Morgunblaðið - 10.05.2002, Page 32

Morgunblaðið - 10.05.2002, Page 32
UMRÆÐAN 32 FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Norðurbakki ehf. kynnir tillögur úr hugmyndasamkeppni um framtíðarskipulag Norðurbakka Hafnarfjarðar. Sýningin verður öllum opin næstu daga í nýja bókasafninu, Strandgötu 1. Hugmyndir að nýjum Norðurbakka SÍÐASTLIÐIN ár hefur umfjöllun um hreyfingu og hollustu rutt sér til rúms svo um munar. Líkams- ræktarstöðvar eru nánast á hverju götu- horni og sundlaugar og íþróttamannvirki verða glæsilegri og búin betri aðstöðu með hverju árinu sem líður. Mikil vitundarvakn- ing hefur átt sér stað meðal almennings, sem er alfarið af hinu góða. Öll viljum við jú hugsa vel um líkama okkar og sál. Samt sem áður hef ég verið að velta fyrir mér hvort við séum að setja okkur rétt markmið. Í hverju hafa áherslurnar verið fólgnar fram að þessu? Erum við að reyna að forma okkur inn í fyrirfram ákveðna ímynd tískuheimsins? Er- um við sífellt í megrun? Náum við tilsettum árangri? Af hverju ekki að setja sér raunhæf markmið! Ef árangur þjálfunar á ekki að vera skammvinnur, verðum við að geta borið ábyrgð á eigin hreyfingu og skilning- ur á mikilvægi mat- aræðis er einnig nauðsynlegur. Allmörg fyrirtæki sjá hag sinn í að veita starfsfólki sínu lík- amsræktarstyrk til þess að bæta heilsu þess og vellíðan. Margir byrja að æfa af krafti en hætta ein- hverra hluta vegna. Spurningin er, af hverju? Ástæðan gæti verið skortur á fræðslu og aðhaldi. Mörgum þykir erfitt að stíga fyrstu skrefin í átt að breyttum lífsstíl. Ekki síst þeir sem telja sig ekki hafa tíma aflögu til að setja sig í forgangsröð. Rannsóknir sýna að margir Ís- lendingar hafa þyngst meira en góðu hófi gegnir og er offita að verða alvarlegt heilsufarsvanda- mál. Ástæðan er ekki ljós. Trúleg- asta skýring Manneldisráðs er sú, að ekki hafi tekist að aðlaga orku- neyslu að minnkaðri orkuþörf, en í nútíma þjóðfélagi er líkamleg áreynsla miklu minni en áður. Öll höfum við ákveðin markmið í lífinu. Við viljum tileinka okkur að- ferðir og leiðir til að ná sem best- um árangri. Þetta á við um fjöl- skylduna, heimilið, vinnuna eða námið svo dæmi séu nefnd. Ef raunhæf markmið eiga að nást, þarf undirstaðan að vera í lagi, það er líkamsástand okkar. Stress í daglegu amstri og bar- áttan við aukakílóin valda oft á tíð- um hugarangri. Líkamsorkan byggist á næringu, úthaldi og þreki. En þetta vitum við öll söm- ul. Við ætlum alltaf að byrja að gera betur á morgun. Bættur lífsstíll felst í skilningi á mikilvægi mataræðis, atferlis- og líkamsþjálfunar. Er ekki komin tími til að rækta undirstöðuna – sjálfan sig. Ávinningurinn verður gott veganesti inn í framtíðina. Erum við að stíga réttu skrefin í átt að breyttum lífsstíl? Ásgerður Guðmundsdóttir Lífsstíll Bættur lífsstíll, segir Ásgerður Guðmunds- dóttir, felst í skilningi á mikilvægi mataræðis, atferlis- og líkams- þjálfunar. Höfundur er heilbrigðisráðgjafi hjá Solarplexus ehf. Í GAMLA testa- mentinu segir frá því að Ísraelsmenn voru að villast í eyðimörk- inni áratugum saman. Kalla mætti seinni heimsstyrjöldina eyði- merkurgöngu 20. ald- arinnar. Það var nokkur léttir fyrir samvisku hins vest- ræna heims þegar ákveðið var að stofna ríki gyðinga í Palest- ínu árið 1947. En það fólk sem búið hafði í landinu um alda skeið varð útundan. Undan- farið hefur þjóð Ísr- aels enn verið að villast í eyði- mörkinni. Sá sem þetta skrifar hafði frá barnsaldri samúð með Ísraels- mönnum. Örlög þeirra virtust svo grimm og þeir voru umkringdir óvinum sem vildu afmá ríki þeirra af yfirborði jarðar. Þær staðreynd- ir sem opnuðust mér seinna ollu því þó að ég fór að átta mig á rang- lætinu sem þarna hafði viðgengist bróðurpart aldarinnar. Ísraelsmenn áttu um 7% lands- ins þegar farið var að tala um að stofna þarna tvö ríki. SÞ ákváðu að skipta skyldi landinu jafnt en arab- ar gátu ekki sætt sig við það. Í stríðinu sem fylgdi flæmdu Ísrael- ar hátt í milljón manns burt úr Palestínu og í kjölfarið skapaðist flóttamannavandi sem er óleystur enn í dag. Eftir 6 daga stríðið 1967 voru þeir búnir að her-nema alla Palestínu. Þau litlu svæði sem áttu að fá heimastjórn eftir Ósló 1993 eru nú morandi í ísraelskum land- tökubyggðum og skipt niður í fá- ránleg hólf. Auðvitað er búið að mó-mæla þessu framferði árum saman. SÞ hafa dæmt þetta ólög- legt en mótmæli mega sín lítils þegar Kanar styðja allt sem Ísr- aelar gera. Og allir vita hvernig á þeim stuðningi stendur. Ísraelsmenn haga sér æ meir í ætt við kvalara sína hér í eina tíð. Trúin á að þeir séu útvaldir af guði leiðir til þess að þeir telja sig yfir aðra hafnir og geti farið sínu fram. Heimastjórnarsvæði Palestínu- manna eru ghetto nútímans. Þar er allt samfélag brotið niður og eyðilagt. Börn og unglingar hafa verið drepin af hernum í bráðum tvö ár fyrir grjótkast. Sjálfsmorðs- árásir ungra Palestínumanna eru síðasta hálmstrá örvinglaðs fólks sem brýst um í heljargreipum Ísr- aels-manna. Óhugnanlegt er að hlusta á viðtöl tekin við gyðinga á götum úti sem segja að það verði bara að út-rýma þessum aröbum. Mér brá illilega þegar ég heyrði þetta á BBC um daginn og varð ljóst að Ísraelsmenn eru enn að villast í eyðimörkinni. Alkunnugt er að Bandaríkja- menn halda Ísrael uppi með fæði og klæði. Þar fer þjóð sem trúir því að hún sé krossberi frelsis og réttlætis á jörðu hér. Hvort sem þeir eru að útrýma indíánum, hella eldi og eimyrju yfir bændaþjóðir SA- Asíu, bera harðstjóra og stríðsglæpa-menn á örmum sér eða velta lýð-ræðislega kjörn- um stjórnum með undirróðri og þjösna- skap – alltaf í fullum rétti að verja frelsið. Óréttlætið sem geisar í Palestínu í dag brennur á fólki. Sþ eru búnar að álykta áratugum saman að Palestínumenn skuli fá að stofna sjálfstætt ríki, landnema- byggðir gyðinga séu ólöglegar og hernámið skuli aflagt. En guðs út- valið fólk hlustar ekki á fulltrúa annarra þjóða. Af hverju hata þeir okkur? spyrja Bandaríkjamenn og gera sér enga grein fyrir því að þeirra eigin framkoma eigi ein- hvern þátt í því að hryllilegar árás- ir voru gerðar á þá í haust sem leið. Og krossfari frelsisins fer eldi um byggðir og ból Afganistans í leit að blórabögglum. Frelsið skal varið, segir hann og sprengir upp heilu þorpin í fátækasta landi ver- aldar. Af hverju hata þeir okkur? Baráttan gegn hryðjuverkum hefur snúist upp í andhverfu sína. Ísraelski herinn fremur hryðj-verk á hernumdum íbúum Palestínu. Bush kallar Sharon mann friðarins og tryggir sér stað í sögunni sem fíflið í Hvíta húsinu. Spádómur Nostradamusar um þorpsfíflið hef- ur ræst. Að kalla Sharon mann friðar er svo mikil fjarstæða að jafnvel gyðingum sjálfum hefði ekki dottið það í hug. Enginn get- ur tekið mark á þessum manni framar. Þetta skynja Evrópumenn og líst ekki á blikuna. Með þessu áframhaldi verður stór-styrjöld í Mið-Austurlöndum. Og þeir sem segja að Arafat hefði átt að taka tilboðinu í Camp David gleyma því að það bauð hvorki upp á lausn á landtökumálinu né flóttamanna- vandanum. Nú hafa Ísraelar ráðist með of- ur-efli liðs inn á Vesturbakkann. Starfsmenn hjálparstofnana segja í viðtölum við BBC að engin orð fái lýst þeim voðaverkum og glæpum sem herinn hefur framið í Jenin. Sharon, maður friðarins, lætur valta yfir heila borg flóttamanna með jarðýtum, þyrlum og skrið- drekum. Og aðrar borgir fá heldur skárri útreið. Bush hvikar ekki, þetta er barátta gegn hryðjuverk- um. ES talar um að tala um við- skiptahömlur en ekkert gerist. Enginn veit hve margir voru drepnir í þessari innrás. Fær sann- leikurinn að koma í ljós eða verður valtað yfir hann líka? Þarna er á ferð maðurinn frá Sabra og Shatila 1982. Og hann er ekki einn á sinni eyðimerkurgöngu. Stór hluti ísr- aelsku þjóðarinnar fylgir honum. Er það svona að vera útvalinn af guði? Hvaða guð skyldi það annars vera? Eyðimerkur- ganga Ísraelsmanna Ingólfur Steinsson Höfundur er ritstjóri og tónlist- armaður. Stríðið Ísraelsmenn haga sér æ meir, segir Ingólfur Steinsson, í ætt við kval- ara sína hér í eina tíð. Súrefnisvörur Karin Herzog Vita-A-Kombi olía

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.