Morgunblaðið - 10.05.2002, Side 4

Morgunblaðið - 10.05.2002, Side 4
FRÉTTIR 4 FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ REYKJAVÍKURLISTINN Reykjavík er menningarborg Vi›munum • Byggja tónlistar- og rá›stefnuhús í mi›borginni • Gera Listahátí› a› árlegum stórvi›bur›i • Efla Menningarnótt enn frekar, ásamt Vetrarhátí› og Hátí› hafsins • Flétta menningu og listum í auknum mæli saman vi› skólastarf • Halda áfram öflugum stu›ningi vi› frumkvæ›i almennings, fyrirtækja og frjálsra félagasamtaka á svi›i menningar og lista. Vi› höfum • Opna› flrjú n‡ borgarbókasöfn, n‡tt Ljósmyndasafn, Borgarskjalasafn og n‡tt Listasafn Reykjavíkur • Komi› á Menningarnótt á hverju ári ásamt Vetrarhátí› • Stutt vi› baki› á óhá›um menningarhátí›um, kvikmyndahátí›, stuttmyndahátí›, kirkjulistahátí›, Myrkum músíkdögum, Airwaves, Hinsegin dögum og jasshátí› • Eflt Borgarleikhúsi› me› n‡jum sal, sta›i› a› strandlengjus‡ningu á útilistaverkum og gert Reykjavík a› menningarborg Evrópu. ÁRSMEÐALRENNSLI um farveg Þjórsár neðan Norðlingaöldu minnk- ar alls um 34 m³/sek. vegna stíflu sem Landsvirkjun fyrirhugar að reisa á svæðinu. Í árfarveginum fyrir neðan stífluna eru þrír fossar, Kjálkavers- foss, Dynkur og Gljúfurleitafoss og er Dynkur þeirra kunnastur. Á kynn- ingarfundi Landsvirkjunar á fram- kvæmdunum á þriðjudag lýstu Gnúp- verjar áhyggjum yfir minnkandi rennsli í fossunum þremur. Við Norðlingaölduveitu er meðal- ársrennsli í Þjórsá nú um 53 m³/sek., en verður eftir framkvæmdir 19 m³/ sek. Í matsskýrslu um framkvæmd- ina sem Skipulagsstofnun hefur nú til umfjöllunar kemur fram að töluvert bætist við rennslið fyrir neðan Norð- lingaöldu frá hliðarlækjum, t.d. frá Dalsá og Kisu, og hafa framkvæmd- irnar engin áhrif á það. Dagsrennsli yfir í farveg Þjórsár um yfirfall á stíflunni mun sveiflast frá því að vera ekkert yfir veturinn, í að vera allt upp í 80 m³/sek. á sumrin eftir að lónið hefur fyllst. Guðjón Jónsson verkfræðingur, sem hafði umsjón með gerð matsskýrslunnar, segir að meðaldagsrennsli í Dynk sé nú um 140–150 m³/sek. yfir sumarið, eftir framkvæmdirnar verði það um 100–110 m³/sek. Hann segir þó erfitt að meta sjónræn áhrif af skertu rennsli þar sem sveifla í dagsrennsli geti verið allt upp í 80 m³/sek. Hann segir að yfir sumarmánuðina, þegar ferðamenn gera sér helst ferð að fossunum, verði mögulegt að minnka dælingu úr ánni til að auka rennslið. Í matsskýrlslunni kemur fram að í riti Náttúruverndarráðs um fossa á Íslandi eftir Sigurð Þórarinsson, komi fram að æskilegt sé að friða Dynk. Ekki er þar fjallað um Kjálka- versfoss og Gljúfurleitarfoss. Í 37. grein í lögum um náttúruvernd er kveðið á um að fossar eigi að njóta sérstakrar verndunar og að forðast beri röskun á þeim eins og kostur er. Í matsskýrslunni segir að Lands- virkjun hafi dregið verulega úr áhrif- um á fossana með því að lækka lón- hæð úr 581 m.y.s. í 575 m.y.s. og þar með auka rennsli á yfirfalli. Því sé það mat framkvæmdaraðila að Norð- lingaölduveita brjóti ekki í bága við 37. grein náttúruverndarlaganna. Ársmeðalrennsli skerðist um 34 m³/sek. við Norðlingaöldu Morgunblaðið/RAX                                                        Á þessu línuriti kemur fram hvernig dagsmeðalrennsli í Dynk mun breytast. Ljósi liturinn neðst sýnir rennsli sem kemur í farveg Þjórsár úr hliðarlækjum og mun það ekki raskast við framkvæmdirnar. Í miðj- unni sést hvernig rennslið í Dynk verður eftir að veitan verður tekin í notkun og efst má sjá rennslið eins og það er í dag. STYRKJA þarf sendiráð Íslands í Evrópu og fjölga þannig að í öllum aðildarríkjum Evrópusambandsins í dag, að Lúxemborg undanskildu, verði sendiráð til staðar. Þetta er mat Baldurs Þórhallssonar, lektors í stjórnmálafræði við Háskóla Ís- lands, sem kannað hefur sérstak- lega hver áhrif samrunaferlisins í Evrópu og fyrirhuguð stækkun ESB hefði á íslenska stjórnsýslu. Ísland er nú með sendiráð í 8 ríkjum Evrópusambandsins, þ.e. Austurríki, Belgíu, Bretlandi, Dan- mörku, Finnlandi, Frakklandi, Sví- þjóð og Þýskalandi. Til viðbótar í ESB eru Spánn, Portúgal, Grikk- land, Írland, Holland, Ítalía og Lúxemborg. Af þessum löndum telur Baldur mikilvægast að Ísland opni sendiráð sem fyrst á Spáni og í Portúgal, vegna þeirra miklu við- skipta með sjávarafurðir sem eiga sér stað milli landanna. Í máli Baldurs á málþingi í Há- skólanum á miðvikudag, í tilefni Evrópudagsins 9. maí, kom fram að Ísland ætti ekki sendiráð í nein- um af þeim 13 ríkjum sem sótt hafa um inngöngu í Evrópusam- bandið. Baldur telur að í a.m.k. tveimur þeirra landa, Póllandi og Ungverjalandi, þyrftu Íslendingar að opna sendiráð sem til að byrja með myndu þjóna öðrum ríkjum Mið- og Austur-Evr- ópu sem sótt hafa um aðild. Góð tengsl nauðsynleg Spurður um ástæðu þess að Ísland þyrfti að vera með sendiráð í öllum ríkjum ESB bendir Baldur á að löndin skipti á milli sín forsætinu í ráð- herraráðinu og fram- kvæmdastjórninni og því sé mik- ilvægt að hafa góð tengsl við ríkisstjórnir allra landa. Nauðsyn- legt sé fyrir Ísland að afla sér bandamanna innan ráðherraráðs- ins, til að koma málum í gegn um ráðið og framkvæmdastjórnina. „Ég tel nú þegar brýna þörf á að opna sendiráð á Spáni og í Portú- gal, vegna hagsmuna okkar í sjáv- arútvegi. Á þetta hefur reynt innan EES-svæðisins því Spánverjar eru svo virkir og aðgangsharðir. Ég tel einnig að við þurfum að efla þau sendiráð sem við höfum nú þeg- ar í Evrópu, einkum til þess að afla upplýs- inga og stunda beinan „lobbýisma“ á stjórn- völd þeirra ríkja. Sendiráð okkar í Brussel er mjög öflugt en ef til aðildar að ESB kæmi þyrftum við að fjölga þar starfsmönnum,“ segir Baldur. Hann segir að styrkur utanríkisþjón- ustunnar hafi komið vel í ljós fyrir tæpum tveimur árum þegar fiskimjölsmál- ið svokallaða kom upp. Þá voru sendiráð Íslands virkjuð til að koma á framfæri mótmælum við þeim áformum að banna öll við- skipti með fiskimjöl landa á milli vegna kúariðufársins sem upp kom í Evrópu. Baldur segir að þegar slíkt komi upp, skipti miklu máli að eiga góð tengsl við stjórnmála- menn viðkomandi ríkja. Slík vinna sé fyrirbyggjandi sem ekki megi vanmeta. Baldur Þórhallsson, lektor í stjórnmálafræði Sendiráð í Evrópu verði styrkt og þeim fjölgað Baldur Þórhallsson ÞRIGGJA manna leiðangri Ís- lenskra fjallaleiðsögumanna yfir Grænlandsjökul, sem hófst 25. apríl, sækist vel og voru leiðangursmenn komnir á hábungu jökulsins á mánu- dag. „Þeir eru því töluvert á undan áætlun enda hefur veðrið verið gott og ferðin sóst vel,“ segir Ingibjörg Guðjónsdóttir hjá Íslenskum fjalla- leiðsögumönnum. „Ef heldur sem horfir verða þeir sennilega komnir heim 18. maí sem er fyrr en búist var við fyrirfram.“ Upphaflega var gert ráð fyrir að ferðin tæki a.m.k. þrjár vikur. Ferðin hefur þó ekki gengið með öllu áfallalaust fyrir sig. Ingibjörg segir að bensín, sem þeir nota á prímusa, hafi hellst yfir hluta af mat- arbirgðunum og skemmt þær. Það mun þó sennilega ekki koma að sök þar sem leiðangursmenn voru til ör- yggis með ríflegar vistir. Leiðangri yfir Grænlands- jökul sækist vel UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ og Lögreglan í Reykjavík munu efna til samráðsfundar með foreldrum barna úr Haga- og Melaskóla á næstu dögum, en foreldrarnir hafa lýst yfir áhyggjum af öryggi barna sinna meðan á fundi utanríksiráð- herra NATO stendur hér á landi, dagana 14.–15. maí. Aðallega verður fundað á háskólasvæðinu, en einnig í íþróttahúsi Hagaskóla. Að sögn Hannesar Heimissonar, sendifulltrúa hjá utanríkisráðuneyt- inu, verða öryggismál vegna fundar- ins kynnt fyrir foreldrum í samráði við Lögregluna í Reykjavík. Hannes segir að ekki þyki ástæða af hálfu ut- anríkisráðuneytisins til að fella niður skólahald meðan á fundinum stend- ur. „En við teljum að full ástæða sé til að fræða foreldra um eðli fundarins og þeirra öryggisráðstafana sem verðar hafðar uppi í tengslum við hann,“ sagði Hannes. Fundur með foreldrum vegna NATO-fundar ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.