Morgunblaðið - 21.05.2002, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.05.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isEiður Smári Guðjohnsen undir smá- sjánni hjá Roma og Lazio / B2 Nýliðar Þórs á Akureyri skelltu meisturum ÍA á Akranesi / B8 8 SÍÐUR48 SÍÐUR Sérblöð í dag Á ÞRIÐJUDÖGUM KVEÐIÐ er á um sölu og ráðstöfun byggingarréttar í samningi sem Reykjavíkurborg og Rauðhóll ehf. hafa gert með sér vegna skipulags og uppbyggingar í Norðlingaholti í Reykjavík og tekið fram að við útboð skuli „leitast við að ná sem hæstu mögulegu endurgjaldi“. Árni Þór Sigurðsson, formaður skipulags- og byggingarnefndar Reykjavíkurborgar, segir um að ræða samning milli borgarinnar og einkaaðila og hvor um sig eigi þriðj- ungs kauprétt að byggingarlóðum á viðkomandi svæði. „Hér er því um að ræða þá varúðarráðstöfun gagnvart samningsaðilum að lóðirnar verði ekki seldar undir kostnaðarverði,“ segir Árni Þór. Samningurinn var undirritaður í febrúar en þar er kveðið svo á í lýs- ingu á verkefninu í 1. grein að samn- ingsaðilar muni hafa með sér sam- starf um „skipulag svæðisins, gatnagerð og lagnakerfi svo og sölu byggingarréttar“ samkvæmt nánari ákvæðum. Áfanga frestað „náist ekki fram ásættanleg verð“ Þrettánda grein samningsins lýtur síðan að sölu og ráðstöfun bygging- arréttar en þar segir orðrétt: „Þegar niðurstaða útboðs á byggingarrétti í hverjum áfanga liggur fyrir skulu samningsaðilar meta hvort ástæða sé til að hafna tilboðum og fresta við- komandi áfanga eða hluta hans, svo sem ef mikið lóðaframboð leiðir til þess að ekki nást fram ásættanleg verð, eða ef eftirspurn eftir lóðum í viðkomandi áfanga er ekki nægjan- leg.“ Einnig segir að borgin muni líta á framboð lóða á svæðinu sem hluta af því framboði sem þurfi til að mæta eftirspurn og „mun haga sínu lóða- framboði á öðrum svæðum með þeim hætti að það raski ekki framan- greindum tímasetningum,“ og er þar vísað til þess að sala geti farið fram árin 2002 til 2005. Drög að samningnum voru lögð fram í borgarráði í janúar og sam- þykkt með fjórum atkvæðum en borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins sátu hjá með tilvísun til fyrri afgreiðslu málsins, eins og segir í fundargerð. Lögðu sjálfstæðismenn fram bókun á sama fundi þar sem segir að þeir styðji ekki samning Reykjavíkurborgar við Rauðhól ehf. um uppbyggingu á Norðlingaholti af eftirfarandi ástæðum: „1. Efnt er til fjármálalegs sam- krulls borgarinnar og tveggja bygg- ingarfyrirtækja, sem ekki getur talist eðlilegt. 2. Samningurinn grundvallast á áframhaldandi uppboðsstefnu á lóð- um sem hefur stórhækkað bygginga- kostnað og íbúðaverð í Reykjavík. 3. Samráð við aðra lóðaeigendur á svæðinu um skipulag og uppbyggingu á Norðlingaholti hefur verið í algjöru lágmarki.“ „Aldrei staðið til að niðurgreiða lóðaverð“ Árni Þór segir aðspurður hvort fyrrgreind varúðarráðstöfun í samn- ingnum sé einungis hluta samnings- aðila í vil, að svo sé ekki. „Reykjavík- urborg á um þriðjung lóða á svæðinu, Rauðhóll um þriðjung og nokkrir smærri aðilar þriðjung. Hver um sig hefur síðan rétt til þess að byggja til- tekinn fjölda íbúða sem borgin gæti til að mynda nýtt til þess að byggja fé- lagslegar íbúðir og þess háttar. Þessi ákvæði lúta að almennum markaði enda hefur hugmyndin aldrei verið sú að niðurgreiða lóðaverð,“ segir hann. Árni Þór segir sér ekki kunnugt um hvort fordæmi séu fyrir viðlíka ákvæðum í samningum um skipulag og uppbyggingu annarra landsvæða innan borgarmarkanna. „Samningur- inn helgast af aðstæðum á þessu svæði og ég er ekki sammála því að þess háttar útboð leiði til hærra fast- eigna- og lóðaverðs. Hér er verið að tryggja að viðunandi verð fáist og að lóðirnar beri sig, enda hefur aldrei staðið til að niðurgreiða lóðir, hvorki hjá R-listanum né sjálfstæðismönn- um,“ segir Árni Þór Sigurðsson að endingu. Leitast við að ná hæsta mögulega endurgjaldi Samningur Rauðhóls og Reykjavíkurborgar um lóðir í Norðlingaholti BANASLYS varð á Reykjanes- braut, milli Grænásvegar og Flugvallarvegar, um þrjúleytið á laugardag. Maðurinn, sem lést, hét Guð- laugur Halldórsson verslunar- maður, 54 ára, fæddur 2. ágúst 1947, til heimilis í Álfatröð 7 í Kópavogi. Hann var ókvæntur og barnlaus. Fólksbíllinn sem hann ók hafnaði á ljósastaur eftir að hafa runnið utan vegar nokk- urn spöl. Guðlaugur, sem var einn í bílnum, var látinn þegar að var komið. Guðlaugur Halldórsson Lést í bílslysi á Reykjanes- braut KARLMAÐUR sem var farþegi í framsæti jeppa lést eftir að jeppinn valt nokkrar veltur á veginum um Eldhraun, um 15 km vestur af Kirkjubæj- arklaustri, á sunnu- dag. TF-SIF, þyrla Landhelgisgæslunn- ar, átti að flytja hann á sjúkrahús í Reykja- vík en maðurinn lést um borð í þyrlunni áð- ur en þangað var komið. Maðurinn sem lést hét Óskar Georg Jónsson, lyfsali hjá Lyfju í Kringlunni, til heimilis í Frostaskjóli 61 í Reykjavík. Óskar var 51 árs, fæddur 2. janúar 1951. Hann lætur eftir sig eig- inkonu og fjögur börn. Alls voru fjórir í jepp- anum, tveir karlmenn og tvær konur. Að sögn lög- reglunnar á Kirkjubæj- arklaustri eru tildrög slyssins í rannsókn en jeppinn valt á veginum áður en hann hafnaði ut- an vegar. Beita þurfti klippum til að ná tveim- ur farþeganna í aftur- sæti út úr jeppanum. Þyrla Landhelgisgæsl- unnar var kölluð út og lenti hún við slysstaðinn skömmu fyrir klukkan 16. Tveir aðrir sem voru í jeppanum voru fluttir á sjúkrahús í Reykjavík með sjúkrabíl en sá þriðji slapp nánast ómeiddur. Morgunblaðið/Eiður B. Ingólfsson Jeppinn hafnaði utan vegar eftir velturnar og er gjörónýtur. Lést um borð í þyrlu á leið á sjúkrahús Óskar Georg Jónsson KONA sem varð fyrir árás far- þega um borð í Flugleiðavél á leið frá Kaupmannahöfn til Keflavíkur síðast liðinn sunnu- dag hyggst í dag leggja fram kæru á hendur manninum. Hann mun eiga við andleg veikindi að stríða. Ingibjörg Hinriksdóttir, farar- stjóri íslenska kvennalandsliðs- ins í knattspyrnu í ferð þess til Rússlands, varð fyrir árás ókunnugs manns sem sat fyrir framan hana í flugvélinni. Ingi- björg segir manninn hafa ráðist fyrirvaralaust á sig og slegið sig og klórað í andlitið þannig að báðar varir hennar sprungu og hún hruflaðist og bólgnaði í and- liti. Samferðamönnum tókst að stöðva manninn Samferðamenn hennar náðu að stöðva manninn og koma í veg fyrir að hann réðist aftur á hana skömmu síðar en Ingibjörg segir að fólk sem var með mann- inum hafi ekkert skipt sér af því þótt hann réðist á hana og hefði í hótunum við aðra farþega. Eft- ir þetta var Ingibjörgu úthlutað sæti annars staðar í flugvélinni. Lögregla ræddi við manninn er flugvélin lenti í Keflavík en hann var ekki handtekinn sam- kvæmt upplýsingum lögreglu. Maðurinn mun eiga við andleg veikindi að stríða. Árásin átti sér stað í flugtaki og segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Flugleiða, að áhöfn vélarinnar hafi rætt þann möguleika að snúa við og vísa manninum frá borði. Meðal ann- ars í ljósi þess að fleira starfs- fólk Flugleiða var um borð og gat haft auga með manninum, var þess ekki talin þörf. Fylgst var með manninum sem var ró- legur það sem eftir var ferð- arinnar. Ýmis úrræði Aðspurður segir Guðjón að áhafnir flugvéla hafi ýmis úrræði til að eiga við ofbeldismenn en það sé hluti af öryggisráðstöf- unum að greina ekki nákvæm- lega frá því hverjar þær eru. Framhald málsins sé í höndum lögreglu og Flugleiðir hafi ekki ákveðið til hvaða aðgerða verði gripið. Varð fyrir árás um borð í Flugleiðavél STARFSMENN skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli við Akureyri þakka kærlega fyrir veturinn, eins og seg- ir á heimasíðu, en hvítasunnudagur var síðasti skíðadagurinn. Þykk þoka lá yfir Akureyrarbæ snemma að morgni en heiðskír himinn og sól yfir skíðasvæðinu. Hér sést Tómas Leifsson leika listir sínar í blíðviðr- inu í Hlíðarfjalli á hvítasunnudag. Hætt var við að hafa opið í Hlíðar- fjalli í gær, annan í hvítasunnu, vegna slæmrar veðurspár og seinni partinn í gær mátti sjá þoku hvíla yfir skíðasvæðinu gegnum vef- myndavélar á heimasíðu Hlíðar- fjalls. Ljósmynd/Þórhallur Jónsson Blíðviðri í Hlíðarfjalli

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.