Morgunblaðið - 21.05.2002, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 21.05.2002, Blaðsíða 28
UMRÆÐAN 28 ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ NÝLEGA var kynnt könnun sem gerð var fyrir tilstilli borgaryf- irvalda og jafnréttis- nefndar Reykjavíkur- borgar um launamun kynjanna. Könnun þessi er sambærileg annarri könnun sem gerð var 1995, ári eftir að Reykjavíkurlistinn tók við stjórnartaum- unum í höfuðborginni. Reykjavíkurborg er fyrsti atvinnurekandi landsins til að gera slíka samanburðar- rannsókn á launamun kynjanna yfir ákveðið tímabil. Með þessu er hægt að meta árangur þeirra aðgerða sem beitt hefur verið til að jafna launamuninn og má segja að þessi samanburðar- rannsókn á þessu sviði sé einsdæmi enn sem komið er. Þegar þessar tvær kannanir eru bornar saman er niðurstaðan slá- andi. Þegar Reykjavíkurlistinn komst til valda voru karlmenn al- mennt með 15,5% hærri laun en konur. Nú, eftir átta ára stjórnartíð R-listans, hefur þessi munur minnkað um 55% og er orðinn 7%. Hér er um að ræða þann launa- mun sem eftir stendur þegar tillit hefur verið tekið til vinnutíma, ald- urs, menntunar og annarra þátta þannig að ekki er hægt að skýra hann öðruvísi en sem kynjabundinn launamun. Hér hefur því Reykjavíkurlistinn lyft grettistaki til að jafna stöðu kynjanna. Þennan árangur má þakka ýms- um aðgerðum. Borgin hefur þurft að yfirstíga rótgróin mynstur á al- mennum vinnumarkaði og sem dæmi má nefna að störf í geirum þar sem karlmenn hafa verið í meiri- hluta, s.s. tækni- og framkvæmda- geira, hafa almennt verið verðlögð hærra í samfélaginu en hefðbundin kvennastörf, t.d. í fræðslu- og umönnunarmálum þó að starfsmenn hafi sambærilega menntun. Reykja- víkurborg hefur hækkað laun í þess- um hefðbundnu málaflokkum kvenna þannig að dagvinnulaun í ólíkum geirum hafa jafnast. Þetta, ásamt fleiri aðgerðum, hefur gert Reykjavíkurborg að eftirsóknar- verðum vinnustað fyrir bæði kyn þar sem jafnrétti er haft í hávegum. Í framhaldinu stefnir Reykjavíkurlist- inn að því að innleiða kynhlutlaust starfsmat þannig að greidd verði sömu laun fyrir störf sem eru jafn krefjandi og verðmæt án tillit til kyns. Framþróun í jafnréttismálum Ljóst er að gríðarleg framþróun hefur orðið í jafnréttismálum borg- arinnar undir stjórn Reykjavíkur- listans. Hún sést einnig á þeirri ein- földu staðreynd að árið 1994 voru konur 13,3% í hópi forstöðumanna og æðstu embættismanna Reykja- víkurborgar en karlar 86,7%. Nú lít- ur heimurinn öðruvísi út og hlutfallið er orðið jafnt; konur skipa 50% af stjórnunarstöðum borgarinnar og karlar 50%. Þetta eru gleðitíðindi fyrir allt jafnréttissinnað fólk. Reykjavíkurlistinn hefur mótað ábyrga stefnu í jafnréttismálum og nýtt undanfarin átta ár til að hrinda henni í framkvæmd. Því verður hald- ið áfram ef listinn fær áframhald- andi umboð kjósenda hinn 25. maí. Katrín Jakobsdóttir Reykjavík Launamunur kynjanna hjá Reykjavíkurborg hefur minnkað um helming, segir Katrín Jakobsdóttir. Þetta eru gleðitíðindi fyrir allt jafnréttissinnað fólk. Höfundur skipar 17. sæti Reykja- víkurlistans. Í EVRÓPU og Bandaríkjunum fengu menn fyrir nokkrum ár- um þá hugmynd að eft- irspurn eftir ljósleiðara- samböndum væri líklega því sem næst takmarka- laus. Fyrirtæki eins og Bredbandsbolaget í Sví- þjóð, Energis í Bret- landi, Williams Comm- unications í BNA, KPNQuest í Hollandi og Global Crossing á Bahamaeyjum lögðu allt undir. Lagðir voru ljós- leiðarastrengir milli heimsálfa, innan heims- álfa, milli stórborga og innan stórborga. Gríðarleg flutnings- geta var það sem þessi fyrirtæki sótt- ust eftir. Allt að 1.200 ljósleiðarar voru í hverjum streng og til öryggis voru lögð rör í jörðu, sem síðan átti að draga ennþá fleiri strengi í. Allt gekk nokkuð vel í byrjun, verð á bandbreidd lækkaði hratt og eftir- spurn jókst. Gullæði rann á viðskipta- jöfra og ýmsa glókolla. Mantran var einföld. „Fleiri ljósleiðara, meira gull.“ Lífið er aldrei svona einfalt eða fyrirsjáanlegt. Mars 2000 og bylgjufléttun Í mars 2000 sprakk „internetból- an“. Sprengingin hafði mikil áhrif á tæknifyrirtæki. Sérstaklega fram- leiðendur á fjarskiptabúnaði. Hluta- bréf fyrirtækja eins og Lucent (LU) og Corning (CLW), sem eru stærstu framleiðendur á ljósleiðarastrengjum í heiminum, hafa fallið hratt frá þess- um tíma eða um 90%. Eftirspurn eftir ljósleiðurum hefur verulega dregist saman. Um svipað leyti fóru möguleikar bylgjufléttunartækni (Wave Division Multiplexing) að verða fjarskiptafyr- irtækum augljósir og hagkvæmir. Þessi tækni þýddi einfaldlega að hægt var að margfalda flutningsgetu ljós- leiðara með því einu að skipta út endabúnaði á hvorum enda ljósleið- arastrengs. Ekki var lengur nauðsyn- legt að grafa eða draga í rör nýja ljós- leiðara. Þetta hefur leitt til þess, samkvæmt Financial Times (19. sept- ember 2001), að aðeins um 1–2 % þeirra ljósleiðara sem eru komnir í jörðu í Evrópu og Bandaríkjunum hafa verið notaðir fyrir flutning. Þau félög sem lengst gengu í ljós- leiðaravæðingu og lögðu í raun allt undir eru mörg hver í greiðslustöðv- un og vart hugað líf. Global Crossing (var GX) og Williams Communicat- ions (var WCG) eru þegar komin í greiðslustöðvun og KPNQuest (KQIP) er mjög nærri því að lenda í því sama. Önnur fyrir- tæki eins og Bred- bandsbolaget (ekki tek- ist að skrá á markað) og Energis (EGS) eru að- eins skugginn af því sem þau voru fyrir rúm- um tveim árum. Mark- aðsverðmæti Energis þá var 12.000 milljón pund, en er í dag aðeins 36 milljón pund. Energ- is er þó annað af aðeins tveim nýjum „breið- bandsfyrirtækjum“ í Evrópu sem fengu já- kvæða umsögn í byrjun árs hjá fjárfestinga- bankanum Schroder Salomon Smith Barney, sem er í eigu Citigroup. Íslenski veruleikinn Lína.net og Fjarski eru dæmi um íslensk fyrirtæki sem byggja að hluta á ljósleiðarahugmyndinni. Lína.net lagði í upphafi upp með að tengja saman spennistöðvar með ljósleiðara og ná síðan til heimila með rafmagns- lögninni. Ljósleiðarastrengir hafa verið lagðir, en rafmagnslagnarlausn- in er komin til Orkuveitunnar og „markaðssett“ undir nafninu Fjöl- tengi. Blikur eru á lofti um að þessi tækni muni nokkurn tíma geta keppt við ADSL eða kapalmótöld. Þær tæknilausnir eru mun þroskaðri, út- breiddari og hraðvirkari en raflínu- lausnin. Einnig getur svo farið að uppbygg- ingu raflínulausnarinnar verði settar verulegar takmarkanir vegna truflana sem hún getur valdið. Staðlastofnunin ETSI, sem býr til fjarskiptastaðla fyrir ESB- og EFTA-lönd, mun leggja fram drög að nýjum staðli um rafmagnstrufl- anir frá fjarskiptakerfum í þessum mánuði. Gert er ráð fyrir að staðallinn taki gildi í september á þessu ári. (ElektronikTidningen 15. febrúar 2002.) Lína.net tilkynnti einnig með pomp og pragt að þeir ætluðu að bjóða heimilum ljósleiðaralausn. Það varð aldrei meira en dýr markaðssetning veturinn 2000–2001. Verkefninu hef- ur verið frestað um ótiltekinn tíma vegna kostnaðar og vöntunar á staf- rænu innihaldi fyrir heimili (Mbl. 11. ágúst 2001). Í tilfelli Fjarska er það lagning ljós- leiðara yfir hálendið til að tengja sam- an Reykjavík og Akureyri. Þetta ljós- leiðaragull er langsótt. Ef hugmyndir Fjarska grundvallast á því að flutn- ingsgeta ljósleiðarastrengja Lands- símans sé verulegum takmörkunum háð, er rétt að að leiðrétta það strax. Með bylgjufléttunartækni er tækni- lega hægt að 160-falda núverandi flutningsgetu og fræðilega hægt að 4.680-falda flutningsgetuna. (Gilder- tech júní 2001.) Slík flutningsgeta væri ígildi þess að hægt væri að flytja samtímis um 3 milljónir stafrænna sjónvarpsrása eða tæplega 183 millj- ónir símarása. Líklega getur sú flutn- ingsgeta mætt öllum fyrirsjáanlegum þörfum á íslenska markaðnum í fram- tíðinni. Regnboginn Gullið í ljósleiðaranum er ekki auð- unnið eða skjótfengið. Landssíminn hefur unnið að því á hægan, hag- kvæman og markvissan hátt að upp- færa flutningskerfi sín til þess að geta boðið heimilum og fyrirtækjum þá bandbreidd og þjónustu sem krafist verður í framtíðinni. Fyrir aðra getur gullið í ljósleiðaranum verið eins og regnboginn. Aðeins hilling. Þór Jes Þórisson Höfundur er framkvæmdastjóri hjá Símanum. Fjarskipti Gullið í ljósleiðaranum, segir Þór Jes Þórisson, er ekki auðunnið eða skjótfengið. Viðskiptahug- mynd regnbogans Jafnréttisstefna sem ber árangur ÞRJÁR fylkingar í borginni eiga raun- hæfa möguleika á að ná inn kjörnum full- trúa í borgarstjórn og hafa áhrif á borgar- málin. Þetta eru fram- boð R-lista, D-lista og F-lista. F-listinn legg- ur sérstaka áherslu á velferðar-, öryggis- og umhverfismál en ég hef sinnt þessum málaflokkum af bestu getu í borgarstjórn Reykjavíkur sl. 12 ár. Það er ein margra ástæðna fyrir því að málflutningur okkar er trúverðugur. Starfsfólk úr heil- brigðis- og umönnunarstéttum er áberandi á F-listanum og lands- þekktir baráttumenn úr röðum ör- yrkja skipa 3. sæti og heiðurssæti F-listans, en þar á ég við þá Gísla Helgason og Halldór Rafnar, nú- verandi og fyrrverandi formenn Blindrafélagsins. Fulltrúi eldri borgara, Erna Ingólfsdóttir, hjúkr- unarfræðingur, skipar 4. sæti listans. Konur skipa annað hvert sæti F- listans, sem er svokallaður fléttu- listi. Margrét Sverrisdóttir skipar 2. sæti listans og tvær ungar konur skipa 6. og 8. sæti listans. Konur skipa því hærri sess hjá okkur en hjá R- og D-lista. F- listinn er sannarlega listi allra stétta og jafnræði er þar með ungu fólki og eldri borgurum. F-listinn leggur áherslu á góða þjón- ustu við sjúka, aldr- aða, öryrkja og barna- fjölskyldur og vill lækka þjónustugjöld fyrir þessa hópa, sem hafa orðið illa úti vegna niðurskurðar ríkisstjórnarinnar á velferðakerfinu og stórhækkaðs kostnað- ar vegna heilbrigðis- þjónustu. Við á F-listanum viljum fara vel með fjármuni borgarbúa og forgangsraða nýtingu almanna- fjár til brýnna verkefna í þágu þeirra sem þurfa á aðstoð og þjón- ustu að halda. Þá getum við útrýmt hinum illræmdu biðlistum eftir nauðsynlegri þjónustu, styrkt menntunina og ræktað mannauð- inn. F-listinn vill gera átak í ferli- og aðgengismálum fatlaðra, efla al- menningssamgöngur, fjölga mis- lægum gatnamótum og göngu- brúm, gera löggæsluna sýnilegri og auka öryggi fólks í hverfum borg- arinnar. Við á F-listanum höfnum sóun al- mannafjár í ýmis gæluverkefni eins og R-listinn gerir með fjármuni Orkuveitu Reykjavíkur þannig að þetta verðmæta fyrirtæki er skuld- sett fram úr hófi. En við vörum líka við áformum Sjálfstæðisflokksins um að einkavæða Orkuveituna og koma þannig sameiginlegum orku- lindum og drykkjarvatni Reykvík- inga undir forræði einkaaðila. Það er óstjórn á fjármálum Reykvík- inga og þar gætir valdþreytu. En til að snúa blaðinu við setjum við ekki valdþreyttan ráðherra úr rík- isstjórninni í borgarstjórastólinn. Þvert á móti skulum við veita nýju og óspilltu afli umboð til að for- gangsraða hlutunum rétt í Reykja- vík. Það gerum við með því að kjósa F-listann á laugardaginn. F-listinn er þriðja aflið Ólafur F. Magnússon Reykjavík Við skulum veita nýju og óspilltu afli, seg- ir Ólafur F. Magnússon, umboð til að forgangs- raða hlutunum rétt í Reykjavík. Höfundur er læknir og borgar- fulltrúi í Reykjavík. ÞAÐ er ekki undar- legt þó að konur fylki sér um Reykjavíkurlist- ann í komandi borgar- stjórnarkosningum. Hann hefur unnið það afrek í jafnréttismálum sem engri annarri sveitarstjórn eða stofn- un í eigu ríkisins hefur hingað til tekist þrátt fyrir fögur orð stjórn- málamanna á tyllidög- um og mannamótum. Á síðasta ári náðist sá áfangi innan Ráðhúss Reykjavíkur að hlutur kvenna í stjórnunar- stöðum fór yfir 50 pró- sent. Þar er auðvitað fremst meðal jafningja hinn glæsilegi og farsæli borgarstjóri okkar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Innan borgarkerfisins eru svo 22 nefndir og eru konur for- menn helmings þeirra eða 11 samtals en karlar í öðrum 11. Þetta er hið full- komna jafnrétti í raun. Tekist hefur einnig að minnka launamun kvenna og karla sem starfa hjá Reykjavíkurborg úr 14 prósentum í 7 prósent. Ekki má gleyma því að Reykjavíkurborg er annar stærsti launa- greiðandi landsins á eftir ríkinu. Hvernig standa jafnréttismálin í ráðuneytum og banka- stjórnum? Það sem á vantar jafnræði milli kvenna og karla í nefndum Reykjavíkurborgar er fyrst og fremt sök Sjálf- stæðisflokksins. Af fulltrúum Reykjavíkur- listans í nefndunum eru 53 prósent konur en af fulltrúum Sjálfstæðisflokksins aðeins 33 pró- sent konur. Þetta er aðeins raungerv- ing á því að Sjálfstæðisflokkurinn er í eðli sínu gamaldags karlveldisflokk- ur. Það kom raunar í ljós í aðdrag- anda að vali á framboðslista flokksins í vetur. Ingu Jónu Þórðardóttur, sem leitt hafði borgarstjórnarflokk sjálf- stæðismanna með ágætum á liðnu kjörtímabili, var ekki treyst til að vera borgarstjóraefni þeirra þegar á reyndi. Henni var ýtt til hliðar. Ef litið er á lista flokkanna með til- liti til jafnréttissjónarmiða blasir þetta sama við. Ef sjálfstæðismenn fá meirihluta verða þrjár konur en fimm karlar í borgarstjórnarflokki þeirra og borgarstjórinn karl. Ef Reykja- víkurlistinn fær meirihluta verður hlutfallið jafnt, fjórar konur, fjórir karlar og borgarstjórinn kona. Þarf frekari vitna við? Konur kjósa R-listann Guðjón Friðriksson Reykjavík Af fulltrúum Reykjavíkurlistans í nefndunum, segir Guðjón Friðriksson, eru 53 prósent konur. Höfundur er rithöfundur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.