Morgunblaðið - 21.05.2002, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 21.05.2002, Blaðsíða 14
ERLENT 14 ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ meistar inn. is GULL ER GJÖFIN Kjörfundur vegna sveitarstjórnarkosninga í Eyjafjarðarsveit verður laugardaginn 25. maí 2002 og hefst kl. 10.00 f.h. og lýkur kl. 22.00 sd. Eyjafjarðarsveit er skipt í tvær kjördeildir. Kjördeild I: Austan Eyjafjarðarár nær kjördeildin frá og með Öxnafelli til og með Halldórsstöðum. Vestan Eyjafjarðarár nær hún yfir svæðið sunnan Djúpadalsár. Kosið verður í Sólgarði. Kjördeild II: Austan Eyjafjarðarár nær kjördeildin frá og með Sámsstöðum að sunnan og norður að sveitarfélagamörkum. Vestan Eyjafjarðarár frá Djúpadalsá og norður að sveitarfélagamörkum. Kosið verður í Hrafnagilsskóla. Athygli er vakin á því, að kjósendur þurfa að vera viðbúnir því að sýna persónuskilríki ef um það verður beðið. Talning hefst eins fljótt og unnt er að kjörfundi loknum og fer hún fram í Hrafnagilsskóla. Yfirkjörstjórn hefur aðsetur í Hrafnagilsskóla á kjördag og hægt verður að ná í hana í síma 463 1137. Yfirkjörstjórn Eyjafjarðarsveitar 17. maí 2002. Emilía Baldursdóttir, Hörður Adólfsson, Níels Helgason. Eyjafjarðarsveit VÍSINDAMENN við landbúnaðar- deild Hebreska háskólans í Ísrael hafa með erfðatæknilegum aðferð- um búið til kjúkling sem hefur ekk- ert fiður. Nakti kjúklingurinn, eins og fuglinn hefur verið nefndur, er ennfremur kaloríusnauðari, þar sem minni fita er í honum vegna þess að hann er fjaðralaus. Reuters Nakti kjúk- lingurinn BERTIE Ahern, forsætisráðherra Írlands og leiðtoga Fianna Fáil- flokksins, tókst ekki að tryggja sér hreinan þingmeirihluta í kosningum sem haldnar voru á Írlandi sl. föstu- dag. Flokkur hans vann þó mikinn sigur á sama tíma og helsti stjórn- arandstöðuflokkurinn, Fine Gael, galt afhroð. Góður árangur stjórn- arflokkanna, Fianna Fáil og Fram- farasinnaða lýðræðisflokksins (PD), er helst skýrður með því að almenn velsæld hafi verið á Írlandi undan- farin ár, auk þess sem Ahern nýtur mikilla persónulegra vinsælda. Fianna Fáil var ekki nema hárs- breidd frá því að tryggja sér hreinan þingmeirihluta, en 186 fulltrúar eiga sæti á írska þinginu. Var í gær gert ráð fyrir því að hann hæfi viðræður við Mary Harney, leiðtoga PD, um áframhaldandi stjórnarsamstarf en PD hefur nú átta þingmenn í stað fjögurra áður. Ahern gæti hins vegar einnig tekið þann kostinn að fá til liðs við sig nokkra óháða þingmenn, sem náðu kjöri í kosningunum, og sem áður voru í Fianna Fáil. Þá gæti hann myndað stjórn með fimm þingmönn- um Sinn Féin, stjórnmálaarms Írska lýðveldishersins (IRA), en hefur sagt, að það komi ekki til greina. Í öllu falli er þó ljóst að Ahern verður áfram forsætisráðherra en hann hefur gegnt embættinu frá 1997. Leiðtogi Fine Gael sagði af sér Auk stórsigurs Fianna Fáil, sem fékk 80 þingmenn kjörna, bar það helst til tíðinda í kosningunum að helsti stjórnarandstöðuflokkurinn, Fine Gael, galt afhroð og tapaði meira en tuttugu þingsætum. Flokk- urinn hafði áður 54 þingsæti en fékk ekki nema 31 þingmenn kjörna nú. Fine Gael og Fianna Fáil, sem báðir eru nokkurs kon- ar miðhægri- flokkar, skiptust á um að vera við stjórnvölinn á Ír- landi alla síðustu öld en flokkarnir eiga rætur að rekja til klofnings í röðum írskra þjóðernissinna árið 1921. Michael Noonan, leiðtogi Fine Gael, hefur þegar sagt af sér emb- ætti og segir í frétt The Irish Times að fimm menn muni líklega koma til álita sem eftirmenn hans. John Brut- on, fyrrverandi forsætisráðherra, er nefndur þar til sögunnar en Noonan felldi Bruton úr leiðtogasætinu í kjöri í janúar á síðasta ári. Sögðu sumir áhrifamenn í Fine Gael að flokkurinn hefði aldrei feng- ið þá útreið nú, sem raun ber vitni, hefði Bruton enn verið leiðtogi hans. Verkamannaflokkurinn, sem var í stjórn með Fine Gael á árunum 1994-1997, fékk svipað fylgi í kosn- ingunum nú og seinast, og fékk 21 þingmann kjörinn. Róttækari stjórnarandstaða Sinn Féin, stjórnmálaarmur Írska lýðveldishersins (IRA), hefur um árabil haft sterka stöðu á Norður- Írlandi en lítið fylgi haft á Írlandi. Í þessum kosningum fékk flokk- urinn hins vegar fimm menn kjörna, í stað eins áður, og þá fengu Græn- ingjar sex þingsæti í stað tveggja áð- ur. Þykir því ljóst að pólitískt lands- lag á Írlandi hefur breyst umtalsvert í þessum kosningum, og að stjórn- arandstaðan verði – sökum góðs ár- angurs Sinn Féin og Græningja – mun róttækari á næsta kjörtímabili en verið hefur. Ahern vann stórsigur í kosningunum á Írlandi Tókst ekki að tryggja sér hreinan meirihluta en verður áfram forsætisráðherra Dublin. AFP. Bertie Ahern RÍFLEGA tveir af hverjum fimm Bretum segja að koma innflytjenda til landsins hafi skemmt samfélagið á undanförnum fimmtíu árum, að því er fram kemur í niðurstöðum könn- unar sem fréttavefur breska ríkisút- varpsins, BBC, birti í gær. Fjörutíu og fjórir af hundraði töldu komu inn- flytjenda hafa haft neikvæð áhrif, en 30% sögðu hana hafa verið til bóta fyrir breskt samfélag. Skoðanir aðspurðra voru breyti- legar eftir því hvaða kynþætti þeir tilheyra. Fjörutíu og sjö prósent hvítra, sem spurðir voru, töldu komu innflytjenda hafa haft neikvæð áhrif, miðað við 22% þeldökkra og fólks af asískum uppruna. Einungis 28% hvítra töldu komu innflytjenda hafa haft bætandi áhrif á breskt sam- félag, en 43% blökkumanna og fimm- tíu af hundraði fólks af asískum upp- runa voru þeirrar skoðunar. Naumur meirihluti allra að- spurðra, 52%, taldi að fólk sem til- heyrir minnihlutahópum gæti lagt meira á sig til að samlagast bresku samfélagi, og hátt í þriðjungur að- spurðra taldi að þetta fólk reyndi ekki einu sinni að aðlaga sig sam- félaginu. Alls tóku 1.576 fullorðnir þátt í könnuninni. Meirihluti þeirra, 51%, taldi kynþáttahatur ríkjandi í bresku samfélagi, en 40% voru ósammála því. Fimmtíu og fimm af hundraði töldu að umburðarlyndi milli kyn- þátta væri meira í Bretlandi nú en það hafi verið fyrir tíu árum. Rétt rúmlega helmingur svarenda átti vinahóp sem í var fólk af öðrum kyn- þætti, en 46% ekki. BBC kannar hug Breta til komu innflytjenda til landsins 44% telja áhrifin á breskt samfélag slæm London. AFP. ELLEFU manns að minnsta kosti eru fallnir, yfir 50 særðir og rúmlega 12.000 á vergangi eftir að Indverjar og Pakistanar hafa skipst á skotum í Kasmírhéraði fjóra daga í röð, að sögn embættismanna í gær. Átökin hófust sl. föstudag, eftir að Indverjar sökuðu skæruliða í Pakistan um að hafa í síðustu viku gert árás sem kostaði 35 manns lífið í borginni Jammu, og voru flestir hinna látnu konur og börn hermanna. Indverjar og Pakistanar saka hvorir aðra um að hafa átt upptökin að átökunum, sem hafa m.a. orðið til þess að um tólf þúsund manns hafa hrakist að heiman. Að sögn embætt- ismanna eiga flestir þeir, sem komn- ir eru á vergang, heima nærri landa- mærunum. Ríkin hafa alls safnað um einni milljón hermanna að landamærun- um síðan í desember sl., er blóðugt tilræði var framið á indverska þinginu í Nýju-Delhí. Segja Indverj- ar hryðjuverkamenn, er hafi aðsetur í Pakistan, hafa staðið að tilræðinu. Bandaríkjamenn hafa látið í ljósi miklar áhyggjur af liðssafnaði ríkj- anna við landamærin, og í næsta mánuði mun Richard Armitage, að- stoðarutanríkisráðherra Bandaríkj- anna, halda til Pakistans. Ferð hans hafði verið áætluð áður en nýjustu átökin brutust út, að sögn pakist- ansks embættismanns. Reuters Indverskir hermenn miða sprengjuvörpu í Kasmír í gær. Átök í Kasmír Srinagar, Islamabad. AFP. Begga fína AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.