og kæra sem bárust embættinu. Haukur segir almennt að minna en þriðjungur trúnaðarbrotamála staðfestist sem slík og er tekið á slíkum málum eins og öðrum málum sem varða brot í starfi. Í þeim tilvikum hefur land- læknir möguleika á að benda viðkom- andi starfsmanni á hvenig hafi verið staðið rangt að málum. Í alvarlegum tilvikum getur land- læknir áminnt viðkomandi heilbrigð- isstarfsmann eða svipt hann leyfum. Meint trún- aðarbrot í skoðun hjá landlækni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.