Morgunblaðið - 21.05.2002, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 21.05.2002, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2002 39 FRÉTTIR ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S RU N 17 83 8 05 /2 00 2 Sumarið er líka komið hjá okkur Úrval af galla- og hörfatnaði GEÐHJÁLP efnir til opins borg- arafundar um geðheilbrigðismál og málefni geðsjúkra með oddvitum stærstu framboðanna til borgar- stjórnar á morgun, miðvikudag 22. maí. Yfirskrift fundarins er Hvað þarf borgin að bæta? og eru fram- sögumenn Björn Bjarnason, Ingi- björg Sólrún Gísladóttir og Ólafur F. Magnússon. Sveinn Magnússon, fram- kvæmdastjóri Geðhjálpar, segir að framsögumenn tali í sjö mínútur hver til þess að byrja með og er þeim ætlað að leggja út af yf- irskrift fundarins í erindum sínum. Að því búnu muni gefast tími fyrir spurningar úr sal. Sveinn segir af mörgu að taka þegar málefni geðsjúkra í höfuð- borginni ber á góma. „Það vantar til að mynda mikið upp á samstarf félagsmálayfirvalda og heilbrigðis- yfirvalda varðandi málefni geð- sjúkra í borginni. Geðsjúkdómar eru ekki bara heilbrigðismál. Um þessar mundir eru 50–60 geðsjúkir einstaklingar algerlega húsnæðis- lausir í borginni og ótölulegur fjöldi manns hefur verið sviptur sjálfræði, en býr á eigin vegum eða á vegum aðstandenda, og er ekki sinnt, hvorki af heilbrigðis- né félagsmálayfirvöldum. Þegar í óefni er komið er þetta fólk borið út og í sumum tilfellum er farið með það á bráðamóttöku og það skal tekið fram að geðsjúkir eru ekki fluttir á spítala í sjúkrabíl, heldur í lögreglubíl. Eftir nokkurn tíma fær viðkomandi aftur afnot af húsnæði á vegum félagsþjónust- unnar og nokkru síðar endurtekur leikurinn sig. Við höfum þurft að horfa upp á ótölulegan fjölda fólks ganga í gegnum þetta, bæði hér í borginni og úti um land allt. Við höfum kallað eftir opinberum töl- um um fjölda þessara einstaklinga en menn yppta bara öxlum,“ segir Sveinn Magnússon framkvæmda- stjóri Geðhjálpar. Fundurinn verður haldinn í Iðnó og hefst klukkan 17.30. Opinn borgarafundur um geðheilbrigðismál FÉLAGIÐ Heyrnarhjálp vinnur nú að því að fá aukna textun á inn- lendu sjónvarpsefni. Fulltrúar fé- lagsins áttu nýverið fund með Markúsi Erni Antonssyni útvarps- stjóra og Bjarna Guðmundssyni framkvæmdastjóra sjónvarpsins um textun í sjónvarpi. Í frétt frá Heyrarhjálp segir að Ísland standi langt að baki ná- grannaþjóðum og öðrum helstu við- miðunarlöndum varðandi þessi mál. Fundurinn var upplýsandi og vin- samlegur og á næstu misserum verður leitað leiða til að ná árangri í textun innlends efnis. Á fundinum voru útvarpsstjóra afhentir undirskriftalistar með áskorum um textun, sem safnast hafa hjá félaginu undanfarið. Félagið Heyrnarhjálp lítur á það sem réttlætiskröfu fyrir heyrn- arskerta/heyrnarlausa, unga og gamla, alla eldri borgara þessa lands og aðra þá sem erfitt eiga með að skilja talað mál í sjónvarpi að fá texta á allt efni, innlent sem erlent. RÚV Sjónvarp getur ekki talist sjónvarp „allra landsmanna“ fyrr en átak verður gert í textun efnis. Á aðalfundi félagsins 22. þessa mánaðar verður fræðsluþema ein- mitt um textunarmálin. Fundurinn verður í Hátúni 10 á fyrstu hæð og hefst kl. 20.00. Málfríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri félagsins, afhendir útvarps- stjóra listana. Aðrir á myndinni eru Bjarni Guðmundsson, framkvæmda- stjóri Sjónvarps, og Helga Kristinsdóttir úr stjórn Heyrnarhjálpar. Vilja að allt sjónvarpsefni verði textað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.