Morgunblaðið - 10.05.2002, Side 52

Morgunblaðið - 10.05.2002, Side 52
DAGBÓK 52 FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Mánafoss og Rán fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: On- tika, Ottó og Eridanus fóru í gær. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 leikfimi og vinnustofa, kl. 12.45 dans, kl. 13 bókband, kl. 14 bingó. Miðvikud. 15. maí verð- ur miðbæjar- og vestur- bæjarferð frá Hraunbæ kl. 13. Ekið að Afla- granda og um miðbæ og vesturbæ. Komið við í Læknasafninu á Sel- tjarnarnesi. Kaffi drukkið í Aflagranda. Leiðsögumaður Gunnar Biering. Skráning í af- greiðslu, s. 562 2571. Árskógar 4. Bingó fell- ur niður. Kl. 13–16.30 opin smíðastofan. Hand- verkssýning verður föstudaginn 10. og laug- ardaginn 11. maí kl. 13– 16.30. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8 hárgreiðsla, kl. 8.30 böðun, kl. 9–12 bók- band, kl. 9–16 handa- vinna, kl. 10–17 fótaað- gerð, kl.13 frjálst að spila. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið á Hlaðhömrum er á þriðju- og fimmtudögum kl. 13–16.30, spil og föndur. Jóga á föstu- dögum kl. 11. Óvissu- ferð verður mánud. 13. maí, lagt af stað frá Da- mos kl. 13 og komið til baka um kl. 17. Uppl. hjá Svanhildi í s. 692 0814. Félagsstarfið, Dalbraut 18–20. Kl. 9–12 aðstoð við böðun, kl. 9–16.45 hárgreiðslustofan opin, kl. 9 opin handa- vinnustofan. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist spiluð í Fannborg 8 (Gjábakka) kl. 20.30. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10 hársnyrting, kl. 10– 12 verslunin opin, kl. 13 „opið hús“ spilað á spil. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Í dag föstudag brids, kl. 13.30. Morgungangan á morg- un laugardag, farið frá Hraunseli kl 10. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Sunnud: Fé- lagsvist kl. 13.30. Dans- leikur kl. 20. Caprí-tríó leikur fyrir dansi. Fuglaskoðun og sögu- ferð suður með sjó og á Reykjanes á morgun, leiðsögn Sigurður Krist- insson, kaffihlaðboð í Vitanum, Sandgerði. Takið með ykkur sjón- auka. Þeir sem eiga ósótta farmiða sæki þá á skrifstofu félagsins fyrir kl. 16 í dag, föstu- dag. Göngu-Hrólfar fara í leikhúsferð á Sólheima laugardaginn 18. maí að sjá „Hárið“. Brottför frá Ásgarði, Glæsibæ, kl. 14, allir velkomnir, skráning á skrifstofu FEB. Silfurlínan er op- in á mánu- og mið- vikudögum frá kl. 10–12 í s. 588 2111. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 myndlist og rósamálun á tré, kl. 9–13 hár- greiðsla, kl. 9.30 göngu- hópur, kl. 14 brids. Handverkssýning verð- ur í dag kl. 10-16, á morgun 11. maí kl. 13– 16 og mánudaginn 13. maí kl. 10–16. Fé- lagsvist fellur niður mánudag. Sunnudags- kaffið fellur niður sun- nud. 12. maí. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 10 boccia, gestir frá Reykjanesbæ í heim- sókn, frá hádegi spila- salur opinn, kl. 14.30 syngur Gerðubergskór- inn, stjórnandi Kári Friðriksson, kl. 15.30 gítartónlist flutt af nem- endum Tónskóla Sig- ursveins, umsjón Símon H. Ívarsson, kl. 16.30 dansleikur Hjördís Geirs og Ragnar Páll sjá um fjörið. Allir vel- komnir, enginn að- gangseyrir. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9.30 málm- og silf- ursmíði, kl. 13 bókband, kl. 13.15 brids. Nem- endur Digranesskóla bjóða eldri borgurum í Kópavogi til fræðslu og skemmtidagskrár kl. 10. Vorsýningin verður opnin frá kl. 14–18 í fé- lagsheimilinu 11. og 12. maí. Smiðjur verða í gangi frá kl. 15–16, og áhugavinna frá kl. 14– 16.30. „Smellur 2, aldrei of seint“ sýnir kl. 14 í Félagsheimili Kópa- vogs. Bókmenntaklúbb- ur flytur dagskrá í Menningarmiðstöðinni kl. 15 sunnudag. Ljóða- hópur flytur frumsamin ljóð kl. 20 11. maí í Gjá- bakka. Uppl. í s. 554 3400 og 564 5260. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 10 glerlist, bingó kl. 14. Nemendur Digranesskóla bjóða eldri borgurum í Kópa- vogi til fræðslu- og skemmtidagskrár föstu- daginn 10. maí kl. 10. Vorsýningin verður opin frá kl. 14–18 í félags- heimilinu 11. og 12. maí. Smiðjur verða í gangi frá kl. 15–16, og áhuga- vinna frá kl. 14–16.30. „Smellur 2, aldrei of seint“ sýnir kl. 14 í Fé- lagsheimili Kópavogs. Bókmenntaklúbbur flyt- ur dagskrá í Menning- armiðstöðinni kl. 15 sunnudag. Ljóðahópur flytur frumsamin ljóð kl. 20 11. maí í Gjá- bakka. Uppl. í s. 554 3400 og 564 5260. Hraunbær 105. Kl. 9–12 baðþjónusta, kl. 9–17 hárgreiðsla og fótaað- gerðir, kl. 9 handavinna, bútasaumur, kl. 11 spurt og spjallað. Mið- vikud. 15. maí verður farið frá Hraunbæ 105, kl. 13 ekið að Afla- granda, og um miðbæ- inn, vesturbæinn og komið við í Læknasafn- inu á Seltjarnanesi. Kaffi drukkið í Afla- granda. Leiðsögumaður: Gunnar Biering læknir. Skrán- ing á skrifstofu eða í s.: 587 2888. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 böðun, leikfimi og postulín, kl. 12.30 postu- lín. Fótaaðgerð, hár- snyrting. Allir velkomn- ir. Norðurbrún 1. Kl. 9–13 tréskurður, kl. 9–17 hárgreiðsla, kl. 10 boccia. Allir velkomnir. Vesturgata 7. Kl. 9–16 fótaaðgerðir og hár- greiðsla, kl. 9.15 handa- vinna, kl. 13.30 sungið við flygilinn, kl. 14.30 kaffi og dansað í að- alsal. Handverksýning verður 10., 11. og13. maí frá kl. 13–17. M.a. sem sýnt verður, hannyrðir, postulínsmálun, mynd- mennt, tréútskurður og leirmótun. Ragnar Páll Einarsson leikur á hljómborð dagana. 10. og 11. maí. Kl.15 sýna nemendur Sig- valda dans. Mánud. 13. maí kl. 15 syngja Hvannirnar undir stjórn Sigurbjargar Petru Hólmgrímsdóttur. Vitatorg. Kl. 9 smíði og hárgreiðsla, kl. 9.30 bókband og morg- unstund, kl. 10 leikfimi og fótaaðgerðir, kl. 12.30 leirmótun, kl. 13.30 bingó. Bridsdeild FEBK, Gjá- bakka. Brids kl. 13.15 í dag. Hana-nú, Kópavogi. Laugardagsgangan verður á morgun. Lagt af stað frá Gjábakka, Fannborg 8, kl. 10. Gott fólk, gott rölt. Gengið frá Gullsmára 13, kl. 10 á laug- ardögum. Ungt fólk með ungana sína. Hitt húsið býður ungum foreldrum (um 16–25 ára) að mæta með börnin sín á laugard. kl. 15–17 á Geysi, kakóbar, Aðalstræti 2. Opið hús og kaffi á könnunni, djús, leikföng og dýnur fyrir börnin. Skagfirðingafélagið í Reykjavík verður með boð fyrr eldri Skagfirð- inga í Drangey, Stakka- hlíð 17, sunnudaginn 12. maí kl. 14. Orlofsnefnd húsmæðra í Kópavogi. Á vegum nefndarinnar verða farnar tvær ferðir á þessu sumri: að Kirkju- bæjarklaustri 13.–15. júní, í Skagafjörð 22.– 24. ágúst. Hvíldar- og hressingardvöl að Laugarvatni 24.–30. júní. Innr. í s. 554 0388, Ólöf, og 554 2199, Birna. Vopnfirðingafélagið í Reykjavík. Árlegur kaffidagur félagsins verður í Félags- og þjónustumiðstöðinni Aflagranda 40 sunnud. 12. maí kl. 15. Kaffiveitingar, fé- lagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og taka með sér gesti. Í dag er föstudagur 10. maí, 130. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Hyggja holdsins er dauði, en hyggja andans líf og friður. (Rómv. 8, 6.) K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 ágang, 8 fen, 9 umgirt svæði, 10 kraftur, 11 sorp, 13 nabbinn, 15 hungruð, 18 óvættur, 21 hestur, 22 særa, 23 fífl, 24 straumvatns. LÓÐRÉTT: 2 hvefsin kona, 3 heiðurs- merkið, 4 tappi, 5 líffær- ið, 6 máttar, 7 vangi, 12 gyðja, 14 auðug, 15 nokk- uð, 16 píluna, 17 sori, 18 hugaða, 19 iðjan, 20 rusta. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 napur, 4 eyrir, 7 sálin, 8 díkið, 9 núa, 11 iðan, 13 æður, 14 aspir, 15 sálm, 17 apar, 20 enn, 22 máfar, 23 ofnar, 24 ryðja, 25 ansar. Lóðrétt: 1 nesti, 2 pilta, 3 rann, 4 elda, 5 rokið, 6 ræðir, 10 úlpan, 12 nam, 13 æra, 15 semur, 16 lyfið, 18 punds, 19 rýrar, 20 erta, 21 nota. Leiðarljós – Ríkissjónvarpið NÚ hefur þessi stofnun leyft sér að slökkva á Leið- arljósi gegn vilja margra. Þetta er yfirgangur sem ekki líðst. Þessi ríkisrekna stofnun, sem allir eru skyldaðir til að greiða af hvern mánuð, getur ef fólk ekki greiðir, farið inn á þeirra heimili og tekið sjón- varpið. Þetta er ofbeldi sem ekkert annað land býður uppá. Við viljum, og ég tala fyrir munn margra, fá Leiðarljós aftur. María Sigurðardóttir. Ráðskast með dagskrána ÉG vil taka undir það sem Guðrún skrifar um Leiðar- ljós í Velvakanda þriðju- daginn 7. maí. RÚV heimt- ar afnotagjöld og ráðskast með dagskrána eins og því sýnist og við sem þurfum að borga afnotagjöldin höfum ekkert með það að segja. Borghildur Björns. Lýsi yfir óánægju ÉG vil lýsa yfir óánægju minni með þá ákvörðun að hætta sýningum á þættin- um Leiðarljósi. Vil ég skora á Ríkissjónvarpið að endur- skoða þessa ákvörðun. Guðrún Guðlaugsdóttir. Harðorð mótmæli ÉG vil bera fram harðorð mótmæli vegna þeirrar ákvörðunar að hætta sýn- ingum á þættinum Leiðar- ljósi. Hef ég heyrt að ástæðan sé vegna þess að Ríkissjónvarpið hafi ekki efni á sýningu þáttanna. Ég er eldri borgari sem borga afnotagjöldin og nú var ver- ið að hækka afnotagjöldin hjá okkur eldri borgurum, vil ég mótmæla því. Finnst mér ekki hægt að kúga peninga út úr fólki og þykj- ast svo ekki hafa efni á að sýna þessa þætti. Soffía. Fyrirspurn RÍKISSJÓNVARPIÐ aug- lýsir að sápuóperan Leiðar- ljós sé að fara í frí. Mér er spurn: Hversu lengi stend- ur það frí? Ætli það rétta sé ekki að þátturinn falli ekki í kramið hjá menningavitun- um. Ég veit að stundum eru þættirnir ekki mjög skemmtilegir en oftast er eitthvað að gerast eins og núna en þá á að hætta sýn- ingum í miðjum klíðum. Og í staðinn á að sýna einhvern kerlingaþátt um mæðgur. Skyldu þeir vera ódýrari en Leiðarljós? Öskureiður aðdáandi. Mótmæli ÉG vil mótmæla að klippt sé á þáttinn Leiðarljós – og ekki síður að verið sé að sýna sífellt endurteknar myndir. Finnst mér Leið- arljós langskemmtilegasti þátturinn hjá ríkissjón- varpinu og fer fram á að sýningum hans sé ekki hætt. Þóra Ottesen. Ábending BORGARSTJÓRI býður fólki, sem er 70 ára á árinu, í móttöku í Ráðhúsinu 1. maí. Í boði er rauðvín og hvítvín, fyrir þá sem smakka vín, en fyrir þá sem ekki smakka vín er einung- is boðið upp á appelsínu- safa. Finnst mér að bjóða mætti upp á fleiri tegundir, t.d. gosdrykki og kaffi – eða jafnvel vatn, því ekki þola allir súra drykki eins og appelsínusafa. Ein sjötug. Áfram á sömu braut MIKIÐ var gaman að fylgj- ast með Ingibjörgu Sólrúnu borgarstjóra á framboðs- fundi til borgarstjóra í Ráð- húsinu sl. sunnudag. Hún kom glæsilega fyrir og ber höfuð og herðar yfir alla hina. Björn var aumkunar- verður. Það var helst að Ólafur Magnússon kæmi á óvart. Ég tel að Ingibjörg Sólrún sé einn af okkar glæsilegustu stjórnmála- mönnum sem nú eru í eld- línunni. Áfram á sömu braut, Ingibjörg Sólrún. Kt.: 270826-2619. Tapað/fundið Net á barnavagn í óskilum NET á barnavagn fannst í Bólstaðarhlíð sl. laugardag. Uppl. í síma 847-1507. Silfurarmband týndist SILFURARMBAND með mislitum steinum frá Jens týndist annaðhvort í Mjóddinni eða Blómavali sl. föstudag, 3. maí. Skilvís finnandi hafi samband í síma 553-3067 eða 855- 1011. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Víkverji skrifar... NETIÐ er ný boðskiptaleið, semætti að geta auðveldað þing- mönnum að halda tíðu og nánu sam- bandi við umbjóðendur sína. Víkverji skoðaði á dögunum vef Alþingis og komst að því að a.m.k. 15 þingmenn, úr öllum flokkum, halda úti eigin heimasíðu. Síðurnar eru misgóðar eins og gerist og gengur; sumar eru greinilega gerðar af einhverjum sem á afar stutt námskeið í vefsíðugerð að baki (en vonandi mörg fleiri í vændum), sumar eru uppfærðar sjaldan og fyrir vikið hálfúreltar en aðrar eru alveg bráðskemmtilegar, vel hannaðar og taka á málum líðandi stundar. x x x AÐ ÖÐRUM ólöstuðum vill Vík-verji nefna vefi þingmannanna Ástu Möller og Svanfríðar Jónas- dóttur. Báðar eru með fallegan vef, sem hefur verið uppfærður nokkuð nýlega (nýjustu pistlar hjá báðum eru reyndar frá í apríl), og bjóða þar að auki ekki bara upp á efni um póli- tík. Á síðum beggja eru t.d. nokkrar girnilegar mataruppskriftir, sem Víkverji hefur hugsað sér að prófa. Ásta slær reyndar starfssystur sinni við í þeim efnum; Svanfríður birtir sex uppskriftir en Ásta tólf. Víkverji hvetur þær til að halda áfram á þess- ari braut, því að oft gleymir hann að ákveða að morgni hvað hann eigi að hafa í matinn að kvöldi. Þegar svo kemur að því að Víkverji fer að und- irbúa að ljúka vinnudeginum og koma við í búð á leiðinni heim til sín upphefst oft örvæntingarfull leit að einföldum og fljótlegum uppskriftum á Netinu. Ásta og Svanfríður hafa greinilega báðar fundið út að í er- ilsömu starfi þingmannsins er bezt að leggja áherzlu á það holla, ein- falda og fljótlega og það hentar Vík- verja líka prýðilega. x x x Á VEF Ástu Möller eru aukstjórnmálaskrifa og matarupp- skrifta bæði ljóð og brandarar. Slíkt ýtarefni er því miður sjaldgæft á heimasíðum annarra þingmanna, en sumir birta þó eitthvað um fjölskyldu sína og áhugamál; t.d. birtir stoltur afi þrjár myndir af yngsta barna- barninu, margir hafa sett inn mynd af sér og fjölskyldunni auk ótal mynda af handaböndum og funda- höldum úr pólitíkinni og algengt er að menn séu með tenglasafn, sem gefur einhverja hugmynd um áhuga- mál þeirra og áherzlur. x x x ÞAÐ SEM Víkverja finnst helztskorta á síðum þingmanna er gagnvirkni; að lesendur/kjósendur séu beinlínis hvattir til að senda þingmanninum sínum línu til að segja sína skoðun á viðfangsefnum Alþingis. Heimasíðurnar gegna í of ríkum mæli því hlutverki að kynna þingmanninn og stefnumál hans, en síður að leita eftir áliti kjósenda á milli kosninga. Undantekning frá þessu er síða Sivjar Friðleifsdóttur umhverfisráðherra, en þar er „eyðu- blað“ fyrir lesendur síðunnar til að fylla inn í og segja ráðherranum sína skoðun. Aðrir þingmenn láta sér yf- irleitt duga að gefa upp tölvupóstinn sinn. Á síðu Sivjar er svipað eyðublað til að panta viðtal hjá ráðherranum. Til fyrirmyndar, að mati Víkverja. ÉG fór í Sambíó við Álfa- bakka sl. laugardag og finnst ég hálfsvikin. Aug- lýst er að þar sé tekið við fríkortspunktum sem greiðslu og að þeir sem séu yfir 63 ára aldri fái af- slátt. Ég ætlaði á myndina Iris kl. 16 (sem var hvergi annars staðar sýnd) en þá var mér sagt að fríkortið eða afsláttur vegna aldurs gilti ekki þar sem sýningin væri í lúxussal. Fannst mér þetta ekki sanngjarnt því ekki var hægt að sjá myndina í öðrum sal. Finnst mér að auglýstur afsláttur eigi að gilda fyrir alla sali, a.m.k. að það sé tekið fram í auglýsingum ef afsláttur gildi ekki. Guðrún Magnúsdóttir. Afsláttur gilti ekki 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.