Morgunblaðið - 08.05.2002, Qupperneq 20
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
20 MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
„STÖÐUGT fleiri ríki verða aðilar
að Evrópusambandinu. Það er okk-
ar val að standa fyrir utan og við
verðum að gera það besta úr þeirri
stöðu,“ segir Siri Bjerke í samtali
við Morgunblaðið.
Næringslivets Hovedorganisa-
sjon (NHO) í Noregi eru hlynnt að-
ild Noregs að Evrópusambandinu
en þrýsta þó ekki á um að teknar
verði upp aðildarviðræður eins og
staðan er nú og nefna árið 2007 sem
hugsanlegan tíma fyrir aðildarvið-
ræður. Mjög æskilegt væri að auð-
lindastefna ESB breyttist fyrst.
Siri Bjerke er fyrrverandi um-
hverfisráðherra Noregs, sat í rík-
isstjórn Verkamannaflokksins undir
forsæti Jens Stoltenberg þar til á
síðasta ári þegar skipt var um
stjórn. Bjerke tók þá við stöðu eins
af fimm forstöðumönnum NHO sem
um 16 þúsund fyrirtæki í Noregi
eiga aðild að. Bjerke er forstöðu-
maður stefnumótunar í atvinnulíf-
inu. Þess má geta að hún tók við
stöðunni af Kristin Clemet, sem nú
er menntamálaráðherra Hægri-
flokksins í ríkisstjórn Kjell Magne
Bondevik.
Bjerke fjallaði um Evrópustefnu
norskra atvinnurekenda á aðalfundi
Samtaka atvinnulífsins í gær. Hún
sagði EES-samninginn standa fyrir
sínu í öllum málaflokkum en hann
væri ekki hagstæður fiskútflutningi
og orkugeiranum.
Samvinna á milli Noregs
og Íslands mikilvæg
Siri Bjerke leggur áherslu á að
hún sé ekki hér á landi til að taka
þátt í íslenskri Evrópuumræðu,
heldur til að kynna sér hana. „Það
er að mínu mati mikilvægt að vita
um hvað er rætt í mismunandi ríkj-
um, sérstaklega á Íslandi, þar sem
Noregur og Ísland standa bæði ut-
an ESB og eru aðilar að EES-samn-
ingnum. Það er mjög mikilvægt að
Ísland og Noregur vinni saman. Það
gerum við í því samstarfi sem tengt
er EES-samningnum. Að mínu mati
er einnig mikilvægt að samtök eins
og samtök atvinnulífsins í báðum
ríkjum eigi mikil samskipti sín á
milli hvað Evrópumálin varðar,
þrátt fyrir ólík sjónarmið og skoð-
anir á sumum sviðum.“
En hver er stefna NHO í Evrópu-
málum?
„NHO hefur allt frá árinu 1972,
þegar fyrsta þjóðaratkvæðagreiðsl-
an fór fram í Noregi, verið hlynnt
aðild Noregs að Evrópusamband-
inu. Það er markmið okkar að Nor-
egur verði aðili en við viljum ekki
þrýsta á um að taka upp aðildarvið-
ræður eins og staðan er í dag, þetta
er fremur langtímamarkmið. Það
þurfa að eiga sér stað ákveðnar
breytingar hjá þjóðinni áður en að-
ildarviðræður geta átt sér stað á ný.
Sumir telja mikilvægt að setja Evr-
ópumálin á dagskrá í Noregi núna
en NHO er ekki í þeirra hópi.
Stefnumótun NHO nú gengur út á
að auka þekkingu atvinnulífsins á
EES-samningnum og notkun hans
og halda Evrópuumræðu á lofti. Það
er einnig hlutverk NHO að benda á
það sem hefur áhrif á samkeppn-
ishæfni norsks atvinnulífs og leiðir
til að bæta samkeppniskilyrðin.
Einnig að hvetja stjórnvöld til að
minna á EES-samninginn, bæði í
Noregi en ekki síður í Evrópusam-
bandsríkjum þar sem hann vill oft
gleymast vegna þeirra stóru verk-
efna sem ESB vinnur nú að, eins og
stækkun sambandsins. Við erum í
stöðugu sambandi við norsk stjórn-
völd um EES-samninginn og notk-
un hans. Það er einnig okkar starf
að benda á veikleika EES-samn-
ingsins fyrir norskt atvinnulíf. Fyr-
ir mikilvægan hluta af norskum
sjávarútvegi virkar samningurinn
ekki vel, þ.e. fyrir útflutning á fisk-
afurðum. Þetta er stórt vandamál
fyrir norskt atvinnulíf en stór hluti
af atvinnulífinu eru fiskvinnslufyr-
irtæki sem stunda útflutning.“
Hvernig er hægt að leysa þetta
vandamál?
„Það er ekki hægt að leysa þetta
vandamál á viðunandi hátt miðað
við núverandi ástand, að mati NHO.
Þess vegna reynum við að gera það
besta úr því sem við höfum, þ.e.
EES-samningnum. ESB hefur gefið
það skýrt til kynna að ekki sé vilji
fyrir hendi til að ræða uppfærslu á
EES-samningnum og því þarf að
sætta sig við samninginn eins og
hann er nú. NHO vill hvetja til upp-
lýstrar umræðu um Evrópumálin
og fræða atvinnulífið um allar hliðar
EES-samningsins, þ.e. núverandi
ástand. Það er svo undir norsku
þjóðinni komið að ákveða endanlega
hvað verður.“
Norska útgerðin
ekki aðili að NHO
NHO eru stærstu samtök innan
atvinnulífsins í Noregi en uppbygg-
ing samtakanna er ekki sú sama og
á Íslandi. Fyrirtæki í fjármálaþjón-
ustu eiga ekki aðild að NHO og að-
eins hluti norska sjávarútvegarins á
aðild að NHO, þ.e. fyrirtæki í fisk-
eldi og fiskvinnslufyrirtæki. Hins
vegar er útgerðin ekki hluti af
NHO, heldur myndar hún sérstök
samtök, Norges Fiskarlag. Norskir
útvegsmenn eru yfirlýstir andstæð-
ingar aðildar Noregs að ESB.
Stefna NHO í Evrópumálum væri
varla raunhæf ef útgerðin ætti aðild
að NHO?
„Í rauninni hefur það aldrei kom-
ið til tals að Norges Fiskarlag verði
hluti af NHO, burtséð frá Evrópu-
umræðunni. Þetta hefur því aldrei
verið neitt vandamál. En innan
sumra annarra atvinnugreina sem
eiga aðild að NHO er hins vegar
andstaða við Evrópusambandsaðild.
Þetta eru t.d. fyrirtæki í matvæla-
iðnaði sem hafa efasemdir varðandi
landbúnaðarstefnu ESB. Það er því
mismunandi afstaða innan þeirra
atvinnugreina sem eiga aðild að
NHO, en meirihlutinn er hlynntur
aðild.“
Í erindi sínu á aðalfundi SA sagði
Siri Bjerke m.a. að það væri mik-
ilvægt að auðlindastefna Evrópu-
sambandsins myndi breytast. „En
það er þó möguleiki að Evrópuum-
ræðan komist á dagskrá í Noregi
fyrr. Þetta er afar mikilvægur mála-
flokkur og það verður eitthvað að
breytast. Og það er í rauninni verið
að vinna að því með endurskoðun
fiskveiðistefnunnar.“ Bjerke vísar
þarna fyrst og fremst til andstöðu
norsku útgerðarinnar við fiskveiði-
stefnu ESB, sem vegur þungt í at-
vinnulífi landsins. Hún segir að
þessi málaflokkur komi öllum ríkj-
um við og hafi ekki sérstaklega með
aðild Noregs að gera.
Evrópuumræðan ekki á dagskrá
fyrr en 2007
Bjerke nefndi í ávarpi sínu að
norska ríkisstjórnin hefur lýst því
yfir að EES-samningurinn verði
látinn duga á hennar kjörtímabili og
ef Evrópumálin komist á dagskrá,
verði ríkisstjórnin að fara frá.
„NHO er þeirrar skoðunar að Evr-
ópumálin komist ekki á dagskrá fyr-
ir næstu þingkosningar sem verða
árið 2005 þannig að ríkisstjórnin
þarf ekki að hafa áhyggjur af þessu.
Að okkar mati verða Evrópumálin
ekki tekin á dagskrá fyrr en árið
2007, og í fyrsta lagi þá, það gæti
orðið seinna. Það skapar ekki
vandamál, þar sem breytingar á
þessu mega ekki verða of hratt, að
mati NHO. Það tekur mörg ár, án
þess að við viljum setja niður ákveð-
inn árafjölda.“
Bjerke bendir á að íbúar EFTA-
ríkjanna verði sífellt lægra hlutfall
af íbúum ESB-ríkja, þ.e. úr 8% í 1%
árið 2005. Hún leggur áherslu á að
menn geri sér grein fyrir að EFTA-
ríkin eru að verða jaðarsvæði í Evr-
ópu og við því verði að bregðast
En hvernig er hægt að bregðast
við þessari þróun?
„NHO fylgir ákveðinni stefnu-
mótun til að koma til móts við þessa
þróun. EES-samningurinn er góður
efnahagssamningur og við höfum
lagt áherslu á að auka þekkingu á
honum. Við höfum lagt áherslu á að
gera norskt atvinnulíf, norsk fyr-
irtæki, samtök og rannsóknarstofn-
anir hæfari til að nýta þá möguleika
sem eru fyrir hendi. Samkeppnis-
hæfni er mjög mikilvæg og á það
hefur NHO lagt mikla áherslu. Í
þeim atvinnugreinum sem standa
höllum fæti með Noreg utan ESB
og EES-samningurinn kemur ekki
til móts við, höfum við lagt mikla
áherslu á nýsköpun, rannsóknir og
þróun. Þetta er t.d. hluti sjávarút-
vegarins og orkugeirans. Innri
markaðurinn virkar hins vegar vel
fyrir stærsta hluta norsks atvinnu-
lífs.“
Á fundi ESB-ríkja í Lissabon fyr-
ir tveimur árum var sú stefna mót-
uð að hagkerfi Evrópusambandsins
yrði sveigjanlegt þekkingarhagkerfi
og samkeppnishæfni þess sú mesta í
heimi fyrir árið 2010. Siri Bjerke
segir nauðsynlegt að þau Evrópu-
ríki sem standi utan ESB móti sér
stefnu í takt við þessa ályktun og
því hafi NHO beitt sér fyrir í Nor-
egi. „Að okkar mati hafa norsk
stjórnvöld ekki tekið það nógu al-
varlega að nauðsynlegt sé að vinna
samkvæmt sambærilegu markmiði í
Noregi. Við þurfum að fylgjast með
því hvað ESB gerir, hvaða markmið
eru sett, hvernig árangur er mæld-
ur og svo framvegis. Þetta þurfum
við líka að gera, þannig að hægt sé
að bera árangurinn saman frá ári til
árs.“
steingerdur@mbl.is
Aðild að ESB
langtímamarkmið
Siri Bjerke, forstöðumaður hjá NHO, Sam-
tökum atvinnulífsins í Noregi, segir mikil-
vægt að EFTA-ríkin átti sig á að þau eru að
verða jaðarsvæði í Evrópu og við því þurfi
að bregðast. Steingerður Ólafsdóttir ræddi
við Bjerke sem ávarpaði aðalfund SA.
Morgunblaðið/Kristinn
Siri Bjerke, forstöðumaður hjá
Samtökum atvinnulífsins í Noregi.
LANDSSAMTÖK lífeyrissjóða
héldu aðalfund sinn í gær og flutti
Geir H. Haarde, fjármálaráðherra,
erindi á fundinum. Geir ræddi meðal
annars um reglur sem settar hefðu
verið um fjárfestingarstefnu lífeyr-
issjóða í lífeyrislögunum, sem séu nú
tæplega fjögurra ára gömul. Um ný-
mæli hafi verið að ræða sem falið
hafi í sér rýmkun á fjárfestingar-
heimildum sjóðanna og að markmið-
ið hafi verið að stuðla að því að þeir
næðu góðri og tryggri ávöxtun til
lengri tíma litið en stilltu áhættu í
hóf.
Geir sagði verulega breytingu
hafa orðið á samsetningu eignasafna
lífeyrissjóðanna eftir lagasetninguna
og nú sé lögð aukin áhersla á fjár-
festingar í hlutabréfum og erlendum
verðbréfum. Hann sagði að hið
aukna svigrúm sem lífeyrissjóðunum
hefði verið veitt væri í samræmi við
sjónarmið forsvarsmanna lífeyris-
sjóða, skýrslur OECD og kenningar
sem almennt séu viðurkenndar á
hinum frjálsa fjármálamarkaði.
En þessu frelsi fylgir að sögn
Geirs mikil ábyrgð og mjög mikil-
vægt sé að þeir sem málum stýri hjá
sjóðunum axli þá ábyrgð, sérstak-
lega í ljósi þess að hér sé að verulegu
leyti um skyldubundinn sparnað að
ræða sem einstaklingum sé ekki
unnt að flytja annað ef þeim mislíki.
Geir sagðist þess vegna telja afar
mikilvægt að lífeyrissjóðirnir hygðu
vel að þessum þætti starfsemi sinn-
ar, ekki síst í ljósi reynslu undanfar-
inna missera, þótt þessi mál bæri að
meta í ljósi reynslu lengri tíma.
Eignir uxu um 14,5% milli ára
Þórir Hermannsson, formaður
Landssamtaka lífeyrissjóða, flutti
einnig ræðu á fundinum og sagði að
árið í fyrra hefði verið lífeyrissjóð-
unum erfitt, bæði hér á landi og er-
lendis, og vísaði í því sambandi til
lækkandi hlutabréfavísitalna. Hann
sagði raunávöxtun íslensku lífeyris-
sjóðanna hafa verið neikvæða tvö
undanfarin ár, en ef litið væri til síð-
ustu fimm ára væri meðalávöxtun al-
mennt mjög viðunandi og staðan
traust.
Í ræðu Þóris kom fram að heildar-
eignir lífeyrissjóðanna hafi um síð-
ustu áramót verið 648 milljarðar
króna. Þar af hafi erlendar eignir
numið 21,2%, sem sé lækkun frá
fyrra ári þegar þær numu 22,6%
heildareignanna. Heildareignirnar
hafi hins vegar vaxið um 14,5% milli
ára og hrein eign lífeyrissjóðanna
um áramót hafi svarað til 87% af
vergri landsframleiðslu, sem sé
aukning frá fyrra ári. Sjóðfélagalán
hafi vaxið um 32% og verið 74 millj-
arðar króna um áramót. Vöxturinn
árið á undan hafi einnig verið mikill,
eða 26%.
Morgunblaðið/RAX
Á aðalfundi Landssamtaka lífeyrissjóða gerði Geir H. Haarde fjármálaráð-
herra fjárfestingarstefnu þeirra að umtalsefni.
Eignir lífeyris-
sjóða 87% af
landsframleiðslu