Morgunblaðið - 21.05.2002, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 21.05.2002, Blaðsíða 32
MINNINGAR 32 ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Þorsteinn „Þór“Gregor Þor- steinsson var fædd- ur í Reykjavík 26. nóvember 1935. Hann lést á heimili sínu í Reykjavík 7. maí síðastliðinn. Foreldrar hans voru Elízabeth S. Þor- steinsson húsmóðir fædd Gregor 6. nóv. 1908 í Skotlandi, d. 26. des. 1950, og Helgi Þorsteinsson framkvæmdastjóri, f. 6. okt. 1906 á Seyðisfirði, d. 19. feb. 1967. Bræður Þórs eru Gunnar Gregor Þorsteinsson viðskiptafræðingur, f. 8. maí 1946, kvæntur Báru Oddgeirsdóttur flugfreyju, f. 31. maí 1945, og hálfbróðir Hörður Helgason viðskiptafræðingur, f. 13. des. 1954, kvæntur Dórótheu Jóhannsdóttur matvælafræðing, f. 7. jan. 1957. Þór og Hörður voru samfeðra, en Hörður sonur Þorbjargar Ólafsdóttur húsmóð- ur, f. 17. des. 1917. Stjúpsystir Þórs er Margét Lára Helgadóttir húsmóðir, f. 28. júní 1945, sam- insdóttur Olsson, f. 28. ágúst 1932 í Vestmannaeyjum, d. 23. ágúst 1995. Þór fluttist með foreldrum sín- um til New York árið 1942 þegar Helgi faðir hans var í forsvari fyrir viðskiptaskrifstofu SÍS. Þau fluttu heim 1946. Hann varð stúd- ent frá MR 1955 og lauk fyrri hluta prófi í verkfræði frá Há- skóla Íslands 1959 og fluttist til Kaupmannahafnar með fjöl- skyldu sína til frekara náms. Hann útskrifaðist með M.Sc.- gráðu í byggingarverkfræði frá Danmarks Tekniske Højskole 1962. Að námi loknu starfaði hann í Danmörku til ársins 1966 þegar hann fluttist heim á ný. Fyrstu árin starfaði hann hjá Ís- lenskum aðalverktökum, hann var kennari í Tækniskóla Íslands á árunum 1970-72, en lengst af starfaði hann sem meðeigandi á Verkfræðistofunni Hönnun við hönnun og undirbúning vatnsafls- virkjana. Á árunum 1979-81 starfaði hann hjá Electrowatt Engineering í Sviss og var í for- svari fyrir erlendum verkefnum á vegum fyrirtækisins í Asíu, Suð- ur-Ameríku og á Norðurlöndum. Hann fluttist frá Sviss árið 1982 og starfaði hjá Hönnun til 1986. Eftir það starfaði hann sem sjálf- stæður ráðgjafarverkfræðingur, m.a. fyrir Landsvirkjun, fjár- málaráðuneytið og Vegagerðina. Útför Þorsteins „Þórs“ Gregors fer fram frá Laugarneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. býlismaður Dagur Sigurðarson skáld, f. 6. ágúst 1937, d. 1994. Þorsteinn kvæntist Jóhönnu Rósinkranz hjúkrunarfræðingi árið 1957, f. 9. maí 1933, þau slitu sam- vistum. Þau eignuð- ust þau tvö börn. Þau eru: 1) Elísabet Lára jarðfræðingur, f. 7. des. 1954, gift Jóni Leví Hilmarssyni verkfræðingi, f. 3. okt. 1953, og eiga þau þrjár dætur, Helgu, f. 11. júlí 1980, Jóhönnu Lind, f. 5. ágúst 1982, og Höllu Bryndísi, f. 12. júní 1985. 2) Guðlaugur Örn rekstrarverkfræðingur, f. 3. júlí 1958 kvæntur Ragnhildi Ingólfs- dóttur arkitekt, f. 26. mars 1955, og eiga þau þrjú börn, Elinu Klöru, f. 16. júlí 1986, Helenu Hönnu, f. 27. jan. 1992, og Þor- stein Gregor, f. 30. nóv. 1995. Þór kvæntist Olgu Beck skrifstofu- manni árið 1970. Þau slitu sam- vistum. Hinn 18. janúar 1974 kvæntist Þór Önnu Helgu Krist- Pabbi fæddist í Reykjavík, en flutt- ist ungur að árum til Bandaríkjanna, nánar tiltekið 1942 á stríðsárunum. Í Bandaríkjunum fékk hann viðurnefn- ið Þór, sem kom til vegna þess að Bandaríkjamenn áttu erfitt með að bera fram Þorsteinn, þeir þekktu hins vegar nafnið Þór úr teikni- myndasögum um goðin úr dagblöð- unum. Nafnið festist við hann og köll- uðu hann flestir Þór. Snemma beygðist krókurinn. Þeg- ar hann var í barnaskóla í New York var sá háttur oft hafður á hjá stærð- fræðikennaranum að þeir nemendur sem gátu klárað dæmin sem sett voru fyrir máttu yfirgefa kennslustofuna. Hann lét ekki segja sér þetta tvisvar og var iðulega fyrstur út úr stærð- fræðitímum, enda lá stærðfræðin vel fyrir honum, gjöf sem nýttist honum vel síðar á lífsleiðinni og lagði grunn- inn að hans ævistarfi sem bygging- arverkfræðings. En pabba var fleira til lista lagt, hann var mikill sælkeri og hafði gam- an af því að búa til góðan mat og drykk, allskonar sósur voru hans sér- grein fyrir utan hanastélin. Hann byrjaði snemma að bralla með mat. Hann hafði einstakt dálæti á pipar- mintu, en þegar hann var barnungur á stríðsárunum og allt var af skorn- um skammti dó hann ekki ráðalaus heldur bjó sér einfaldlega til pipar- mintu. Eftir að hafa dvalið á uppeldisár- unum í Bandaríkjunum flyst hann heim til Íslands 11 ára gamall árið 1946 og hóf skólagöngu hér heima. Hann bar þess alla tíð merki að hafa dvalið í Bandaríkjunum sem barn, en jafn auðveldlega og enskan lá fyrir honum og var honum kær, þá vafðist íslenskan eilítið fyrir honum og þá sér í lagi málfræðin. Aðeins fjórum árum eftir að hann og fjölskylda hans fluttust til Íslands, þá 15 ára að aldri, missti hann móður sína, á annan í jól- um árið 1950. Það var honum mikið áfall. Móðir pabba var skosk, hún var kölluð Bettý og í þau fáu skipti sem hann talaði um hana þá var það í dýrðarljóma og var geinilegt að hann dýrkaði hana. Maður gat lesið á milli línanna að það var gagnkvæmt. Hon- um lánaðist að þekkja föður sinn lengur, þó faðir hans hafi látist frekar ungur eða 61 árs. Hann virti föður sinn mikið, þótti vænt um hann og vitnaði oft í hann: „Pabbi sagði alltaf ...“ Pabbi hitt ... Pabbi þetta... Á unglingsárunum stundaði hann sund af kappi og æfði og keppti fyrir sundfélag Ármanns, hann var þar framarlega í flokki. Leið hans lá til mennta og gekk hann í Menntaskól- ann í Reykjavík. Hann gat verið dálít- ill grúskari og fengið brennandi áhuga fyrir ýmsum hlutum. Eitt af hans áhugamálum var ljósmyndun, en á menntaskólaárunum var hann ljósmyndari MR og liggur eftir hann heilmikið safn ljósmynda. Ljós- myndunin hafði afdrifarík áhrif á líf hans, en hann uppgötvaði móður mína á hópmynd sem hann hafði tek- ið á þessum tíma. Hann sá andlit hennar, stækkaði það upp og féll. Þau giftu sig árið 1957. Leiðin lá úr menntaskólanum árið1955 í fyrri hluta verkfræðináms í Háskóla Ís- lands og þaðan til Danmerkur í fram- haldsnám. Hann útskrifaðist síðan með M.Sc. gráðu í byggingarverk- fræði 1962. Pabbi var vinamargur og einn úr hópi verkfræðinga sem lærðu með honum í Danmörku og kalla sig „Groddana“. Hann talaði oft um Groddana. Hann naut félagsskapar þeirra mikið og átti greinilega marg- ar góðar stundir með þeim í gegnum tíðina. Þeir reyndust honum traustir vinir. Að öllum öðrum ólöstuðum þá var hans besti vinur þó Ágúst Val- fells, sem hann kynntist í æsku. Hann hafði mikið dálæti á Ágústi og var vinur hans til dauðadags. Staðfesting á vinarhug hans til Ágústs var ljós- mynd sem fannst af Ágústi í veski hans nú eftir andlát. Þeir brölluðu margt saman í gegnum tíðina, höfðu báðir gaman af efnafræði og gerðu hinar ýmsu efnafræðitilraunir og prakkarastrik með samruna efna. Þ.á m. bjuggu þeir til sprengiefni, sem þeir sprengdu af mikilli ábyrgð í skurði á Klambratúni og var sprengj- an svo öflug að jörðin skalf og kraft- urinn svo mikill að úr tók úr báðum börumum skurðarins. Hann bannaði mér reyndar alltaf að leika þetta eft- ir. Pabbi var góð sál. Ég minnist þess ekki að hann hafi talað illa um nokkurn mann og hann vildi engum illt. Hann lagði mér snemma lífs- reglurnar. Sumarið 1970 þegar ég var 12 ára gamall útvegaði hann mér verkamannavinnu í byggingardeild SÍS sem var þá staðsett úti á Granda. Eftir að ég fékk fyrsta launatékkann tók hann mig á eintal og sagði að ég þyrfti ekki að borga heim eins og tíðkaðist í þá daga. Þess í stað yrðu þær tekjur sem ég ynni mér inn yfir sumarið að duga mér sem vasa- peningur yfir veturinn. Hann skyldi héðan í frá sjá um að veita mér fæði, húsnæði og skólabækur, en ég átti sjálfur að sjá um annað, s.s. fatakaup, sælgæti, skemmtanir, tannlækningar o.s.frv. Með þessu móti vildi hann kenna mér að fara með peninga og standa á eigin fótum strax frá upphafi. Þó að þetta hafi verið hörð lexía þá reyndist það mér gott veganesti út í lífið og er ég honum ævinlega þakklátur. Hann var opinskár gagnvart mér varðandi umgengni við hitt kynið, þar þóttist hann vera á heimavelli og tal- aði af reynslu. Hann var framsýnn og frjálslyndur í hugsun, en ópólitískur. Hann lagði mikla áherslu á að við systkinin menntuðum okkur. Hann sagði að penninn væri tekinn við af sverðinu og orustur framtíðarinnar yrðu háðar með pennanum. Þannig að við skyldum læra að beita honum. Merki um að það rynni skoskt blóð í æðum pabba lýsti sér fyrst og fremst í stolti fyrir uppruna sínum, hann var ekki nískur, þvert á móti gat hann oft verið „grand“ í sér, en hann var hins vegar mjög nýtinn. Það mátti engu henda og hlutirnir voru nýttir í botn. Gott dæmi um þessa nýtni var gamla bjallan sem hann átti og hann kallaði í gríni „The Great Gatspy“. Bíllinn var orðinn svo lúinn þegar hann lánaði dönskum kollega sínum hann í ferð um íslenska malarvegi út á land, að þegar aumingja bauninn kom til baka hafði hann sett styrktarbita þvert undir framsætin til þess hann og kon- an hans sætu nú ekki á götunni ef ske kynni að botninn dytti úr bílnum. Enda þurfti að lyfta upp löppunum þegar bílinn var keyrður í stóra polla til þess að blotna ekki í fæturna. Pabbi var nákvæmur fram í fing- urgóma, hann hafði létta lund og eins og allri vita sem þekktu hann var allt- af stutt í húmorinn. Hann kunni ógrynni af bröndurum og hafði gíf- urlega gaman af að segja brandara og heilu sögurnar sem kitluðu hlát- urstaugarnar, en minni hans á brand- ara og staðreyndir var með ólíkind- um. Hann sagði mér að hafa húmorinn með mér í gegnum lífið því þannig yrði það léttara. Sjálfur fylgdi hann þessari sannfæringu sinni og undir lokin hafði hann á prjónunum brandarabók sem hann hugðist gefa út á ensku í gegnum útgefanda í New York, en honum entist ekki aldur til þess. Annars var hann alla tíð heilsu- hraustur, það var tekinn úr honum botlanginn þegar hann var ungur í Bandaríkjunum og státaði hann sig af því að hafa einn minnsta botlang- askurð sem sést hefur. Ekki fannst honum síður merkilegt að það var enginn annar en skurðlæknir Hitlers sem hafði flúið frá Þýskalandi á stríðsárunum, sem fjarlægði botn- langann úr honum í gegnum pínulítið gat, sem vakti mikla athygli þeirra lækna sem hann komst í tæri við. Heilsan var þó farin að bresta síðustu árin. Hann lést úr hjartaáfalli 66 ára að aldri. Eftir hann hefur myndast tóma- rúm sem verður einungis fyllt með minningum. Ég mun sakna þess að geta ekki lengur sótt í þá þekkingu og visku sem pabbi bjó yfir og geta leit- að til hans í erfiðleikum, en hann var bæði útsjónarsamur og ráðagóður. Á svona stundu leita óneitanlega á mann spurningar eins og: Til hvers erum við hér? Og: Hvert förum við að jarðvist lokinni? Helst veita orð Sókratesar nokkra huggun. Hann óttaðist ekki dauðann og sagði: „Eftir dauðann kemur aðeins tvennt til, annað hvort er maður ómeðvitaður og þá er dauðinn eins og svefninn og eilífðin eins og ein nótt og því kvíði ég ekki, eða maður er meðvitaður og þá hlakka ég til að hitta alla mína ástvini og mikilmenni sem nú þegar eru horfnir á braut.“ Hvort heldur sem er, þá færi ég þér mína hinstu kveðju, pabbi minn, og hver veit nema seinni kostur Sókratesar sé réttur. Guðlaugur Örn. Þór Þorsteinsson tengdafaðir minn er látinn. Hann hafði átt við nokkur veikindi að stríða, en þó kom andlát hans okkur öllum á óvart. Þór hefði að réttu átt að heita Þor- steinn Gregor Helgason, en þar sem hann flutti ungur með foreldrum sín- um til Bandaríkjanna og bjó þar fyrstu uppvaxtarárin tók hann upp eftirnafn föður síns. Bandaríkja- mönnum var nafnið Þorsteinn ótamt í munni og því styttist það í Þór. Þetta nafn fylgdi honum alla tíð. Móðir Þórs var skosk og þótti honum það útskýra ýmsa eðlisþætti sína, sem stundum eru tengdir íbúum þess lands. Á unglingsárunum stundaði hann sund og fram á fullorðinsár var hann keppnismaður í skriðsundi á styttri vegalengdum. Hann sagðist ekki hafa haft mikið þol en verið því sprettharðari. Sundið var sú líkams- rækt sem honum var hugleiknust og taldi hann það flestum öðrum íþrótt- um betra. Þór var verkfræðingur að mennt og starfaði lengst af á verkfræðistof- unni Hönnun, þar sem hann var með- eigandi. Ég átti þess kost að vinna með Þór að verkefnum við útboðsgagnagerð sem varð einskonar sérsvið hans, enda hafði hann þá unnið við að skrifa slík gögn á ensku í tvo áratugi. Þá varð ég áþreifanlega var við þá kosti sem reyndust ómetanlegir þegar á hólminn var komið. Nákvæmni sem jaðraði við smámunasemi að mínu mati, en sem varð til þess að ekkert gleymdist, frábær enskukunnátta og máltilfinning og góð undirstöðuþekk- ing á sviði verktakalögfræði. Hann hafði ávallt dæmi á takteinum til að rökstyðja að nauðsynlegt væri að hafa ákveðna klásúlu orðaða eins og hann vildi vegna þess að dómur hefði fallið í svipuðu máli og því væri nauð- synlegt að verjast. Hann lagði áherslu á að miklu máli skipti hvernig útboðsgögn væru skrifuð og þar gilti að „He who has the gold makes the rules“. Þór lagði aldrei illt orð til nokkurs manns svo ég heyrði og var almennt mjög tillögugóður. Hann var sögu- maður mikill, kunni ógrynni gaman- sagna og kunni að segja þær. Það heyrði til algerrar undantekningar ef maður heyrði sömu söguna tvisvar. Hann talaði oft um að hann þyrfti að skrifa þessar sögur hjá sér og kannski gefa þær út. Þór var þríkvæntur. Síðast Önnu Helgu Kristinsdóttur, sem lést árið 1995 eftir erfið veikindi, sem reyndu einnig mjög á hann. Hann átti erfitt með að sætta sig við orðinn hlut og saknaði Önnu sárt, en hvílir nú von- andi glaður í faðmi hennar á ný. Jón Leví Hilmarsson. Mig langar til að kveðja tengda- pabba með nokkrum orðum og þakka fyrir að hafa fengið að kynnast hon- um. Við Gulli vorum ekki búin að þekkjast lengi þegar ég hitti hann fyrst, en þá var hann á leiðinni til Zürich í Sviss til að vinna fyrir Electrowatt. Gulli var að fara til Bandaríkjanna að læra og ég til Frakklands til áframhaldandi náms. Ég rétt náði því að heilsa honum og kveðja. En ekki leið á löngu þar til við heimsóttum hann og Önnu konu hans til Sviss. Ég gleymi aldrei þeirri ferð. Margt var skoðað og mikið hlegið. Hann vildi segja okkur allt sem hann vissi um Sviss og ég hlustaði á allt sem hann hafði að segja. Tíminn leið og fyrr en varði vorum við öll komin heim. Þegar þriðja barnið okkar, Þorsteinn Gregor, fæddist var Anna nýdáin. Ég veit að tengdapabbi syrgði hana mjög mikið. En mikið var hann ánægður þegar hann eignaðist fleiri barnabörn og stoltur yfir því að fá að halda nafna sínum undir skírn. Þó svo að hann hafi sagt í stríðni að hann hefði alveg eins getað heitið Cesar. En það var honum líkt að grínast með svona lag- að. Því eins og ég get lýst tengda- pabba best þá var hann alltaf bjart- sýnn, með eindæmum skapgóður og stríðinn. Og ekki má gleyma sögu- manninum, því ekki var hægt að tala við hann án þess að það fylgdi saga úr fortíðinni með og það var örugglega hægt að læra af henni í leiðinni. Vegna veikinda talaði hann mikið við barnabörnin sín í síma og þegar hann hringdi vissum við að við gátum lagt frá okkur það sem við vorum að gera, því venjulega vorum við í einn til tvo klukkutíma í símanum. En það var vegna þess að hann var t.d. að kenna Elinu Klöru sögu, Helenu Hönnu rómversku tölurnar og að reyna að láta Þorstein Gregor reikna eða leysa gátur. Þorsteinn Gregor spurði mig í gær hvort afi væri orðinn að engli og myndi passa hann vel og vandlega og svo bætti hann við: „En, mamma, heldur þú að hann sé búinn að leysa gátuna?“ Mér varð svarafátt. Ég vona að tengdapabba líði vel þar sem hann er nú og búinn að hitta aftur þá sem honum þótti vænt um. Ég sakna þess mikið að fá ekki að tala við hann oftar og fá ekki að hlusta á allar sögurnar hans sem mér og börnunum fannst svo skemmtilegar og lærdómsríkar. Ragnhildur. Elsku afi minn er látinn. Samskipti okkar síðustu árin fóru að mestu fram í gegnum síma, enda afi alltaf til í að ræða málin. Það sem einkenndi samræður okkar upp á síðkastið voru umræður um lögfræði, þar sem ég byrjaði nýlega nám í lögfræði. Þegar ég skýrði afa frá því hvað ég ætlaði að leggja fyrir mig í framtíðinni hváði hann bara og spurði mig hvernig í ósköpunum mér dytti í hug að byrja að læra þetta, þetta væri svo hrika- lega leiðinlegt! En eftir nokkuð mörg símtöl sem öll snerust um lögfræði og alltaf að hans frumkvæði fór mig að gruna að það væri nú kannski eitt- hvað málum blandið hvað honum fyndist þetta leiðinlegt. Nógu gaman fannst honum allavega að tala um þetta. Það kom líka upp úr krafsinu að hann hafði heilmikið starfað við lögfræði þótt ekki væri hann mennt- aður í faginu. Afi var alltaf boðinn og búinn að aðstoða og ráðleggja manni, sem sást vel á því, hve umhugað honum var um að koma á fundi milli mín og vinar síns sem einmitt var lögfræðingur, bara svo ég vissi hvað ég væri að fara út í. Svo þyrfti ég helst að læra fram- sögu því það væri afskaplega mikil- vægt í starfi lögfræðings. Svona var afi, alveg sama hvort maður var að fara í stærðfræðipróf eða á leið til út- landa, þá var hann sá sem maður átti að leita til. Hvernig er líka hægt að efast um manninn sem ólst upp er- lendis en tókst samt að fá hæstu ein- kunn fyrir íslenska ritgerð á stúd- entsprófi, það er auðvitað ekki hægt. Mér hefur alltaf þótt merkilegt, að þrátt fyrir að afi hafi þurft að etja við ýmsa erfiðleika á lífsleiðinni hélt hann alltaf jákvæðninni og sinni léttu lund. Eitt af hans aðalsmerkjum var hve góða kímnigáfu hann hafði og hve óskaplega gaman hann hafði af að segja sögur, enda afskaplega fær í því. Ég vildi að ég hefði kynnst afa mín- um betur því ég veit að þar fór fjöl- hæfur maður með áhuga á öllu milli himins og jarðar. Ég veit að ég fékk aðeins að sjá brot af þeim manni sem hann var, hann var mikill íþróttamað- ur, hann gerði listilega góðan mat og hann var búinn að ferðast út um allan heim. Allt sem hann tók sér fyrir hendur vildi hann gera betur en vel. Ég kveð elsku afa með hlýhug og ÞORSTEINN GREGOR ÞORSTEINSSON

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.