Morgunblaðið - 10.05.2002, Síða 37

Morgunblaðið - 10.05.2002, Síða 37
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2002 37 GARÐABÆR með tæplega níu þúsund íbúa hefur alla burði til að vera í forystu bæjarfélaga á höfuð- borgarsvæðinu í skóla-, æskulýðs- og íþróttamálum. Það er gott að búa í Garðabæ, þar er gott mannlíf, skólarnir eru góðir enda hafa þeir á að skipa góðu starfs- fólki með mikinn metnað. Með núverandi meirihluta við völd er þó ljóst að Garðabær nær ekki þessari for- ystu. Stefnan í skipulagsmálum byggist á smáskammtalækningum sem verður til þess að aðstaða skólanna versnar til muna. Mikil fjölgun barnafjölskyldna hefur orðið í Garðabæ á undan- förnum árum sem hefur leitt til þess að aldurssamsetning íbúa hef- ur breyst. Kemur þar tvennt til, annars vegar í eldri hverfum á sér stað eðlileg endurnýjun, eldra fólkið flytur í minna húsnæði, í flestum tilvikum utan Garðabæjar, og yngra fólkið með börn á leik- skóla- og grunnskólaaldri kemur í staðinn. Hins vegar er það nýjasta byggingahverfið, Ásarnir, sem er í hraðri uppbyggingu og sífellt fjölgar fjölskyldum sem flytja þangað. Þetta hefur þýtt mikla fjölgun nemenda í grunnskólum bæjarins. Aðstaða skólanna hefur hins vegar engan veginn verið nægjanleg til að taka við þessari miklu fjölgun nemenda. Virðist vera að bæjaryf- irvöld hafi sofið á verðinum og alls ekki gert ráð fyrir þessari end- urnýjun. Sennilega haldið að Garðbæingar yrðu mun eldri en aðrir Íslendingar og flyttu því mun seinna úr stærra húsnæði í minna. Eða haldið að fólk sé mun lengur að byggja í Garðabæ en í öðrum bæjum landsins. Þessi mistök í skipulagsmálum í Garðabæ eru bæði dýr fyrir bæj- arfélagið og gera skólunum erfitt um vik að halda sínum gæðum. Nú er svo komið að íbúar eru alls ekki ánægðir með þessi vinnubrögð og Foreldra- og kennarafélag Flata- skóla hefur hafið söfnun undir- skrifta til að þrýsta á bæjaryfirvöld að standa við gefin loforð um fjárveitingar til framkvæmda við skól- ann og að þeim ljúki á réttum tíma. Hvar er skólinn í Ásunum, hvenær kemur hann og verður hann í hverfinu? Lengdur skóladag- ur, sem er krafa í nú- tímasamfélagi, á að innihalda m.a. heima- nám, tónlistarnám, íþróttaskóla, íþróttir, skátastarf o.fl. Með því er hægt að brjóta upp skóla- dag barna og koma á skóladegi fyrir alla til kl. 16 á daginn. Garða- bær styrkir nú þegar Stjörnuna vegna barna- og unglingastarfs, sem er vel gert en engan veginn nóg. Starfsemi Stjörnunnar fyrir börn á því að koma sem mest inn í hefðbundinn skóladag barna og þannig mun Garðabær skipa sér í forystu bæjarfélaga á höfuðborg- arsvæðinu. Þessi aldursbreyting íbúa hefur ekki aðeins áhrif í skólamálum heldur einnig í íþróttamálum. Nú er svo komið að aðstaða til íþrótta- iðkunar fyrir allan þennan fjölda barna er engan veginn nægjanleg í Garðabæ samanborið við ná- grannasveitarfélögin, Hafnarfjörð, Kópavog og Reykjavík. Nú er kominn tími til breytinga í Garðabæ, gefum Sjálfstæðis- flokknum frí og komum Garðabæj- arlistanum að. Garðabæjarlistinn setur málefni fjölskyldunnar í önd- vegi. Garðabær til forystu Höfundur skipar fjórða sæti á Garðabæjarlistanum. Garðabær Garðabæjarlistinn, seg- ir Steinþór Einarsson, setur málefni fjölskyld- unnar í öndvegi. Steinþór Einarsson Tilboðsvika 10.-16. maí Mörkinni 3, sími 588 0640Opið laugardag 11-16 – sunnudag 13-17 15-60% afsláttur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.