Morgunblaðið - 08.05.2002, Page 12
FRÉTTIR
12 MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÁHERSLA verður lögð á að þróa
hlutverk norðurskautsráðsins á sviði
félags-, efnahags- og menningarlegra
þátta sjálfbærrar þróunar og sjónum
þá fyrst og fremst beint að lífskjörum
og lífsskilyrðum fólks á norðurslóð-
um. Þetta kom fram í ræðu Halldórs
Ásgrímssonar utanríkisráðherra sem
hann flutti í Háskólanum á Akureyri í
gær, en Ísland tekur næsta haust við
formennsku í norðurskautsráðinu og
gegnir henni næstu tvö ár.
Norðurskautsráðið var stofnað árið
1996 með sameiginlegri yfirlýsingu
aðildarríkjanna átta, Bandaríkjanna,
Danmerkur, Finnlands, Íslands, Kan-
ada, Noregs, Rússlands og Svíþjóðar
auk samtaka frumbyggja á norður-
slóðum. Nokkru áður, eða fyrir 11 ár-
um, hófst samvinna þessara ríkja á
sviði umhverfismála í kjölfar þess að
þau samþykktu áætlun um umhverf-
isvernd á norðurslóðum.
Halldór sagði enga tilviljun að sam-
vinna ríkjanna hófst á þessum tíma,
endalok kalda stríðsins og lýðræð-
isþróun í Mið- og Austur-Evrópu
gerði kleift að vinna með nágrönnum í
austri á annan hátt en áður var mögu-
legt. Heimskautasvæðið fékk þá
aukna athygli með breyttri heims-
mynd, ekki síst vegna pólitískra, vís-
indalegra og efnahagslegra mögu-
leika svæðisins.
Hugmyndin um sameiginlega
hagsmuni norðurslóðaríkja var þó
ekki ný, en Halldór sagði engan hafa
gert henni betri skil en landkönnuð-
inn kunna, Vilhjálm Stefánsson.
Hann taldi að með þekkingu á um-
hverfi norðurslóða og með því að þróa
með sér hæfileika til að aðlagast að-
stæðum þess gætu menn ríkulega
notið þeirra fjölmörgu gæða og feg-
urðar sem svæðið hefði upp á að
bjóða. Norðurskautsráðið væri vett-
vangur ríkjanna til að efla auðlegð og
ýta undir sjálfbæra þróun. „Í sam-
starfi sem þessu eigum við að líta til
tækifæra norðurslóða. Lykillinn að
lausn margvíslegra vandamála er far-
sæl félagsleg og efnahagsleg þróun
og jákvæð aðlögun að náttúrufari
svæðisins.“
Nefndi Halldór að Íslendingar
byggðu afkomu sína á náttúru lands-
ins, fiskveiðum, orkuvinnslu, land-
búnaði og ferðaþjónustu að stórum
hlut og með hugviti, þekkingu og
atorkusemi hefðum við fært okkur
náttúruna í nyt og byggt upp nútíma-
samfélag á borð við það sem best
þekkist. Sjálfbær stjórnun auðlinda-
nýtingar væri grundvallaratriði fyrir
Ísland og hefðu Íslendingar skipað
sér í flokk þeirra ríkja sem vilja vera í
fremstu röð í að byggja upp sjálfbæra
framtíð. Mikilsvert væri að vísindaleg
kunnátta og tækni nýttist íbúunum
við að ná tökum á aðstæðum og auð-
lindum heimahaganna. Sem dæmi um
árangur á þessu sviði mætti nefna að
okkur hefði tekist að beita nútíma-
tækni, vísindum og stjórnun við að
nýta fiskimið okkar á sjálfbæran hátt.
„Sjávarútvegsstefna okkar hefur
vakið athygli víða um heim. Á hana
hefur margsinnis verið bent sem eina
af þeim fáu í heiminum sem stuðli að
sjálfbærri nýtingu fiskistofna um leið
og fyllstu arðsemissjónarmiða sé
gætt,“ sagði ráðherra og nefndi einn-
ig að um 70% af orku okkar væru frá
endurnýtanlegum orkugjöfum.
Forgangsmál í íslenskri
utanríkisstefnu
Benti Halldór á að við byggjum í
heimi hnattvæðingar og því stöðugt
háð utanaðkomandi straumum og
áhrifum. Halldór sagði því afar brýnt
að Íslendingar tækju þátt í skoðana-
myndun og stefnumörkun á alþjóða-
vettvangi og hefði hann lagt á það
áherslu í störfum sínum sem þing-
maður og ráðherra. „Við Íslendingar
hljótum að leggja áherslu á samvinnu
við þjóðir í norðurhöfum sem hafa
svipaða hagsmuni og við að því er
varðar nýtingu og varðveislu auð-
linda,“ sagði hann. „Það er okkur afar
mikilvægt að ná samstöðu með þjóð-
um sem hafa skilning á málefnum
norðurslóða og það á að vera mikið
forgangsmál í íslenskri utanríkis-
stefnu að sinna því.“
Ráðherra gerði mikilvægi norður-
slóða að umtalsefni, en náttúra þeirra
væri rík af auðlindum auk þess em
svæðið gegndi mikilvægu hlutverki í
vistkerfi jarðar.
Halldór sagði samstarf á vettvangi
norðurskautsráðsins ávallt hafa verið
byggt á vísindalegum grunni. Meðal
verkefna mætti nefna ítarlegt mat á
mengun á norðurslóðum og þá hefði
verið gerð úttekt um vernd og stöðu
líffræðilegrar fjölbreytni á svæðinu á
vegum Caff, sem hefði skrifstofu á
Akureyri. Á vegum Pame, sem einnig
hefði bækistöðvar á Akureyri hefði
verið unnin ítarleg framkvæmdaáætl-
un um vernd hafsins. Nú væri unnið
að umfangsmiklu mati á áhrifum
loftslagsbreytinga á norðurslóðum.
Öll þessi verkefni dýpkuðu skilning
okkar á umhverfi norðurslóða og
sköpuðu grundvöll fyrir upplýstri
ákvarðanatöku um hvernig umgang-
ast ætti svæðið.
Skýrsla verði gerð um
mannlíf á norðurslóðum
Í viðleitni til að efla starf norður-
skautsráðsins sem snýr að félags-
efnahags- og menningarlegum þátt-
um og einnig til að nálgast sýn Vil-
hjálms Stefánssonar á norðurslóðir
munu Íslendingar beita sér fyrir gerð
yfirgripsmikillar skýrslu um mann-
lífs-, byggða- og atvinnuþróun á norð-
urslóðum. Verður henni ætlað að taka
mið af þróunarskýrslum Sameinuðu
þjóðanna, auk nýlegra skýrslna um
umhverfismál innan ráðsins. Ætlunin
væri að gefa yfirsýn yfir sérstaka
áhrifaþætti og aðstæður á velferð á
norðurskautssvæðum sem og að
beina sjónum að margvíslegum þátt-
um sjálfbærrar þróunar og velmeg-
unar í norðri. Drög að uppbyggingu
og efnistökum þessarar tímamóta-
skýrslu liggja fyrir hjá Stofnun Vil-
hjálms Stefánssonar og kvaðst Hall-
dór vænta þess að hún yrði samþykkt
á ráðherrafundi norðurskautsráðsins
í Inari næsta haust, þegar Íslands
tæki við formennsku í ráðinu.
Halldór vænti þess að skýrslan yrði
sambærileg við það mat sem farið
hefði fram á umhverfissviðinu. Hægt
yrði að nota skýrsluna sem viðmið
þróunar, auk þess sem hún ætti að
auka þekkingu og skilning á sjálf-
bærri mannlífsþróun á meðal ráð-
manna og almennings innan og utan
svæðisins. „Svo yfirgripsmikið verk
ætti að auðvelda skilgreiningar á
sameiginlegum viðfangsefnum, úr-
bótum og tækifærum hvað varðar lífs-
skilyrði, velferð og valmöguleika fólks
á norðurslóðum,“ sagði Halldór.
Hann nefndi einnig mikilvægi Há-
skólans á Akureyri sem meðal annars
væri í samstarfi um háskóla norður-
slóða en ræddi að lokum um innra
samstarf aðildarríkja norðurskauts-
ráðsins. Í því sambandi mætti að hans
mati hugsa sér aukið samstarf ráðsins
við samtök sveitarstjórna á norður-
slóðum, aukið samstarf rannsókna-
stofnana um ástand og nýtingu auð-
linda og eins hefði það mikla þýðingu
að efla samvinnu rannsóknasjóða.
Utanríkisráðherra fjallaði um væntanlega
formennsku Íslands í norðurskautsráðinu
Samstarf ávallt byggt
á vísindalegum grunni
Morgunblaðið/Kristján
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra flytur fyrirlestur um for-
mennsku Íslands í norðurskautsráðinu í Háskólanum á Akureyri í gær.
Morgunblaðið/Kristján
Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri ÚA, leggur spurningu fyrir
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra á fyrirlestri ráðherrans í gær.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Náttúru-
verndarsamtökum Íslands, og er
fyrirsögnin samtakanna:
„Í sameiginlegri fréttatilkynningu
Landsvirkjunar og VSÓ-ráðgjafar
frá 18. apríl er því hafnað að fyr-
irtækin hafi reynt að leyna upplýs-
ingum um neikvæð umhverfisáhrif
fyrirhugaðrar Norðlingaölduveitu í
matsskýrslu. Tilefnið var frétt Rík-
isútvarpsins þann 17. apríl, þess
efnis að ,, …einn höfunda mats-
skýrslunnar, undirverktaki hjá
VSÓ-ráðgjöf, gerði alvarlegar at-
hugasemdir við það að mikilvægar
upplýsingar hefðu ekki ratað þar
inn og þeim hefði jafnvel verið hald-
ið leyndum. Þær upplýsingar sem
snertu áhrif á dýralíf og náttúrufar
hafi verið þess eðlis að umhverfis-
áhrif yrðu mun meiri en gefið væri í
skyn í drögum að skýrslunni til
Skipulagsstofnunar …“
Í yfirlýsingu Landsvirkjunar og
VSÓ-ráðgjafar er hins vegar fullyrt
,, … að sérfræðiskýrslur sem snerta
mat á umhverfisáhrifum Norðlinga-
ölduveitu eru opinber gögn og að-
gengileg hverjum þeim sem vill
kynna sér þau, m.a. á slóðinni nor-
dlingaalda.is …“
Umhverfismatsskýrsla um Norð-
lingaölduveitu, sem mun skerða
Þjórsárverafriðland, hefur nú verið
auglýst af Skipulagsstofnun. Í lista
yfir heimildir er hvergi getið
skýrslu sem ofangreindur undir-
verktaki, dr. Ragnhildur Sigurðar-
dóttir vistfræðingur vann fyrir
VSÓ-ráðgjöf um umhverfisáhrif
Norðlingaölduveitu. Ekki er heldur
getið þeirra athugasemda, dags. 26.
mars 2002 (13 bls.), sem dr. Ragn-
hildur sendi VSÓ-ráðgjöf þar sem
hún gerir ,,…alvarlega[r] athuga-
semdir við það að hvergi í texta er
gerð grein fyrir tilvitnunum í sam-
antektir eða frumrannsóknir Ragn-
hildar Sigurðardóttur í tengslum við
mat á umhverfisáhrifum Norðlinga-
ölduveitu …“
Dr. Ragnhildur gagnrýnir enn-
fremur að framkvæmdaraðili/
skýrsluhöfundar hafi í matsskýrslu
gengisfellt einkunnagjafir um um-
hverfisáhrif ,, … í nær öllum tilfell-
um … “
Athugasemdir dr. Ragnhildar og
skýrsla hennar hafa borist Skipu-
lagsstofnun og Náttúruverndarsam-
tök Íslands fengu afrit af þeim með
tilvísan til upplýsingalaga. Lands-
virkjun og VSÓ-ráðgjöf hafa hins
vegar kosið að láta þessi gögn liggja
í þagnargildi. Þvert á gefin fyrirheit
um að birta allar ,, … sérfræði-
skýrslur sem snerta mat á umhverf-
isáhrifum Norðlingaölduveitu …“ á
vefsíðu sinni, nordlingaalda.is. “
Náttúruverndarsamtök Íslands
Upplýsingum leynt
í matsskýrslu
FRIÐRIK Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar, hafnar því að Lands-
virkjun og VSÓ-ráðgjöf hafi reynt að
leyna upplýsingum um neikvæð um-
hverfisáhrif fyrirhugaðrar Norðlinga-
ölduveitu í skýrslu um mat á um-
hverfisáhrifum Norðlingaölduveitu.
„Ég vil taka það skýrt fram að það er
stefna Landsvirkjunar að allar rann-
sóknarskýrslur séu birtar og sendar
skipulagsstjóra sem úrskurðar um
matið,“ segir Friðrik.
„Að sjálfsögðu kemur ekki til
greina að leyna neinum gögnum sem
skipta máli. Slík vinnubrögð kæmu
okkur einungis í koll. Þess vegna
harma ég það að einstakir aðilar skuli
vísvitandi halda hinu gagnstæða
fram.“
Náttúruverndarsamtök Íslands
benda m.a. á að í fyrrgreindri mats-
skýrslu sé hvergi getið skýrslu dr.
Ragnhildar Sigurðardóttur vistfræð-
ings sem hún vann fyrir VSÓ-ráðgjöf
um umhverfisáhrifin. Friðrik segir
um þetta að ekki hafi verið um
skýrslu að ræða hjá Ragnhildi heldur
samantekt vinnugagna. Þau gögn hafi
verið send Skipulagsstofnun. „Gögnin
gátu ekki orðið hluti af skýrslunni
enda er um að ræða samantekt en
ekki rannsóknarskýrslu,“ útskýrir
Friðrik. „Hins vegar þótti okkur og
þeim hjá VSÓ ástæða til að senda
samantektina til Skipulagsstofnunar
til þess að hún gæti tekið tillit til
þeirra sjónarmiða sem þar koma
fram. Að sjálfsögðu var þar ekki verið
að fela neitt.“
Friðrik telur það vera alvarlegt mál
þegar háskólaprófessor, eins og Gísli
M. Gíslason, haldi því fram að verið sé
að halda mikilvægum upplýsingum
leyndum og að verið sé að fela hluta af
því sem fram kemur í rannsóknar-
skýrslunum. „Þeir sem rannsökuðu
umhverfisáhrifin lásu yfir þá kafla í
matsskýrslunni sem fjölluðu um
rannsóknir þeirra. Tekið var tillit til
allra athugasemda þeirra. Gísli M.
Gíslason er einn þeirra sem rannsak-
aði ákveðinn þátt umhverfisáhrif-
anna. Hann las sinn kafla yfir og tók-
um við tillit til allra athugasemda
hans sem komu framkvæmdinni við.“
Friðrik segir að síðustu að verið sé
að kynna matsskýrsluna og að það sé
gert í þeirri von að réttar upplýsingar
komist til skila og að umræðan bygg-
ist á staðreyndum en ekki sögusögn-
um. „Það er ekkert við því að segja að
fólk andmæli framkvæmdinni á sín-
um forsendum en það er hins vegar
alvarlegt mál þegar fólk sem veit bet-
ur er vísvitandi að gefa í skyn að ekki
hafi verið staðið eðlilega að málum.“
Forstjóri Landsvirkjunar
Vísar gagnrýni um
leynd upplýsinga á bug
GUÐJÓN Jónsson, verkefnisstjóri
mats á umhverfisáhrifum Norð-
lingaölduveitu fyrir VSÓ-ráðgjöf,
segir að skýrsla sú sem Náttúru-
verndarsamtök Íslands vísi í og gerð
hafi verið af dr. Ragnhildi Sigurð-
ardóttur vistfræðingi sé ekki skýrsla
heldur samantekt vinnugagna, þ.e.
fagleg samantekt hennar úr sér-
fræðiskýrslum. „Hluti af náttúrufar-
sköflunum (í matsskýrslunni) er
byggður á þessari vinnu Ragnhild-
ar,“ segir Guðjón.
Hann segir að VSÓ hafi gert sam-
komulag um það við Ragnhildi að
hún færi yfir drög að matsskýrsl-
unni til að tryggja að þar væri ekki
verið að tileinka henni hluti sem hún
væri ekki sátt við. Hún hafi hins veg-
ar, þegar hún hafi verið búin að fara
yfir skýrsluna, gert athugasemdir
við aðra þætti en þá sem sneru að
henni. Guðjón segir að Skipulags-
stofnun hafi fengið upplýsingar um
þessar athugasemdir og óskað eftir
því að þær yrðu lagðar fram. Það
hafi VSÓ gert enda umhugað um að
öll gögn væru á borðinu hjá þeim að-
ila sem ætti að úrskurða í málinu.
Guðjón ítrekar hins vegar að VSÓ
líti svo á að gögnin frá Ragnhildi séu
vinnugögn en ekki formlegar
skýrslur. Af þeim sökum hafi VSÓ
ekki sett gögnin á vefinn nordlinga-
alda.is, en þar séu eingöngu settar
formlegar skýrslur.
Guðjón Jónsson hjá VSÓ-ráðgjöf
Ekki formleg skýrsla