Morgunblaðið - 21.05.2002, Side 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2002 9
Bermúdabuxur - stuttbuxur
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Fullt af nýjum túnikum
Allar stærðir
Bankastræti 14, sími 552 1555
Sportlegur fatnaður úr
náttúruefnum — Nýir litir
20% afsláttartilboð
Stúdentadragtir
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið mán. - fös. 10-18, laugardag 10-14
– sérverslun – Fataprýði
Álfheimum 74, Glæsibæ, Reykjavík, sími 553 2347
Sérhönnun st. 42-56
Sumarhattarnir komnir.
Frábærir í golfið, garðinn og ferðalagið.
Einnig nýtt slæðuúrval.
KRINGLUNNI • sími 568 4900
LAUGAVEGI 32 • sími 552 3636
Mikið úrval
af galla- og
hörfatnaði
Kringlunni - sími 581 2300
Á DÖMUR OG HERRA
GLÆSILEGUR
FATNAÐUR
Póstsendum
Laugavegi 4, sími 551 4473
NÝ SENDING
Hágæða undirföt
Mikið úrval
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest úr-
skurð Héraðsdóms Reykjavíkur um
að vísa frá dómi kröfum tveggja arm-
enskra kvenna um að úrskurður Út-
lendingaeftirlitsins, um að neita þeim
um pólitískt hæli hér á landi, verði
felldur úr gildi og að þeim verði dæmt
hæli hér á landi af mannúðarástæð-
um. Konurnar komu til landsins 21.
október 2000 með vegabréfsáritun til
sex daga dvalar. Samdægurs voru
þær handteknar en þær höfðu þá
fargað vegabréfum sínum og farseðl-
um til að komast hjá því að vera send-
ar heim. Sóttu þær skömmu síðar um
hæli en Útlendingaeftirlitið hafnaði
þeirri beiðni og vísaði þeim úr landi.
Var þeim einnig bannað að koma aft-
ur til landsins í þrjú ár og staðfesti
dómsmálaráðherra þennan úrskurð.
Haraldur Blöndal hrl. krafðist þess,
fyrir hönd kvennanna, aðallega að úr-
skurðurinn yrði felldur úr gildi og mál-
inu vísað aftur til Útlendingaeftirlits-
ins, til vara að þær fengju dvalarleyfi
af mannúðarástæðum, önnur vara-
krafa var að þær fengju dvalarleyfi.
Þriðja varakrafa var að tímabundið
endurkomubann yrði fellt úr gildi og
fjórða varakrafan var að bannið myndi
ekki ná til annarra Norðurlanda. Ríkið
krafðist frávísunar á þeim grundvelli
að konurnar hefðu ekki lögvarða hags-
muni af því að sækja málið til dómstóla
þar sem þær væru þegar komnar úr
landi. Á þetta féllst héraðsdómur ekki
gagnvart þriðju og fjórðu varakröf-
unni og verða þær teknar til efnismeð-
ferðar fyrir dómstólum, en hafnaði
öðrum kröfum með þeim rökum að
það væri ekki hlutverk dómstóla að
veita hæli af mannúðarástæðum né
dvalarleyfi. Hæstaréttardómararnir
Gunnlaugur Claessen, Árni Kolbeins-
son og Ingibjörg Benediktsdóttir
kváðu upp dóminn. Óskar Thoraren-
sen hrl. var til varnar fyrir ríkið.
Ekki talið hlutverk
dómstóla að veita hæli
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
að uppsögn skipverja á ms. Arn-
arfelli hafi verið ólögmæt en hann
hafði leynt tollskyldum varningi
um borð. Í dómi Hæstaréttar segir
að skipstjórinn hafi ótvírætt haft
heimild skv. sjómannalögum til að
víkja manninum úr skiprúmi vegna
brota hans. Þar sem það hafi hins
vegar ekki verið gert innan þess
sjö daga frests sem mælt er fyrir í
lögum, og að Samskip hefði ekki
sýnt fram á að í þessu tilviki væru
sérstakar ástæður sem réttlættu
lengri frest, var uppsögn skipverj-
ans talin ólögmæt. Verða Samskip
því að greiða skipverjanum fyrr-
verandi rúmlega 380.000 krónur
auk málskostnaðar. Jónas Har-
aldsson hrl. sótti málið fyrir
Hæstarétti en Hrafnhildur Stef-
ánsdóttir var til varnar.
Málið dæmdu hæstaréttardóm-
ararnir Markús Sigurbjörnsson,
Árni Kolbeinsson og Ingibjörg
Benediktsdóttir.
Sögðu skip-
verjanum upp
of seint