Morgunblaðið - 21.05.2002, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.05.2002, Blaðsíða 22
UMRÆÐAN 22 ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ A B X / S ÍA Ármúli 13, 108 Reykjavík sími 515 1500 www.kaupthing.is Til sjóðfélaga og rétthafa í Lífeyrissjóðnum Einingu Við minnum sjóðfélaga og rétthafa í Lífeyris- sjóðnum Einingu á kynningarfund sem haldinn verður vegna fyrirhugaðrar sameiningar Lífeyris- sjóðsins Einingar og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Á fundinum verður farið ítarlega í atriði sem tengjast sameiningunni. Fundurinn verður haldinn í Geysi, fundarsal Kaupþings, á 4. hæð í Ármúla 13, í dag þriðjudaginn 21. maí kl. 17.15 Allir sjóðfélagar og rétthafar í Lífeyrissjóðnum Einingu eru hvattir til að mæta. Stjórn Lífeyrissjóðsins Einingar. Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði hafa á und- anförnum fjórum árum staðið fyrir einhverju mesta framfaraskeiði í sögu bæjarins. Upp- bygging, drifkraftur, áræði og skynsemi hafa haldist þar í hend- ur. Hafnarfjarðarbær hefur rutt brautina á ýmsum sviðum þar sem hreyft hefur verið við gömlum gildum. Ferskir vindar ríkja en um leið er kjölfestan sú að við berum ávallt hag hafnfirskra fjölskyldna fyrir brjósti. Á grunni þessarar viðreisnar Hafnarfjarðar horfum við fram á bjarta tíma og mig langar hér að fara í stuttu máli yfir nokkur helstu atriðin í stefnuskrá Sjálfstæðis- flokksins í Hafnarfirði: 1) Einkaframkvæmdin hefur skil- að Hafnarfirði nýjum leik- og grunn- skólum. Án þessarar leiðar hefði sveitarfélagið aldrei getað komið Hafnarfirði í fremstu röð. Bærinn þarf ekki að eiga allar byggingar – það er miklu viturlegra að okkar mati að þeir eigi og reki bygging- arnar sem alltaf eiga hagsmuna að gæta, ekki bara á fjögurra ára fresti. Þeir taka á sig alla fjárhagslega áhættu og passa upp á eignirnar sín- ar með góðu viðhaldi. Við tryggjum góða þjónustu, það er í okkar verka- hring. Eigendurnir halda húsunum sínum í góðu ástandi – ekki bara fyr- ir börnin sem nú fara í leik- og grunnskóla, heldur líka börnin þeirra eftir 25 ár! Við höfum sett þjónustuna á oddinn og með því að taka eignir á leigu og tryggja góða þjónustu tekst okkur að styrkja innviði Hafnarfjarðar sem nú er loksins orðinn fjöl- skylduvænn bær. Það tók okkur fjögur ár og við viljum halda áfram! 2) Við reistum þrjá nýja leikskóla á kjör- tímabilinu og stækkuð- um einn. Við reistum nýjan grunnskóla, er- um að reisa annan og byggðum við þrjá. Á næsta kjörtímabili stefnum við á að ljúka einsetningu grunnskólanna og byggja þrjá til fjóra leikskóla. Þar verða kostir einkaframtaksins nýtt- ir, því það er þjónustan sem skiptir mestu máli, ekki hver á byggingarn- ar. 3) Í Hafnarfirði er einhver glæsi- legasta íþróttaaðstaða á landinu og þótt víðar væri leitað. Nýja Bjark- arhöllin er til dæmis einhver besta fimleikahöll í Evrópu. Og ekki er kostur Haukanna lakur og FH-ingar horfa fram á bjarta framtíð eftir að Hafnarfjarðarbær yfirtók skuldir aðalstjórnar og gerði rekstrarsamn- ing við félagið. Einnig má nefna Sörla, Þyt og fleiri félög sem standa nú mun betur en fyrir fjórum árum. En næstu stórvirki eru glæsileg 50 m sundlaug á Völlum og íþrótta- mannvirki við nýja Lækjarskólann. 4) Fjölskyldan er í fyrirrúmi hjá okkur sjálfstæðismönnum og við sýnum það í verki. Uppbygging í grunn- og leikskólum, íþróttamann- virkjum og farsælu innra starfi skóla, félagsmiðstöðva og stuðning- ur við íþróttahreyfinguna við þjálfun yngri barna, eru merki um heil- brigða lífssýn og vilja okkar til þess að efla varnargarða Hafnarfjarðar gagnvart vágestum í formi vímu- efna. Samþykkt var forvarnaráætl- un á kjörtímabilinu og við lögðum blátt bann við svokölluðum súlustöð- um. Hjá okkur er fjölskyldan í fyrsta sæti! 5) Og fjölskyldur þurfa húsnæði því Hafnfirðingum fjölgar nú sem aldrei fyrr, störfum fjölgar mest í Hafnarfirði utan Reykjavíkur og nýtt athafnasvæði er að byggjast upp á Völlum. Nýtt íbúðahverfi, Ás- landið, varð til á kjörtímabilinu sem er að líða og annað hverfi er nú að mótast með gatnagerð á Völlum. Þar hefur lóðum í 1. áfanga verið úthlut- að. Þessi háttur er hafður á til þess að skólakerfi hverfanna geti ávallt tekið við þeim barnafjölda sem í hverfunum er á hverjum tíma. Skól- ar í slíkum hverfum rúma alltaf öll börnin, t.a.m. í einsetnum grunn- skólum. 6) Mikill áhugi er meðal eldri borgara fyrir rúmgóðum en þó hæfi- lega stórum íbúðum í lyftuhúsum Ferskleiki einkennir Hafnarfjörð Magnús Gunnarsson Hafnarfjörður Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði, segir Magnús Gunnarsson, leggur verk sín óhikað í dóm kjósenda. ÉG heyrði því eitt sinn fleygt að til væru þrjár tegundir lyga; venjuleg lygi, hvít lygi og prósentureikningur. Á undanförnum vikum hafa sjálfstæðismenn verið ötulir við að nota allar þessar gerðir og hafa meira að segja fundið upp alveg nýjar víddir í þessu miður heppilega frásagna- formi. Til merkis um það er haugalygin sem birtist nýlega í formi sjón- varpsauglýsingar D- listans, þar sem sýnt er hið meinta Geldinganesgrjótnám R-listans. Ég varð svo undrandi þegar ég sá hana að neðri kjálkinn hreinlega hrökk úr gír og er enn óstarfhæfur. Hvað er hægt að leggjast lágt? Töfrateppið sem svífur til himna úr Geldinganes- inu og lendir mjúklega við Ánanaust er hvorki meira né minna en tífalt stærra en sá hluti sem fyrir- hugað er að taka grjót- námi, en það munu vera 4–5 hektarar en ekki 40–50 eins og auglýs- ingin sýnir. Hvað geng- ur þeim til? Er það ör- vænting? Rangfærslu- árátta? Eða eru þeir hreinlega svona slappir í reikningi? Það er sorgleg mál- efnafátækt hjá D-list- anum að taka Geldinga- nesið fyrir sem kosningamál árið 2002 þegar engar fram- kvæmdir eru fyrirhugaðar þar fyrr en árið 2015. Skipulagsáætlun borg- arinnar sem R-listinn hefur staðið fyrir er unnin með hliðsjón af um- hverfisvernd og mun Reykjavík vera fyrsta höfuðborg í Evrópu til að hafa slík sjónarmið að leiðarljósi við skipu- lagsgerð. Vitanlega verður ekki fram- kvæmt neitt umhverfisslys í Geld- inganesi og það vita sjálfstæðismenn vel. Það er erfitt að trúa því að flokkur sem sækist eftir því að stjórna borg- inni bjóði kjósendum upp á annan eins ósóma og raun ber vitni. Er hægt að treysta þeim, sem ekki leggja það á sig að segja satt, fyrir slíkri ábyrgð? Því verður auðvitað hver að svara fyr- ir sig, en ég er ekki í vafa um að borg- arbúar eiga betra skilið en flokk sem stundar slíkan málflutning. Töfrateppið fljúgandi Steinunn Birna Ragnarsdóttir Höfundur er píanóleikari og skipar 13. sæti Reykjavíkurlistans. Reykjavík Það er erfitt að trúa því að flokkur sem sækist eftir því að stjórna borg- inni, segir Steinunn Birna Ragnarsdóttir, bjóði kjósendum upp á annan eins málflutning.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.