Morgunblaðið - 10.05.2002, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 10.05.2002, Blaðsíða 36
UMRÆÐAN 36 FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ HVAÐ eiga Elvis Presley, John F. Kennedy og Bruce Lee sameiginlegt? Jú- ,allir hafa þeir hlotið viðurkenninguna „The Outstanding Young Persons of the World“. Þessi viður- kenning er veitt á hverju ári allt að tíu framúrskarandi ung- um einstaklingum á aldrinum 18–40 ára af alþjóðahreyfingu Jun- ior Chamber. Í ár hef- ur Junior Chamber- hreyfingin á Íslandi ákveðið að útnefna fjóra framúrskarandi unga einstaklinga frá Íslandi til þátttöku í þessari alþjóðlegu keppni og mun útnefningin fara fram við hátíðlegt tækifæri hinn 10. maí. Junior Chamber er alþjóðlegur félagsskapur ungs fólks á aldrinum 18–40 ára. Hjá Junior Chamber hafa lífsgæði fólks forgang og und- irstaða starfsins er að byggja upp einstaklinginn, gefa honum tæki- færi til að vaxa í leik og starfi og gera hann þannig hæfari til að tak- ast á við stjórnun og ábyrgð í at- hafnalífi og félagsstarfi. Junior Chamber Ísland er að- ili að alþjóðlegri hreyfingu sem í eru um 400.000 félagar í 110 löndum víðsvegar um heim. Í dag eru starfandi 7 aðildar- félög um allt land er saman mynda Junior Chamber Ísland og eru höfuðstöðvar hreyfingarinnar að Hellusundi 3 í Reykja- vík. Í ár stendur Junior Chamber Ísland að al- þjóðlegum verkefnun- um „Frumkvöðlar í verki“, samkeppni ungra frumkvöðla á aldrinum 18–40 um bestu viðskipta- áætlunina og útnefningu á fram- úrskarandi ungum einstaklingum, „The Outstanding Young Persons of the World for 2002“. Þá mun Junior Chamber Ísland halda „Nordic Academy 2002“ um miðjan ágúst sem er námskeið fyrir fram- tíðarleiðtoga í Junior Chamber og eru þátttakendur frá Norðurlönd- unum auk þriggja Eystrasaltsríkja. Í tilefni sveitarstjórnakosninga nú í vor mun hreyfingin standa fyr- ir kappræðum og stjórna fram- boðsfundum. Ef þú, lesandi góður, ert eða vilt verða framúrskarandi einstakling- ur og ert á aldrinum 18–40 ára, gefðu Junior Chamber tækifæri og upplifðu þá möguleika sem þátt- taka í starfi hreyfingarinnar hefur upp á að bjóða. Allar upplýsingar um Junior Chamber-hreyfinguna er hægt að nálgast á nýrri og end- urbættri heimasíðu sem opnuð verður hinn 10. maí en slóðin er www.jc.is. Ert þú framúr- skarandi ein- staklingur? Örn Sigurðsson Höfundur er landsforseti Junior Chamber Íslands. JC-dagurinn Flest námskeið tengd ræðumennsku, segir Örn Sigurðsson, eru sprottin undan merkj- um Junior Chamber- hreyfingarinnar. UM ÞESSAR mundir eru frambjóð- endur til sveitar- stjórna að kynna stefnumál sín og fara á fjörurnar við hátt- virta kjósendur. Þá er gjarnan tínt til það sem þeir segjast hafa unnið byggðarlagi sínu til gagns undan- farið og horft fram á veginn um það sem helst þarf að beita sér fyrir næsta kjörtíma- bil. Miðbæjar- umræða Eitt þeirra málefna sem mikið er rætt í höfuðborginni okkar er framtíð miðbæjarins. Uppi eru margar og fjölbreyttar hugmyndir um hvað skuli gera honum til vegsauka og fegurðar. Þar á bæ virðast allir sammála um að ekki megi láta hendur liggja í skauti og hafast ekki að – þvert á móti sé nauðsynlegt að taka til hendi næsta kjörtímabil og gera miðbæinn að lif- andi menningar-, úti- vistar- og verslunar- svæði. Um þetta eru haldnar margar ræð- ur, skrifaðar há- stemmdar greinar og hver brýnir annan. Þessu er þó öðru- vísi farið í minni kæru heimabyggð, Akur- eyri. Hér eru þó allir sammála um að mið- bærinn okkar þurfi mikilla endurbóta við en ekki hef ég heyrt okkar ágætu fram- bjóðendur tjá sig mikið um það hvað þeir leggi til í þeim efnum. A.m.k. brýna þeir ekki hvern ann- an mikið og ekki eru þeir að reyna að sannfæra kjósendur hversu mikið þeir leggi upp úr því að koma á umbótum í miðbænum og endurheimta fyrri stöðu hans í sveitarfélaginu. Málið er sem sagt ekki ofarlega á listanum um það sem vinna þarf að næsta kjörtíma- bil. Öflugur miðbær og miðbæjarlíf er hverju samfélagi eins og Ak- ureyri mjög þýðingarmikið. Á sama hátt er góð aðstaða til íþróttaiðkana, útilífs og menning- arlífs mikilvæg og þar hefur Ak- ureyrarbær vissulega gert góða hluti og allt gott um það að segja. Í þessum málaflokkum hafa bæj- arfulltrúar metnað og jafnvel mót- aða framtíðarsýn. Hins vegar sakna margir samskonar metnaðar og framtíðarsýnar hvað varðar miðbæinn. Skátagilið og miðbærinn Þegar ég var strákur, upp úr miðri síðustu öld, fórum við fé- lagarnir oft á skíði í Skátagilið, sem er fyrir ofan miðbæjarkjarn- ann. Þar var oft glatt á hjalla og jafnvel keppt í svigi frá Bjarma- stíg eða bruni alla leið ofanfrá Oddeyrargötu! Í dag er þetta gil opið frá miðbænum séð og ekkert – nákvæmlega ekki neitt – hefur verið gert fyrir það síðan við vor- um að renna okkur þarna um árið; allt við það sama. Þetta gæti þó verið einhver mesta perlan í bæj- arlandinu ef vel væri að verki stað- ið og eins konar gróðurvin við hlið miðbæjarins þar sem öflugt menn- ingar- og verslunarlíf stæði í blóma. Vissulega er gott að setja mikla fjármuni í okkar góða skíða- land í Hlíðarfjalli, en þetta gamla skíða- og Skátagil okkar strákanna er nú eins og opið sár í bæjarland- inu og grátbiður um að eitthvað sé gert því til vegsauka. Ég nefni þetta sem dæmi um það sem þarf að taka ákvarðanir um og síðan að framkvæma. Þetta er eitt af mörgum viðfangsefnum sem móta þarf stefnu um í mið- bænum og hrinda í framkvæmd. Góðs viti Fyrir nokkru nefndi ég í viðtali við Morgunblaðið að fyrsta verk- efnið til að hefja miðbæinn til vegs á ný væri að ætla til þess a.m.k. fimmtíu milljónum króna á ári næstu tíu árin. Með því að marka verkefni þessu slíkan fjárhagsleg- an ramma mun það knýja á um að móta framtíðarsýn miðbæjarins í samráði við bæjarbúa og tryggja síðan að unnið verði í samræmi við hana næstu árin. Þannig, og aðeins þannig, er raunhæft að koma þessu mikla hagsmunamáli bæjar- búa og gesta þeirra í höfn. Nú sé ég að þessi tillaga hefur ratað í stefnuskrá eins flokksins hér í bæ og er það vonandi vottur þess að frambjóðendur séu að vakna í máli þessu og skilgreina það sem eitt það mikilvægasta sem vinna þarf að næsta kjörtímabil. Svona getur þetta ekki haldið áfram lengur. Miðbærinn á Akureyri Ragnar Sverrisson Kosningar Allir eru sammála um að miðbærinn þurfi mikilla endurbóta við, en Ragn- ar Sverrisson segist ekki hafa heyrt fram- bjóðendur tjá sig mikið um það hvað þeir leggi til í þeim efnum. Höfundur er kaupmaður í JMJ og formaður Kaupmannafélags Akureyrar. Súrefnisvörur Karin Herzog Vita-A-Kombi olía
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.