Morgunblaðið - 10.05.2002, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 10.05.2002, Qupperneq 8
FRÉTTIR 8 FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Ráðstefnuskrifstofa Íslands 10 ára Ágætt en ekki fullkomið NÚ UM stundir ertíu ára afmæliRáðstefnuskrif- stofu Íslands og var fyrir skemmstu haldinn morg- unverðarfundur í tilefni þess og ýmis mál krufin á þeim vettvangi. Verkefnis- stjóri RSÍ fyrir hönd Ferðamálaráðs er Rós- björg Jónsdóttir og hún svaraði nokkrum spurn- ingum Morgunblaðsins. – Hvað þarf að vera fyr- ir hendi til að halda megi væna ráðstefnu? „Það sem til þarf er fyrsta flokks aðstaða og fyrsta flokks gisting, framúrskarandi tækni- búnaður, mjög góðar sam- göngur, fagleg skipulagn- ing, góðir möguleikar til afþreyingar, fyrsta flokks þjón- usta og mikið öryggi. Hér er um að ræða mjög kröfuharðan mark- hóp sem sækist einungis eftir því besta.“ – Hefur Ísland það til brunns að bera sem þarf? Hvað er helst í veginum? „Ísland býr við ágætar en ekki fullkomnar aðstæður hvað þetta varðar. Við erum ekki með sér- útbúna ráðstefnuhöll þrátt fyrir að nokkrir hafi byggt upp ágæta aðstöðu. Hótelin okkar eru þokkalega góð en ekkert þeirra er fimm stjarna eins og þarf að vera hægt að bjóða upp á. Tækni- búnaður er almennt góður en hægt væri að gera betur. Sam- göngur eru góðar og ráðstefnu- gestgjöfum stendur til boða þjón- usta fagaðila sem eru sérfræðingar á þessu sviði. Það sem í raun og vera þarf að gera er að efla og styrkja innviðina veru- lega, efla gæðavitund almennt og byggja upp þessar grundvallarað- stöðu sem til þarf, sérhæft ráð- stefnuhús.“ – Hversu mikilvægt er það fyr- ir íslenska ferðaþjónustu að styrkja ráðstefnuhald? „Ef tekið er mið af niðurstöð- um könnunar Ferðamálaráðs frá árinu 2000 má draga þá ályktun að um 37.500 einstaklingar hafi sótt landið heim í þeim tilgangi að sækja ráðstefnur eða fundi og út- gjöld þessara aðila hafa verið um 3,7 milljarðar króna. Ég tel því afar brýnt að byggja frekar upp aðstöðu ráðstefnuhalds á Íslandi. Þetta er mjög tekjuskapandi fyrir þjóðarbúið í heild sinni, hefur þverfagleg áhrif á aðrar atvinnu- greinar í landinu sem og er nauð- synlegur hluti að eðlilegri framþróun íslenskrar ferðaþjón- ustu. Þeir farþegar sem koma í þessum tilgangi eru afar verð- mætir, eyða miklu og koma til landsins utan háannatíma sem er kjörið fyrir íslenskar aðstæður. Með því er hægt að stuðla að efl- ingu starfsemi fyrirtækjanna sem bjóða upp á þá þjónustu sem ósk- að er eftir.“ – Eru til tölur um aukningu í ráðstefnuhaldi á Ís- landi? „Ráðstefnuskrif- stofa Íslands hefur safnað saman þeim upplýsingum sem snúa að þeim ráðstefnum sem aðildar- félagar skrifstofunnar eru að skipuleggja og sýna þær tölur að mikill vöxtur hefur átt sér stað á síðastliðnum 10 árum að frátöldu árinu 2001 en þá dróst nokkuð saman. Árið í ár lofar mjög góðu og er framtíðin björt.“ – Er Ísland ráðstefnuland? „Samkvæmt könnun ICCA, al- þjóðleg samtök fagaðila innan ráðstefnu- og fundageirans og RSÍ er aðili að, sem gerð var árið 2000 og birt 2001 var spurt hvaða áfangastaður yrði fyrir valinu til ráðstefnuhalds ef halda ætti út fyrir heimahagana. Ísland lenti í 33. sæti af 50. Það verður að segj- ast að við eigum aðeins á bratt- ann að sækja en allt að vinna. Meðal þjóða sem voru fyrir ofan okkur voru lönd eins og Tyrk- land, Tékkland, Rússland, Mal- asía, Bretland og fleiri. Bandarík- in voru í efsta sæti. Það kann margt að breytast þar sem að- stæður hafa breyst í heiminum síðan könnun þessi var gerð. Hins vegar þegar tölulegar nið- urstöður voru skoðaðar er hlut- skipti okkar öllu betra fyrir höf- uðborgina. Fyrir árið 2000 varð Reykjavík í 19. sæti yfir borgir með flestar ráðstefnur í heimin- um og höfum við þar komist fram fyrir borgir eins og Glasgow, Brussel og aðrar stærri borgir. Með auknum markaðsaðgerðum og ræktun á uppbyggingu innviða greinarinnar er ég sannfærð um að Ísland geti orðið einn ákjósan- legasti áfangastaður til ráð- stefnuhalds í Norður Evrópu.“ – Þið voruð með morgunverð- arfund með yfirskriftinni „Fram- tíð ráðstefnuhalds á Íslandi“. Hver er sú framtíð? „Haldinn var morgunverðar- fundur í tilefni af 10 ára starfs- afmæli RSÍ þar sem rætt var um framtíð ráðstefnuhalds á Íslandi. Framsöguer- indin voru mjög fróð- leg og kom skýrt fram að framtíð ráðstefnu- halds á Íslandi er björt. Stefnt er að því að reisa sér- hæft ráðstefnuhús í Reykjavík innan fárra ára og mun það verða mikil lyftistöng fyrir ferðaþjón- ustuna í heild sinni. Aðilar að RSÍ lýsa yfir ánægju sinni með að þetta verkefni skuli vera komið af stað, við eigum mikilla hagsmuna að gæta og hlökkum til að takast á við þetta mikilvæga stóra verk- efni.“ Rósbjörg Jónsdóttir  Rósbjörg Jónsdóttir fæddist í Reykjavík 14. febrúar 1968. Stúdent frá MR 1988, BA í þýsku frá HÍ 1993, markaðs- og útflutn- ingsfræði frá EHÍ febrúar 2000. Er að ljúka MBA frá HÍ nú í júní. Frá 1988 hefur hún starfað að mestu við ferðaþjónustu, m.a. hjá Hótel Holti, Island Tours í Þýskalandi og Sviss, Samvinnu- ferðum-Landsýn, síðast forstöðu- maður einstaklingssviðs innan- landsdeildar. Frá febrúar 2000 hefur hún verið starfsmaður Ferðamálaráðs Íslands sem verkefnisstjóri Ráðstefnuskrif- stofu Íslands. Framtíð ráð- stefnuhalds á Íslandi björt Pólitískir sprengjusérfræðingar eru ekki á eitt sáttir um hvort púðurmagnið í hleðslunni hafi verið nægjanlegt til að koma séníinu á Austurvöll.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.