Morgunblaðið - 21.05.2002, Qupperneq 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
12 ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Dell OptiPlex tölvurnar eru hagkvæmar í rekstri, fallegar, fyrirfer›arlitlar
og sérhanna›ar fyrir nútíma skrifstofuumhverfi. Enda er engin tilviljun
a› Dell tölvur seljast eins og heitar lummur út um allan heim.
R
Dell OptiPlex GX50 SD
er á einstöku tilbo›i:
Intel Celeron 1.1 GHz
128 MB RAM
20 GB har›ur diskur
17" Dell skjár
XP professional
3ja ára ábyrg› á vinnu og varahlutum
f
a
s
t
la
n
d
-
8
0
2
6
-
1
4
0
5
0
2
S É R S N I ‹ N A R L A U S N I R O G F Y R I R T Æ K J A R Á ‹ G J Ö F + I S O 9 0 0 1 V O T T A ‹ G Æ ‹ A K E R F I + H A F ‹ U S A M B A N D Í S Í M A 5 6 3 3 0 0 0 + W W W . E J S . I S
Skv. Gartner DataQuest eru Dell söluhæstu PC tölvur heims.
118.500 m/vsk
Mest selda tölva í heimi
MIKLAR fjárhæðir eru borgaðar
með rekstri flugvallanna í landinu og
er sú krafa sem uppi er af ýmsum um
lækkun opinberra gjalda ekki fylli-
lega sanngjörn. Þetta kom fram í máli
Sturlu Böðvarssonar samgönguráð-
herra á hádegisverðarfundi Samtaka
ferðaþjónustunnar þar sem umræðu-
efnið var Keflavíkurflugvöllur og sú
spurning hvort gjaldtaka á vellinum
væri hamlandi fyrir íslenska ferða-
þjónustu.
Sturla sagði að vissulega mætti
alltaf deila um hvort gjaldtaka hins
opinbera í tengslum við flugið væri of
há. Þá væri ekki hægt að horfa fram
hjá þeirri staðreynd að ef tekið væri
dæmi af hinni hefðbundnu umferð um
vegakerfi landsins, þá standi hún al-
gjörlega undir rekstri þess. Allar ný-
framkvæmdir, viðhald og þjónusta við
vegakerfið væru greiddar af umferð-
inni, af notandanum. Þessu fari hins
vegar víðs fjarri í fluginu.
„Fram hafa komið hugmyndir um
mishá gjöld, t.d. að lækka þau umtals-
vert yfir vetrartímann, þ.e. utan há-
annar,“ sagði Sturla. „Ég tel vandséð
hvernig standa eigi að þannig reglu-
verki, því sá kostur að rýra tekjur
flugmálaáætlunar er ekki fýsilegur.
Þó tel ég koma til greina að frekar
verði unnið að markaðssetningu flug-
vallanna á landsbyggðinni, líkt og
Markaðsráð ferðaþjónustunnar gerir
nú í sumar í samstarfi við þýska flug-
félagið LTU.“
Sturla sagði að með aukinni umferð
ætti hagkvæmni að vaxa og skapast
betri skilyrði til að standast verðsam-
keppni þeirra flugvalla sem njóti mik-
illar stærðarhagkvæmni með því að
bæta reksturinn og auka tekjur af
starfsemi á vellinum.
Mismunandi gjaldtaka
til skoðunar
Að sögn ráðherra hafa nokkrar
deilur verið innan Evrópu vegna
þeirrar staðreyndar að nokkur ríki
hafi misháa farþegaskatta, annars
vegar í innanlandsflugi og hins vegar í
millilandaflugi. Slíkt fyrirkomulag
hafi alla tíð verið viðhaft hér á landi.
Nú sé svo komið að Eftirlitsstofnun
EFTA hafi verið að fara yfir þessi mál
og gert athugasemdir við þessa gjald-
töku, þau séu því nú til sérstakrar
skoðunar í samgönguráðuneytinu.
„Ekkert er hægt að segja um það á
þessu stigi hvað kemur út úr þeirri
skoðun, en ljóst er að verði að jafna
þessa gjaldtöku er komin upp staða
sem gerir það að verkum að stokka
gæti þurft upp alla tekjuhlið Flug-
málaáætlunar, jafnvel með þeim af-
leiðingum að koma yrði á flóknu rík-
isstyrkjakerfi vegna innanlandsflugs-
ins.“
Samkeppni skilar árangri
Höskuldur Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Flugstöðvar Leifs Ei-
ríkssonar, sagði í erindi sem hann
flutti á fundi Samtaka ferðaþjónust-
unnar, að flugumferð um Keflavíkur-
flugvöll hefði verið um 20% minni á
fyrstu fjórum mánuðum þessa árs en
á sama tímabili í fyrra. Hann nefndi
sérstaklega fjögur atriði sem hægt
væri að grípa til til að bregðast við
þessari þróun. Aukin samkeppni í
flugstöðinni myndi væntanlega leiða
til aukinnar umferðar um flugvöllinn
og flugstöðina. Það sama ætti og við
ef skattar og ýmsar álögur hins op-
inbera yrðu lækkaðar. Betri dreifing
á farþegum og aukið markaðsstarf
myndu einnig að hans mati skila ár-
angri.
Höskuldur sagði í samtali við
Morgunblaðið að Norðmenn hefðu 1.
apríl síðastliðinn stigið stórt skref í að
fella niður skattlagningu á starfsemi
varðandi flug og flugstöðvar. Svokall-
aður farþegaskattur, sem var 256
norskar krónur, hafi þá verið felldur
niður. Skattur þessi hafi verið 128
norskar krónur inn í landið og 128
norskar krónur út úr því. Þetta sagði
hann að hafi verið gert til að örva flug-
umferð inn til Noregs eftir samdrátt í
kjölfar hryðjuverkanna 11. septem-
ber á síðasta ári. Hér á landi séu sam-
bærileg gjöld 1.250 krónur sem flug-
farþegar greiði á leiðinni út úr
landinu.
Höskuldur sagði einnig að þegar
hafi verið lokið við þó nokkrar breyt-
ingar í flugstöðinni til að tryggja
aukna samkeppni. Tveir aðilar geti nú
innritað farþega og séu með rekstr-
arleyfi og samning við flugstöðina um
aðstöðu. Í lok síðasta mánaðar hafi
nýr aðili byrjað að innrita farþega til
viðbótar við dótturfélag Flugleiða.
Gjaldtaka á Keflavíkurflugvelli rædd á fundi hjá Samtökum ferðaþjónustunnar
Krafa um lækkun opinberra
gjalda ekki sanngjörn
HLÝRI ehf. í Neskaupstað og rann-
sókna- og ráðgjafarfyrirtækið
Akvaplan-niva gengu nýverið frá
samningi um ráðgjöf við hönnun
seiðaeldisstöðvar fyrir hlýra í Nes-
kaupstað. Markmið Hlýra eru að ná
tökum á hlýraeldi og vera í fremstu
röð í eldi á þeirri fisktegund. Hlýri
er í eigu Síldarvinnslunnar í Nes-
kaupstað, Nýsköpunarsjóðs At-
vinnulífsins, verkfræðistofunnar
Hönnunar og Eignarhaldsfélags
Austurlands.
Fyrirhugað er að stunda eldið á
lóð Síldarvinnslunnar í Neskaup-
stað og hefur þegar verið tekin í
notkun aðstaða fyrir klakfisk. Söfn-
un á klakfiski hefur gengið vel og
vill fyrirtækið tryggja sér bestu
hugsanlegu aðstoð við fyrirhugaða
uppbyggingu á seiða- og matfisk-
eldi en Akvaplan-niva hefur leitt
rannsóknar- og þróunarvinnu við
uppbyggingu hlýraeldis í Noregi.
Akvaplan-niva er stærsta ráð-
gjafarfyrirtæki í Norður-Evrópu á
sviði fiskeldis og sjávarlíffræði og
eru höfuðstöðvar þess í Tromsø í
Noregi. Fyrirtækið sérhæfir sig í
alhliða eldisráðgjöf sem nær bæði
til líffræðilegra, umhverfislegra og
tæknilegra þátta eldisins. Nýverið
setti fyrirtækið á stofn útibú hér-
lendis og er samningurinn við
Hlýra sá fyrsti á þessu sviði hér á
landi.
Frá undirskrift samstarfssamnings Hlýra og Akvaplan-niva. Til vinstri Al-
bert K. Imsland, framkvæmdastjóri hjá Akvaplan-niva, og til hægri Hreinn
Sigmarsson, stjórnarformaður Hlýra.
Akvaplan-niva og Hlýri ehf.
ganga frá samningi um ráðgjöf
● SAMKEPPNISRÁÐ hefur komist að
þeirri niðurstöðu að ekki sé ástæða
til aðgerða af hálfu ráðsins varðandi
erindi Sementsverksmiðjunnar hf.
(SV) um meinta óréttmæta við-
skiptahætti fyrirtækisins Aalborg
Portland á Íslandi hf. (APÍ) við sölu á
sementi. SV óskaði eftir því að kann-
að yrði hvort APÍ hefði boðið hrað-
sement á óeðlilega lágu verði í lang-
an tíma, sérstaklega að hafðri
hliðsjón af gengisþróun á árinu
2001.
Í erindinu frá Sementsverksmiðj-
unni sem barst Samkeppnisstofnun
í september sl. kemur fram að þegar
APÍ kom inn á markaðinn með laust
sement árið 2000, hafði kaup-
endum verið boðið sementstonnið á
6.800 krónur eða nær 700 danskar
krónur miðað við gengi dönsku krón-
unnar á þeim tíma. Einnig segir í er-
indinu að eftir áramótin 2000/2001
hafi verð frá APÍ lækkað stöðugt og í
mars 2001 hafi tonnið verið komið
niður í 6.500 krónur eða um 590
danskar krónur miðað við þágildandi
gengi. Verð hafi ekki hækkað síðan í
tilboðum til stærstu viðskiptaaðila
SV þrátt fyrir að danska krónan sé nú
mun dýrari en á þessum tíma en SV
telur að gengi dönsku krónunnar
hljóti að vera ráðandi þáttur við verð-
lagningu þessarar vöru. SV taldi jafn-
framt nokkuð ljóst að móðurfyrirtæki
APÍ í Danmörku hefði selt dótturfyr-
irtæki sínu sement á óeðlilega lágu
verði.
Sementsverksmiðjan markaðs-
ráðandi að mati APÍ
Þessu hafnaði APÍ og sagði jafn-
framt í umsögn sinni að þó að geng-
isbreytingar hafi ekki þjónað hags-
munum fyrirtækisins, þ.e. að
hagnaðurinn hafi ekki verið sá sem
hann hefði orðið við stöðugra gengi
íslensku krónunnar, þá hafi fyr-
irtækið verið rekið með hagnaði. APÍ
fullyrðir að hinn markaðsráðandi að-
ili á íslenskum sementsmarkaði sé
SV en ekki APÍ. APÍ hafi ekki tekist
að ná nema 20% markaðshlutdeild
og fyrirtækinu hafi ekki reynst unnt
að selja sement í miklum mæli fram
til þessa til Steypustöðvarinnar hf.
og BM-Vallár hf. þar sem for-
ráðamönnum APÍ hafi verið tjáð að
fyrirtækið væri ekki samkeppnisfært
við SV í verðlagningu.
„Að mati samkeppnisráðs getur
verðlagning undir kostnaðarverði
sem varir í langan tíma verið óhæfi-
leg og falið í sér óréttmæta við-
skiptahætti í skilningi 20. gr. sam-
keppnislaga. Sé höfð hliðsjón af
þeim stutta tíma sem APÍ hefur í
raun starfað hér á landi, þ.e. tæp-
lega tvö ár, sem getur ekki talist
langur tími í þessu samhengi, geng-
isþróun sl. árs, þeirrar staðreyndar
að fyrirtækið er að reyna að ná fót-
festu á sementsmarkaðnum og
markmiðum samkeppnislaga eins
og þau birtast í a., b. og c.-lið 1. gr.
laganna þá þykir samkeppnisráði þó
að hér sé ekki um að ræða svo mikið
frávik að brotið hafi verið gegn 20.
gr. samkeppnislaga nr. 8/1993,“
segir í úrskurði samkeppnisráðs.
Aalborg Port-
land braut
ekki gegn
samkeppnis-
lögum