Morgunblaðið - 10.05.2002, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 10.05.2002, Blaðsíða 33
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2002 33 EKKI alls fyrir löngu reit Dagur B. Eggertsson greinar- korn eitt í Morgun- blaðið í hverju hann dásamaði fjárfesting- ar Orkuveitunnar og gerði lítið úr skulda- söfnun borgarinnar. Honum sjálfsagt til lítillar ánægju var sagt frá því í fréttum sjónvarpsins það kvöldið að Orkuveita Reykjavíkur hefði tapað hálfum milljarði króna á hinum frá- bæru fjárfestingum. Sú staðreynd að Orkuveita Reykjavíkur safnar meiri skuldum en borgarsjóður Reykjavíkur er að sögn Dags gleðileg þar sem skuldir Orkuveit- unnar eru ekki tilkomnar vegna venjulegra lána heldur „fjárfest- ingarlána“. Staðreyndin er auðvitað sú að fjárfestingarlán þarf að endur- greiða eins og önnur lán. Gleðiefn- ið fyrir skattgreiðendur í Reykja- vík er það að lán orkuveitunnar eru ekki aðeins greidd af þeim heldur einnig þeim íbúum ná- grannasveitarfélaganna sem nýta sér þjónustuna! En Dagur B. Eggertsson er óháður og hefur því varla áhyggj- ur af smámunum á borð við endur- greiðslu lána. Á kosningafundum vill frambjóðandinn ekki kannast við verk hins viðkunnalega Alfreðs Þorsteinssonar sem er ábyrgur fyrir afrekum Orkuveitunnar. Dagur er þess samt fullviss að Orkuveitan muni raka saman fé íbúa höfuðborgarsvæðisins borgar- sjóð Reykjavíkur til hagsbóta. Þessi af- staða frambjóðandans bendir ekki til þess að gæfulegt sé að vera óháður á pólitískum lista. Degi þykir þó allt í lagi að leggja nafn sitt við svokallaðar fjár- festingar R-listans sem sjá mátti er hann kynnti óráðsíumæli borgarinnar. Hvað hann mælir er ekki al- veg víst. Vera kann að óráðsíumælirinn mæli þá fúlgu sem til varð vegna hækkunar fasteignamats eða það fé sem farið hefur til að greiða einkavini Ingibjargar Sól- rúnar laun sem starfandi stjórn- arformanni Strætó bs. án vitn- eskju stjórnar. Dagur lætur sér í léttu rúmi liggja í hvað allir pen- ingarnir fara sem hann er að mæla. Dagur er nefnilega óháður. Óláns-Dagur Snorri Stefánsson Höfundur er laganemi. Reykjavík Sú staðreynd að Orku- veita Reykjavíkur safn- ar meiri skuldum en borgarsjóður Reykja- víkur, segir Snorri Stefánsson, er að sögn Dags gleðileg. ÍAV flytja skrifstofu sína frá Suðurlandsbraut í rúmbetra húsnæði að Höfðabakka 9, 4. hæð. Af þeim sökum verður skrifstofan lokuð í dag, föstudag. Við opnum á nýja staðnum mánudaginn 13. maí nk. Verið velkomin. Íslenskir aðalverktakar hf. Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 530 4200, fax 530 4205, www.iav.is Aukin umsvif ÍAV flytja í rúmbetra húsnæði að Höfðabakka
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.