Morgunblaðið - 08.05.2002, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2002 51
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
NAUT
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert með áhrifaríka rödd
og söngur á vel við þig. Þú
ert skynsamur og hugsar þig
vel um áður en þú fram-
kvæmir.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það er sótt að þér úr öllum
áttum svo þú mátt hafa þig
allan við að verja þig og
þína. Stattu fast á rétti þín-
um.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Gerðu nú það sem þig hefur
alltaf langað til. Þú hefur
lagt mjög hart að þér að
undanförnu og átt því alveg
skilið að sinna sjálfum þér í
dag.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú skalt berjast fyrir rétti
þínum ef einhver reynir að
vaða yfir þig. Stattu fast á
þinni skoðun.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú ert ekki sammála því
hvernig málum er háttað í
vinnunni. Þú hefur aðrar
hugmyndir, reyndu að koma
þeim á framfæri.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er nauðsynlegt að fara
að öllum öryggisreglum
þegar lífið er teygt út úr
hversdagsleikanum. Kynntu
þér aðstæður og vertu við
öllu búinn.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Ekki hlusta á þá sem segja
að draumar þínir geti aldrei
ræst. Haltu frekar þínu
striki því trúin flytur fjöll.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú þarft að berjast fyrir til-
verurétti þínum í dag. Aðrir
reyna að eigna sér það sem
þú hefur skapað.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Ráðfærðu þig við þá sem
næst þér standa. Þótt þér
finnist þú hafa allt á hreinu
ertu samt ekki viss um
hvaða skref þú átt að stíga
næst.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Ef ekkert er að gert lognast
sambandið við vinina út af
og þú getur engum um
kennt nema sjálfum þér.
Mundu að vini sína á maður
að rækta.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú átt eftir að koma sjálfum
þér og öðrum ánægjulega á
óvart í dag. Þú hefur hlutina
í hendi þér og blómstrar í
mannlegum samskiptum.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú ert í rómantískum hug-
leiðum og ættir að gera þér
glaðan dag með ástvini þín-
um. Vertu svolítið frumleg-
ur í þetta skiptið.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Nú er að duga eða drepast
svo láttu ekki hugfallast þótt
einhver reyni að draga úr
þér kjarkinn. Þú veist hvar
þú getur sótt í styrkinn.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
STÖKUR
Raun er að koma í ráðaþrot,
ragna flæktur böndum.
Lífið alt er boðabrot
borið að heljar ströndum.
Sig að skoða í réttri raun,
reynist voði öllum,
lífsins gnoð þá hrekst í hraun
heims í boðaföllum.
Erlendur Gottskálksson
ÞEGAR sagnir eru að fjara
út í fjórðu hendi gilda önnur
lögmál um innákomur en
venjulega. Stökkin eru til
dæmis sterk, en ekki veik:
Vestur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ K3
♥ 10865
♦ KD72
♣G43
Suður
♠ ÁG9
♥ ÁDG943
♦ 83
♣82
Vestur Norður Austur Suður
1 lauf Pass Pass 2 hjörtu
Pass 4 hjörtu Pass Pass
Pass
Suður sýnir sexlit í hjarta
og 12-15 punkta með því að
stökkva í tvö hjörtu í vernd-
arstöðunni og norður lætur
vaða í fjögur. Vestur tekur
tvo fyrstu slagina á ÁK í
laufi og spilar drottningunni
í þriðja slag, sem suður
trompar, en austur fylgir lit
alla leið. Er þetta flókið spil?
Varla, en það væri óþarfa-
hvatvísi að spila strax spaða
á kónginn og svína fyrir
trompkónginn. Vissulega er
„rétt“ að svína þegar vörnin
á kóng þriðja í lit, en allt er
aðstæðum háð. Hér hefur
austur passað opnun félaga
síns og getur ekki átt mikil
spil.
Norður
♠ K3
♥ 10865
♦ KD72
♣G43
Vestur Austur
♠ D1074 ♠ 8652
♥ K ♥ 72
♦ G109 ♦ Á654
♣ÁKD106 ♣975
Suður
♠ ÁG9
♥ ÁDG943
♦ 83
♣82
Auðvitað gæti austur ver-
ið með hjartakónginn, en
hann á örugglega ekki
BÆÐI með hjartakóng og
tígulás. Því er sniðugt að
kanna tígulstöðuna fyrst –
spila tígli að blindum. Vænt-
anlega tekur austur slaginn
og þá er eina vonin sú að
fella hjartakónginn stakan í
vestur.
Þetta er nett spila-
mennska en engin snilld.
Hitt væri nær því að vera
snilld ef austur fyndi þá
vörn að dúkka tígulkónginn
fumlaust á réttum forsend-
um.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 c5 4.
exd5 Dxd5 5. Rgf3 cxd4 6.
Bc4 Dd6 7. 0–0 Rf6 8. Rb3
Rc6 9. Rbxd4 Rxd4 10. Rxd4
a6 11. c3 Dc7 12. Bd3 Bd6
13. h3 0–0 14. Df3 b6 15. Bg5
Bb7 16. De2 Kh8 17. Hfe1
Hg8 18. Had1 Dc5
19. Bc1 Dh5 20.
Dxh5 Rxh5
Staðan kom upp á
Reykjavíkurskák-
mótinu sem lauk um
miðjan mars. Róbert
Harðarson (2.298)
hafði hvítt gegn
Hörpu Ingólfsdótt-
ur (2.053). 21. Rxe6!
Eins og framhaldið
teflist þá fær hvítur
tvo létta menn fyrir
hrók og dugði það til
sigurs. 21. ...fxe6 22.
Be2 Rf4 23. Hxd6
Rxg2 24. Hed1 b5 25. Hb6
Hab8 26. Hxb7 Hxb7 27.
Kxg2 a5 28. Bf4 Hf7 29. Be5
Hgf8 30. f4 Kg8 31. Bxb5 g5
32. Bc4 kHe8 33. fxg5 Hf5
34. Bf6 h6 35. h4 Hf4 36.
Bb5 Hf8 37. Kg3 e5 38.
Bxe5 Hf3+ 39. Kg4 h5+ 40.
Kxh5 Kf7 41. Bc4+ Ke8 42.
Bf6 H8xf6 43. gxf6 Hxf6 44.
Kg5 Hf2 45. He1+ og svart-
ur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Árnað heilla
Með morgunkaffinu
50ÁRA afmæli. Á morg-un, fimmtudaginn 9.
maí, er fimmtugur Eggert
Valur Þorkelsson, öku-
kennari, Óttuhæð 9, Garða-
bæ. Hann og eiginkona
hans, Helga Bjarnadóttir,
taka á móti ættingjum og
vinum í kvöld kl. 20 í
Stjörnuheimilinu, Garðabæ.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Fólk getur hringt í síma
569-1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á net-
fangið ritstj @mbl.is. Einn-
ig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
Ég fór í bíó í dag. Þú ættir að prófa það, séra minn.
Það er miklu skemmtilegra en að fara í kirkju.
Nei! Ég hef ekki lesið biblíuna. Ég er að bíða eftir
að hún komi á Netið.
Bridsfélag Hafnarfjarðar.
Mánudaginn 6. maí var spilað
þriðja kvöldið af þremur í þriggja
kvölda hraðsveitakeppni Bridsfélags
Hafnarfjarðar.
Spiluð voru 30 spil og var miðl-
ungur 540.
Hæstu skor kvöldsins:
1. Svenni sterki 685
2-3. Hrund Einarsdóttir 607
2-3. Hulda Hjálmarsdóttir 536
Lokastaðan:
1. Svenni sterki 1845
2. Hulda Hjálmarsdóttir 1674
3. Hrund Einarsdóttir 1654
Aðalfundur Bridgefélags Hafnar-
fjarðar verður haldinn föstudaginn
10. maí kl. 20 á Álfafelli við Strand-
götu. Vetrarstarfi Bridgefélags
Hafnarfjarðar er nú lokið og þakkar
stjórn Bridgefélags Hafnarfjarðar
öllum spilurum þátttökuna í vetur og
óskar þeim gleðilegs sumars.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Gullsmárabrids
Eldri borgarar spiluðu tvímenn-
ing á níu borðum í Gullsmára 13
mánudaginn 6. maí. Miðlungur 168.
Efst vóru:
NS
Ernst Backman – Karl Gunnarsson 198
Guðmundur Pálsson – Kistinn Guðm. 184
Sverrir Gunnarsson – Einar Markúss. 172
AV
Jónas Jónsson – Unnur Jónsdóttir 200
Helga Helgad. – Þórhildur Magnúsd. 193
Auðunn Bergsv. – Sigurður Björnss. 189
Spiladagar: Mánudagur og
fimmtudagur. Ekki spilað uppstign-
ingardag, 10. maí.
Bikarkeppni Bridssam-
bandsins að hefjast
Skráning er hafin í hina árlegu
bikarkeppni BSÍ. Skráningarfrestur
er til 17. maí nk. en dregið verður í 1.
umferð um hvítasunnuna. Keppnis-
gjald er 4.000 kr. fyrir hverja um-
ferð.
Síðasti spiladagur hverrar um-
ferðar:
1. umf. sunnudagur 23. júní
2. umf. sunnudagur 21. júlí
3. umf. sunnudagur 18. ágúst
4. umf. sunnudagur 15. sept.
VEGHÚS - 70 FM
www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Allar upplýsingar veittar
á skrifstofu í símum
588 4477 eða 899 9271
Útborgun aðeins
1,0 millj. Falleg nýl. íb.
á jarðh. m. litlum sérgarði.
Parket, þvottaaðstaða og
geymsla í íbúð. Áhvílandi
Íb.ls. ca 6,3 millj. og 1,8
millj. viðbótarlán. Greiðslu-
byrði ca 43 þ. á mán. V. 9,2
millj. 5752
Lagersala á Fiskislóð 73
(úti á Granda), 101 Reykjavík.
Miðvikudaga kl. 14:00 til 18:00
Fimmtudaga kl. 14:00 til 18:00
Föstudaga kl. 14:00 til 18:00
Laugardaga kl. 12:00 til 16:00
Outlet
Mikið úrval af skóm á ótrúlegu verði !!!
Opnunartími:
Bridsdeild Félags
eldri borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði í Glæsibæ mánudaginn 29. apr-
íl. 18 pör. Meðalskor 216 stig.
Árangur N-S:
Kristján Ólafsson – Ólafur Gíslason 273
Eysteinn Einarss. – Jón Stefánsson 245
Alda Hansen – Soffía Theódórsdóttir 242
Árangur A-V:
Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 285
Þorsteinn Laufdal – Magnús Halldórss. 230
Júlíus Guðmundss. – Rafn Kristjánss. 229
Úrslit í tvímenningskeppni sem
spiluð var fimmtud. 2. maí. 18 pör.
Meðalskor 216 stig.
Árangur N-S:
Sæmundur Björnss. – Oliver Kristóf. 272
Ásta Erlingsd. – Sigurður Pálsson 251
Jón Lárusson – Halla Ólafsdóttir 241
Árangur A-V:
Magnús Oddsson – Magnús Halldórss. 263
Júlíus Guðmundss. – Rafn Kristjánss. 236
Albert Þorsteinsson – Bragi Björnsson 218