Morgunblaðið - 21.05.2002, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 21.05.2002, Blaðsíða 27
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2002 27 Bíldshöfða Bakhús inni í portinu Enn meiri verðlækkun Síðustu dagar sumar Nú eru komnar spennandi vörur fyrir sumarið í Mogga- búðina, kjörið tækifæri fyrir fríska ferðalanga. Þú getur keypt boli, sundpoka, töskur, golfvörur, geisladiskahulstur, klukkur, reiknivél o.fl. á einstöku verði beint af Netinu með öruggum hætti. Þú skoðar vörurnar og pantar á mbl.is og færð þær sendar heim til þín eða á vinnustað. Líttu inn hjá okkur fyrir ferðalagið! Hvítur bolur, nú 500 kr. Brúnn bolur, nú 500 kr. Armbandsúr, nú 750 kr. Þú getur líka komið við hjá okkur í Morgunblaðshúsinu, Kringlunni 1, og skoðað vörurnar þar. EINFALT OG ÞÆGILEGT! sumartilboð 50% afsláttur! Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr. Derhúfa, aðeins 800 kr. Síðermabolir, aðeins 1.300 kr. Sundpoki, aðeins 1.000 kr. Reiknivél, aðeins 950 kr. Geisladiskahulstur, aðeins 700 kr. Músarmotta, aðeins 450 kr. Íþróttataska, aðeins 2.400 kr. í Moggabú›inni Í viðhorfskönnun, sem gerð var á vegum Félagsvísindastofnun- ar HÍ og birt er í ný- legri bók Gunnars Helga Kristinssonar prófessors, Staðbundin stjórnmál, er ástæða fyrir Seltirninga að fagna. Í henni voru íbú- ar í stærri sveitarfélög- um landsins spurðir hvort þeir væru ánægð- ir, hlutlausir eða óánægðir með þjónustu sveitarfélagsins. Ánægðustu íbúarnir Niðurstaðan var einkar ánægjuleg fyrir okkur á Nesinu. Hvergi reyndust íbúar ánægðari með almenna þjónustu eða um 72% og yfirgnæfandi meiri- hluti Seltirninga eða um 82% segj- ast ánægð með skólamálin, sem einnig skipar okkur til öndvegis á meðal sveitarfélaga. Niðurstaðan er ótvírætt merki þess að við Seltirn- ingar erum á réttri braut undir traustri forystu Sjálfstæðisflokkins í bæjarstjórn. Hinn 25. maí nk. verður gengið til sveitarstjórnar- kosinga. Sjálfstæðismenn tefla á ný fram sterkum og sigurstranglegum lista, sem líklegur er til afreka fyrir hönd bæjarbúa á nýju kjörtímabili. Í þjónustu Seltirninga Ýmis mál bíða einatt úrlausnar bæjarstjórnar. Um leið og mikil- vægt er að leggja tilteknar áherslur tel ég að á pólitískum fulltrúum og stjórnmálaflokkum hvíli sú skylda að vera talsmenn allra bæjarbúa og allra brýnna verkefna en ekki síður að þeir hafi dómgreind til að greina á milli mikilvægis einstakra mála og hæfni til að forgangsraða verkefn- um með heill umbjóðenda sinna og bæjarsjóðs að leiðarljósi. Undir forystu sjálfstæðismanna hefur skólastarf á Seltjarnarnesi verið í fararbroddi um langt skeið. Á kjörtímabilinu hefur um 1.500 milljónum verið varið til fræðslu- mála og á því næsta er gert ráð fyrir í að framlög verði um 2,5 milljarðar. Seltjarnarnes er á meðal þeirra sveitarfélaga sem mestu verja til skólamála en um leið það bæjar- félag sem uppsker hvað best ef mið er tekið af námsárangri. Tæpur helmingur af rekstrartekjum bæj- arins rennur nú til málaflokksins. Það merkir að nær önnur hver króna sem við öflum rennur til menntunar og umönnunar barna okkar. Markmið sjálfstæðismanna í skólamálum er að styðja við og byggja upp metnaðarfullt og árang- ursríkt skólastarf, sem skilar sér til allra nemenda, í leikskólum, grunn- skólum og í tónlistarskóla. Útivist, íþróttaiðkun og almenn heilsuefling byggjast á að skilyrði séu fyrir hendi til að slíkra lífsgæða verði notið af hálfu bæjarbúa. Íþróttastarf blómstrar á Seltjarnarnesi, ekki síst fyrir tilstilli núver- andi bæjarstjórnar. Í Íþróttafélaginu Gróttu eru um 600 iðkendur, fjölmennur trimm- klúbbur setur svip á bæinn og vel á fjórða hundrað manns er í Golfklúbbi Ness. Þá hefur bæjarstjórn stór- eflt aðstöðu til heilsuræktar og úti- vistar á Seltjarnarnesi með lagningu göngustíga, skipulagningu opinna útivistarsvæða og varðveislu nátt- úruperlna sem bæjarfélagið státar af. Þennan árangur munu frambjóðend- ur Sjálfstæðisflokks taka þátt í að varðveita og efla. En það eru ekki einungis börn og fjölskyldufólk sem eiga að njóta sín á Seltjarnarnesi. Ekki er síður mikil- vægt að elstu bæjarbúarnir, sem mikið hafa lagt af mörkum til sam- félagsins, fái góða þjónustu. Sel- tirningar hafa skyldum að gegna við þá sem eldri eru. Sjálfstæðismenn vilja láta verkin tala og leggja áherslu á að hafin verði bygging hjúkrunar- heimilis eins fljótt og auðið er. Íbúa- þing sem sjálfstæðismenn hyggjast efna til í haust er kjörið til þess að takast á við skipulagsumræðuna í heild sinni. Ábyrgð í rekstri bæjarins Sérstaða Sétjarnarness felst því að álögum hefur verið haldið í lágmarki en um leið hefur tekist að veita íbúum góða þjónustu. Á bæjarfulltrúum hvílir sú skylda að nýta skattfé okkar með ábyrgum og árangursríkum hætti í þágu allra bæjarbúa en jafn- framt leita leiða til að gera jafnvel eða betur með minni tilkostnaði. Fram- bjóðendur Sjálfstæðisflokks munu tryggja þessa forgangsröðun. Gerðu tilkall til traustrar forystu Jónmundur Guðmarsson Seltjarnarnes Hvergi, segir Jónmundur Guðmars- son, eru íbúar ánægðari með almenna þjónustu en á Seltjarnarnesi eða um 72%. Höfundur er forseti bæjarstjórnar og leiðir framboðslista Sjálfstæðis- flokks á Seltjarnarnesi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.