Morgunblaðið - 21.05.2002, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 21.05.2002, Blaðsíða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ                                    BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. FJÖLSKYLDAN kaus ekki! Þetta var upphaf bréfs sem ég skrifaði til Morgunblaðsins í lok maí 1999. Ástæðan var sú að sérstök kjör- deild fyrir fatlaða, sem hafði verið í Hátúni, hafði ver- ið lögð niður. Í Hátúni var vísað á Kjarvalsstaði og að þar væri gott aðgengi fyrir fatl- aða í hjólastól. Þegar þangað var komið var mér vísað frá og ekki hlustað á mótbárur, þrátt fyrir að ég hefði verið upplýst- ur um að ekki væri aðgengi fyrir fatl- aða í hjólastól í Breiðagerðisskóla, minni kjördeild. Til að gera langa sögu stutta, þá var mér misboðið og þrátt fyrir að reynt væri að aðstoða mig á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins bar það ekki árangur. Fjölskyldan fór þá heim, þar sem ég hringdi í for- mann kjörnefndar, Jón Steinar, sem síðar þuldi upp lagabókstafi og taldi því ekki mögulegt að leyfa mér að kjósa nema í minni kjördeild. Ekki virtist hann hafa kynnt sér aðstæður og nefndi því ekki að búið var að gera skábraut fyrir hjólastóla í Breiða- gerðisskóla. Þegar hér var komið ákvað fjölskyldan að kjósa ekki. Nú er að koma að kosningum aftur og er það lágmarkskrafa að gott að- gengi sé fyrir fatlaða í hjólastól í öll- um kjördeildum, svo sem reglur segja til um. Sé ekki gott aðgengi, verði starfsmenn upplýstir um hvernig og hvar fatlaðir geti kosið. ÞÓRÐUR JÓNSSON, Neðstaleiti 2, Reykjavík. Hvar eiga fatlaðir að kjósa? Frá Þórði Jónssyni: Þórður Jónsson ÉG vil fyrir hönd Landssamtaka hjartasjúklinga þakka stuðning við merkjasölu samtakanna í maíbyrjun. Að þessu sinni gekk okkur ekki eins vel og oft áður og því bendum við þeim mörgu sem vilja styðja málstað okkar á að þeir geta á mjög einfaldan og þægilegan máta komið til liðs við okkur með því að hringja í númer 907 2005 og þá er símareikningur þinn skuldfærður um kr. 500 eða númer 907 2001 og þá verður skuldfærslan 1000 kr. Undanfarin ár höfum við safnað mest fyrir tækjakaupum í sambandi við síaukna áherslu á for- varnir og endurhæfingu um land allt. Grípið þennan þægilega kost – eitt símtal og við verðum betur í stakk búin að hjálpa. Ásgeir Þór Árnason, starfsmaður Landssamtaka hjartasjúklinga. Þakkir fyrir stuðning Frá Ásgeiri Þór Árnasyni: UNDIRRITUÐ ritaði grein til Morgunblaðsins, sem staðfest var að hefði borist blaðinu þann 22.4. sl. undir fyrirsögninni Enn um de- CODE. Ekki veit ég hvað olli töf á birtingu greinarinnar, utan þess að símanúmer höfundar vantaði. Bætt var úr því 2 dögum seinna en grein- in var birt í dag 14.05. Er fjöldi að- sendra greina það mikill að ekki sé unnt að koma þeim á framfæri á eðlilegum tímamörkum? (Sem ég tel að ætti að vera nokkrir dagar til vika.) Gott orðatiltæki segir „Hamra skal járnið meðan heitt er“. Það taldi ég mig vera að gera með umræddri grein, á meðan umræðan um ríkisábyrgð til handa deCODE stóð sem hæst. Ekki ætla ég hér að endurtaka þau skrif mín, en held mínu striki í að vera alfarið á móti því að Ríkið í gegn um Alþingi okk- ar takist á hendur slíka ábyrgð. Breytingartillögu þarf að sam- þykkja með lögum á Alþingi til að ná umræddri ríkisábyrgð í gegn. Er forsvaranlegt að breytingartil- lagan nái þá aðeins í gegn til handa einu fyrirtæki umfram önnur? Eða ber að endurskoða alfarið lögsetn- ingu þar að lútandi á jafréttisgrund- velli? Eru ekki laga- og dómsúr- skurðir fordæmisgefandi? Og enn spyr sá sem ekki veit. Hvað með önnur fyrirtæki t.d. í líftækni- og lyfjaþróunargeiranum. Fá þau samskonar meðhöndlun? Mál þetta þykir mér vera það umdeilt að réttast væri að lands- menn fengju þar einhverju um ráð- ið, t.d. með þjóðaratkvæðagreiðslu samhliða sveitarstjórnarkosningun- um. Undirrituð tekur það þó skýrt fram, að hún er ekki að forsmá það starf sem unnið er hjá viðkomandi fyrirtæki. Samþykkti sjálf að til- heyra þeim hópi sem veitir aðgang að heilsufarsupplýsingum um sig og sína til uppbyggingar á ransókn- arstarfi þess. Niðurlag: Gildandi lögum skal að jafnaði fylgja og með jöfnuði beita. Annars eru þau að lögleysu orðin. ELÍN BIRNA ÁRNADÓTTIR, Vesturholti 6, Hafnarfirði, í 18. sæti á B-lista í Hafnarfirði. Ríkisábyrgð fyrir deCODE Frá Elínu Birnu Árnadóttur:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.